Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNI 1976
Bókun 6 tekur gildi:
Tollar á íslenzkum afurðum í
slofmikjuin EBE lækka um 80%
MEGNIÐ af útflutningi íslands til ríkja Efnahags-
bandalags Evrópu verður tollfrjáls og óhindraður af
innflutningshöftum framvegis. Frá þessu er skýrt í
fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, sem Mbl.
barts í gær, en þar segir að Einari Ágústssyni hafi borizt
bréf frá Gaston Thorn, forsætis- og utanríkisráðherra
Luxemburgar, en hann gegnir nú embætti forseta ráð-
herranefndar Efnahagsbandalagsins. I bréfi Thorn er
tilkynnt að ákvæði bókunar 6 muni koma til fram-
kvæmda frá og með 1. júlí næstkomandi og mun þá
fríverzlunarsamningur tslands við Efnahagsbandalagið
frá 22. júlf 1972 að fullu hafa tekið gildi.
Bréf Gaston Thorn til Einars
Agústssonar er svohljóðandi:
„í samræmi við ákvörðun ráðs-
ins hinn 25. júní 1973, sem yður
var skýrt frá í bréfi dags. 27. júní
1973, hefur ráð Evrópubandalag-
anna, að tillögu framkvæmda-
stjórnar, nú endurskoðað stöðuna
varðandi framkvæmd ákvæða
bókunar nr. 6, er fylgir samningi
milli Efnahagsbandalags Evrópu
og lýðveldisins lslands.
Með athugun sinni hefur ráðið
staðreynt, að viðunandi lausn á
þeim efnahagsvanda, sem leiðir
af aðgerðum Islands varðandi
fiskveiðiréttindi, er alger for-
senda fyrir því að bókun nr. 6
komi til framkvæmda. Er Þetta að
áliti bandalagsins og í samræmi
við 2. gr. bókunarinnar grundvöll-
ur þess að unnt sé að standa við
skuldbindingar þær, sem bókunin
hefur í för með sér.
Þar eð aðildarríki bandalagsins
og tsland hafa fundið viðunandi
lausn á málinu eins og á stendur
hefur bandalagið, með þá lausn í
huga og þess er segir í næstu
málsgrein hér á undan, ákveðið
að láta ákvæði bókunar nr. 6 með
samningnum milli Efnahags-
bandalagsins og lýðveldisins Is-
lands öðlast gildi frá 1. júlí 1976
að telja.
Bandalagið vill nota þetta
tækifæri til að láta í ljós þá von að
samningaviðræður geti hafist í
náinni framtíð, og jafnframt að
varanlegir samningar takist, sem
báðir aðilar geti sætt sig við.“
Efnahagsbandalagið hefur fall-
izt á að framkvæma tollalækkanir
á íslenzkum sjávarafurðum eins
og bókun nr. 6 hafi tekið gildi um
leið og fríverzlunarsamningurinn
1. apríl 1973. Hefur þetta í för
með sér, að tollar stofnríkja EBE
á flestum íslenzkum sjávarafurð-
um lækka um 80%, en afurðir,
svo sem freðfiskflök og fryst
rækja, sem voru samkvæmt
EFTA-samningnum tollfrjáls^r í
Framhald á bls. 20
Gunnar Hannesson.
Gunnar Hannes-
son látinn
GUNNAR Hannesson ljósmynd-
ari lézt f Reykjavfk f gær eftir
nokkurra mánaða sjúkdómslegu.
Hann var 61 árs. Gunnar var
kunnur fyrir ljósmyndir sfnar
af náttúru tslands og hafa myndir
hans birzt vfða um heim, en hann
skiiur eftir sig tugþúsundir lit-
mynda af Islandi. Myndabækur
með myndum hans hafa verið
gefnar út og m.a. gaf Iceland
Review út tvær bækur með mynd-
um hans frá Vatnajökli og úr
Reykjavfk. Gunnar hélt fyrir
skömmu sýningu á myndum sfn-
um f Nikonhúsinu f New York og
hann vann að undirbúningi sýn-
ingar á Kjarvalsstöðum í haust.
Gunnar var kaupmaður i
Reykjavík um árabil og fyrrum
var hann formaður Knattspyrnu-
félagsins Víkings og einn af kunn-
ustu knattspyrnumönnum þess
félags. Þá lét Gunnar garðyrkju
mjög til sín taka og sérhæfði hann
sig í ræktun rósa í garði sínum við
Miklubraut 7. Hlaut hann alþjóð-
lega viðurkenningu fyrir rósa-
rækt á Islandi. Eftirlifandi kona
hans er Margrét Kristjánsdóttir.
75 milljónir króna
til vegarins yfir
Holtavörðuheiði
VINNUFLOKKUR frá Vegagerð ríkisins hófst í byrjun
þessarar viku handa við lagfæringar á veginum á Holta-
vörðuheiði. Ætlunin er að verja á þessu sumri 75
milljónum króna til framkvæmda við veginn yfir Holta-
vörðuheiði og verður einkum unnið að lagfæringum á
kafianum frá nýju brúnni á Norðurá efst í Norðurár-
dalnum og upp að Biskupsbrekku. Það er ætlun vega-
gerðarmanna að byggja veginn á þessum kafla upp og er
því hér um að ræða fyrsta áfangann í að byggja upp
snjóléttan veg yfir Holtavörðuheiði.
Blaðamaður Mbl. hitti sl. mið-
vikudag að máli Sigvalda Fjeld-
sted, vegavinnuverkstjóra, en
hann og menn hans voru þá að
hefja framkvæmdir við lagningu
eins kílómetra langs vegarkafla
frá heiðarsporðinum upp í Króka-
Er enn í
lífshættu
KONAN sem lenti í árekstri á
Vesturlandsvegi s.l. þriðjudags-
kvöld var enn meðvitundarlaus á
gjörgæzludeild Borgarspitalans í
gærkvöldi og í lífshættu, en hún
hlaut mjög alvarleg höfuðmeiðsli.
Nýr barnaskóli
í Hafnarfirði
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
samþykkti fyrir skömmu að hefja
byggingu nýs smábarnaskóla
fyrir um 400 nemendur. Skólan-
um er ætlaður staður í Norður-
bænum í Hafnarfirði samkvæmt
upplýsingum Kristins Ó.
Guðmundssonar bæjarstjóra,
nánar tiltekið norðan fjölbýlis-
húsanna við Breiðvang. Þorvald-
ur Kristmundsson arkitekt hefur
verið ráðinn til þess að teikna
skólann, en að sögn Kristins er
áætlað að hefja framkvæmdir
þegar á þessu ári og ljúka
skólabyggingunni fyrir haustið
1977.
lækjarbrekku. Sigvaldi sagði að
áætlað væri að kostnaður við
þennan eina kílómetra yrði um 15
milljónir kr. en þarna er um að
ræða dýra vegagerð, lagður verð-
ur nýr vegur og hann byggður
upp í allt að fjögurra metra hæð. í
samtalinu við Sigvalda kom fram
að ekki hefði á miðvikudag verið
tekin endanleg ákvörðun um að
hvaða köflum vegarins yrði unnið
utan þess eina kilómetra, sem
þegar eru hafnar framkvæmdir
við.
í gær, fimmtudag, var nefnd
manna uppi á Holtavörðuheiði til
að taka ákvörðun um að hvaða
vegarköflum yrði unnið næst en
eins og áður sagði verður alls 75
milljónum króna varið til- vega-
gerðarframkvæmda áHoltavörðu-
heiði í sumar. I fyrrnefndri nefnd
eiga sæti fulltrúar Vegagerðar-
innar, fulltrúi flutninga- og áætl-
unarbílstjóra og í hópi nefndar-
manna er maður, sem unnið hefur
að snjómokstri a Holtavörðuheiði
síðastliðin 15 ár.
Hafnarfjörður:
Hitaveitulögn
lokið í árslok
Hitaveitan er nú að hefja fram-
kvæmdir við síðustu áfangana í
Hafnarfirði samkvæmt upplýsing-
um Jóhannesar Zoéga hitaveitu-
stjóra. Hér er um að ræða verk í
Suðurbæ 1 og Vesturbæ 1, lögn i
400 hús, og ef áætlanir standasí
verða öll hús í Hafnarfirði búin
að fá hitaveitu í árslok.
Þessar tvær jarðýtur voru við störf á Holtavörðuheiði sl. miðvikudag en þann dag
hófust lagfæringar á veginum yfir heiðina. Ljósm. Mbl. t.g.
Forsætisráðherra:
Kjördæmafundir á Vest-
urlandi og Vestfjörðum
GEIR HALLGRlMSSON,
forsætisráðherra, efnir f
næstu viku til kjördæma-
funda með fbúum Vestur-
landskjördæmis og Vest-
fjarðakjördæmis og verður
fyrsti fundurinn í hótelinu
á Akranesi mánudaginn
28. júní.
Næsti fundur for-
sætisráðherra verður í fé-
lagsheimilinu í Stykkis-
hólmi þriðjudaginn 29
júní og miðvikudaginn 30.
júní efnir forsætisráðherra
til fundar í félagsheimilinu
á Patreksfirði. Fimmtudag-
inn 1. júlí heldur forsætis-
ráðherra fund í Uppsölum
á Isafirði. Allir fundirnir
hefjast klukkan 21 og eru
þeir öllum opnir. Á fund-
unum flytur forsætisráð-
herra ræðu og svarar fyrir-
spurnum fundarmanna,
bæði skriflegum og munn-
legum. Geir Hallgrímsson,
forsætisráðherra, hefur
fyrr i sumar efnt til funda
með íbúum Norðurlands-
kjördæmis eystra og Norð-
urlandskjördæmis vestra
og hafa fundirnir verið
fjölsóttir.