Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNI 1976
3
Flutningaskipið Suðurland. Mvndin er tekin nýlega í Þorlákshöfn er það flutti saltfisk til Portúgals_
Ljósm.: 01. K.M.
Olafur
Jóhannesson:
Reynt að auka
innflutning frá Portúgal
Viðskiptaráðuneytið hefur
verið að reyna að auka viðskipt-
in milli tslands og Portúgals
eins og tök hafa verið á — sagði
Ólafur Jóhannesson, viðskipta-
ráðherra, er Mbl. spurði hann f
gær á hvern hátt væri hægt að
brúa það mikla bil, sem er milli
þess, sem tslendingar kaupa
frá Portúgal og Portúgalar aft-
ur kaupa af Islendingum.
Ólafur sagði að m.a. hefði
verið í athugun að auka víninn-
flutning en hann kvað ýmsa
agnúa hafa verið á þvi. Ölafur
sagði jafnframt að ef til vill
væri ekki allur sannleikurinn
fólginn i þeim tölum, sem birt-
ar hefðu verið um vöruskipta-
jöfnuð landanna, vegna þess að
sumar vörur framleiddar í
Portúgal kvað hann kynnu að
vera fluttar inn frá öðrum lönd-
um. Nefndi hann sem dæmi
Svíþjóð og í slíkum tilvikum
væri innflutningurinn færður á
skýrslur um innflutning frá
Svíþjóð. Þó svo væri kvað Ólaf-
ur mismuninn mikinn og væri
nauðsynlegt að minnka hann.
Gunnar II. Hálfdanarson, viðskiptafra‘ðingur.
V er ðbréf am ar kaður-
inn tók til starfa í gær
FJARFESTINGAFÉLAG Islands
h.f. opnaði f gær verðbrífamark-
að og mun fyrst um sinn aðallega
verzla með verðtryggð spariskírt-
eini rfkissjóðs og Happdrættislán
ríkissjóðs. Ætlar fclagið að að-
stoða eigendur slíkra bréfa við að
finna kaupendur að þeim og
kaupendur við að finna þá, sem
vilja selja. Verðbréfamarkaður
Fjárfestingafélagsins verður
algjörlega opin stofnun og þar
munu viðskipti með verðbréf fara
fram fyrir opnum tjöldum, eins
og forstöðumaður Verðbréfa-
markaðsins, Gunnar H. Hálfdan-
arson, viðskiptafræðingur, sagði í
viðtali við Mbl. í gær.
Einn dagur er allt of skammur
tfmi til þess að unnt sé að ræða að
nokkru gagni um rekstur slíks
fyrirtækis sem verðbréfamarkað-
arins. Gunnar sagði að upphafið
að starfseminni yrði verzlun með
spariskírteini rfksisjóðs og happ-
drættislán ríkissjóðs. Einnig
myndi verðbréfamarkaðurinn
kappkosta að auka viðskipti með
vel tryggð skuldabréf.
Gunnar H. Hálfdanarson kvað
það vera langtímamarkmið fyrir-
tækisins, að það hefði viðskipti
með hlutabréf um leið og skilyrði
fyrir slíkri verzlun hefðu skapazt.
Er markmiðið að þá verði til styrk
og traust stofnun sem gæti tekið
að sér slik viðskipti. Fjárfestinga-
félag tslands h.f., verðbréfamark-
aður, er til húsa á 2. hæð í
Iðnaðarbankahúsinu og verður
fyrst um sinn opinn frá kl. 13 til
kl. 16 alla virka daga.
A 3ja hundrað
tonn af humri
SAMKVÆMT fréttum úr
tveimur helztu verstöðvun-
um — Þorlákshöfn og
Höfn í Hornafirði — er
humaraflinn nú orðinn
nokkuð á þriðja hundrað
tonn.
Að því er Morgunblaðinu
var tjáð í Þorlákshöfn hef-
ur þar verið sæmilegur afli
hjá bátunum undanfarið
en þó hefur bræla nokkuð
hamlað veiðum í þessari
viku. I Þorlákshöfn hafa
landað 30—35 bátar en þar
af eru innan við 10 heima-
bátar, og hafa þeir yfirleitt
komið aö landi með 1—2
tonn. Heildaraflinn sem
kominn er á land í Þorláks-
höfn er orðinn um 110
tonn, sem er eitthvað
meira en í fyrra, enda
bátar nú töluvert fleiri.
Aflanum er öllum ekið
burtu — til vinnslu í stöðv-
um aðallega á Suðurnesj-
um.
í Höfn í Hornafirði er
humaraflinn þar orðinn
svipaður og í Þorlákshöfn
eða rétt á annað hundrað
tonn. Þar hafa 16 bátar
lagt upp og þeir verið að fá
ágætisafla undanfarna
daga. Má til dæmis nefna
að Æskan landaði nýverið
um 20 tunnum af humar og
annar bátur kom að með 16
tunnur af humri og 10 tonn
af fiski.
Metvertíð á grá-
sleppu
— búið að flytja út
15.500 tunnur
UM þessar mundir er búið að
flytja út um 15.500 tunnur af grá-
sleppuhrognum, og bendir flest
til þess að framleiðslan á vertíð-
inni nú verði svipuð eða ívið
meiri en i fyrra, sem var metár.
Þá voru fluttar út um 17.200 tunn-
ur af hrognum, að þvf er Jón Þ.
Olafsson, skrifstofustjóri Fram-
leiðsluráðs sjávarútvegsins, tjáði
Morgunblaðinu i gær.
Jón sagði, að grásleppuveiðinni
væri nú lokið norðanlands, þ.e. á
svæðinu frá Ströndum og að Þist-
ilfirði, en þaðan kæmi venjulega
um 70% framleiðslunnar. Hins
vegar væri enn verið aö veiðum
sunnanlands — í Faxaflóa,
Breiðafirði og á Vestfjörðum og
yrði verið að fram undir miðjan
júli.
Að sögn Sigurðar Markússonar,
framkvæmdastjóra sjávarafurða-
deildar SlS, er framleiðslu á
hennar vegum að mestu lokið og
er verulegur hluti framleiðslunn-
ar farinn til útlanda. Bjóst hann
við að framleiðslan nú yrði svipuð
og í fyrra og jafnvel heldur meiri
eða i kringum 7 þúsund tunnur.
Framleiðslan er að langmestu
leyti flutt til tveggja landa —
Danmerkur og V-Þýzkalands.
Hann kvað verðið í ár hafa reynzt
gott eða í kringum 230 dollarar
fyrir tunnuna og var það 5 dollara
hækkun frá síðasta ári.
I
Dagný með
12 tonn
af rækju
SKUTTOGARINN Dagný frá
Siglufirði landaði i gær um 12
tonnum af rækju á Dalvik en
skipið er sem kunnugt er á
djúprækjuveiðum við Kol-
beinsey.
Að sögn Snorra Snorrasonar,
útgerðarmanns á Dalvik, má
telja þetta þokkalegan árangur
en aflinn fékkst svo til allur
síðasta hálfan annan sólar-
hringinn áður en skipið kom
til hafnar en það hefur verið á
miðunum frá því á sunnudag-
inn. Lentu skipverjar í nokkr-
um erfiðleikum í fyrstu og
þurftu að gera lagfæringar á
veiðarfærum. Guðni Þorsteins-
son, fiskifræðingur, er um boð
í Dagnýju og fylgist með veið-
unum.
Engin önnur skip eða bátar
eru á Kolbeinseyjarmiðunum
um þessar mundir, að sögn
Snorra, en sjálfur er hann ný-
lega hættur veiðum á báti sín-
um. Hann kvað árangur Dag-
nýjar i sjálfu sér ekkert betri
en náðst hefði á litlu bátunum,
en hins vegar hlyti þessi veiði
Dagnýjar að sýna mönnum
fram á að unnt væri að stunda
þessar rækjuveiðar á stærri
skipum.
Snorri hefur sjálfur sótt um
að fá heimild og fyrirgreiðslu
til smiði á um 300 tonna rækju-
veiðiskipi, en hann kvað treg-
lega ganga að fá svör frá
stjórnvöldum. Snorri á kost á
að fá slíkt skip smíðað í Eng-
landi og yrði afgreiðslufrestur
þess liðlega eitt ár.
Hafrannsóknastofnunin
mun hafa ráðið tvö önnur skip
á landinu til^að reyna djúp-
rækjuveiðar með sama hætti
og Dagný.
Nema við
Dramaten
í Stokkhólmi
TVEIR íslendingar munu nema
við Dramatiska Institut í Stokk-
hólmi n.k. vetur, en mjög erfitt er
að fá skólavist þar vegna þess að
fáir nemendur eru i skólanum, en
margir umsækjendur. Þeir sem
hafa nú fengið skólavist eru Hall-
mar Sigurðsson frá Húsavík og
Lárus Óskarsson. Hallmar mun
nema leikhússtjórn og leikstjórn,
en hann var annar tveggja af Iið-
lega 30 umsækjendum sem kom-
ast að og Lárus mun nema kvik-
myndaleikstjórn, en hann var
einn þriggja sem komust að af 70
umsækjendum. Nám við skólann
tekur tvö ár.
BÍLASÝN/NG
*
A morgun kl 10—5 sýnum vid
nýjan g/æsi/egan Fíat-bí/
FÍA T125P
Rúmgódur og ódýr bíH kostar
aóeins kr. 1175.000.- (Kynningarverd)
EINKAUMBOÐ A ISLANDI
Davíð Sigurðsson hf
SIÐUMULA 35, SIMAR 38845 — 38888