Morgunblaðið - 29.07.1976, Side 16

Morgunblaðið - 29.07.1976, Side 16
X6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULÍ 1976 JUmrpj Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson Rítstjórnarfuiltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Ámi Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100 Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 22480. Auglýsingar Áskriftargjald 1000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Morgunblaðið hefur um árabil gagnrýnt þær verðlagsreglur, sem ríkt hafa í þjóðfélaginu. Þær hafa slævt verðskyn hins almenna neytenda og þær verðlagshömlur, sem felast í eðlilegri samkeppni sölu- aðila um viðskipti almenn- ings. Við eðlilegar kringumstæður eiga hags- munir seljanda vöru og kaupanda á hinum al- (njenna neyzlumarkaði að koma sapian í hagstæðum, ódýrum innkaupum verzlunarinnar bæði hjá innlendum framleiðendum og erlendis frá. Hagstæð innkaup söluaðila eiga að útvega honum betri sam- keppnisaðstöðu um hylli kaupenda um leið og þessi samkeppni er bezta trygg- ingin fyrir hóflegu vöru- verði. Eins og nú er í pott- inn búið með verðlagsregl- ur kemur hærri krónu- álagning á hverju söluein- ingu eftir því sem dýrar eða óhagstæðar er keypt inn. Verðlagsreglurnar ýta því í sjálfu sér ekki undir hagkvæmni í innkaupum og eru því ekki sú trygging fyrir hóflegu vöruverði, sem þær ættu að vera. Verðlagskerfið í núverandi mynd er úr sér gengið, og frá því hefur í meginatrið- um verið horfið í hinum vestræna heimi, m.a. á Norðurlöndum, sem lúta stjórn sósíaldemókrata. Verðlagskerfið hefur og beinlínis stuðlað að hærra verði á opinberri þjónustu en vera þyrfti í dag, ef heilbrigðara verð- myndunarkerfi hefði ráðið ferð. Borgarstjórinn í Reykjavík, Birgir ísleifur Gunnarsson, ritar um þetta efni athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag. Þar rekur hann dæmi um verð- lagningu á þjónustu einnar borgarstofnunar, Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Borgarstjóri segir, að það hafi verið og sé stefna borgarstjórnar að tekjur af rafmagnssölu nægðu til að greiða rekstrarkostnað fyrirtækisins og árlegar eðlilegar aukningar á veitukerfinu. Á hinn bóg- inn hafi verið talið eðlilegt að fjármagna með erlend- um lánum meiriháttar framkvæmdir, sem unnar væru í þágu alls veitu- kerfisins. Rafmagnsveitu Reykjavíkur hafi hinsveg- ar á undanförnum árum verið synjað um nauðsyn- legar verðhækkanir raf- magns til að standa undir þeim kostnaðarliðum, sem rafmagnssölunni hafi verið ætlað að mæta. Þetta hafi leitt til þess að fyrirtækið hafi neyðzt til að taka erlend lán til að rísa undir útgjöldum sem rafmagns- salan hefði ella borið uppi. Ef verðlagsyfirvöld hefðu orðið við beiónum Rafmagnsveitu Reykjavík- ur um rafmagnsverð á undanförnum misserum, hefðu erlendar skuldir fyrirtækisins um sl. áramót numið ca 560 m. kr. í stað 1.580 m. kr., eins og þær vóru í raun. Útgjöld vegna erlenda lána á yfirstand- andi ári, þ.e. afborganir og vextir, séu áætluð 442.7 m. kr. í stað 137.8 m. kr. ella. Mismunurinn sé 305.5 m. kr. á þessu eina ári. Þessar háu erlendu skuldir hafi síðan leitt til þess að fyrir- tækið hafi enn neyðzt til að taka erlend lán til þess að geta haldið í horfinu um eðlilegar aukningar á rafmagnskerfinu. Hvaða áhrif hafa þessar miklu erlendu skuldir haft á rafmagnsverðið í dag? spyr borgarstjórinn í grein sinni. Hann leiðir siðan rök að því, að hefði Rafmagns- veita Reykjavíkur fengið eðlilegar hækkanir á um- beðnum tíma, myndi raf- orkuverðsþróunin hafa orðið þessi: Rafmagnsverð- ið hefði orðið 16% hærra á árinu 1972, 22.5% hærra 1973, 12% hærra 1974, en hinsvegar 6.5% lægra 1975 og 14 til 15% lægra á yfir- standandi ári og svipuðu máli gegni um næstu þrjú árin. Borgarstjóri segir að þessi dæmi sýni, hve skammsýn verðlagsyfir- völd hafi verið í ákvörðun- um sínum og hversu þær hafi verið óhagstæðar raf- orkunotendum i Reykja- vík. Raforkuverðið hefði að vísu orðið hærra á ákveðnu árabili en það gæti verið mun lægra í dag, ef stefnu borgarstjórnar hefði verið framfylgt í þessu efni. Hærra raforkuverð á af- mörkuðu árabili hefði að vísu komið fram í vísitölu og því haft einhver tak- mörkuð verðbólguáhrif. Þau verðbólguáhrif séu hins vegar minni í raun en stafi af erlendum lántök- um á þenslutímum til að standa undir eðlilegum aukningum eða jafnvel rekstrarhalla. Borgarstjóri, Birgir ís- leifur Gunnarsson, segir í grein sinni, að fátt sýni bet- ur skipbrot þeirrar stefnu, sem fylgt hafi verið í verð- lagsmálum undanfarin ár, en þetta dæmi um Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Hann lýkur grein sinni með því að segja, að tími sé til kominn að ríkisvaldið flytji aftur til sveitarfélag- anna verðlagsákvarðanir á þeirri þjónustu, sem þau reka fyrir fbúa sína. Sveit- arstjórnir séu til þess kjörnar að bera ábyrgð á rekstri fyrirtækja eins og Rafmagnsveitu Reykjavík- ur og þær þurfi að standa kjósendum reikningsskap gjörða sinna engu síður en þeir, er stýri ríkisvaldinu. Morgunblaðið hvetur les- endur sína til að kynna sér vel umrædda grein borgar- stjórans i Reykjavík. Þar eru orð í tíma töluð um þær verðlagsreglur, sem ríkt hafa í þjóðfélaginu, og ekki verður lengur slegið á frest að taka til endurskoðunar og breytinga í ljósi tiltækr- ar reynslu. Endurskoðun vegakerfis „Verðum að syngja eftir tilfinningunni” í DAG, fimmtudag, heldur kór Menntaskólans vió Hamrahlíð til Englands, þar sem kórinn tekur þátt í evrópskri kórahátíð I Leicester. Hátíð þessi er hald- in þriðja hvert ár, til skiptis í hinum ýmsu Evrópulöndum. Þetta er í fyrsta skipti, sem kórinn tekur þátt í þessari hátíð, en ánn íslenzkur kór hefur áður tekið þátt í henni, Pólýfónkórinn. Á þriðjudagskvöld hélt kór- inn óformlega tónleika í Hamrahliðarskólanum, þar sem aðstandendum kórfélaganna og öðrum gafst kostur á að hlusta á kórinn. Tildrög þess, að kórinn held- ur nú utan til þátttöku, er að einn af frumkvöðlum þessa móts hefur verið kennari Þor- gerðar Ingólfsdóttur, stjórn- anda kórsins. Hann mæltist til þess við Þorgerði að kórinn tæki þátt í mótinu, en I upphafi voru menn bjartsýnir á að þetta yrði hægt, en siðan bárust betri boð og freistingin varð æ sterk- ari, þannig að ákveðið var að reyna allt, sem hægt væri til að kórinn kæmist og einnig hafði það mikið að segja að kórinn er I mjög góðri þjálfun vegna ým- íssa verkefna, sem hann hefur staðið i. Að sögn Þorgerðar er efnis- skráin mjög fjölbreytt. Flutt verður innlend og erlend tón- list allt frá 16. öld fram á okkar daga og verða nokkur verkanna frumflutt þarna. Kórinn byrjaði i smáum stíl, eins og venjulegir skólakórar, en síðan hafa umsvifin aukizt mikið og hefur kórinn tekið þátt í söngkeppnum erlendis og haldið fjölda tónleika. Þorgerður sagði að þetta væri ekki samkeppni heidur sam- vinna kóranna, því kórinn mun glíma við stór verkefni, sem flutt verða með öðrum kórum, auk þess sem kórinn heldur Hluti kórfélaganna á æfingu. Þorgerður Ingólfsdóttir, stjórnandi kórsins. nokkra sjálfstæða tónleika, þar á meðal sérfslenzka. Við hittum nokkra kórfélaga að máli i hléi og spurðum þá fyrst hvernig fjár hefði verið aflað til ferðarinnar. „Fjármálin litu ekki vel út i byrjun,“ sögðu þau, „þvi þessu fylgir mikill kostnaður og tím- inn var stuttur. Við gáfum út auglýsingabiað, sem gaf tais- vert af sér og einnig héidum við tvö happdrætti, spjaldhapp- drætti og skyndihappdrætti á 17. júní. Hins vegar reyndist Kór Menntaskólans við Hamrahiíð tekur þátt í evrópskri kórahátíð mjög erfitt að fá styrkí frá ríki eða borg, en fengum við þó 75.000 króna styrk frá mennta- málaráðuneytinu. Auk þess hafa ýmsir einstaklingar verið mjög hjálplegir og styrkt okkur fjárhagsiega." Þau sögðu að geysilegur timi hefði farið til æfinga, því auk þess að æfa fyrir sjálfstæðu tónleikana, hefðu þau þurft að undirbúa sig fyrir verkin, sem kórarnir flytja sameiginlega. „Við erum miklu meiri áhugamenn en kórarnir frá hinum löndunum," sögðu þau, „og, þar af leiðandi fer mikiil tími í undirbúning fyrir sam- eiginlega flutninginn, því við kunnum fæst að lesa nótur og verðum að syngja mpira eftir tilfinningunni.“ Stelpurnar munu koma fram í upphlut, en það þótti of heitt fyrir strákana að vera í íslenzk- um búningi. Þau kváðust vera dálítið taugaspennt, „en það þarf líka að vera,“ sögðu þau, „því annars koma tilfinning- arnar ekki“. Á söngskránni verða kirkju- verk og verk eftir ýmis íslenzk tónskáld, s.s. Jón Þórarinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Jón Ás- geirsson, Gunnar Reyni Sveins- son og Pál. P. Pálsson. Þá á Þorsteinn Valdimarsson stóran þátt i söngskránni, þvi hann hefur gert marga sérlega góða texta fyrir kórinn. Að hátíðinni lokinni er ráð- gert að hópurinn heimsæki Stratford, fæðingarborg Shake- spears, Oxford og London, en hópurinn er væntanlegur heim 12. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.