Morgunblaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULI 1976 Hættuspil að aka á vegum á Snæfellsnesi Stykkishólmi, 28. júlí. ÞJÖÐVEGIR f kringum Stykkis- hólm hafa verið og eru mjög lélegir, að ekki sé meira sagt. Um tíma voru þeir gjörsamlega ófær- ir á kafla, en fyrir nokkrum vik- um tók Vegagerðin sig til og fór að bæta úr. Vegagerðarmenn réðu 4 bila frá Stykkishólmi og 2 annars staðar frá til að aka efni í vegina. Þegar bílarnir voru búnir að vera við verkið í tvær vikur, var ákveðið að fækka bilunum um tvo, og var tveimur af bilunum frá Stykkis- hólmi sagt upp vinnu. Næsta dag mættu allir bílarnir, þvi bilstjórar í Stykkishólmi telja að bilar þaðan eigi mestan rétt á þessari vinnu. —' En er hér var komið hafði vegagerðin engin umsvif rheldtir sagði öllum tækjunum upp og fór á brott, síðan hefur ekki verið átt við vegina. Vegir hér í kring eru enn mjög slæmir. Vegurinn fyrir Alftafjörð keyrir þó um þverbak, því hver sá er ekur hann á það á hættu að stórskemma þifreið sina. Fréltaritari. Ekið á kyrr- stæðan bíl EKIÐ var í gær á bláan Citroen- fóiksbíl, þar sem hann stóð á bif- reiðastæðinu við Fæðingardeild- ina milli kl. 3 og 4 i gærdag. Vinstra frambretti og hurð bílsins voru dælduð. svo að ljóst má vera að áreksturinn hefur ekki getað farið framhjá ökumanni bifreiðarinnar sem ók á. Er nú skorað á ökumann að gefa sig fram við slysarannsóknadeild lögreglunnar og jafnframt eru þeir sem kunna að hafa orðið vitni að þessum árekstri beðnir um að gefa sig fram. Loðnuverð- inu sagt upp LOÐNUSELJENDUR, það er sjó- menn og útgerðarmenn, hafa sagt upp gildandi loðnuverði frá 1. ágúst s.l. Telja þeir að það verð, sem nú er greitt fyrir loðnuna, sé ekki nógu hátt miðað vió þaó verð, er fæst nú fyrir afurðir á erlendum mörkuðum. Fálkarnir f jórir f búri sinu. Fálkaungunum slepptánœstunni EINN fálkaunganna fimm, sem fundust t tösku i snyrtiherbergi á Keflavikurflugvelli, drapst fyrir nokkru, en hinir fjórir hafa dafnað vel og eru hinir sprækustu. Verður fuglunum væntanlega sleppt einhvern næstu daga, en búið' er að merkja þá með númeri og lit- hringum, svo að hægt verði að fylgjast með þeim síðar. Ung- inn sem drapst var einn tveggja sem teknir höfðu verið mjög litlir úr hreiðri sinu en hinn unginn sem einnig var mjög ungur hefur lifað af. Fuglarnir eru byrjaðir að éta það sem þeim er gefið upp á ei'gin spýt- ur og eiga brátt að verða færir um að sjá um sig sjálfir úti i náttúrunni. Fálkinn er tfgulegur fugl eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var af einum fálkanna sem smygla átti úr landi. Loðnuaflinn orð- inn 22.500 lestir NÚ mun vera búið að veiða um 22.500 lestir af loðnu frá því að loðnuveiðar hófust í byrjun júlí. Mestum afla er búið að landa f Siglufirði, um 10.700 lestum, þá kemur Neskaupstaður en þar er búið að ianda röskum 3000 lest- um. Allgóð veiði var hjá loðnu- bátunum í fyrrakvöld og fyrri- nótt, tilkynntu þá niu skip um afla, alls 3040 lestir. Sex skipanna fóru til Faxaflóahafna, þar sem bræla var austur með Norður- landi. Að sögn Andrésar Finn- bogasonar hjá loðnunefnd, gengur hægt að taka á móti loðnu hjá verksmiðjum á Norðuriandi. Síldarverksmiðja rikisins í Siglu- firði tekur á móti mjög tak- mörkuðum afla sem stendur, og' verksmiðjan á Raufarhöfn hefur ekki enn hafið móttöku. — Ef einhver hrota kemur skapast hálf- gert vandræðaástand hjá bátun- um, sagði Andrés, þeir þurfa þá annaðhvort að sigla til Faxaflóa- hafna eða Austfjarða, í stað þess að geta landað sem mestu á þeim höfnum, sem stytzt er til. Eftirtaldir bátar tilkynntu um afla til loónunefndar: Gullberg 370 lestir, Súlan 500 lestir, Rauðsey 430 lestir, Hákon 260 lestir, Helga Guðmundsdóttir 280 lestir, Huginn 300 lestir, Sig- urður 700 lestir, Svanur 100 lestir og Bjarni Óiafsson 100 lestir. Tvöfalt færri at- vinnuleysisdagar í júní í ár en í fyrra ATVINNULEYSISDAGAR hér á landi í júní í ár voru meir en heilmingi færri en í sama mánuði í fyrra. I fyrra voru atvinnuleysisdagar á landinu öllu 14242 f júní en í ár voru þeir 6672 í júní. t maí í fyrra voru atvinnuleysis- dagar 12788 á landinu öllu en í maí f ár voru þeir 6951. Hefur því orðið hér veruleg fækkun, sem vafalítið orsakast af aukinni eftirspurn eftir vinnuafli og aukinni þenslu f efnahagslffinu. I kaupstöðum voru i fyrra í júní alls 12102 atvinnulaysisdagar og i maí voru slíkir dagar alls 10755 í kaupstöðum. Sambærilegar tölur frá árinu í ár eru 4626 í júnf og 4560 í maí. í kauptúnum með yfir 1000 íbúa voru í júní í fyrra alls 360 atvinnuleysisdagar en í ár voru þeir 407 í júní. I öðrum kauptúnum voru atvinnuleysis- dagar í júní í fyrra 1780 en í ár voru slíkir dagar 1639 í júní. Mest fækkun atvinnuleysisdaga hefur því orðið í kaupstöðum landsins á þessu tímabili. 49 erlend veiði- skip við landið í GÆR voru 49 erlendir togarar á veiðum eða á siglingu við landið. Samkvæmt þeim upplysingum, sem Morgunblaðið fékk hjá Land- helgisgæzlunni, voru 24 brezkir togarar að veiðum og átta v-þýzkir togarar. Einnig voru 5 belgískir togarar að veiðum við landið og einn færeyskur. Þá var vitað um 4 brezka togara er voru að koma til veiða og einn sem var að fara, sex þýzkir togarar sáust á siglingu. Með viðbótarföt handa konunni í FYRRINÓTT rakst lögreglan 1 Kópavogi á konu f hlaupum. Lögreglumönnunum hefði kannski ekki fundist það mjög athyglisvert ef konan hefði ekki verið mjög fáklædd. Lög- reglumennirnir buðu konunni húsaskjól á lögreglustöðinni þar sem konan sagði þeim sögu sfna. Kom í Ijós að hún býr skammt frá Reykjavfk, og hafði hún farið ein til borgarinnar f fyrradag. úm kvöldið fór hún á einn af skemmtistöðum borgar- innar og hitti þar mann sem hún fór með heim. Er leið á nóttina slettist eitthvað upp á vinskapinn og hljóp konan á brott frá manninum mjög fá- klædd. Til að konan kæmi nú ekki hálf nakin heim til sfn, tóku lögreglumennirnir í Kópa- vogi til bragðs að hringja í eig- inmann hennar og varð hann að gjöra svo vel að skreppa til borgarinnar með viðbótarföt handa konu sinni. Ekkert sagt frá flótta Kortsnojs í rússnesk- um fréttum, en harðorð viðbrögð út á við Moskvu, 28. júlf — AP. Reuter. FRÁ ÞVÍ hefur enn ekki verið skýrt í fréttum innan Rússlands, að sovézki stórmeistarinn Kortsnoj hafi sótt um hæli sem póli- tfskur flóttamaður f Hollandi. En f enskum yfirlýsingum sovézku fréttastofunnar Tass eru viðbrögð á þá lund, að Kortsnoj sé með beiðninni að reyna að koma sjálfum sér í sviðsljósið. Kortsnoj hefur farið huldu höfði I Amsterdam síðan fréttin um flótta hans barst út og ekki haft neitt samband við frétta- miðla. Honum barst í dag. boð frá bandarískum skákáhuga- manni Hagler, sem var gest- gjafi Kortsnojs, þegar hann tefldi í Bandaríkjunum 1974. Hagler sendi hollenzka sendi- ráðinu í Washington skeyti, þar sem hann segist bara vilja að Viktor (Kortsnoj) viti, að hann eigi vini í Bandaríkjunum. Hagler sagði fréttamönnum þar 1 dag, að hann og Kortsnoj hefðu orðið mjög góðir vinir og að Kortsnoj hefði aldrei látið nein orð um það falla að hann hygðist yfirgefa Rússland á þennan hátt. „Hann er fjöl- skyldu maður,“ sagði Hagler, „■'g get ekki ímyndað mér, hvernig hann getur farið frá fjölskyldu sinni.“ Kortsnoj á eiginkonu og 17 ára gamlan son í Rússlandi. Kortsnoj hefur fjórum sinn- um verið skákmeistari Sovét- ríkjanna og árið 1974 lýsti Al- þjóðaskáksambandið hann þriðja bezta skákmann heims. Hann var ávíttur af sovézka skáksambandinu sama ár fyrir neikvæð ummæli um skákstíl Karpovs, eftir að hann tefldi við hann um réttinn til að berj- ast um heimsmeistaratitilinn. Tass fréttastofan segir hann hafa hlotið þá meðferð sem sæmir stórmeistara í Sovétríkj- unum og að hann hafi marg- sinnis ferðazt til útlanda á skákmót og þarfnist ekki póli- tísks hælis annars staðar til að geta ferðazt utan Sovétríkj- anna. Enn fremur segir í yfir- lýsingunni, að Kortsnoj sé yfir- bugaður af hégómagirnd og öf- und út I kollega sína, að hann sé að reyna að bein athyglinni að sjálfum sér til að ná frama, sem honum hafi ekki tekizt sem skákmanni. Tass segir Kortsnoj hafa jafnvel gengið svo langt í öfund sinni, að hann kenndi sálfræðilegum bellibrögðum andstæðinganna um ósigra sína við taflborðið í stað þess að viðurkenna yfirburði annarra. Oftar en einu sinni ásakar Tass Kortsnoj um óíþróttamanns- lega framkomu sem brjóti í bága við undirstöðuatriði al- mennrar siðfræði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.