Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 5
Kári Wilhelm Johannson Merkur Vestur- Islendingur látinn KARI WILHELM Johannson, for- maður útgáfunefndar vestur- fslenzka blaðsins Lögberg- Heimskringla, er látinn. I blaðinu segir m.a., að hann hafi verið óskiptur stuðningsmaður þeirra málefna í Islenzku mannfélagi vestra, sem hann lét sér umhugað um, og hafi verið kosinn í mörg embætti því tengd um ævina. Lög- bergi-Heimskringlu hafi hann verið máttarstoð, og ötull fjáröfl- unarmaður fyrir blaðið, fyrir Bet- elstofnun og fyrir Fyrstu lút- ersku kirkjuna f Winnipeg. Þessi málefni bar hann mjög fyrir brjósti. Styrktarsjóður Lögbergs- Heimskringlu lifði á áhuga hans og dugnaði, en sá sjóður hefur að mestu haldið blaðinu við sfðast- liðin ár. Hann var formaður Bet- elnefndar árið 1965—71, stóð ár- um saman fyrir fjársöfnun til heimilanna á Gilmi og f Selkirk og gjaldkeri var hann í stjórnar- nefnd stofnunarinnar frá árinu 1971 og til dauðadags. Hann var vakinn og sofinn yfir velferð Bet- elheimilanna. Tvö ár var Wilhelm Johannson forseti fyrsta lúterska safnaðar- ins i Winnipeg, 1959 og 1960, og gekkst þá fyrir því að söfnuður- inn réðst í það að byggja við kirkj- una samkomuhtls og húsakynni fyrir sunnudagaskóla og var drif- fjöðrin í þeim framkvæmdum. Hann var einn af stofnendum og starfaði í Canada Iceland Found- ation. Ennfremur einn af stofn- endum Þjóðræknisfélags íslend- inga í Vesturheimi og virkur fé- lagi þess ævilangt, óg kjörinn heiðursfélagi þess. Kári Wilhelm Johannson var fæddur í Winnipeg 2. júli 1903, alinn upp á rammíslenzku menn- ingarheimili foreldranna Ás- mundar Péturs Johannsonar og Sigríðar Jónasdóttur, Ásmundur var oft á ferð milli fósturlandsins og föðurlandsins og fylgdi sonur- inn honum á einni slíkri ferð 1935. Hann nam verzlunarfræði og rak fyrir tækið Building Mec- hanics, sem einkasonur hans, Al- bertt Pétur var meðeigandi í. Hann kvæntist 1928 Maríu Val- gerði Mathews. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNI 1976 5 TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.