Morgunblaðið - 25.06.1976, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNÍ 1976
VALTÝR Pétursson hefur
ekki slegið undan á sl ári
þrátt fyrir ýmsan mótbyr,
sem hindrað hefur hann við
þau eðlilegu vinnubrögð
framan við málaratrönurnar
Hann hefur að þessu sínni
gripið til meðfærilegri hátta
við slíkar aðstæður, þ e. krít-
ar-, pastel- og gouachetækn-
innar og árangurmn sýnir
hann samborgurum sínum
þessa dagana á LOFTINU við
Skólavörðustíg Valtýr vann
allnokkuð i þessari tækni á
sinum yngri árum og þótt
hann söðlaði fljótlega yfir í
óhlutlæga stílinn mátti þar
greina báta- og skipaform í
ýmsum mynda hans á fyrstu
sýningu listamannsins í Lista-
mannaskálanum gamla vorið
1951. Ég sá ekki þá sýningu
enda við nám ytra, en ég
man vel eftir vatnslitamynd
er bróðir minn keypti á sýn-
ingunni og lengi hékk upp á
vegg á heimili hans, en þar
komu einmitt fram greinileg
bátaform þótt myndín værí
byggð upp á óhlutlægan
hátt.
Valtýr er þó hvorki að end-
urtaka sig né leita aftur í
tímann, litbrigðin eru þau
sömu og í málverkum hans á
þá alla þá er fyrir utan sviðið
standa óalandi (þótt enn séu
til sértrúarsöfnuðir í mynd-
listinni), — heldur mála
menn líkt og þeim sýnist, líkt
og andinn blæs þeim á brjóst
hverju sinni og gefa öllum
formúlum og uppskriftum
langt nef. Þetta er einmitt
leiðin til að losa um form og
finna sjálfan sig, og þannig
unnu einmitt meistararnir,
Picasso, Braque, Matisse
o.fl , en að sjálfsögðu innan
hæfilegra marka Það voru
svo sporgöngumenn þeirra
ásamt listfræðingum er
bjuggu til formúlurnar fyrir
alla hina! Slíkt býður fljótlega
heim stöðnun og ófrjóum
vinnubrögðum líkt og sagan
sýnir.
Sýning Valtýs á Loftinu er
um margt allmisjöfn, vinnu-
brögðin virðast nokkuð laus,
en þarna eru ágæt verk og
vil ég hér sérstaklega vekja
athygli á mynd nr 7. „Blár
vasi", þar sem hann nær
sterkum heildaráhrifum með
samruna blárra og fjólublárra
litatóna, sem hann var
innsiglar með grænu í
myndunum nr 4, og 23.
„Landslag" sjáum við ólík en
sannfærandi vinnubrögð í
sama þema og hér kemur
sinn og er sá háttur einnig
þannig séð mjög heilbrigður.
Það virðist óþarft að mæla
með þessari sýningu, það
gerir sýningin sjálf taki mað-
ur mið af aðsókn og sölu þá
daga sem hún hefur verið
opin. Almenningur kann auð-
sjáanlega að meta, að lista-
menn opinberi einnig hinar
„intimari" hliðar listar sinnar
og Valtýr virðist eiga sterk
ítök í skoðendum listsýninga
í höfuðborginni. Er ástæða til
að óska Valtý til hamingju
með sýninguna og endur-
heimt starfsþrek, sem án efa
verður til þess að frá hans
hendi megi vænta viðameiri
hluta áður en lanqir timar
líða
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
glöggt fram hið breiða lita-
svið Valtýs. Við sjáum milda
stemningu í lit og formi i
mynd nr. 17 „Við hafið", —
gulir og brúnir litatónar
mynda hér samræmda
stemningu og í mynd þessari
er upphafin birta. Önnur teg-
und vinnu er í mynd nr. 29
„Mótbárur", hér eru formin
skýr og hrein og minna
byggt upp á litrænni
hrynjandi
Það er ánægjulegt að
skoða sýningar sem þessa,
sem líta má sem millistig,
listamaðurinn er að þreifa
fyrir sér og vígbúast til nýrra
og viðameiri átaka, — með
slíkum hætti viðheldur hann
sambandi við myndheim
undanförnum árum, en hér
koma fram önnur og frjáls-
legri viðhorf en áður, sem
sýnir að Valtýr hefir meðtekið
hin breyttu viðhorf til hlut-
anna Á vorum dögum mála
menn ekki endilega af kappi
á afmörkuðu sviði og nefna
„Mótorbátur".
Myndllst
Sýning Valtýs
r
Armannsstofa
opnuð í nýja
Sjálfstæðishúsinu
Bókasafn og rannsóknarherbergi
OPNUÐ hefur verið í nýja
Sjálfstæðishúsinu svonefnd
Ármannsstofa, sem er bóka-
safn og rannsóknarherbergi,
er Minngarsjóður um Ár-
mann Svéinsson hefur
annazt innréttingu á og gefið
búnað allan Ármann Sveins-
son var einn af forystumönn-
um ungra Sjálfstæðismanna
en lézt mjög ungur i fréttatil-
kynningu, sem Morgun-
blaðinu hefur borizt segir
„Hinn 22 júní s I. var Ár-
mannsstofa formlega tekin í
notkun ! nýja Sjálfstæðis-
húsinu við Bolholt. Ármanns-
stofa er bókasafns- og rann-
sóknarherbergi, en
innréttingar og búnaður þess
eru gjafir, sem eru gefnar af
Minningarsjóði um Ármann
Sveinsson, Sambandi ungra
Sjálfstæðismanna og vinum
Ármanns, en hann var einn
af forystumönnum ungra
Sjálfstæðismanna og fram-
kvæmdastjóri SUS um skeið
Friðrik Sophusson for-
maður Minningarsjóðsins og
formaður Sambands ungra
Sjálfstæðismanna afhenti
gjöfina f.h. gefenda, en Geir
Hallgrimsson forsætisráð-
herra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins veitti henni
viðtöku í nafni Sjálfstæðis-
flokksins Viðstaddir athöfn-
ina voru ættingjar og vinir
Ármanns heitins auk nokk-
urra forystumanna flokksins.
Með tílkomu Ármanns-
stofu skapast aðstaða fyrir
Sjálfstæðisfólk til að vinna að
hugðarefnum sínum með
hjálp bóka- og blaðakosts
flokksins. Innréttingu stof-
unnar teiknaði Erna Ragnars-
dóttir arkitekt, en Björn
Traustason húsgagnasmíða-
meistari sá um smíðina."
Viðstaddir athöfnina voru aðstandendur Ármanns heitins Sveinssonar, vinir hans og forráðamenn
Sjálfstæðishússins.
Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins veitir viðtöku gjöf Minningarsjóðs um Ármann
Sveinsson. Til hægri stendur Friðrik Sophusson formaður Minningarsjóðsins en á veggnum til vinstri
er mynd af Ármanni Sveinssyni.