Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNI 1976 11 Reyðarfirði 13. júni. SJÓMANNADAGURINN hófst hér með messu i Búðareyrar- kirkju. Séra Sigurður H. Guðmundsson sóknarprestur messaði. Að guðþjónustunni lokinni var gengið út á lóð kirkjunnar, þar sem Hjalti Gunnarsson, for- maður Slysavarnardeildar- innar, ávarpaði viðstadda. ' ’""s ’MÉIniu. . Ii'i 1 mlliljli á M) Minnisvarði drukknaðra sjómanna afhjúpaður á sjómannadaginn. Minnisvarði drukknaðra sjó- manna afhjúpaður á Reyðarfirði Að því búnu var minnsvarði drukknaðra sjómanna afhjúpaður. Séra Sigurður minntist drukknaðra sjómanna og þeirra sem látizt hafa og sjómenn lögðu blómsveig að minnisvarðanum. Kl. 4 var skemmtidagskrá niðri við höfn. Þar fór fram róðrakeppni, björgunaræfing og blásinn var upp gúmibátur. Að endingu var lesið upp kvæði til sjómanna. Um kvöldið var dansleikur í félagsheimilinu. 17. júní hátíðin hófst einnig með guðþjónustu þar sem séra Sigurður messaði og voru tvö brúðhjón gefin saman. Eftir messu var farið í skrúð- göngu upp á íþróttavöll og riðu hestamenn fyrir skrúðgöng- unni. Margt var til gamans gert, enda veður gott, glaðasólskin og blíða. Selt var kaffi í félags- heimilinu. Lauk þessari hátíð með diskóteki í félagsheimilinu um kvöldið. Þess má geta að kirkjan hér var máluð í vetur, settir nýir bekkir í hana og hún teppalögð. Hjónin Gréta og Jón Björnsson máluðu og skreyttu kirkjuna. Danski útvarpsdrengja- kórinn heimsækir Island í ÞESSARI viku er væntanlegur hingað til lands danski útvarps- drengjakórinn og mun hann halda almenna tónleika I Norr- æna húsinu laugardaginn 26. júní kl. 17.00. Kórinn mun flytja ýmis norræn lög, ný og gömul, en einnig verða á dagskránni lög frá hinum Sérstæð sýning t AFGREIÐSLUSAL og biðstofu Alþýðubankans að Laugavegi 31 hefur verið opnuð sýning á ljós- myndum af litlum skúlptúrverk- um, höggnum úr tré. Höfundur verkanna, sem er sænskur, hefur hlotið nafnið Döderhultaren, en hið rétta nafn hans er Axel Ro- bert Petersen. Strax á æskuárum hafði hann geysilegan áhuga á tréskurði, og brátt hlaut hann ýmsar viður- kenningar fyrir verk sín. M.a hef- ur danski rithöfundurinn Broby- Johansen lýst honum sem mesta afburðamanni í höggmyndalist á Norðurlöndum bæði fyrr og siðar og nú eru verk hans á mörgum helztu listasöfnum Norðurlanda og hafa verið sýnd víða um heim. Döderhultaren andaðist árið 1925. Sýningin er hingað komin fyrir atbeina Norræna Myndlistar- bandalagsins og er opin á af- greiðslutima Alþýðubankans næstu tvær vikur. mörgu löndum sem þeir hafa heimsótt. Kórinn hefur ferðazt viða um heim og hvarvetna hlotið mjög góða dóma og eru drengirnir álitnir góðir fulltrúar lands síns. Aðgöngumiðar verða seldir við sem væntanlegur er hingað til lands. gasfylling á allar stærðir gashylkja GASBYRGÐASTÖÐ SÍMI 81675 OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8 — 12 og 13 — 18 LAUGARDAGA 9 — 12 -v UMBODS HEILDV ERZLUN Vandaöar og þægilegar fótlaga leðurmokkasínur Litur brúnt og svart, hrágúmmísóli. Verð kr. 6.580 Stærðir 41 —45 Póstsendum. BOKBANDSVERKSTÆÐI Við höfum tekið að okkur söluumboð fyrir Stálvirkjann hf á bókagerðar- vélum, sem fyrirtækið framleiðir. Eigum nú fyrirliggjandi eftirtaldar vélar Tvivirka bókapressu Kjölrúnningarvél Fotíuskera Límvél Handpressu Blokkunarkassa tvær stærðir Vélarnar eru til sýnis daglega frá mánudegi til föstudags kl 1 0— 1 2 og BORGARFELL HF. Klettagarðar 1, sími 86153 Ödýr fjölskylduskemmtun Fjórdungsmót sunnlenzkra hestamanna \ Rangárbökkum Hellu, stendur yfir. Inngangur aöeins kr. 1500,- rianslpilfir ^ara<^ls HvoH í kvöld og annaö kvöld. UanSieiKir Hl/ómsveit Þorstems Guðmundssonar, í Hellubíó annað kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.