Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNÍ 1976 Leiðinlegir Reykja- víkurleikar en von um betri tíð á næstunni „Fann engan samherja til að gefa á. svo éa varð að leika áfram" — ÉG fékk knöttinn við miðlinu og fann engan samherja til að gefa hann til, svo ég var tilneyddur til að leika áfram og á nokkra andstæðinga, sagði Karl Þórðarson, bezti maður vallarins í leik Akurnesinga og Keflvíkinga á Akranesi á miðvikudagskvöldið, er hann var spurður um aðdraganda fyrsta marksins í leiknum. — Þegar ég var kominn að vitateignum, hélt hann áfram, kom Ástráður á móti mér og ætlaði að hreinsa frá, en ég fékk knöttinn i lærið og náði honum aftur og skaut i mannlaust markið, þar sem Þorsteinn kom út á móti mér. — Karl lék að þessu smni sinn 101 leik í meistaraflokki og það hefur ekki gerzt oft að hann hefur getað fagnað marki, sem hann hefur sjálfur skorað, eða eins og hann sagði Það má telja þau á fmgrum annarrar handar Hins vegar eru margar sendingarnar, sem hann hefur lagt fyrir fætur samherja sinna, sem hefur verið skorað úr, enda Karl Þórðarson fékk sendingu út til vinstri frá Árna Sveinssyni og brunaði framhjá Jóni Ólafi. Lék hann að mark- inu. en þá kom Einar Gunnarsson aðvífandi, náði knettinum og ætlaði að gefa hann til Þorstems markvarðar Karl komst mní sendinguna og ætlaði að skjóta. en þá krækti Einar fyrir hægri fótinn á honum, þanmg að hann tris Jónsdóttir hefur fellt rána og er súr á svipinn. Þaó var heldur ekki yfir miklu aó gleðjast á Reykjavíkurleikunum. (Ijósm. Frióþjófur). HRÚTLEIÐINLEGIJM Reykjavíkurleikum í frjálsum íþróttum lauk í f.vrrakvöld og eins og fyrri dag keppninnar var þá fátt sem vljaði sárafáum áhorfendum. Beztum árangri náði Bjarni Stefánsson í 400 metra hlaupi er hann setti nýtt vallarmet á 47.8 sekúndum og Ingunn Einarsdóttir, einnig í 400 metra hlaupi, en hún setti nýtt íslandsmet, fékk tímann 57.2 sek. og bætti eigið met um sex sekúndubrot. Karl Þórðarson skorar fyrsta markið f leik lA og IBK, en leikurinn var 101. meistaraflokksleikur Karls. Á því hefur verið tönnlazt í allt vor að þetta eða hitt frjálsíþrótta- mótið hafi verið sviplaust vegna þess hve margir íslenzkir frjáls- íþróttamenn stundi æfingar og keppni erlendis. Þannig var þetta einnig á Reykjavíkurleikunum, nokkrir beztu mennirnir dvelja enn við æfingar ytra, en von er á sumum þeirra heim á næstunni og væntanlega verða öll þau beztu með á Kalottkeppninni i byrjun júlímánaðar. Þá ætti aftur að geta orðið gaman aö islenzkum frjáls- íþróttum og sterkir einstaklingar eins og Erlendur, Hreinn, Óskar, Sigurður, Bjarni, Agúst, Stefán, Lilja, Ingunn, Erna, Þórdís og fleiri ættu að geta sýnt frændum okkar frá hinum Norðurlöndun- um að íslenzkar frjálsíþróttir eru i mikilli framför. Hæpið er þó að einn fremsti stökkvarinn okkar geti sýnt það sem í honum býr. Friðrik Þór Ósk- arsson varð nefnilega fyrir því óhappi á seinni degi Reykjavikur- ieikanna að gömul meiðsli tóku sig upp og verður hann sennilega frá keppni um einhvern tíma. Það er sorglegt fyrir Friðrik ef hann missir mikinn tíma frá keppni, vegna þessara meiðsla, en fáir íþróttamenn hafa lagt eins mikið á sig við æfingar og einmitt Frið- rik Þór. Hafði hann ætlað sér að ná Olympíulágmarkinu á mótum í Skotlandi eða í Noregi í lok mán- aðarins en af því verður tæplega. Bjarni Stefánsson heldur hins vegar til Skotiands í dag og ekki er óliklegt að honum takist annað- hvort þar að ná Ólympíulágmark- inu eða þá á Bislett-leikunum í Ósló í næstu viku. Bjarni er greinilega að komast í mjög góða þjálfun og er til alls líklegur. Sigurvegarar á seinni degi Reykjavíkurleikanna urðu eftir- talin: Stangarstökk: Valbjörn Þorláksson 4.20 m. Þrístökk: Frið- rik Þór Óskarsson 14.50 m. 1500 m hlaup: Willi Forneck 4:11.1. Langstökk kvenna: Maria Guð- johnsen 5.43 m. Kringlukast: Hreinn Halldórsson 51.96 m. 100 m hlaup kvenna: Ingunn Einars- dóttir 12.6 sek. 1500 m kvenna: Thelma Björnsdóttir 5:26.7. 4 x 100 m hlaup kvenna: Sveit IR 50.8. 400 m hlaup kvenna: Ingunn Einarsdóttir 57.2 sek. 400 m hlaup: Bjarni Stefánsson 47.8 sek. —áij er það aðalsmerki Karls sem knatt- spyrnumanns að leika fyrir liðið, en ekki sjálfan sig Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Akurnesinga, en eftir gangi leiksins hefði ekki verið ósanngjarnt, að mörkin hefðu verið fleiri því tvisvar björguðu Keflvikingar á linu, auk þess sem Þor- steinn varði meistaralega Strax á 1 min siðari hálfleiks komst Sigþór Ómarsson i dauðafæri, en Þor- steinn bjargaði vel með úthlaupi Mín siðar náði Teitur knettinum og skoraði örugglega með skoti frá vitateig Á 53 min skoraði Ólafur Júlíusson með hörkuskoti frá vítateig, eftir hæga sókn, sem virtist hættulitið Þetta var eina umtalsverða tækifæri Keflvikinga í leiknum, ef frá er talið skot Steinars á 62. mín, en þá varði Davið mjög vel. Eftir markið kom fjörkippur i Keflvík- inga, en aftur náðu Akurnesingar undirtökunum og sóttu Á 68 min dæmdi Óli Ólsen vita- spyrnu á Keflvíkinga og voru menn ekki á eitt sáttir um réttmæti hennar féll við Dómarinn Óli Olsen sagði eftir leikinn, að hér hefði verið um greiní- legt brot að ræða og ekkert hægt að dæma annað en vitaspyrnu Karl Þórðarson sagði: Ég átti ekki minnstu möguleika á að skora i þessari stöðu, enda ætlaði ég aldrei að skjóta á markið þegar mér var brugðið Ég ætlaði að gefa knöttinn út i teiginn til Sigþórs eða Péturs, sem báðir komu brunandi inn Ég er á þvi, að þarna hafi verið um vitaspyrnu að ræða, allavega var erfitt fyrir dómarann að sleppa þessu og fyrst hann flautaði var ekki um annað en vitaspyrnu að ræða. Teitur tók vitaspyrnuna og skoraði örugglega, en síðasta mark leiksins skoraði svo Sigþór Ómarsson á 72 min með skalla eftir sendingu frá Birni Lárussyni Nokkur harka færðist i leikinn undir lokin og fengu þrir leikmenn að sjá gula spjaldið, þeir Teitur Þórðarson og Árni Sveinsson frá Akranesi og Einar Gunnarsson frá Keflavik Lið Keflvikinga var slappt i þessum leik. Aðeins Þorsteinn i markinu, Einar Gunnarsson, Guðni Kjartansson, þrátt fyrir að hann haltraði i síðari hálfleik, og Ólafur Júliusson stóðu upp úr meðalmennskunni Þá voru varamenn- irnir Sigurður Björgvinsson og Einar Á Ólafsson ágætir Ég hef áður minnzt á það, að það eru ár og dagar siðan ég hef séð jafnlélegt lið frá Keflavik, en vonandi er hér um tímabundið ástand að ræða meðan ungu mennirnir, sem nýlega hafa komið í liðið, eru að átta sig á hlutunum Vera kann, að getuleysí Keflvikinga hafi gert það að verkum, að Akurnes- íngar léku einn sinn bezta leik i deild- inni að þessu sinni Það var mikil barátta i liðinu og reynt var að leika saman sem tókst oft á tíðum ágætlega og bauð uppá skemmtilegar sóknarlot- ur Karl Þórðarson var maður dagsins í þessum leik og lék skinandi vel Þá átti B|örn Lárusson góðan leik og sömu- leiðis Jón Gunnlaugsson og Jóhannes Guðjónsson Óli Ólsen dæmdi þennan leik og gerði þaðágætlega ■ bR Ingunn Einarsdóttir setti tvö Islandsmet á Reykjavfkurleikunum og ræðir hér við Marfu Guðjohnsen, sem nálgast óðum Islandsmetið f langstökki. LYMPÍULEIKAR | Zy 7&£VUU-ION—-AVA*\ 4K1 iTUDIOS flV He’//nssT//ij-óu>- /z*V/ PY*/1/ i-íJV/vV/ 'ff-TTL/ c///6Y£/t7A< //4cDA fYttTO ce/■//** £á/ se/n s/6/tJt> þró» •Í/?//6 d tr£//t £/</</ r/e«/F/£/t/£. bíí t</t. re*/Gj //£/&'j/i//<sJ '/ sr<f»'/J/J ■ /rt£»A/J rfe£s>es/pJ/t só/tu £/ »/s//Y \//qe. ot Y/np/J- f-Á/J/s/s/ DeetS/s/s/ /to /J j/Z/Ý FY/TSTA S/s/s/ mee eier/tj///*//// : " C/ T/d 5, ecT/d $ fFo /IT/Jt („H/tFD/ie., H/i/i/i A, ’OFC ocst/t . 099 Sc/ G/tC/rt/U S£sn Occ/ s/JAO sy/e£r/t / eFT/A</í.sJ r/sJe u vstA nó9//AA Uepp/j/ /n/cc/ ty£-ggta af BFZTtS /?Æ2>dst i/sr\ /J£/sns . 11* É 'BA’JPA/t/SK / S£sj> /M£AAAsJa/ 9s(As/t> *//J/rcOC« /J£/£/lA>, faf */£ccy rYA//t FAA/n/n/stqOc/jJA -s/> /fó*>«/TOL/ð ro//sJ/<£u.y (c/,s a ] S/aAAO/ OG KA/t / le* Á c/hÓsJ TAF* ae<terro*/> F/tÁ rs/e- CAs/H/, tseLLY tSA/S/J As/ssAj/ eoii / tj//sir/jsj/s/ f s ‘J£F‘/Ssj//Jss/ iSeu.Y Árr/ eFr/A As /C19A FsJ/Z FA/tSAA / . t>OTT,st /ZA/JS'G/tAC-C, Ja<9 Me,/nsc/t/t q c£/s(- KO/JA oe- £4 s/ú tj/tece F’A/ASFíSA af /nos/Aeo KNl SO//J/1 MFciys oe ac/Jj UAs//Y /3A0sJ< Y/FA*CAdsJ (Xofsi/ / sr}£c SocJ/t/JA Aa/í> Y^s~e>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.