Morgunblaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 32
AUGLÝSíNGASÍMINN ER:
22480
jnorgttnÞlafeife
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
Rtorgunblahiþ
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1976
Salan svipuð eða
. . r #
minni en 1 tyrra
TOLLIVERT hefur verid að gera í
byggingariðnaðinum á Reykja-
víkursvæðinu að undanförnu.
Þessa dagana er mikið steypt
meðai annars vegna þess að
steypustöðvar loka um 10 daga
skeið á næstunni og eru margir
húsbyggjendur nú að viða að sér
byggingarefni og láta steypa áður
en sumarfrí steypustöðvanna
byrjar.
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá steypustöð B.M.
Vallá í gær að salan i sumar hefði
almennt gengið nokkuð vel og
voru horfur á þvi að salan yrði í
ár svipuð og í fyrra, en þá varð
22% samdráttur frá árinu 1974.
Víglundur Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri hjá B.M. Vallá
sagði að nokkur samdráttur hefði
orðið fyrstu fimm mánuði ársins
en svo virtist sem salan í júni og
júlí ætlaði að bæta það upp að
einhverju leyti og árið í heild
koma út sem slakt meðaltaisár.
Þeir Leifur Sveinsson og
Sigurður Hall hjá Timburverzlun-
inni Völundi tjáðu Morgun-
blaðinu í gær, að það sem af væri
árinu væri salan svipuð hvað
krónutölu snerti og á síðasta ári,
en á þessu timabili hefðu orðið
allmikiar verðhækkanir á timbri
og öðru því sem til bygginga
þyrfti. Þetta þýddi því minnkun
magnsölu. Gat Sigurður Hall þess,
að nú.væri ekki eins mikili hugur
í fólki að panta innihurðir fyrir
Framhald á bls. 19
VEÐRID — Það er von til þess að þessir hressu piltar þurfi ekki vaða drulluna upp
að hnjám í dag eða ganga í regnfötum, því nú er spáð norðvestanátt á Suðurlandi
og á að létta til. Hins vegar hljóðar spáin þannig aó á Norður- og Austurlandi
verður norðaustanátt og dálítil súld eða rigning.
NYR kjarasamningur milli Sjó-
mannasambands Islands, annars
vegar og Landssambands fs-
lenzkra útvegsmanna hins vegar
var undirritaður f gærkvöldi hjá
sáttasemjara rfkisins. Þessi nýi
kjarasamningur kemur f stað
þess, sem undirritaður var 1.
marz s.l., en felldur var í öllum
Gert er ráð fyrir hækkun kauptrygg-
ingar og á hlut 1 sumum tilfellum
sjómannafélögum landsins að
undanskildum sex. Samkvæmt
þeim upplýsingum, sem Morgun-
blaðinu tókst að afla sér í gær-
Gróf gjaldeyrisbrot:
Allt að 4 ára fangelsi
og 500 þús. kr. sekt
kvöldi þá gerir nýi samningurinn
ráð fyrir nokkurri kauphækkun
til sjómanna bæði hvað varðar
kauptryggingu og einnig á hlut f
stöku tilfelfum.
Ákveðið er að sameiginleg at-
kvæðagreiðsla verði að þessu
sinni hjá sjómannafélögum og á
henni að vera lokið fyrir 21. ágúst
n.k. en talning fer fram f Reykja-
vfk 23. ágúst.
Kristján Rangarsson formaður
Landssambands islenzkra útvegs-
manna sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að í sumar
hefði siitnað upp úr samningavið-
ræðum, en fyrir skömmu hefðu
viðræður verið teknar upp á ný.
Nýi samningurinn yrði í gildi á
Norðurlandi, Snæfellsnesi, Suð-
vesturlandi og Höfn í Hornafirði.
Þegar atkvæði voru greidd um
samninginn, sem var undirritaður
1. marz s.l., var hann feildur i
öllum sjómannafélögunum nema
i Grindavík, Vestmannaeyjum,
Þorlákshöfn, Eyrarbakka , Skaga-
strönd og Akranesi.
Jón Sigurðsson formaður Sjó-
mannasambands Íslands sagði er
Morgunblaðið ræddi við hann i
gærkvöldi, að nú yrði talið upp úr
einum potti, en ekki hjá hverju
félagi fyrir sig eins og áður.
Nokkurn tíma tæki að koma at-
kvæðaseðlum og samningsupp-
Framhald á bls. 18
Humarvertíðin:
10% meiri veiði á
togtíma en í fyrra
NÚ FER senn að Ifða að þvf að
yfirstandandi humarvertfð Ijúki,
en það er 7. ágúst n.k. sem veiði-
leyfin renna út. Þá er gert ráð
fyrir að humarhátarnir verði bún-
ir að veiða það magn, sem heimil-
að var á þessu sumri, 2800 lestir.
Þann 15. júlí s.l voru bátarnir
búnir að veiða 2200 lestir. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk f gær, mun
humarafli pr. togtfma vera um
10% meiri f ár en f fyrra, sem
bendir til þess að stofninn sé að
stækka.
Hrafnkeli Eirfksson fiskifræð-
ingur, sem er nýkominn úr rann-
sóknarleiðangri á rannsóknar-
skipinu Dröfn, sagði f samtali við
Morgunblaðið f gær, að eins og
búast mætti við á þessum tfma
væri nú nokkuð um linan humar,
svokallaðan „gúmmíkrabba" f afl-
anum, Ástæðan fyrir þvf væri að
hrygnur væru nú búnar að
hrygna og skipta um skel.
„Það hefur borið nokkuð mikið
á smáum humri í sumar og stafar
það einfaldlega af því, að sterkir
árgangar eru að koma inn í stofn-
inn. Stofninn virðist því vera á
réttri leið þótt hann sé ekki kom-
inn í hámarksstærð enn. Það hef-
ur borið mikið á árganginum frá
1970 í sumar, en hann mun þó
ekki gefa af sér hámarkstonna-
fjölda fyrr en 1978. Þá eru aðrir
sterkir yngri árgangar eins og frá
1971 og 1972 að koma inn í veið-
ina smám saman, sagði Hrafnkell.
Hrafnkell sagði ennfremur að
Framhald á bls. 19
Byggingarefnissalan:
VEGNA rannsóknar Sakadóms Reykjavíkur og
gjaldeyriseftirlits Seðlabankans á kaupum skipa
erlendis frá og um hvort gróf gjaldeyrisbrot hafi
verið að ræða, eins og í kaupunum á sanddæluskip-
inu Grjótjötni, sneri Morgunblaðið sér til Gylfa
Knútssonar lögfræðings viðskiptaráðuneytisins og
spurði hann hvaða viðurlög væru við svona brotum.
Gylfi sagði, að í lögum um
skipan innflutnings- og gjald-
eyrismála nr. 30 frá 1960 væri
sérstakt ákvæði um brot frá
reglunum, auk þess sem svona
mál vörðuðu aimenn hegn-
ingarlög.
1 lögunum um skipan inn-
flutnings- og gjaldeyrismáls
segir m.a.:
„Brot gegn ákvæðum laga
þessara og reglum settum sam-
kvæmt þeim varða sektum allt
að 500 þús. krónum. Ef miklar
sakir eru eða brot ítrekað má
dæma sökunaut i varðhald eða
fangelsi allt að 4 árum, og
svipta má hann atvinnurétti um
stundarsakir eða fyrir fullt og
allt. Upptaka eigna samkvæmt
69. gr. almennra hegningarlaga
skal og heimil vera.“
20 tíma Ölympíuefni
SJÓNVARPIÐ byrjar útsending-
ar á sunnudaginn eftir mánaðar-
hlé. Fyrst á dagskránni á sunnu-
daginn eru mvndir frá Ólympfu-
leikunum og þegar dagskráin er
skoðuð, sést að ólympíuefni verð-
ur á dagskránni meira og minna á
hverjum degi.
„Danska sjónvarpið vinnur fyr-
ir okkur efni frá Ólympíuleikun-
um, samtals rúma 20 tíma í út-
Sendingu,“ sagði Bjarni Felixson
íþróttafréttamaður sjónvarpsins.
„Þarna verður að finna allt það
markverðasta, sem gerst hefur og
á eftir að gerast á leikunum. Á
sunnudaginn verða fimleikar
sýndir ög síðan kemur sundið og
aðrar íþróttagreinar hver af ann-
arri,“ sagði Bjarni.