Morgunblaðið - 29.07.1976, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 29.07.1976, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1976 "’S Halldór Snorrason verið hinn mesti kaupmaður og lengi í siglingum til ýmissa landa og fært kon- ungi gersemar. Þórir var hirðmaður Har- alds konungs og þá mjög gamall. Þórir kom að máli við konung og mæli: „Ég er maður gamall sem þér vitið, og mæðist ég mjög. Þykist ég nú eigi til fær að fylgja hirðsiðum, minni að drekka, eða um aðra hluti, þá sem til heyra. Mun nú annars leita verða, þótt þetta sé best og blíðast, að vera með yður.“ Konungur svarar: „Þar er okkur hægt til úrræða vinur; ver <njteð hirðinni og drekk ekki meira en þú vilt í mínu leyfi.“ Bárður hét maður upplenskur, góður drengur og ekki gam- all; hann var meó Haraldi konungi í miklum kærleikum. Voru þeir sessunaut- ar: Bárður, Þórir og Halldór. Og eitt kvöld, er konungur gekk þar fyrir, er þeir sátu og drukku, gaf Halidór í því bili Vltf> KAff/nö f fc upþ hornið. Það var dýrshorn mikið og skyggt vel; sá gerla í gegn um, að hann hafði drukkið vel til hálfs við Þóri; en honum gekk seint að drekka. Þá mælti konungur: „Seint er þó menp aö reyna, Halldór,“ segir hann, „er þú níðist á drykkju við gamalmenni og hleypur aó vændiskonum á síðkveldum, en fylgir eigi konungi þínum.“ Halldór svarar engu, en Bárður fann, að honum mislík- aði tal konungs. Fór Bárður þegar um morguninn snemma á fund konungs. „Þú ert nú árisull Bárður,“ segir konungur. „Er ég nú kominn,“ kvað Báróur, „að ávíta yður herra. Þér mæltuð illa og ómaklega í gærkveld til Halldórs vinar yðar, er þér kennduð honum, að hann drykki sleitilega; því að það var Þóris, er Halldór tók við og drakk fyrir hann meira en til hálfs. Það er og hin mesta lygi, er þér sögðuð, að hann færi til léttlætiskvenna, en kjósa myndu vinir hans, að hann fylgdi yður fastara." Kon- ungur segir, að þeir Halldór mundu þetta mál semja með sér, þá er þeir fyndust. Bárður fór þá á fund Halldórs og sagði, að konungur talaði góð orö til hans, — sagði einsætt, að hann fengist ekki um, þótt konungur kastaði slíkum orðum fram með engri alvöru. Átti Bárður hinn besta hlut að því að miðla málum. Leið þá svo fram, að fæð var á meó þeim konungi og Halldóri. . . myndi einhvern daginn ekki vera hægt að slökkva á því. COSPER Þú verd- ur að muna að spýta perlunum þegar þú borðar ostrur! Ungur maður spurði eitt sinn Disraeli, í hvaða skóla bezt væri fyrir sig að fara, til þess að geta orðið góður ræðu- maður og komast á þing. „Er ekki grafreitur þar ná- lægt, sem þér eigið heima?“ „Jú,“svaraði maðurinn. „Þá,“ sagði Disraeli, „ráð- legg ég yður að fara þangað snemma á hverjum morgni og halda ræður yfir legsteinun- um.“ Eitt sinn var verið að tala um það, að Sumner tryði ekki því, sem stæði í Biblfunni. Grant forseti, sem var nær- staddur, sagði þá: „Hvers vegna þyrfti hann endilega að gera það, hann skriftaði hana ekki.“ „Haldið þér að þér séuð nógu menntaður til þess að vinna hér á skrifstofunni?" „Nógu menntaður, já, ég var rekinn, þar sem ég vann sfðast, vegna þess að forstjórinn sagði að ég vissi of mikið.“ Prófessorinn: Ég hefi verið rændur gömlu gulldósunum mfnum. Eiginkonan: En fannstu ekki þegar farið var f vasa þinn. Prófessorinn: Jú en ég hélt að það væri mfn eigin hönd. „Hve lengi hefurðu haft þessa vinnukonu?" „0, hér um bil þrjá eigin- menn.“ Hóskadraumar Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 38 Hún kastaði sfgarettustuhbnum f arinofninn og leit pfreyg á Christer. — Hafði hann á réttu að standa? Var Jón líka myrtur? — Það er ógerlegt að kveða upp úr um það fyrr en við höfum niðurstöður krufningar í höndun- um. En segið mér frá fimmfu- dagskvöldinu. Fannst yður hann vera eins og hann átti að sér, þegar þér sáuð hann sfðast um nóttina? — Já, það hugsa ég nú.... En ef ég á að vera hreinskilin þá hafði ég sturtað f mig hellingi af kampavíni og ég tók ekki eftir þvf þegar hann fór upp ... ég býst við það hafi verið um ellefule.vtið eða svipað leyti og Andreas fof sjálf- ur þvf að þegar við vorum búin að þvo upp og drekka kaffi frammi f eldhúsi var hann ekki með okkur. — Hvað leið langur tfmi þangað til þér fóruð upp? — Ja, kannski svona klukku- tfmi. Dyrnar á milli svefnher- bergjanna okkar voru aldrei lok- aðar og ég gægðist inn tíl hans, en þá hafði hann slökkt Ijósið óg ég sá ekki betur en hann væri stein- sofnaður. — <)g þér vöknuðuð ekki þegar hann fór fram úr seinna um nótt- ina og gekk fram í baðherbergið? — Nei. Hún varp öndinni mæðulega. — En ég hef sjálfsagt sofið fastar en venjulega út af öllu kampavfninu. — Hvað haldið þér hann hafi verlð að fara með demantshring- inn? — Já, finnst yður það ekki skrýtið? Hann hefur sjálfsagt ver- ið alveg út úr heiminum hlessað- ur. — Mér finnst ságan öll dálftið mikið út úr heiminum. eins og þér segið. Hvers vegna haldið þér að hann hafi ekki afhent vður gjöfina um morguninn? Hún samsinnti honum kröftug- lega. — Haldið þér ekki að ég hafi Ifka velt þvf fyrir mér ... svo mikið er ég búin að hugsa um það, að ég er orðin alveg ringiuð. Eg var svo vonsvikin að ég átti ekki orð, þegar hann gaf mér ekki annað en ilmvatnsglas og þvf mið- ur hef ég vfst látið hann finna það, og var bæði fúl og leiðinleg við hann — hvernig átti ég að vita að þetta væri sfðasti ævidagur hans... — Var það nokkuð óvenjulegl að þið væruð fúl og leiðinleg hvort við annað? Hún horfði á hann stóreygð af uridrtm. — Ja, það er eftir hvernig á það er litið. Við rifumst stundum, sér- staklega ef einhverjir fleiri voru viðstaddír, en eiginlega vorum við æðisiega hamingjusöm og ofsalega skotin hvort í öðru. Það er alveg ægilegt ... að öllu skuli vera lokið ... og hann skuli ekki vera hjá mér lengur. Ég reyni að hugsa ekki um það ... en það er allt svo óskaplega erfitt... Hún þerraði burt fár með hand- arbakinu, en Christer virtist ekki snortinn og sagði blátt áfram: — Voruð það þér sem bjugguð tilsalatiðí kvöld? Hún greip andann á lofti. — Salatið? Já ... ég gerði það. Vlvu fannst við eiga aó nota krystalsskálatnar við þetta tæki- færi og svo komum við okkur saman um að við skyldum hafa salat. Hvers vegna spyrjið þér um það? Eitrið sem varð Andreas Hall- mann að bana var f salatskáiinni hans, sagði Christer þurrlega. — Hverjir aðrir en þér hofðu að- stöðu til að koma nála-gt þvf sem var f skál Andreasar? — Skál Andreasar? Hún endurtók orðin vantrúuð í röddinni og þegar hún svaraði spurningunni gerði hún það eins og vélrænt og annars hugar: —Ylva var frammi f eldhúsinu allan tfmann. Kári og Björg komu og fóru — á meðan þau voru að bera inn matinn. Og mig minnir að Malin kæmi fram... Allt f einu þagnaði hún og leit á hann skelfingin uppmáluð f and- litinu. — Rauða skálín hans Andreas- ar. •Já? — Hún stóð á skenknum við hliðina á borðstofunni. En þar stóð hún líka á fímmtudaginn — kvöldið sem Jón dó. Þér haldið þó ekki... ? Hún stökk allt f einu upp og kastaði sér sfðan á kné við hæg- indastól Christers. Hún barði tryllingslega f handlegg hans og hrópaði: — Þér haldið þó ekki að það hafi verið eitur f henni ÞA? og það eitur hafi orðið Jóni að bana? Christer Wijk horföi á hana og aldrei þessu vant var henn heldur áikulegur á svipinn. — En góða frú iiallmann, hvernig hefði eitur f skál Andre- asar átt að verða manni yðar að hana? — Ö, þér skiljið ekkert. Skiljið þér ekki, hvað er voðalegt að heyra yður vera að tala um þessar skálar. Eg vissi ekki það væri neitt merkilegt við þær — hvern- ig átti ég að vita það, ha? Og þegar ég kom fram f eldhúsið á fimmtudaginn sá ég að það var

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.