Morgunblaðið - 30.07.1976, Page 14

Morgunblaðið - 30.07.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1976 Barna- og unglingaskór Tegund 34 75. Nr. 28-34. Kr. 2.690. Tegund 4017. Nr. 28—35. Kr. 2.245 Milli- brúnir. Tegund 7069. Nr. 21-27, kr. 2.235. Nr. 28-34, kr. 2660. Gulir og grænir, tvíiitir. Tegund 8051. Nr. 22-27. Kr. 2.325. Ljósir með laxableiku. Tegund 8052. Nr. 24-27, kr. 2.365. Nr. 28-35, kr. 2. 745. Ljósbrúnir. Sendum gegn póstkröfu Austurstræti DANIEL BARENBOIM Píanóleikarinn og hljómsveitarstjórinn Daniel Barenboim er fslendingum vel kunnur. Hann kom hingað til lands á fyrstu listahátíð 1970 ásamt konu sinni, cellóleikaranum Jaqueline du Pré. „Ég kom hingað fyrir Ashkenazy,“ sagði Baren- boim blaðamanni Morgunblaðsins þá, „hann hefur svo geysilegan áhuga á þessari listahátfð.“ Auk þess að halda hér tónleika með konu sinni, stjórnaði hann einnig Sinfóníuhljómsveit fslands — hljóp í skarðið með örstuttum fyrirvara fyrir vin sinn André Previn. Ef dæma má af eftirfarandi grein um Barenboim, virðist hann ekki hafa munað mikið um að skreppa til fslands á listahátíð ... Einu sinni sem oftar kom Daniel Barenboim til Berlínar til að halda tónleika og leika inn á hljómplötur. Pianóið, sem honum hafði verið ætlað, reyndist ekki nægilega gott að hans mati. Þetta var á sunnu- degi og þrátt fyrir víðtæka leit í borginni, fannst ekkert nógu hljómfagurt píanó. Loks tókst þó að hafa uppi á eiganda einn- ar stærstu hljóðfæraverzlunar- innar í Berlín. Hann var að njóta hádegisverðar úti í sveit og varð að hlaupa frá borðinu til að opna verzlunina. Baren- boim settist við hvert píanóið á fætur öðru og lék hluta úr Mozartkonsertinum, sem hann ætlaði að spila á tónleikunum. Múgur og margmenni söfnuð- ust saman fyrir utan verzlun- ina, en Barenboim lét sig það litlu skipta og einbeitti sér að ieitinni að réttu hljóðfæri. Hann fann það sem hann leitaði að og gat staðið við samningana I Berlin. Vikuna eftir stjórnaði hann hljómsveit fimm nætur i röð, hélt tónleikana sjötta kvöldið og lék inn á fimm LP- hljómplötur á milli tónleik- anna. Á sjöunda degi flaug hann til Parísar og hélt næstu tónleika, á áttunda degi til Lon- don á fund eiginkonu sinnar, Jaqueline du Pré. Þaðan beint til Glasgow og Edinborgar til að spila á enn fleiri tónleikum. Þessi saga er Daniel Baren- boim i hnotskurn. Þetta er krafturinn og orkan, sem er að verða að goðsögn i tónlistar- heiminum, Daniel Barenboim er í hópi þeirra fáu og maka- lausu listamanna, sem standa efst á tindi heimsfrægðarinnar, svo að segja rikisfangslausir vegna stöðugra ferðalaga, sem vita fyrir ailar sínar hreyfingar næstu árin og fá næstum óhugnanlegar fúlgur fyrir að koma fram. Hljómsveitarstjóri eða konsertpíanisti á borð við Barenboim fær á milli 260 þús og 650 þús ísl. kr. fyrir eina kvöldstund — og allt að 16 milljónir á ári i sölulaun fyrir hljómplötur. Gagnrýnendur og aðdáendur Barenboims eru sammála um hæfileika hans. Hann fyllir tón- listina nýju lifi í hvert það sinn, sem hann túlkar hana og það er líkt og hún hafi aldrei heyrzt áður. Sumum mislíkar still hans eða eru ósammála túlkun hans, en það eru fáir tónlistar- menn í dag, sem /ita jafn ná- kvæmlega, hvað þeir vilja og kunna jafnframt að laða þann tón fram. Forfeður Barenboims voru rússneskir Gyðingar, sem sett- ust að í Buenos Aires í Argen- tinu. Foreldrar hans voru bæði píanókennarar. ,,Ég hitti eng- an, sem ekki kunni á píanó, fyrr en ég varó nógu gamall til að fara einn að heiman,“ hefur Barenboim sagt. Fyrstu tónleik- ana hélt hann i Buenos Aires, T résmíðaverkstæði til sölu Til sölu er trésmíðaverkstæði á Reykjavíkur- svæðinu vel búið tækjum. Þeir sem hafa áhuga leggi nafn sitt fyrir 5. ágúst á afgr. Mbl. merkt: „trésmíðaverkstæði — 1976 — 6302". Lax- og silungsveiði í Þórisstaðavatni Eyrarvatni og Geitabergsvatni. Veiðileyfin fást hjá okkur Hótel Akranes Akranesi Ferstikla Hvalfjarðarströnd. Ferðafólk Ferstikla Hvalfjarðarströnd býður yður fjölbreyttan mat s.s. TOLONA PIZZA T-BONE STEIKUR FILLET STEIKUR HAMBORGARA O.FL. O.FL. Áningastaður í alfaraleið Ferstikla HvaHjarðarströnd Sólskins- dagar í þoku Þetta mun nú þykja ótrúleg byrjun á ferðasögu. Er hægt að tala um sólskinsdag í þoku? Ég svara játandi, þegar ég hugsa til skemmtiferðar gamla fólksins í Langholtssöfnuði 21. þ.m. Þaó var þoka allan daginn og stundum dálítil rigníng, en samt virtust mér allir i sólskinsskapi og inni- lega glaðir. Þetta var þrettánda ferðin, sem söfnuðurinn hefir efnt til. Félög safnaðarins — kvenfélag og bræðrafélag, — undirbúa ferðirnar, en bílstjórar Bæjarleiða leggja til bíla og bíl- stjóra ókeypis. Farþegar borga ekkert — „ekki eitt lambasparð“, eins og skáldið sagði. Og þetta var nú engin smáræðislest, 29 bílar alls. Farþegar sjálfsagt nær 100. Prestar safnaóarins voru báóir með í förinni og sá eldri þeirra var fararstjóri, en aðstoðarmaður var hin aldna kempa Árni Óla, rithöfundur. Hann sagði ferða- mönnum sögur um hió helzta, sem fyrir augun bar, en þó með svo góðum hvildum, að menn gátu sjálfir talast við annað veifið. Hann kann sitt verk, hann Árni Óla. Ég undrast rithæfni og frá- sagnarlist þess manns, sem er þó fæddur á níunda tug síðustu ald- ar. Vona að hann endist sem lengst og bezt. Lagt var af stað frá safnaðar- heimili Langholtssafnaðar klukk- an að ganga tvö e.h. og haldið sem leið liggur að Húsmæðraskóla Suðurlands að Laugarvatni. Þar starfar nú Edduhótel. Þar var setzt aó kaffiborðum. Hótelið > lagði til kaffi en kvenfélagið ágæta brauðpakka, en þeir sem viidu máttu hafa með sér nesti. Afgreiðsian í hótelinu gekk fljótt og vel. Okkur var tekið þar með hlýju og velviid. Staðnæmzt var i einn og hálfan tíma. tíengið var að vigðu lauginni. Þar sagði sr. Árelius hina merku sögu laugar- innar í fáum orðum og minntist hinna fornu sagna um skirn for- feðra vorra árið 1000 og þvott á likum Jóns Arasonar biskups og sona hans. Einnig minntist hann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.