Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNI 1976 35 ÞRÓTTARAR HJÁLP LEGIR VÍKINGUM Landsliðið I golfi sem fer til Luxemborgar I næstu viku, Geir Svansson, Tony Bacon golfkennari, Sigurður Thorarensen, Ragnar Olafsson, Einar Guðnason og Þorbjörn Kjærbo. A myndina vantar Öttar Yngva- son. (Ljósm. Friðþjófur). Björgvin gefur ekki kost á sér ti landsleiksins gegn Luxemborg LANDSLIÐIÐ ( golfi sem keppir við Luxemborg ytra dagana 3.—4. júlf var fyrir nokkru valið og skipa það 4 kylfingar úr Golfklúbbi Reykjavfkur og 2 frá Golfklúbbi Suðurnesja. 1 liðinu verða þeir Sigurður Thorarensen, Ragnar Ólafsson, Geir Svansson, Óttar Yngva- son, Einar Guðnason og Þorbjörn Kjærbo. EFTIR 14 mínútna leik höfðu Víkingar sett tvö mörk í viðureigninni við Þrótt í gærkvöldi og fleiri mörk voru ekki skoruð í þessum leik. Víkingarnir voru vel að 2:0 sigri sínum komnir og í sem fæstum ÁSGEIR ekki með á móti Finnum ÁSGEIR Sigurvinsson mun ekki leika me8 islenzka landsliðinu gegn Finnum I Helsinki 14. júli næstkom andi. KSÍ barst i gær skeyti frá Standard Liege þar sem þetta var tilkynnt og sagt að þar sem Standard ætti að leika 11. og 17. júlí gæti Ásgeir ekki einnig leikið með islenzka landsliðinu þann 14. Er þetta mikil blóðtaka fyrir islenzka landsliðið og auk Ásgeirs er Ijóst að Gisli Torfason mun ekki leika gegn Finnunum að sögn Tony Knapp. Þá er óvist hvort Ólafur Júliusson getur leikið leikinn svo Ijóst má vera að Knapp stendur frammi fyrir þeim vanda að finna miðju menn til þessa leiks. Stórt tap körfuknatt- leiksmannanna, en eru þó ánægðir með leikinn ANNAR leikur körfuknatt- leikslandsliðsins í for- keppni ÓL í Hamilton í Kanada fór fram í fyrra- kvöld og var gegn Brasilíu- orðum sagt þá var leikur þessi tvö núll. Lítið sást af fallegri knatt- spyrnu, það var helzt frá Víking- unum í fyrri hálfleiknum, en sið- ari hálfleikurinn einkenndist af miklu miðjuþófi þar sem hvorki gekk né rak hjá liðunum. Aðstæð- ur voru erfiðar til þess að sýna góða knattspyrnu í gærkvöldi, hif- andi rok og rigning lengst af leik- tímanum. Það er eins og leiðin- legt veður fylgi leikjum Víkinga og Þróttara þegar liðin leika í Reykjavik. Fyrra mark leiksins kom strax á 5. minútu leiksins og var það hálf slysalegt. Vikingar fengu auka- TÓMAS Tómasson var kjörinn formaður Blak- mönnum. Orslitin urðu 100 stig gegn 62 — að sjálf- sögðu Brasilíumönnum í vil, en lið þeirra er eitt hið sterkasta í heiminum. Voru forystumenn íslenzka liðsins nokkuð ánægðir með að fá ekki stærri skell í leiknum. Jón Sigurðsson skoraði flest stig fyrir ís- land, eða 17. spyrnu rétt fyrir utan vítateig og var gefið inn i teiginn. Gunnar Ingvason virtist ætla að skalla knöttinn yfir markið, en ekki tókst betur til en svo, að knöttur- inn fór í mannlaust markið, þar sem Jón markvörður var kominn út i teiginn. A 14. mínútu leiksins skoruðu Vikingarnir aftur og var Eirikur Þorsteinsson nú að verki. Eftir hornspyrnu Stefáns barst knött- urinn um í teignum, þar til Eirík- ur náði að skjóta og inn fór knött- urinn þó litlu munaði að Guð- mundi Gfslasyni tækist að bjarga á línu. Það var enginn glæsibrag- ur yfir mörkum Víkinga í þessum leik, en þau færðu liðinu tvö dýr- mæt stig. I fyrri hálfleiknum sóttu Vikingar mun meira, enda léku þeir þá undan vindi. I seinni hálfleik jafnaðist leikurinn og skoraði Stefán Halldórsson þá eitt mark fyrir Viking til viðbótar, en það var dæmt áf vegna rangstöðu. Beztu menn liðanna að þessu Framhald á bls. 20 sambands tslands á árs- þingi sambandsins um síð- ustu helgi. Ingimar Jóns- son, sem verið hefur for- maður BLÍ undanfarin ár, gaf ekki kost á sér til end- urkjörs. Starfsemi Blaksambandsins hefur aukizt mjög á undanförnum árum og þá sömuleiðis kostnaður- inn, sem er samfara starfseminni. Talsvert tap varð á rekstri sam- bandsins siðastliðið ár og nam það rúmum 700 þúsund krónum. Stærsti gjaldaliðurinn var kostn- aður vegna þátttöku landsliðsins i Islandsmeistarinn Björgvin Þorsteinsson var valinn til að fara þessa ferð með landsliðinu, en hann baðst undan þvi vegna anna. forkeppni Ólympíuleikanna á ítalfu. Mörg mál voru til umræðu á þinginu og sat það m.a. Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri íþróttasambandsins. Kastaðist nokkuð i kekki á milli Hermanns og Ingimars Jónssonar á þinginu er þeir ræddu um Ólympíumál- efni. I stjórn Blaksambandsins voru kjörin þau Tómas Tómasson for- maður, Guðjón ÓSkarsson gjald- keri, Guðmundur Pálsson og Þor- björg Aðalsteinsdóttir. I vara- stjórn voru kosnir Albert Valde- marsson, Stefán Tómasson og Halldór Jónsson. Björgvin kom heim frá Sviþjóð á þriðjudaginn en þar tók hann þátt I sterku móti áhugamanna með góðum árangri. í haust er svo ólíklegt annað en að Björgvin verði i landsliðinu á Norðurlanda- mótinu og i október er mikil golf- keppni í Portúgal, sem kalla má Ólympíuleika kylfinga, og líklegt er að Björgvin keppi þar. Landsleikurinn við Luxemborg er fyrsti landsleikur islenzkra kylfinga, sem ekki er liður í ein- hverju stórmóti, eða settur á i sambandi við Norðurlanda- eða Evrópumót. Er ætlunin að leikur sem þessi verði árlegur viðburður og fari þá til skiptis fram i lönd- unum. Hafa Flugleiðir stutt við bakið á Golfsambandinu í sam- bandi við ferðir fram og til baka. Helmingur landsliðsins fer utan á þriðjudaginn, en hinir á fimmtu- dag. Fararstjórar verða þeir Konráð Bjarnason og Sverrir Ein- arsson, en Páll Ásgeir Tryggva- son, forseti Golfsambandsins, verður einnig með í förinni. VlKINGUR: Diðrik Ólafsson 2, Ragnar Gfslason 2, Magnús Þor- valdsson 2, Helgi Helgason 2, Rðbert Agnarsson 2, Eirfkur Þorsteinsson 2, Gunnlaugur Kristfinnsson 1, Adolf Guðmundsson 1, Óskar Tómasson 3, Jóhannes Bárðarson 1, Stefán Halldórsson 2. ÞRÓTTUR: Jón Þorbjörnsson 2, Ottó Hreinsson 1, Asgeir Arna- son 1, Guðmundur Gfslason 2, Leifur Harðarson 1, Aðalsteinn örnólfsson 1, Þorvaldur I. Þorvaldsson 1, Halldór Arason 1, Baldur Hannesson 2, Arsæll Kristjánsson 2, Jóhann Hreiðarsson 2, Sverrir Brynjólfsson 1 (v). Dómari: Sævar Sigurðsson 2. Nýr formaður blakmanna Heimsmetum fagnað Það er eðlilegt að sundfólkið á þessum myndum fagni innilega. Shirley Babashoff og Brian Goodell hafa bæði nýlokið við að setja heimsmet í sínum greinum. Á úrtökumóti Bandaríkjanna fyrir Ólympíuleikana í Montreal setti Goodell heimsmet bæði í 400 og 800 metra skriðsundi og er myndin tekin að lokinni keppninni í 400 metra sundinu, en hann fékk tímann 3:53.08. Babashoff setti einnig met í 800 metra skriðsundi og fékk tímann 8:39.63. Breyttur og þreyttur JOE Frazier er breyttur frá fyrri tfð á þessari mynd og þar að auki er hann bæði þreyttur og sár eftir barsmfð George Foremans f hnefa- leikahringnum fyrir nokkru sfðan. Foreman sigraði á tæknilegu rothöggi f fimmtu lotu og hafði hann þá haft nokkra yfirburði alla lotuna, eftir góða byrjun Fraziers. Joe Frazier lýsti því vfir að keppninni lokinni að nú væri nóg komið, hann væri hættur að keppa í hnefalejkum. George Foreman mun hins vegar mæta Muhammed Ali. eða Cassius Clav, f haust f keppni um heimsmeistaratitilinn í hnefa- leikum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.