Morgunblaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULÍ 1976
LOFTLEIDIR
2T 2 1190 2 11 8£L
^BILALEIGAN—
felEYSIR •
CAR LAUGAVEGI66
RENTAL 24460 |f
28810 r
Lltvarp og stereo,.kasettutæki.
Koma haustlán?
spyr stjórn SHI
STJÖRN Stúdentaráðs Háskóla
tslands hefur sent blaðinu frétta-
tilkynningu þar sem m.a. kemur
fram eftirfarandi:
Eins og mörgum er í fersku
minni, var aðeins veitt 800 millj.
króna til Lánasjóðs íslenzkra
námsmanna á síðustu fjárlögum.
tT*l að ríkisvaldið gæti staðið við
skuldbindingar sínar gagnvart
námsmönnum þurfti 1440
milljónir. Samkomulag náðist
milli ríkis og námsmanna, um að
það bil yrði brúað með lögbind-
ingu 660 millj. króna lántöku-
heimildar fyrir Lánasjóðinn.
Skýrar yfirlýsíngar hafa gengið
frá menntamálaráðherra um, að
sú heimild yrði nýtt eftir þörfum.
Lántökuheimildin
aðeins pappírsgagn.
Námsmenn standa nú frammi
fyrir sannleiksgildi þeirrar yfir-
lýsingar: 221 millj. króna er nú
vant til að Lánasjóðurinn geti
innt hin skuldbundnu vorlán af
höndum. Þau fara til námsmanna,
sem ekki luku tilskildum árangri
fyrr en í vor. Nú eru liðnir tæpir
tveir mánuðir frá greiðslutíma
þeirra lána og enn bólar ekki á
þeim. Þessir námsmenn tóku
margir víxla ti að fleyta sér yfir
erfiðasta hjallann, í trausti þess
að tilskilin lán stæðu þeim til
reiðu að vori. Það er því ljóst að
tregða ríkisvaldsins til að nýta
lántökuheimildina hefur steypt
þessu fólki í mikla fjárhagsörðug-
leika.
Námsmenn borga
lán sín að fullu
Áður fyrri voru tilhneigingar
ríkisvaldsins til að skerða eða
seinka námslánaveitingum gjarn-
an réttlættar með því að benda á,
að námslán væru í rauninni beínn
styrkur, sem þjóðin hefði ekki
efni á að veita á erfiðum tímum.
Forsendur þessarar réttlætingar
brustu með hinum óheillavæn-
legu lögum um námslán, sem Al-
þingi samþykkti á sl. voru. Sam-
kvæmt þeim munu námsmenn
greiða lán sín til baka í fullu
raungildi, án tillits til tekna
þeirra að námi loknu. Það er því
mikill og útbreiddur misskilning-
ur, að námslán séu hreinn styrkur
til námsmanna.
Koma haustlánin?
Haustlán til námsmanna á að
fjármagna með fyrrnefndri 660
millj. kr. lántöku. Enn hafa ráða-
menn þó engan lit sýnt á að nýta
heimildina til fjáröflunar í haust-
lán. Líkur benda því til, að í sama
óefni stefni með námslán og á sl.
hausti, en þá fengu námsmenn
ekki lán sín að fullu fyrr en í
febrúar/marz.
Það er því eðli|egt að náms-
menn fari fram á að:
1) ráðamenn standi við þau lof-
orð sem þeir gáfu á sl. vetri og
aftur í haust um nýtingu lántöku-
heímildar eftir þörfum og vorlán-
in verdi borguð út nú þegar,
2) að hafizt verði handa um
útvegun fjármagns til haustlána,
svo öngþveiti skapist ekki í fjár-
málum námsmanna svo sem á sl.
vetri.
Útvarp Reykjavik
FIM/MTUDAGUR
29. júlí
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 <og
forustugr. dagbl.). 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Árnadóttir byrjar
að lesa söguna
„Kóngsdótturina fögru“ eftir
Bjarna M. Jónsson.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög á milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25. Ingólfur
Stefánsson ræðir við Tómas
Þorvaldsson í Grindavík,
þriðji þáttur (áður útv. í
október). Tónleikar.
Morguntónleikar kl. 11.00:
London Wind Soloists leika
Divertimento eftir llaydn;
Jack Brymer stjórnar —
Arthur Rubinstein og
Guarneri-kvartettinn leika
Píanókvintett f f-moll op. 34
eftir Brahms.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
SIÐDEGIÐ
Á frfvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Römm
er sú taug“ eftir Sterling
North
Þórir Friðgeirsson þýddi.
Knútur R. Magnússon les
(15).
15.00 Miðdegistónleikar
Konunglega
fflharmónfusveitin í
Lundúnum leikur
„Föðurlandið", forleik op. 19
eftir Bizet; Sir Thomas
Beecham stjórnar.
Itzhak Perjman og
Konunglega
fílharmónusveitin leika
„Garmenfantasíu", tónverk
fyrir fiðlu og hljómsveit op.
25 eftir Pablo de Sarasate.
Hljómsveitin Fflharmónía í
Lundúnum leikur
„Leikfangabúðina",
balletttónlist eftir
Rossini/Respighi; Alceo
Galliera stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatfminn
Sigrún Björnsdóttir hefur
umsjón með höndum.
17.00 ;Tónleikar.
17.30 Skólahall f Reykjavík og
kaupavinna í Gufunesi
Iljörtur Pálsson les úr
óprentuðum minningum séra
Gunnars Benediktssonar (2).
18.00 Tónleikar. Tilkvnningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
KVÓLDIÐ
19.35 t sjónmáli
Skafti Harðarson og
Steingrímur Ari Arason sjá
um þáttinn.
20.00 Samleikur f útvarpssal:
Aage Kvalbein og Harald
Bratlie leika Sónötu fyrir
selló og pfanó op. 40 eftir
Shjostakovitsj.
20.25 Leikrit: „Með bakið að
veggnum" eftir Evan Storm
Þýðandi. Ásthildur Egilsson.
Leikstjóri: Hrafn
Gunnlaugsson.
Persónur og leikendur:
Ivan/ Þorsteinn Gunnarsson
Helgi / Sigurður Skúlason
20.55 Á Ólafsvöku
Stefán Karlsson
handritafræðingur bregður
upp svipmyndum úr
Færeyjum.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan „Litli
dýrlingurinn" eftir Georges
Simenon
Ásmundur Jónsson þýddi.
Kristinn Reyr les (19).
22.40 Ásumarkvöldi
Guðmundur Jónsson kynnir
ýmsar serenöður.
23.30 Fréttir. þ.á m.
íþróttafréttir frá Montreal.
Dagskrarlok.
FÖSTUDAGUR
30. júlí
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Árnadóttir les
söguna „Kóngsdótturina
fögru“ eftir Bjarna M. Jóns-
son (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Spjallað við bændur kl.
10.05.
Tónleikar kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Suisse Romande hljómsveit-
in leikur „Thamar"
sinfónfskt Ijóð eftir Bala-
kfreff; Ernest Ansermet
stjórnar / Sinfóníuhljóm-
sveit Lundúna leikur
Sinfónfu f C-dúr eftir
Stravinský; Colin Davis
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Römm
er sú taug“ eftir Sterling
North.
Þórir Friðgeirsson þýddi.
Knútur R. Magnússon les
sögulok (16).
15.00 Miðdegistónleikar.
Rena Kyriakou leikur
Pfanósónötu f B-dúr op. 106
eftir Mendelssohn. Anne-
liese Rothenberger syng-
ur lög eftir Hugo Wolf
og Richard Strauss; Gerald
Moore leikur á pfanó. Josef
Suk og St. Martin-
in-the-Fields hljómsveitin
leika Rómönsu nr. 2 í F-dúr
op. 50 eftir Beethoven;
Neville Marriner stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 „Birtan kemur með
blessað strit“
Jón Hjartarson leikari flytur
ferðaþanka frá Suður-Kína;
— fyrri þáttur.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Daglegt máL
Helgi J. Halldórsson flytur
þáttinn.
19.40 (þróttir
Umsjón: Bjarni Felixson.
20.00 I föðurgarði fyrrum
Pétur Pétursson ræðir við
Selmu Kaldalóns um föður
hennar, og flutt verða lög
þeirra feðginanna.
20.40 í deiglunnL
Baldur Guðlaugsson ræður
við Berg Guðnason og Ölaf
Nflsson um skattheimtu og
skattrannsóknir.
21.15 „Á þessari rímlausu
skeggöld", kórverk eftir Jón
Ásgeirsson við ljóð
Jóhannesar úr Kötlum.
Háskólakórinn syngur. Söng-
stjóri: Rut L. Magnússon.
21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan
úr Svartaskógi“ eftir
Guðmund Frfmana Gfsli
Halldórsson leikari les (5).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Litli dýrling-
urinn“ eftir Georges Simen-
on.
Ásmundur Jónsson þýddi.
Kristinn Reyr les (20).
22.40 Áfangar.
Tónlistarþáttur f umsjá Ás-
mundar Jónssonar og Guðna
Rúnars Agnarssonar.
23.30 Fréttir, þ.á.m. fþrótta-
fréttir frá Montreal.
Dagskrárlok.
Leikrit vikurmar kl. 20:25:
Með bakið að veggnum
Leikrit vikunnar er eftir
sænska leikritahöfundinn Evan
Storm í þýðingu Ásthildar Egil-
son. Þetta er fyrsta leikritið
sem islenzka útvarpið flytur
eftir hann, en hann er fæddur
1938 og hefur skrifað ein tíu
eða tólf leikrit fyrir sænska út-
varpið. Evan Storm sækir oftast
efnivið sinn í daglega lifið en
fær einvöldustu og hversdags-
legustu hluti til að sýnast næsta
fjarstæðukenndir. Leikstjóri er
ERP RQI HEVF 1H1
Þetta er Uka
Rétt er að vekja athygli á þvi
að í dag hefst lestur nýrrar
sögu í morgunstund barnanna.
Björg Árnadóttir byrjar lestur
sögunnar Kóngsdóttirin fagra
eftir Bjarna M. Jónsson.
Þá verður á dagskrá i kvöld
kiukkan 22:40 liðurinn Á sum-
arkvöldi undir stjórn Guð-
mundar Jónssonar. Þar kynnir
hann og leikur ýmsar serenöð-
ur.
Hrafn Gunnlaugsson, en með
hlutverkin fara þeir Þorsteinn
Gunnarsson og Sigurður Skúla-
son.
Leikurinn gerist á kaffiteriu
á stórri járnbrautarstöð i Sví-
þjóð. Tveir menn á fertugs-
aldri, Ivan og Helgi, sitja við
borð og bíða eftir afgreiðslu.
Ivan er dauðhræddur um að
hann fái ekki það sem hann
pantaði en Helgi fullvissar
hann um að það komi i fyllingu
tímans. LJt frá þessu spinnast
siðan orðræður um ólíkustu
efni, sem ekki skulu raktar
frekar, enda mikil spenna i
samtalinu og endir ieiksins
næsta óvæntur. Höfundur teflir
þarna saman hianni, sem ný-
kominn er af taugahæli og öðr-
um sem við mundum kalla
„andlega heilbrigðan" og hon-
um tekst ótrúlega vel að prjóna
góða flík úr einföldu garni svo
notað sé líkingamál.
á dagskránni
í þættinum i sjónmáli, sem
Skafti Haróarson og Steingrim-
ur Ari Arason sjá um, verður
fjallað um agann. Verða lesnar
tilvitnanir eftir dr. Matthias
Jónasson og úr bókinni Summ-
erhill-skólinn ásamt erindum
umsjónarmanna. Þá verður
rætt við fólk á götum úti, aðal-
lega eldra fólk og það spurt
hvort agi hafi breyzt frá þeirra
dögum og hvort unglingar séu
betur upp aldir nú en áður fyrr.
Frá fiskveiðum við Færeyjar.
Klukkan 20:55:
Frá Ólafsvöku í Fœregium
Stefán Karlsson handritafræð-
ingur spjallar um Færeyjar kl.
20:55.
Stefán Karlsson handrita-
fræðingur talar um Færeyjar i
þættinum „Á Ólafsvöku“, sem
er á dagskránni i kvöld. Hann
sagði lítillega frá efni þáttar-
ins:
„Eg segi aðeins frá Ólafsvök-
unni, en annars segi ég ofurlít-
ið frá ferð sem ég fór til Fær-
eyja fyrr á þessu ári og nota ég
þá ferð sem uppistöðu til
spjalls um menn og málefni.
Inn í er svo skotið danskvæðum
og kórsöng á færeysku, sem ég
hef á hljómplötum. Einnig er
ég með smásýnishorn :f upp-
lestri og leiklist og flyt ég þýð-
ingu þeirra á undan eða a.m.k.
efnislega, svo hlustendur geti
fylgst með því sem fram fer.“