Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNÍ 1976 milli þess fólks sem starfar i þessum samtökum. Yfir 12000 manns í landi okkar er ofdrykkjufólk. Viö heyrum daglega um sorgir þessa fólks, sorgir vina og vandamanna sem eru dregnir inn í vítahringinn vegna skyld- leika og annarra venzla, sorgir þeirra og jafnvel dauða fólks, sem verður fyrir barðinu á drukknum ökumanni. drukknum slysvaldi. Þó er kannski sárust sú eyðilegging sem áfengið veldur í hugum svo margra þolenda. Ekkert er sorglegra en að sjá ungt fólk drukkið, viti firrt. Ekkert er sorglegra en að sjá æskuna í böndum áfengis, sjá æskuþrótt og vorfegurð ungrar sálar eins og einskis nýtt rekald á úthafi mannlífsins. Hlutverk Reglunnar er ekki hvað sízt að vinna æskuna til fylgis við sig, sýna henni verðugt traust og skapa henni nýtt lif án vín- menningar. Reglunni ber því að nota hvert tækifæri til út- breiðslu meðal æskunnar og koma til móts við hana. Veita henni hollar skemmtanir og tómstundaiðju, breyta því áliti, að án víns sé engin skemmtun. Það á að gefa æskunni kosl á að njóta eiginlegs sjálfstæðis og æskuþróttar, þar sem vín og önnur nautnalyf eiga ekki heima. Ef við fáum æskuna til baráttu, siglum við góðan byr, og vonin er í æskunni, þvi að ekki eru það eldri kynslóðirnar sem hafa sýnt þann þroska og dug sem til þarf i baráttunni fyrir mikilvægustu kjarabót okkar tíma, afnámi áfengisböls- ins. Það er mikið af dugmiklu ungu fólki í landinu, sem á hug- sjón bindindismannsins og i félögum ungra bindindismanna hafa margir eignazt góða kjöi- festu fyrir mannlífsbaráttuna, en betur má ef duga skal. Um- fram allt verður að bjóða unga fólkinu hönd og þiggja handtak þess, hlúa að því á allan hátt til þeirrar hugsjónar sem bar- áttan gegn áfengisbölinu er, baráttan til betra og frjálsara mannlífs. Því á Góðtemplara- reglan að ganga til liðs við bar- áttumenn á þessum vettvangi, takast á við vándann, fast og ákveðið, hvetja til sterks almenningsáiits gegn áfenginu, — og islenzkt þjóðlíf mun líta bjartari daga. Það er ekki nóg að færa út fiskveiðilögsögu okkar i 200 mílur og vernda ofveidda fisk- stofna, Okkur ber ekki síður skylda til að vernda mannlif okkar, auðga menningu okkar og mátt, berjast gegn áfengis- bölinu og stækka þannig Is- land. Kjarvalsstaðir Listráð að Kjarvalsstöðum aug- lýsir hér með til umsóknar sýningaraðstöðu í vestursal tima- bilið apríl — des. '77. Umsóknir um þennan sýnmgartima þurfa að berast fyrir 1 sept 1 976 og mun listráð þá taka afstöðu til þeirra. Listráð áskilur sér rétt til þess að hagræða sýningartima umsækjenda eftir þörfum og i samráði við þá Framkvæmdastjóri listráðs. 15 Vörðufell Kópavogi Viðarkol, plasthnífapör og diskar. Opið til kl. 1 0 í kvöld. Vörðufell, Þverbrekku 8, Kópavogi. Wenwood ufugieyp,r iðveldir i Sérstaklega Tvaer gerou uppsetningu Slmi 21240 Laugavegi litmyndir yöar á 3 dögum Þér notið Kodak filmu, við gerum myndir yðar á Kodak Ektaco/or-pappír og myndgæðín verða frábær Umboðsmenn um land allt — ávallt feti framar HANS PETERSEN HF Fjóróungsmót sunnlenzkra hestamanna 25. - 27. júni á Rangárbökkum vid Hellu Dagskrá: Föstudagur: kl 1 0 mætt með stórhryssur til dóms kl. 1 5 30 gæðingakeppni barna og unglinga Laugardagur: Kl 10, stóðhestar sýndir i dómhring Kl. 1 3 30 hópreið barna og unglinga inn á móts- svæðið Fjórðungsmótið sett Albert Jóhannsson. formaður L H Verðlaunaafhending i unglingakeppni. Kl 13 50 stóðhryssur sýndar i dómhring Kl 1 6 00 gæðingadómar A og B flokkar Kl 1 8 00 undanrásir kappreiða KI 21 00 kvöldvaka við dómpall Þekktir hesta og listamenn skemmta Sunnudagur: Kl 1 0 00 sýning á hryssum Verðlaunaafhending Kl 1 3 30 hópreið þátttökufélaga inn á mótssvæð- ið Helgistund Séra Stefán Lárusson Ávarp Halldór E Sigurðsson, landbúnaðarráð- herra Kl 1 5 00 sýning á stóðhestum Verðlaunaafhending Kl 1 6 30 Verðlaunaafhending gæðmga Kl 17 00—1 8 00 úrslit kappreiða Dansleikir Paradís leikur að Hvoli, föstudags og laugar- dagskvöld. Hljómsveit Þorsteins Guðmunds- sonar, leikur í Hellubíói á laugardagskvöld. Framkvæmdanefndin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.