Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNI 1976
Andrés Jónsson
—Minningarorð
Fæddur 10. október 1922
Dáinn 18. júnf 1976.
Á föstudagsmorEuninn fékk ég
þær fregnir í vinnuna, aö hann
Addi móóurbróöir minn hefói
látizt þá um morguninn. Hann var
á leiðinni til vinnu sinnar, þegar
hann kenndi lasleika. sem dró
hann á örstuttri stundu til bana.
Eg trúði naumast fregninni,
þegar mér var sögð hún, og í
rauninni á ég afskaplega bágt
með að trúa henni enn. Ég hafði
rætt við Adda frænda i síma
kvöldið áður, og þá var hann heil-
birgður og hress að vanda. Ég
trúði þvi ekki, að svo fljótt gætu
skin og skúrir skipzt á í lífi okkar.
Ég hélt ekki, að svo fljótt gæti
hinn mikli missir dunið yfir, svo
óvænt og snögglega.
Én enda þótt söknuðurinn ríki
nú í huga okkar eftirlifandi ást-
vina hans, eru endurminningrnar
um hann Adda frænda svo
margar og svo þrungnar lífi og
ástríki, að þær eru ómetanlegur
fjársjóður eftirlifendum. Ég á
honum svo ótrúlega mikið að
þakka, ekki aðeins vegna min,
sem hann var í senn faðir og
vinur, heldur og fjölskyldu
minnar, eiginkonu og sonar, sem
hann reyndist svo vel í hvívetna.
Hafi Addi frændi átt sér
eitthvert orðtak í lífinu, sem hann
lifði eftir í raun og sannleika, þá
var það þetta: Að gera jafnan
öðrum eitthvað gott. Þessu
kynntust allir þeir, sem nutu
hjartahlýju hans og umhyggju, og
þessu kynntist ég sjálfur
svo mætavel. að mér l'innst ég
verða að minast sérstaklega á það.
Andrés móðurbróðir minn er sá
maður í lifi mínu, sem mér finnst
ég eiga hvað mest að þakka. Móðir
min hélt heímili fyrir þá þrjá
bræður sína, Andrés, Finnboga og
Leif. Þarna ólst ég upp og fyrir
ymissa hluta sakir var það Addi
l'rændi, sem átti hvað mestan þátt
í að móta drengslundmína af góð-
vilja sínum og skilningi.
Hann ræddi hin ýmsu mál við
mig, skemmtilega og af víðsýni,
hann var jafnan skilningsríkur á
þarfir minar, og hann Ieiddi mig
fyrstu sporin í svo mörgu tilliti.
Þeir eiginleikar voru mest
áberandi í fari Adda frænda, sem
löðuðu börn að honum, engu síður
en þá fullorðnu, og sem voru
honum að skapi og hann umvafði
+
Móðir okkar
INGIBJORG OLAFSDOTTIR,
frá Bólstaðahlíð, Vestmannaeyjum,
andaðist að lieimth sínu þriðjudaymn 22 júní
Börnin.
+
KRISTIN ERLENDSDOTTIR
frá Sturiu Reykjum
erður jarðsunym frá Akraneskirkju lauyardaymn 26 júnr kl 13 30
Aðstandendur
+
Elskuleg eigmkona mrn, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURLÍNA SCH. HALLGRÍMSDÓTTIR
Stórholti 30
erður jarðsunym laugardaymn 26 júní kl 10 30 frá Foss oyskirkju
Knstmn M Þorkelsson
Sigþóra Sch. Kristinsdóttir Jón Guðnason
Margret Sch. Kristinsdóttir,
Þorkell Kristinsson,
Hulda Sch. Kristinsdóttir,
Anna Sch. Kristinsdóttir,
Sigurlína K. Elfasdóttir.
Barnabörn og barnabarna
Ingolfur Jokulsson
Svava Olafsdóttir,
Snæbjörn Kristjánsson,
Hallgrímur Sch. Kristinsson,
Jón Elltonsson.
+
Inmlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og inarhug ið andlát og útför,
INGIMUIMDAR GUOMUNDSSONAR,
Skaftafelli 2, Seltjarnarnesi.
Olafia Bjarnadóttir,
Bjarni Ingimundarson,
Elin Gústafsdóttir
og barnabörn.
Lokað á morgun,
laugardag
vegna jarðarfarar Sigurlínu Sch. Hallgríms-
dóttur
Hjólbarðaverkstæðið Múla
v/ Suðurlandsbraut.
Halldór Gestsson
—Minningarorð
fólkið með hjartahlýju sinni, það
yngra sem það eldra. Sonur minn
átti marga ánægjustundina hjá
honum, ekki síður en ég á hans
aldri.
Nú, þegar kveðjustundín
rennur upp, er söknuðurinn samt
sárastur hjá móður minni, því að
ástríki var innilegt með þeim syst-
kinum, og ég veit, að þakkir
hennar fyrir samveruna eru inni-
legar og hlýjar.
Addi frændi lét ekkert ógert til
að gera öðrum gott, hjálpa öðrum
og auðsýna öðrum vináttu. Það er
gott að minnast manna eins og
Adda frænda, og yfir landamærin
miklu, sem aðskilja heimana,
fylgja honum hugheilar kveðjur
og þakklæti fyrir samverustund-
irnar hér á jörðu, frá okkur
öllum, sem nutum þeirrar
hamingju að kynnast honum.
Ingibergur Finnbogi Gunnlaugs-
son.
«Að hryggjast or jíloðjasl hór
um fáa daga
að heilsast og kveðjast, það
er Iffsins saga“.
5. september 1925, fyrir rúmum
50 árum, fæddist þeim hjónum
Elimundu Helgadóttur og Gesti
Sigfússyni sonur sem við skirn
hlaut nafnið Marías Halldór. Mik-
il hefur gleðin verið yfir fyrsta
syninum. — Hann fæddist og ólst
upp á Isafirði í glöðum systkina-
hóp. Síðan tóku störfin við, sem
snemma byrjuðu hjá þessari kyn-
slóð, og áfram dvaldist hann á
Isafirði. Þar stofnaði hann sitt
eigið heimili er hann 11. okt 1946
kvæntist eftirlifandi konu sinni,
Kristjönu Halldórsdóttur frá
Svarthamri. Það var stoltur faðir
sem sýndi mér litlu dæturnar sín-
ar, sem fæddust 4. apríl fyrir 30
árum. Þau hjón eignuðust 7 börn
alls, 3 dætur og 4 syni, sem öll eru
upp komin og búin að stofna sín
eigin heimili, — nema yngsta
dóttirin, Inga, litla, sem er aðeins
15 ára gömul. Þrír synirnir eru
búsettir á Isafirði en hin hér í
Reykjavík. — Síðustu árin voru
þau hjónin einnig búsett hér í
borg. Én oft lá leiðin vestur og á
síðastliðnu ári fór Haddi vestur,
fyrst til að kveðja sjúka móður
sýna hinztu kveðju, og síðan í
ágúst fylgdi hann föður sínum
þessa sömu leið, þá sjálfur búinn
að taka þann sjúkdóm sem átti
eftir að reynast svo afdrifaríkur.
Því kom það okkur ekki á óvart
sem bezt þekktum til, er hann 30.
marz s.I. fluttist á nýtt tilverustig.
En erum við nokkurntíma viðbú-
in kveðjustundinni, þó að sjúk-
+
Maðunnn minn oy faðir okkar
GUNNAR HANNESSON,
framkvæmdastjóri,
Miklubraut 7.
lézt á Landakotsspítala. mið. ikudaymn 24 júní
Margrét Kristjánsdóttir,
Gunnar Kr. Gunnarsson,
Hannes Gunnarsson,
Kristrún Gunnarsdóttir.
+
Móðir okkar
KIRSTEN POULSEN,
sem lést á elli oy hjúkrunarheimilmu Grund 1 9 júní,
lauyardagmn 26 júní frá Dómkirkjunm kl 10 30
Edith Moller,
Esther Munro,
Frtða Thorup.
erður jarðsungm
+
Útför mannsms míns
SIGURLINNA PÉTURSSONAR,
fer fram frá Garðakirkju laugardagmn 26 júní kl 1 1 f.h.
Fyrir hönd barna og annarra andamanna
Vilhelmína Ólafsdóttir.
+
Þökkum mmlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför,
föður míns, og bróður okkar,
HÖSKULDAR SIGURGEIRSSONAR,
Sigurgeir Höskuldsson,
Guðrún Sigurgeirsdóttir,
Bjami Sigurgeirsson,
Arnbjöm Sigurgeirsson.
+
Inrulegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
VALDIMARS GUÐMUNDSSONAR,
f.v. skipstjóra og bónda Varmadal
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunar- og starfsfólki öllu á Hrafmstu
fyrir frábæra umönnun og hlýhug I hans garð
Unnur Valdimarsdóttir, Jón Jónsson,
Hrefna Valdimarsdóttir, Freysteinn Jónsson,
Þorsteinn Þórðarson, Vilborg Sigþórsdóttir,
Ásta G. Davidson,
og barnabörn.
dómurinn virðist vera banvænn?
Þau voru ekki alltaf rfk af ver-
aldlegum gæðum þessi hjón, en
erum við ekki ríkari að leiðarlok-
um ef við eigum andlegan fjár-
sjóð? Ekki förum við til nýrra
heimkynna með þessi veraldlegu
auðæfi. Þess vegna hefur mér
alltaf fundizt þau rík. Ég veit þess
vegna, að Jana mín og börnin
þeirra eiga svo margar góðar
minningar til að orna sér við. Það
eigum við lika öll mágafólkið. Ég
get ekki hugsað mér hjálplegri
mann en Haddi var. Tengdafor-
eldrum sínum og öllu mágafólki
var hann alltaf veitandi en ekki
þiggjandi.
Með þessari síðbúnu kveðju
langaði mig því að þakka sam-
verustundirnar við mig og mína
fjölskyldu, því hvað er meira
þroskandi og þakkavert en að
eiga samferðafólk með jafn glaða
og jákvæða lifsskoðun sem Haddi
hafði. Sfðasta ferðin vestur var 6.
apríl s.l. þá tók fæðingarbærinn
Isafjörður móti þessum syni sín-
um í sínum fegursta skrúða. Jarð-
neskar leifar hans voru lagðar við
hlið foreldra hans.
Að lokum óskum við Hadda
allra guðsblessunar í sínum nýju
heimkynnum, einnig konunni
hans, börnum og barnabörnum,
systkinum og öllum tengdabörn-
um hans og öðrum vandamönn-
um, ekki sízt yngstu dótturinni,
sem var svo dugleg, og litla
drengnum sem kom um leið og afi
fór.
„Margs er að minnast, margs
er a<> sakna
Guð þerri trega tárin stríð.“
Sigurborg Gfsladóttir.
+
Eigmmaður minn,
DANÍEL ÓLAFSSON,
frá Tröllatungu,
andaðist á Ingunnarstöðum-23.
júní
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Árnadóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
GUÐNÝ MAGDALENA
BORGESEN.
fædd Andrésdóttir,
1.6. 1903
sem lézt 18. júní 1976. verður
jarðsett frá Bispebjerg Krema
torium, Kaupmannahöfn, litla sal
kl 16 i dag föstudaginn 25.
juni.
Ib og Inge,
Kurt og Anni,
og barnabörn.
+
Systir mín
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
frá Hafursstöðum
andaðist á hjúkrunarheimilinu
Grund 23 júní
Aðalheiður Jónsdóttir.