Morgunblaðið - 29.07.1976, Side 29

Morgunblaðið - 29.07.1976, Side 29
MORGUNBLÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULI 1976 29 VELA/AKANDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags 0 Bankar matstofur? Kona sem kemur oft í banka i Reykjavík gerir að um- talsefní þjónustu í þessum stofn- unum og finnst hún ekki alltaf til fyrirmyndar: „Fyrir stuttu fór ég i nokkra banka í Reykjavík og þurfti að fara á sama deginum í 2—3 banka. Það er ekki í frásögur fær- andi en mér datt i hug að segja lítillega frá þeirri ferð og nefna eitt og annað sem fyrir augu bar og mér fannst fremur hvimleitt. I einum bankanum kom ég að starfstúlku þar sem hún sat að snæðingi og var allupptekin við það. Þetta var nú ekki á matar- tima en konan át sinn ávöxt og ég beið nokkra stund áður en ég fékk afgreiðslu. Ég vann sjálf í banka og veit að þetta er ekki aiveg eftir reglunum að vera að borða fyrir augunum á viðskipta- vinum, en það eru kannski mis- munandi reglur í bönkunum. Ég hélt þó að yfirleitt reyndi verzlun- arfólk að borða á öðrum stöðum en þeim sem viðskiptavinir sjá til. Leiðin lá í annan banka og var nú enn lengra liðið frá matartíma svo ekki var líklegt að ég þyrfti að tefjast af hungruðu starfsfólki. En þar bar hins vegar svo til að í þann mund er ég kem inn og hyggst fá afgreiðslu, að einhver, sem greinilega hafði unnið í bankanum, var í heimsókn og tók mjög athygli starfsfólksins frá viðskiptavinunum. Þessi fyrrver- andi starfsmaður gekk þannig um ýmsar deildir bankans og tafði ekki aðeins fyrir á einum stað heldur hafði það af að gera það um allan afgreiðslusalinn. Þetta eru tvö lítil og sjálfsagt sakalaus dæmi um frekar leiðin- lega aðkomu I hálfopinberar stofnanir, en þau eru ekki þau fyrstu sem ég verð vitni að. Eitt sinn kom ég að þar sem þrír gjald- kerar voru við afgreiðslu og stóð hópur af fólki aðeins hjá tveim þeirra, því sá þriðji virtist upp- tekinn við eitthvað annað. Ég fór því einnig í hópinn með öðrum en brátt kom að maður sem var á nokkurri hraðferð, því hann fór umsvifalaust til þess, sm enginn var hjá og bað hann sinna sér. Gjaldkerinn var nú ekki á því en maðurinn gaf sig ekki og fór svo að lokum að viðskiptavinurinn ' fékk þá þjónustu sem hann þurfti. Ekki skal ég dæma um hvort hér var um frekju við- skiptavinarins að ræða eða hvort gjaldkerinn var það upptekinn við annað að hann gæti ekki sinnt afgreiðslu, en mér finnst ég alltof oft sjá þess dæmi að eitt og annað sem getur beðið er látið ganga alltof mikið engifer í Jóns skál og þar sem ég vissi að hann vill ekki borða engifer fyrir svefninn, hvað átti ég þá að gera? Ég reyndi að ná þeim upp með skeið, en það gekk ekki. Rauða skálin hans Andreasar var við hliðina á og þar voru fleiri kirsuber og minna engifer og þess vegna ... — bess vegna hvað ... ? RÖdd Uhristcrs var hranaleg. Ilún leít kvfðaful! á hann og hvíslaði: Þess vegna skipti ég um inni- haldið í skálunum tveimur. Þarna var tómt grátt glas og ég hellti ávaxtasalati Andreasar f það og síðan setti ég skammt Jóns í rauða glasið. Ég skolaði svo af gráa glasinu og þurrkaði það. — Þér eigið sem sagt við, sagði Christer og lagðí álierzlu á hvert orð — að Andreas Hallmann hafi borðað skammt Jóns. Og að Jón Hún kinkaði kolli viti sínu fjær að sjá. — Já. Hann ... hann fékk skammtínn sem upphaflega var búinn til handa ... Andreas ... fyrir því að sinna viðskiptavinum. Maður hélt að bankar kappkost- uðu um að veita góða og skjóta þjónustu. Ég tek fram að langflest banka- starfsfólk er mjög lipurt og þægi- legt og vona að þetta sem ég hef rakið hér teljist frekar til undan- tekninga. Við erum hvött til að notfæra okkur þjónustu bank- anna og það gerum við svo sann- arlega (a.m.k. er svo að sjá ef marka má fjölda þeirra), en hver veit nema það minnki ef þeir gæta þess ekki að halda uppi sem bestri þjónustu við þá sem þangað leita.“ • Erfittað afgreiða íslendinga? Stundum hefur verið sagt að „kúnninn" hafi alltaf rétt fyrir sér og eflaust hafa margir unnið eftir þeirri formúlu um árin. Fólki finnst oft á það hallað og þá er afgreiðslufólkið ekki alltaf reiðubúið að samþykkja eða kyngja ásökunum orðalaust og vill heldur fá að svara fyrir sig. En það geta sjálfsagt margir til- fært svipuð dæmi og hér var gert um ýmiss konar þjónustu, hvort heldur er á opinberum stofnun- um eða í einkafyrirtækjum. Þar sem einhver samkeppni ríkir i ákveðnum greinum er þó oftast um góða þjónustu að ræða og fyr- irtækin kappkosta að gera alla sem ánægðasta til að þeir beri þeim vel söguna og enn fleiri komi i fyrirtækið. Opinberum stofnunum hefur kannski helzt verið álasað fyrir slælega þjónustu og þá ekki sízt varðandi opnunartíma. Sum ríkis- fyrirtækin hafa t.d. ekki opið nema 10—12 og 14—16 eða eitt- hvað álíka, en þau eru líka mörg sem hafa opið alveg frá kl. 8 eða 9 á morgnana og til 16 eða 17 á daginn og hafa líka opið í hádeg- inu. Það er t.d. ekkert mjög langt síðan bankar tóku upp á því að hafa opið i hádeginu og gera það þó ekki allir. En þeir reyna þá að hafa opið lengur fram á eftirmið- daginn. Annars hlýtur að vera fremur leiðinlegt að afgreiða hér hjá okk- ur þvi við kunnum t.d. varla að fara í raðir og yfirleitt reynir hver sem betur getur að troðast og svindla sér fram fyrir ef þess er nokkur kostur. Við reynum líka að komast áfram á „klík- unni", kalla bara i þennan eða hinn kunningja okkar sem er í miðri afgreiðslu og biðja hann að gera okkur smágreiða fyrir fram- an nefið á öllum hinum sem bíða. Við hrósum okkur jafnvel af því ef okkur hefur tekizt að klekkja þannig á náunganum og verða langt á undan honum. HÖGNI HREKKVISI „Má ég kynna þig fyrir Högna hrekkvísa öðrum, Högna hrekkvisa þriðja, Högna hrekkvísa fjórða og Högna hrekkvísa fimmta .. Mercedes Benz '72 Sérlega vel með farinn og fallegur bill. Upplýs- ingar í síma 31 236 í vinnutíma. HÚSMÆÐUR Kryddkynning í dag fimmtudag kl. 2 — 6 í versluninni Aðalstræti 9. Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun hinna ýmsu kryddtegunda. VERIÐ VELKOMIN Matardeildin, Aðalstræti 9. Það passar f rá LeeGooper

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.