Morgunblaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULÍ 1976
UNGVERJAR SIGRUÐUI
SUNUKNATTLEIKSKEPPNINNI
EINS og skýrt var frá I Mbl. I gær
urðu Ungverjar Ólympiumeistarar í
sundknattleik, en siðustu leikir
keppninnar fóru fram i fyrradag.
Voru Ungverjar vel aS sigrinum
komnir, en þeir töpuSu engum leik i
keppninni og gerSu ekki nema eitt
jafntefli. Ólympíumeistararnir frá
Múnchen, Sovétmenn, höfnuSu hins
vegar í sjöundasæti og þótti þeim
þaS mjög svo súrt i broti. svo sem
,á5ur hefur veriS frá sagt.
LokastaSan i keppninni varS þessi:
1.—6. sæti:
Ungverjaland
ítalia
Holland
Rúmenía
Júgóslavía
Vestur-Þýzka.
7.—12. sæti
Kúba
Sovétríkin
Kanada
Mexikó
Ástralia
Iran
5 4 1 0 30-
5 2 2 1 21-
5 2 2 1 18-
5131 26-
5 0 3 2 21-
5 0 14 15-
5 4 1 0 34-
5 3 1 1 33-
5 2 2 1 27-
5 13 1 26-
5 1 1 3 22-
5 0 0 5 8-
-24 9
-20 6
-17 6
-25 5
-24 3
-21 1
-16 9
-16 7
-21 6
-19 5
-25 3
-53 0
Viðar tapaði eftir
snarpa viðureign
- fer til æfinga í Japan í vetur
Frá Ágústi I Jónssyni i Montreal
HINN ungi og efnilegi júdó maður
Viðar Guðjohnsen varð að sætta sig
við að lúta i lægra haldi fyrir Spán-
verjanum Louis Frutos í fyrstu um-
ferð júdókeppnmnar í millivigtar
flokki. Var það eftir tvísýna baráttu
sem stóð alla lotuna — 6 mínútur
— að dómararnir dæmdu Spánverj
anum sigur, enda hafði hann verið
meira i sókn allan leikinn, og komið
betri brögðum á Viðar en íslendingn-
um tókst að koma á hann. En þetta
voru snörp átök, og tvivegis munaði
litlu að Viðari tækist að ganga frá
andtæðing sínum er hann kom á
hann góðum brögðum. í annaðskipt-
ið féll Spánverjinn út fyrir dýnuna og
bjargaðist þannig, en i hitt skiptið
tókst honum á siðustu stundu að
hjarga sér úr bragðinu.
Fram hefur komið hjá Viðari, að
hann stefni fyrst og fremst að þvi að
ná árangri á Ólympiuleikunum i
Moskvu eftir 4 ár og nú er afráðið að
hann fari til Japans i marzmánuði
n.k. og dvelji þar i a.m.k. tvö ár við
æfingar og nám. Fer hann með
landsliðsþjálfaranum i júdó, Murata,
sem heldur heimleiðis um þetta
leyti. Sagði Murata í viðtali við
Morgunblaðið, að hann ætlaði sér að
gera Viðar Guðjohnsen að bezta
júdómanni í Evrópu, og væri hann
viss um að það yrði ekki erfitt verk i
framkvæmd ef hann gæti æft við
þær góðu aðstæður sem boðið væri
upp á i Japan.
Sovézki kraftajötuninn Vasili Alexeev setur nýtt heims-
met í jafnhöttun á Ólympíuleikunum í Montreal í
fyrrakvöld og ver Ólympíutitil sinn frá leikunum í
Miinchen 1972.
Bandarfkjamaðurinn Phil Ford f baráttu við Júgðsiavann Zoran Slavnic 1 úrslitaieiknum í Montreal i
fyrradag. (AP—sfmamynd)
Bandaríkjamenn endurheimtu
OL-gullið í körfuknatdeiknum
BANDARÍKIN endurheimtu
Ólympfumeistaratitil sinn f
körfuknattleik í fyrrakvöid er
þeir sigruðu Júgóslava með 95
stigum gegn 74 I úrslitaleik hinn-
ar mjög svo skemmtilegu keppni
á Ólympfuleikunum. Höfðu
Bandarfkjamenn betur í leiknum
frá upphafi til enda, og hefðu
eftir atvikum átt að vinna stærri
sigur. Sýndi lið þeirra mjög góð-
an ieik að þessu sinni, en það
hefur þótt nokkuð misjafnt að
gæðum f Ólympfukeppninni.
Það var von flestra að það yrðu
Bandarikjamenn og Sovétmenn
sem mættust i úrslitaleiknum í
Montreal, þar sem þessar þjóðir
áttu óuppgert dæmi frá leikunum
í Miinchen 1972, en þá hlutu
Sovétmenn gullið i mjög sögu-
frægum leik, þar sem þrjár
sekúndur nægðu þeim til þess að
senda knöttinn yfir endilangan
völlinn til leikmanns sem var
undir körfu Bandaríkjamanna og
skoraði sigurstigið. Þessari fárán-
legu dómgæzlu mótmæltu Banda-
ríkjamenn þá m.a. með því að
mæta ekki til verðlaunaafhend-
ingarinnar. Allt síðan var þess
beðið með óþreyju að liðin leiddu
saman hesta sina i úrslitaleik í
Montreal. En til þess kom ekki.
Júgóslavar skelltu Sovétmönnum
i undankeppninni og tryggðu sér
rétt til þess að leika úrslitaleikinn
við Bandaríkjamenn. Skýringin á
sigri Júgóslava yfir Sovétmönn-
um er sögð vera sú ein, aó þeir
hafi einfaldlega verið meó betra
lið, og menn virðast almennt sam-
ALEXEEV STERKASTUR STERKRA
ÞAD lék aldrei neinn vafi á þvf
hver væri sterkastur meðal
sterkra þegar lyftingamenn í yfir-
þungavigtarflokki reyndu með
sér á Ólympíuleikunum f
Montreal í fyrrinótt. Sovétmaður-
inn Vasili Alexeev lyfti hvorki
meiru né minnu en 35 kg meira
en næsti maður og er því óhætt aó
segja aó hann hafi verið f sér-
flokki f þessari keppnisgrein. Eitt
heimsmet bætti svo Alexeev
svona í leiðinni, er hann jafn-
hattaði 255,0 kg. Sjálfur átti hann
eldra metið og var það 252,5 kg.
Jafn örugglega og Alexeev varð
sigurvegari var Austur-
Þjóðverjinn Gerd Bonk i öóru
sæti. Slagurinn um bronsverð-
launin var hins vegar geysilega
harður og lyftu fjórir menn sömu
þyngd 387,5 kg samanlagt. Létt-
astur þessara kappa reyndist vera
Austur-Þjóðverjinn Helmunt
Losch og hlaut hann því brons-
verðlaunin.
Kunnur kappi var þarna illa
fjarri góðu gamni, en sá var
Khristo Vlachov frá Búlgaríu.
Hann veiktist skömmu fyrir
keppnina og gat því ekki verið
með, en Vlachov þótti mjög lík-
legur verðlaunamaður I þessum
þyngdarflokki og jafnvel var talið
mögulegt að hann gæti veitt
Alexeev nokkra keppni.
Með keppninni í þessum flokki
lauk lyftingakeppninni i
Montreal. Alþjóðasamband
iyftingamanna veitir stig fyrir
Ólympiukeppnina og i henni urðu
Sovétmenn efstir — hiutu alls 87
stig og fengu fimm gullverðlaun
og þrjú silfurverðlaun í þyngdar-
flokkunum níu er keppt var í.
Búlgarir urðu i öðru sæti með 78
stig — hlutu þrjú gull, tvö silfur
og þrjú brons, og Pólverjar urðu
svo þriðju með 47 stig — hlutu
eitt gull og ein silfurverðlaun.
mála um að Sovétmenn hefðu lit-
ið haft i Bandarikjamenn að gera
i úrslitaleik, hefðu þeir komist i
hann.
í úrslitaleiknum í fyrrakvöld
var staðan orðin 8—0 fyrir Banda-
rikjamenn fyrr en nokkurn varði,
og voru liðnar tvær og hálf mín-
úta er Júgósiövum tókst að skora
sitt fyrsta stig. Það var nánast
aldrei um neina keppni að ræða.
Bandaríkjamenn léku andstæð-
inga sína sundur og saman og
voru oftast 10—20 stigum yfir.
Stigahæsti leikmaðurinn í liði
Bandaríkjanna var Adrian Dant-
ley sem skoraði 12 stig i fyrri
hálfleik og 18 stig í seinni hálfleik
— alls 30 stig. Dantley var þó ekki
með allan leikinn, þar sem hann
meiddist á auga og varð að vera
utan vallar meðan verið var að
gera að sárum hans.
Stighæstur i liði Júgóslavanna
var Dragan Dalipágic sem skoraði
27 stig.
Bandaríkjamenn voru í riðli
með Júgóslövum í undankeppn-
inni og sigruðu þá í þeim leik með
21 stigs mun 112—93.
Eins og greint var frá í blaðinu í
gær hlutu Sovétmenn svo brons-
verólaun í keppninni — sigruðu
Kanadabúa 95—77 í leik sem
lengst af var mjög jafn og
skemmtilegur.
DIBIASIVANN
ÞRIÐJA GULLIÐ
iTALINN Klaus Dibiasi vann það
einstæða afrek á Olympíulcikun-
um f Montreal f fyrrakvöld að
vinna sigur f dýfingum karla af
háum palli, og var þetta f þriðja
skiptið f röð sem hann hlýtur
Ólympfumeistaratitilinn. Áður
hafði hann orðið Ólympíumeist-
ari bæði í Mexikó 1968 og f
Múnchen 1972.
Baráttan stóð allan tímann milli
Dibiasi sem nú er orðinn 28 ára og
16 ára Bandarikjamanns Greg
Louganis. Eru þessir menn mikl-
ar andstæður. Italinn hávaxinn,
ljóshærður og spengilegur, en
Bandaríkjamaðurinn lítill,
krangalegur og mjög dökkur yfir-
litum.
Louganis tók forystuna
snemma i keppninni og eftir fjór-
ar fyrstu þrautirnar hafði hann
nokkuð yfir í stigum. Dibiasi tók
siðan að sækja á og sýndi stór-
glæsileg tilþrif undir lokin.
Dibiasi, sem er Ástralíumaóur
að uppruna, hlaut sín fyrstu
Ólympíuverðlaun 1964 er hann
hlaut silfurverðlaun á leikunum
og var þá helzti keppinautur hans
i Montreal, aðeins 14 ára að aldri.
Þykir ekki ótrúleg að svo kunni
að fara að hinn ungi Bandaríkja-
maður verði arftaki Dibiasi í þess-
ari íþróttagrein, þótt harla ólík-
legt sé að honum takist að leika
það eftir að hljóta þrenn gullverð-
laun á Ólympiuleikum í henni.
Foster setti Olympíumet
BRENDAN Foster frá Bretlandi setti
nýtt Ólymplumet i 5000 metra
hlaupi I undankeppni þeirrar greinar
á Ólympluleikunum I Montreal I gœr-
kvöldi. Hljóp hann vegalengdina á
13:20,34 mln. en gamla metiB sem
Lasse Veren frá Finnlandi setti I
Munchen 1972 var 13:26.4 mln.
Viran var meðal keppenda I hlaupinu
I gær. Fór hann sér að engu óðslega
og varð fjórði I slnum riðli i
13:33.39 mín. og nægði það honum
til þess að komast I úrslitahlaupið.
Heimsmethafinn I hlaupinu, Belgiu-
maðurinn Emiel Puttemans, hætti
hlaupinu I slnum riðli og hefur þvi
ekki möguleika á að verða mað I
úrslitahlaupinu