Morgunblaðið - 25.06.1976, Síða 18
Jg MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNÍ 1976
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Aðalstræti 6, sími 10100
Aðalstræti 6, simi 22480.
Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 50,00 kr. eintakið.
Iskýrslu Þjóöhags-
stofnunar, „Úr þjóðar-
búskapnum“, sem nýkomin
er út, segir m.a., að efna-
hagsþróun fyrstu mánaða
ársins 1976 í heimsbú-
skapnum renni stoðum
undir þá skoðun, sem fram
hafi verið sett af hálfu ým-
issa alþjóðlegra efnahags-
stofnana á sl. hausti, að bú-
ast megi við örari efna-
hagsbata á yfirstandandi
ári en var á sl. ári. Þannig
er spáð nokkurri aukningu
þjóðarframleiðslu OECD-
landa á árinu, eftir stöðnun
á árinu 1974 og samdrátt á
sl. ári. Efnahagsstefna
stjórnvalda í stærstu iðn-
ríkjum tekur um þessar
mundir mið af framhald-
andi efnahagsbata, þann
veg að horfið er að meira
aðhaldi í fjármálum yfir-
leitt, í stað þess að lögð var
höfuðáherzla á að örva eft-
irspurn og atvinnu, meö
hliðsjón af mjög víðtæku
atvinnuleysi í mörgum
þessara ríkja.
Þrátt fyrir vaxandi fram-
leiðslu eru því ekki gerðir
skórnir, að skjótur bati
verði á atvinnuástandi í
umheiminum á þessu ári.
Þar veldur mestu, að þvi
talið er, að verðbólguþróun
undanfarinna ára hefur
víða raskað svo efnahags-
legu jafnvægi, að stöðvun
verðbólgu og hallalaus ut-
anríkisviðskipti eru álitin
megin forsenda varanlegs
efnahagsbata og þar með
atvinnu, þegar til lengdar
lætur. í mörgum löndum
er þessum markmiðum því
gefinn forgangur um sinn,
segir í skýrslu Þjóðhags-
stofnunar, þótt því fylgi
enn um sinn atvinnuleysi.
Þannig kann að verða jafn-
vel nokkurra ára bið á því
að verulega dragi úr at-
vinnuleysi i ýmsum lönd-
um.
Ljóst er, að efnahagsbat-
inn hefur verið hægari hér
á landi, sem og almenn
verðbólguhjöðnun, en víð-
ast annars staðar, e.t.v. fyr-
ir þá sök, að ríkisstjórnin
hefur lagt á það megin-
kapp að tryggja atvinnu-
öryggi alls almennings um
gjörvallt landið. Engu að
síður hefur verið gripið til
margháttaðra aðhaldsað-
gerða á sviði efnahags-
mála, ekki sízt í ríkisfjár-
málum, þó þar þurfi efalit-
ið betur að gera. Þannig
hefur einkaneyzlan í land-
inu dregizt allnokkuð sam-
an og samneyzlu verið
haldið innan vissra marka,
sem samhliða batnandi við-
skiptakjörum hefur leitt til
þess, að batamerki sjást
viðast í efnahagslífi þjóðar-
innar. Það hlýtur að verða
meginviðfangsefni ríkis-
stjórnarinnar, það sem eft-
ir lifir kjörtímabilsins, að
sinna þeim markmiðum á
sviði efnahagsmála okkar,
sem hún hét i stjórnarsátt-
mála sínum.
Með hliðsjón af því höf-
uðmarkmiði ríkisstjórnar-
innar að halda uppi fullri
atvinnu í landinu, er ekki
úr vegi að glöggva sig eilít-
ið á framvindu í helztu at-
vinnuvegum okkar.
Ástand fiskistofnanna
hlýtur að segja til sín í
minni afla á allra næstu
árum, sem að sjálfsögðu
hefur áhrif á afkomu
sjávarútvegsins, bæði út-
gerðar og fiskiðnaðar. Á
móti vegur hækkandi verð
útflutningsafurða í sjávar-
útvegi, sem bætt hefur
nokkuð stöðu frystiiðnað-
arins frá sl. hausti. Aukinn
rekstrarkostnaður og
minni greiðslur úr Verð-
jöfnunarsjóði draga þó úr
ávinningi verðhækkana.
Við núverandi aðstæður er
þann veg áætlað að greiðsl-
ur úr Verðjöfnunarsjóði til
frystingar nemi um 50
m.kr. á heilu ári, auk
200—300 m.kr. ábyrgðar á
karfaafurðum, á móti 1100
til 1200 m.kr. á sl. ári.
Afkoma bæði skreiðarverk-
unar og saltfiskverkunar
er talin góð í skýrslu Þjóð-
hagsstofnunar, en hinsveg-
ar slök í fiskmjölsvinnslu
og loðnubræðslu. Fiskveið-
arnar sjálfar berjast hins-
vegar í bökkum og ástand
fiskstofna lofar síður en
svo góðu um arðsemi
rekstrar okkar stóra fisk-
veiðiflota.
Afkoma iðnaðarins, bæði
fyrir heimamarkað og út-
flutning, er talin svipuð og
ekki verri en undanfarin
tvö ár. Afkoma verzlunar
er talin hafa versnað á sl.
ári en lauslegar áætlanir
benda til, að ekki mun þar
síga meira á ógæfuhlið í ár
en orðið er.
Eftir að Þjóðhagsstofn-
unin hefur vegið og metið
stöðu einstakra atvinnu-
greina á árinu 1976 kemst
hún að þeirri niðurstöðu,
að eilítið kunni að draga úr
atvinnuframboði á árinu,
en hins vegar sjáist þess
engin merki, að til al-
varlegs atvinnuleysis muni
koma. Þá segir, að eigi að
takast að halda uppi fullri
atvinnu til frambúðar sé
afar mikilvægt að ná jafn-
vægi í utanríkisviðskipt-
um, þar sem langvinnur
viðskiptahalli þrengi smám
saman svigrúmiö til þess að
reka sjálfstæða efnahags-
stefnu hér á landi.
Reynslan sýni þvert á móti,
að þau ríki, sem búið hafi
viö verulegan viðskipta-
halla langtímum saman,
hafi neyðzt til að grípa til
svo róttækra aðhaldsað-
gerða, að leitt hafi til at-
vinnuleysis. Efnahags-
stefnan næstu misserin
hljóti því að miða að því að
stöðva slíka óheillaþróun,
og beina starfsorku og f jár-
magni þjóðarinnar að þeim
verkefnum, er tryggi end-
urheimt jafnvægis í utan-
ríkisviðskiptum, sem sé
forsenda framfara í efna-
hagsmálum. Eitt megin-
skilyrði þess að slíkt megi
takast sé að draga verulega
úr hraða verðbólgunnar,
halda þjóðarútgjöldum í
skefjum og ná öruggu jafn-
vægi í ríkisfjármálum og
lánamálum.
FULL ATVINNA
OG FORSENDUR HENNAR
„Góðtemplarareglan helgar
sig sannarlega slysavömum”
NÍTUGASTA þing Stórstúku íslands var i gær sett við hátiðlega athöfn i
Alþingishúsinu en þar var Stórstúka íslands stofnuð 24. júni 1886.
Ólafur Þ. Kristjánsson stórtemplar setti þingið að viðstöddum forsætis
ráðherra og öðrum ráðherrum, biskupi, borgarstjóra, alþingismönnum
og 60 þingfulltrúum, auk annarra gesta. Við þingsetninguna ávarpaði
VilhjáImur Hjálmarsson menntamálaráðherra gesti og einnig Helgi
Seljan alþingismaður. Að því loknu sleit stórtemplar samkomunni í
Alþingi og bauð gestum til veiziu í Templarahöllinni við Eiríksgötu. Þar
var Hilmar Jónsson veizlustjóri, stórtemplar flutti afmælisræðu og
Göngflokkur úr stúkunni Einingunni í Reykjavík söng undir stjórn Ólafs
F. Hjartar. Einnig var almennur söngur, ávörp og fleira, en þingfundur
hófst síðan aftur i Templarahöllinni í gærkvöldi og var þar fjallað um
skýrslu framkvæmdanefndar og reikninga, minnzt látinna félaga og
fleira
— sagði mennta-
málaráðherra
við setningu
Stórstúkuþings
í Alþingishúsinu
Nokknr þingfulltrúa af eldri kynslóðinni sátu í gær I
sætum þingmanna í sal Alþingis.
í DAG verða lagðar fram tillögur frá
framkvæmdanefnd og milliþinga-
nefndum og fjallað um ýmis mál
sem eru á dagskrá þingsins
Ólafur Þ Kristjánsson stórtemplar
sagði m a í ræðu sinni í Alþingis-
húsinu
BARÁTTA VÍÐAR EN
Á EINUM VETTVANGI
„Forustumönnum Stórstúkunnar
var Ijóst frá upphafi að bindindisbar-
áttu verður að heyja víðar en á
einum vettvangi Grundvöllurinn
undir bindindissemi þjóðar hlýtur
ætíð að vera viðhorf hennar við
áfengismálum, afstaða hennar til á-
fengisneyzlu, siðferðilegt og félags-
legt álit og tilfinning. En löggjöf
hefur þar einnig sitt að segja Þess
vegna hefur Stórstúkan alla tíð reynt
að hafa áhrif á löggjöfina, ýmist til
þess að fá sett í lög ákvæði, er hún
hefur talið til bóta, eða til þess að
sporna við lagasetningum, sem
henni hefur virzt stefna í öfuga átt
Var það fyrst að árið 188 7 — þegar
Stórstúkan var ársgömul — sam-
þykkti Alþingi lög sem bönnuðu
staupasölu í búðum og setti reglur
um veitingaleyfi Átti Jón Ólafsson
alþingismaður, sem þá var stór-
templar, mestan þátt í að koma
þessum lögum á, en hann lét svo
Alþingi fyrr og síðar Sumir þeirra
hafa verið templarar, aðrir ófélags-
bundnir bindindismenn, en aðrir
hlynntir bindindissemi þótt ekki
væru þeir bindindismenn sjálfir.
Engin nöfn verða nefnd hér, en þeir
eru orðnir nokkuð margir á 90 ár-
um, alþingismennirnir, sem eiga
skilið þökk frá öllu bindindissinnuðu
fólki; það hefur sópað að þeim sum-
um hverjum og margir verið þraut-
seigir þótt minna hafi að þeim kveð-
ið En hinu er ekki að leyna, að þeir
hefðu stundum mátt vera fleiri. En
út í það skal ekki nánar farið, en
Alþingi í heild og einstökum þing-
mönnum fyrr og síðar þakkað það
sem vel hefur verið gert í bindindis-
málum
STÓRSTÚKAN HEFUR
BJARGAO MANNSLÍFUM
Vilhjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra sagði í upphafi ávarps
síns við þingsetningu í Alþingishús-
inu:
,,Elfur tímans er óstöðvandi. Eng-
in stund nemur staðar. En maðurinn
gerir sér mark í tímann og áir við
þau eyktamörk. — Stórstúka ís-
lands hefur starfað níu tugi ára. Ég
þakka það starf og bið henni bless-
unar
Framhald á bls. 20
um mælt að ekki hefði þetta á unnizt
að því sinni ef landshöfðingi hefði
ekki hlynnt að málinu
Hún er orðin löng sagan um
afskipti Stórstókunnar af bindindis-
málum á Alþingi, svo löng að hún
verður ekki rakin hér. Frá sjónarmiði
Stórstúkunnar er þar bæði um sigra
og ósigra að ræða, suma lítilfjör-
lega, aðra mikilvæga Stefnumál
bindindissamtakanna í landinu hafa
átt marga ágæta stuðningsmenn á
Ólafur Þ Kristjánsson stórtemplar í ræðustól Alþingis er hann setti 90. stórstúkuþingið í
gær. Ljósmynd Mbl. RAX.