Morgunblaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULI 1976
15
Hreinsanir og endurskipu-
lagning efst á baugi hjá Miki
Yfirheyrslum yfir Tanaka haldið áfram
Tókió 28. júli.
Reuter — AP.
YFIRHEYRSLUR héldu áfram
í dag yfir Takuei Tanaka fyrr-
um forsætisráðherra Japan,
sem handtekin var ( gær, sakað-
ur um að hafa þegið 1.7
milljónir dollara í mútur frá
bandarísku flugvélaframleið-
endunum Lockheed. Tanaka er
f haldi f gæzluvarðhaldsfang-
elsinu f Tókfó, þar sem hann
hefst við f 9 fermetra klefa og
sefur á þunnri dýnu á gólfinu
eins og hinir 2000 meðfangar
hans. Handtaka Tanakas hefur
vakið gffurlega athygli í Japan
og vfða um heim og hefur ham-
ingjuóskum rignt yfir skrif-
stofu saksóknaraembættisins f
Tókfó. Tanaka var forsætisráð-
herra Japans frá 1972—1974 er
hann lét af embætti vegna
ádeilna um að hann hefði auðg-
ast á vafasömum viðskiptum
meðan hann var forsætisráð-
herra. Hann neitaði ailtaf sak-
argiftum, og sagðist aðeins
segja af sér til að lægja öldurn-
ar. Tanaka hefur áður verið
handtekinn og sakaður um
mútuþægni, 1948, en var sýkn-
aður þá.
Flokkur Tanakas, Frjálslyndi
demókrataflokkurinn, sem ver-
ið hefur við völd í Japan frá því
1955 er nú í miklu uppnámi
vegna handtöku þessa fyrrver-
andi foringja sins. Takeo Miki
núverandi forseti flokksins og
forsætisráðherra litur á vand-
ann, sem prófraun þinglegs lýð-
ræðis. Miki, sem svaraði spurn-
ingum fréttamanna á fundi i
gær eftir að tilkynnt hafði verið
um handtöku Tanakas, að nú
riði mest á að halda loga lýð-
ræðisins logandi. Stjórnmála-
fréttaritarar segja að á öðrum
stað og öðrum tima hefðu slík
ummæli þótt yfirborðshjal, en
er litið sé á Asiu í dag, þar sem
lýðræði sé svo til úr sögunni sé
ljóst, að áhyggjur Mikis séu ein-
lægar. Miki hefur gegnt þing-
mennsku um 40 ára skeið og
hann þekkir sérhvern veikleika
og styrkleika flokks síns og
þingsins.
Miki er þekktur í landi sinu,
sem strangheiðarlegur og fram-
farasinnaður maður, sem telur
rikisstjórn fólksins fyrir fólkió
besta valkostinn þrátt fyrir
ýmsa galla kerfisins. Stjórn-
málafréttaritarar segja að ef
Miki hefði ekki verið i forsæti
flokks sins nú hefðu horfurnar
verið dekkri. Helzta verkefni
hans nú er að reyna að bæta
eins mikið af tjóninu og unnt er
fyrir almennu þingkosningarn-
ar, sem halda verður fyrir 9.
desember nk. Hann verður að
komast til botns i Lockheed-
hneykslinu þannig að engin
vafaatriði eða grunsemdir verði
eftir.
Á sama tima verður hann
að gera ærlega hreinsun innan
flokksins og gera breytingar á
þeim reglum, sem kveða á um
kosningu flokksforsetans. Sög-
ur eru uppi um að Tanaka hafi
Takeo Miki
kostað um 3 milljónum dollara
til aó tryggja sér embættið i
kosningunum innan þing-
flokksins 1972. Að lokum verð-
ur Miki að setja saman nýja
rikisstjórn, sem er algerlega
laus við nokkur tengsl við Lock-
heedhneykslið ef hann á aö
gera sér nokkrar vonir um að
flokkur hans sigri í kosningun-
um.
Nr. 6.
Litir: Ljós. svartur
og brúnn.
Kr. 11.850.
Kr. 12.490.
Laugavegi 69, simi 16850
Miðbæjarmarkaði, sími ,19494
Fyrstu siglingar á Bret-
land um miðjan ágúst
ENN sem komið er hefur ekkert
íslenzkt fiskiskip siglt til
Englands frá þvi að samkomulag-
ið við Breta vegna landhelgis-
málsins var gért. Morgunblaðinu
er þó kunnugt um að einhverjir
íslenzkir útgeróarmenn eru að
hugsa um, að láta skip sin sigla á
næstunni.
Nokkrir útgerðarmenn m.a. frá
Vestmannaeyjum hafa siðustu
daga staðið i sambandi við Jón
Olgeirsson ræðismann i Grimsby.
( Jón telur vart ráðlegt að skipin
byrji að sigla fyrr en um miðjan
ágúst. Markaðurinn i Bretlandi
verði miklu stöðugri eftir þann
tima og einnig megi búast vió
hærra fiskverði en nú er.
Nr. 4.
Litir: Ljós, svartur,
og brúnn.
Ef þú œtlar að kaupaföt fyrir verslurtarmannahelgina, þá skaltu gera
það í dag.
Ekki geyma fatakaupin fram á síðustu stundu þvíþá áttu það á hcettu
að lenda í troðningi og tímahraki.
Við viljum reyna að veita þe'r hestu þjónustu sem völ er á, því
ráðleggjum við þér að komafyrr en seinna.