Morgunblaðið - 29.07.1976, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 29.07.1976, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULI 1976 31 Drut og Garde- rud sigruðu Í FYRSTA sinn í 48 ár var það ekki Bandaríkjamaður sem kom fyrstur að marki í úrslitahlaupi 110 metra grindahlaupsins á Ölympluleikunum, er Frakkinn Guy Drut sigraði í þessari grein á Ólympfuleikunum f Montreal f gærkvöldi. Hljóp Frakkinn frá- bærlega vel og kom f markið á 13,33 sek. 3/100 úr sekúndu á undan Alejandro Casanas frá Kúbu sem hlaut silfurverðlaunin. Bronsverðlaun var þvf eina upp- skera Bandarfkjanna í þessari grein, sem þeir hafa oftast unnið þrefalt á Ólympfuleikunum, og þau féllu í hlut hinnar gamal- kunnu kempu Willie Davenport sem hljóp á 13,38 sek. Fjórði í hlaupinu varð svo Bandaríkja- maðurinn Charles Munkelt á 13,41 sek. Austur-þýzka stúlkan Baerbel Eckert sigraði í 200 metra hlaupi kvenna f gærkvöldi, hljóp á 22,37 sek. og setti nýtt Ólympíumet. Önnur f hlaupinu varð Annegret Richter frá Vestur-Þýzkalandi á 22,39 sek. og þriðja varð Renate Steeher frá Austur-Þýzkalandi á 22,47 sek. Keppt var til úrslita f hástökki kvenna f gærkvöldi og varð Rosi Ackermann frá Austur- Þýzkalandi sigurvegari. Önnur varð Sara Simeoni frá ítaifu og Yordanka Blagoeva frá Búlgaríu varð þriðja. Pólverjar tryggðu sér brons- verðlaun í handknattleik karla á Ólympfuleikunum f gærkvöldi og Sovétmenn hlutu gullverðlaun f handknattleik kvenna. fxtMtw m! Leikmenn Southampton fagna eftir sigur yfir Manchester United i úrslitaleik ensku bikarkeppninnar i vor Það er Peter Osgood sem -heldur bikarnum góða á lofti en með honum á myndinni eru Jimmy Steele og Peter Rodrigues Urvalslið KSI mætir Southamton í Laug- ardalnum í kvöld „Mikilvægur liður í undirbúningi landsliðsins", segir Ellert Schram Svfinn Anders Gárderud sigraði f 3000 metra hindrunar- hlaupi á Ólympfuleikunum í Montreal í gærkvöldi og setti glæsilegt heimsmet, hljóp á 8:08,0 mín. Sjálfur átti hann eldra heimsmetið og var það 8:09,8 mín., sett í Stokkhólmi fyrir rúmu ári. Silfurverðlauna- hafi í iMontreal varð Bronislaw Malinowski frá Póllandi og brons- verðlaun hlaut Frank Baumgartl frá Austur-Þýzkalandi. Lilja Guðmundsdóttir. — ÞESSIR leikir við Southamton eru mjög mikilvægur liður í und- irbúningi landsliðsins fyrir landsleikina gegn Belgíumönn- um og Hollendingum f haust, en þeir leikir eru með stærstu verk- efnum, sem íslenzkt landslið hef- ur fengið við að glfma, sagði EU- ert Schram, formaður Knatt- spyrnusambands Islands, þegar Mbl. ræddi stuttlega við hann í gær um leikina við Southampton. Lcikirnir tveir verða í kvöld og annað kvöld. t kvöld mætir Sotuh- amton úrvalsliði KSt á aðalleik- vanginum í Laugardal klukkan 20 og annað kvöld mætir Southampt- on öðru úrvalsliði KSt á Akureyr- arvelli klukkan 19.30. Ellert sagði að stjórn KSÍ og landsliðsnefnd hefði þótt fulllítið af verkefnum fyrir landsliðið um mitt sumarið. Hefði verið leitað eftir landsleikjum en erfitt hefði verið að koma þeim á. — Við leituðum þá eftir góðum félagslið- um og vorum svo heppnir að fá ensku bikarmeistarana Southamt- on til að leika tvo leiki. KSÍ fær allajafna ekki félagslið til Iands- ins, til að standa ekki í samkeppni við íslenzku félögin á þeim vett- vangi. En okkur þótti rétt að taka lið nú, þar sem svo lítið var um landsleiki hér heima. í leikjunum gegn Southamton fæst gott tæki- færi til að líta á alla þá íslenzku leikmenn, sem hafa staðið sig vel í sumar en ekki hafa verið í lands- liðshópnum. Ennfremur fæst þarna tækifæri til að reyna leik- aðferðir, sagði Ellert. Að sögn Ellerts er dýrt að fá Southamton hingað til lands og sagðist hann treysta á að knatt- spyrnuáhugamenn flykktust á völlinn til að sjá skepimtilega leiki og tryggja einnig fjárhags- Iegan grundvöll heimsóknarinn- ar. Ákveðið hefur verið, að ágóði af leiknum á Akureyri skiptist á milli liða í 2. deild, vegna kostnað- arsamra ferðalaga í deildinni, svo framarlega sem hann verður ein- hver, en það byggist að sjálfsögðu á aðsókninni. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær er valinn maður í hverju rúmi í liði ensku bikar- meistaranna, en nafntogaðastir eru vafalaust kapparnir Mike Channon og Peter Osgood. í ís- lenzka hópnum í kvöld eru 18 leikmenn og eru það eftirtaldir: Sigurður Dagsson Val Árni Stefánsson Fram Viðar Halldórsson FH Marteinn Geirsson Fram Ottó Guðmundsson KR Jón Pétursson Fram Oskar Tómasson Víkingi Ingi Björn Albertsson Val Ölafur Júlíusson ÍBK Atli Eðvaldsson Val Elmar Geirsson Trier Hermann Gunnarsson Val Guðmundur Þorbjörnsson Val EFTIR slaka frammistöðu í frjálsfþróttakeppni karla á ölympíuleikunum í Montreal hristu Sovétmenn heldur betur af sér slenið er keppt var til úrslita í sleggjukastinu á leikunum f gær. Þrfr fyrstu menn voru allir Sovét- menn og áður en lauk höfðu þeir bætt Ólympíumetið sem Anatoliy Bondarchuk setti á Ölympíuleik- unum f Miinchen eigi sjaldnar en fjórum sinnum. Voru það þeir Sigurður Indriðason KR Gísli Sigurðsson UBK Vilhjálmur Kjartansson Val Magnús Bergs Val Kristinn Björnsson Val Yuriy Sedyh og Alexey Spiri- donov sem skiptust á að bæta met- ið, en f sfðustu umferðinni mun- aði minnstu að Bondarchuk bætti það einnig sjálfur, en þá kastaði hann 75,48 metra — aðeins 2 sentimetrum styttra en hann gerði í Miinchen og þar með krækti gamli maðurinn í brons- verðlaunin, en Bondarchuk er meðal elztu keppendanna í frjáls- um fþróttum á ölympíuleikun- um, tæplega 37 ára að aldri. Þrír Sovétmenn á verðiaunapaÉium - gamli Bondarchuk krækti í bronsiö Lilja stórbætti met sitt í 1500 m hlaupi Lítið gaman að æfa með skeggjuðum og dimmrödduðum Austur-Evrópukonum sagði hún Frá Ágústi I. Jónssyni í Montreal: LILJA Guðmundsdóttir setti glæsilegt tslandsmet f 1500 metra hlaupi á Ólympfuleikvanginum hér f Montreal í gærmorgun. Hljóp Lilja vegalengdina á 4:20,27 mfn. og bætti eldra met sitt um sex sekúndur, en það var 4:26,20 mfn., sett 19. júnf s.l. Lilja hefur nú lokið keppni sinni hér f Montreal og setti hún íslandsmet bæði f 800 metra hfaupi og 1500 metra hlaupi. — Ég er mjög ánægð með tim- ann, sagði Lilja við fréttamann Morgunblaðsins skömmu eftir að hún kom í mark. — Ég vonaðist að sjálfsögðu eftir því að bæta metið, en bjóst ekki við að tíminn yrði svona góður. Ég og júgóslva- neski þjálfarinn minn i Sviþjóð höfðum áætlað að næsta sumar myndi ég komast niður á 4:18 i 1500 metra hlaupi og þessi bæting núna kemur mér, og honum alveg örugglega, mjög á óvart. Annars er ég ekkert þreytt og hefði ég byrjað endasprettinn fyrr þá hefði ég örugglega farið undir 4:20 sagði Lilja. Lilja er búin að bæta íslands- metið í 1500 metra hlaupinu um 14 sekúndur á skömmum tíma og persónulegan árangur sinn um heilar 40 sekúndur á tveimur ár- um. Lilja tekur þátt í alþjóðlegu stórmóti í Svfþjóð 11. ágúst næst- komandi og ætti hún ,að geta bætt metin þá enn frefear, en and- stæðingarnir þar verða mjög svipaðir Lilju að getu, þannig að um nauðsynlega keppni ætti að verða að ræða fyrir hana. Um slíka keppni var ekki að ræða í hlaupinu í dag. Lilja var síðust þegar frá upphafi, en aldrei þó langt á eftir aðalhópnum. Andstæðingar hennar voru heldur ekki af verri endanum þvi sú sem átti næstlélegastan tima í riðlinum hafði áður hlaupið á 4:12 min. Hlaupið var i fjórum riðlum í undankeppninni og fékk Ludmila Bragina frá Sovétrikjunum beztan tima keppendanna 36 eða 4:07,11 min. Hún á sjálf Ólympiu- metið i þessari grein frá leikun- um I- Múnchen og er það 4:01,4 min. Norska stúlkan Greta Waitz hljóp 1500 metrana i undan- keppninni í gær á 4:07,20 mín og var það fjórði bezti timinn sem náðist í riðlunum. Eigi að siður munaði litlu að Grete kæmist ekki áfram i keppninni, þvi hún varð fjórða i sinum riðli, en fjórar þær fyrstu í hverjum riðli komust áfram. Svo við snúum okkur aftur að Lilju Guðmundsdóttur, þá sagði hún að hún myndi sennilega dvelja í Sviþjóð a.m.k. eitt ár i viðbót. Hvort hún myndi einbeita sér að 800 eða 1500 metrunum væri ekki gott um að segja. — 1500 metrarnir virðast jafnvel liggja betur fyrir mér, en ég er þó ekki viss um að ég eigi að einbeita mér að þeim, — þjálfarinn minn verður aó ákveða það með mér, sagði Lilja. í lokin spurðum við Lilju hvort henni fyndist erfitt að taka þátt i keppni eins og Ólympíuleikunum, þar sem allar skærustu stjörnurn- ar væru meðal keppenda. — Mér hefur ekki fundist það erfitt þeg- ar kemur að sjálfu hlaupinu, sagði Lilja, — þá finn ég ekki Framhald á bls. 18 Þeir Sedyh og Spiridonov höfðu sett fjögur Ólympiumet eftir tvær fyrstu umferðirnar i úrsLita- keppninni og kastaði Sedyh 77,52 metra í annarri umferóinni. Þannig var sýnt að erfitt yrði að slá hann út, enda fór svo að eng- inn komst neitt nálægt honum. Lengi vel var heimsmethafinn, Walter Schmidt frá Vestur- Þýzkalandi, I þriðja sæti með 74,72 metra en i fimmtu urnferó tókst landa hans Karl Heinz Riehm að kasta lengra eða 75,46 metra. Þar með virtust bronsverð- launin hans, en Bondarchuk var hins vegar á öðru máli og það var kraftur á karli er hann snerist i hringnum eins og skoppara- kringla í siðustu umferðinni og náði geysikröftugu útkasti. Kast hans mældist 75,48 metra — 2 sentimetrum lengra en kast Riehm. ÚRSLIT Yuriy Sedyh, Sovétr. 77,52 Alexey Spiridonov, Sovétr. 76,08 Anatoliy Bondarchuk, Sovétr. 75,48 Karl Heinz Riehm, V-Þýzkal. 75,46 Walter Schmidt, V-Þýzkal. 74,72 Jochen Sachse, A-Þýzkal. 74.30 Chris Black, Bretlandi 73,18 Edwin Klein, V-Þýzkal. 71,34 Jacques Accambray, Frakkl. 70.44 Manfred Seidel, A-Þýzkal. 70,02 Shigeno Murofushi, Japan 68,88 Peter Farmer, Astrallu 68,00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.