Morgunblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JULI 1976
17
FRAM SLAPP
FRAMARAR máttu þakka fyrir
að hreppa sigur í leik sínum við 2.
deildar iið iBt f bikarkeppni KSl
á ísafirði í fyrrakvöld, Var það
ekki fyrr en I framlengingu að
Fram tókst að skora mörk sem
reyndust vera sigurmörk leiksins,
en lengst af höfðu Isfirðingar
haft yfir f leiknum.
Isfirðingar léku þarna sinn
bezta leik í sumar og höfðu allan
leikinn í fullu tré við Framara,
enda hefur Reykjavíkurliðið
sennilega goldið þess að leikið var
s malarvelli. Isfirðingar náðu for-
ystu í leiknum á 22. mfnútu er
Örnólfur Örnólfsson komst inn í
sendingu og tókst síðan að renna
knettinum framhjá Árna Stefáns-
syni í Frammarkinu. Var það ekki
fyrr en 2 mínútum fyrir leikslok
að Fram tókst að jafna og var þar
Steinn Jónsson á ferð. Voru Is-
firðingar óánægðir með hvernig
staðið var að þessu marki, þar
sem það kom upp úr innkasti sem
ekki var framkvæmt á réttum
stað og einnig virtist Steinn vera
rangstæður.
Strax á 2. mínútu framlenging-
arinnar skoraði Kristinn Jörunds-
son mark fyrir Fram og undir
lokin bætti Steinn þriðja markinu
við, og var þá sennilega rangstæð-
ur.
Dómari leiksins var Ármann
Pétursson og sem fyrr segir voru
Isfirðingar óánægðir með
frammistöðu hans. — Ef ég ætti
að gefa honum einkunn, eins og
þið gerið, myndi ég gefa honum
mínus tvo, sagði Fréttaritari
Morgunhlaðsins á Isafirði í gær-
kvöldi.
Patrick Earles skorar seinna mark Southamton með glæsilegum skalla.
Southamton fór með sigur
af hólmi gegn úrvalinu 2:0
Ágúst Asgeirsson
ÞROTTUR
VANN VÍÐI
SÍÐASTI leikurinn í 16-liða úr-
slitakeppni Bikarkeppni KSÍ fór
fram á Neskaupstað í gærkvöldi
og áttust þar við lið Þróttar frá
Neskaupstað og Víðis í Garði.
Lauk leiknum með sigri Þróttar,
4:2, eftir að staðan hafði verið 2:2
í hálfleik.
Víðismenn skoruðu þegar á 4.
mlnútu leiksins og bættu siðan
öðru marki við á 15 mfnútu. Stað-
an breyttist síðan i 2:1 á 25. mfn-
útu og á 30. mínútu höfðu Þróttar-
ar jafnað. í seinni hálfleik bætti
Þróttur svo tveimur mörkum við.
Þeir sem skoruðu fyrir Þrótt voru
Björgúlfur araldsson (2), Árni
Guðjónsson og Sigurður Friðjóns-
son.
TVÖ GLÆSILEG mörk færðu
Southamton sigur yfir úrvalsliði
KSl á Laugardalsvellinum f gær-
kvöldi. Ensku bikarmeistararnir
fengu ekki mörg fleiri tækifæri
en þetta, en þeim tókst að nýta
færin sín. Það sama er ekki hægt
að segja um fslenzku leikmenn-
ina, þeir fengu mun fleiri tæki-
færi þar af 2 — 3 mjög góð, en
ekki tókst þeim að koma knettin-
um rétta leið í markið. 1 heild var
leikurinn daufur. Englendingarn-
ir voru sem vænta mátti meira
með boltann úti á vellinum en
þeir sýndu engin sérstök tilþrif.
fslenzka liðið átti spretti inn á
milli og það var barátta f liðinu,
sem hefði getað fært þvf a.m.k. á
annað stigið, ef heppnin hefði
verið með.
Það var ekkert smálið, sem
Southamton stillti upp f byrjun
leiksins, allir þeir sömu og
tryggðu félaginu enska bikarinn
með 1:0 sigri yfir Manchester
United á Wembley s.l. vor. Enda
kallaði einhver á íslenzku strák-
ana úr stúkunni og sagði þeim að
standa sig betur en United f um-
ræddum leik. fslenzka liðið var
mun sprækara í fyrri hálfleiknum
en þeim seinni og það voru varla
liðnar þrjár mínútur af leiknum,
þegar það hafði skapað sér tvö
marktækifæri. Fyrst fékk Öskar
Tómasson boltann inn fyrir vörn
Southamton, greinilega rangstæð-
ur, en f stað þess að skjóta lék
hann sig út aftur, gaf boltann á
Halldór Björnsson og hann skaut
hátt yfir. Einni mínútu sfðar fékk
Agúst bætti Islandsmet sitt
- en Elias vegnaoi verr i tugþrautinni
Frá Ágústi I. Jónssyni í
Montreal
ÁGtJST Asgeirsson setti nýtt
Islandsmet f 1500 metra hlaupi á
Ólympfuleikunum í Montreal f
gærkvöldi. Hljóp hann á 3:45,47
mfn. og bætti þvf eigið met sem
sett var fyrr f sumar um 4/10 úr
sek. Hljóp Ágúst hlaup þetta
ágætlega og var sýnilega ákveð-
inn að gera allt sem hann gæti til
að standa í stórkörlunum, en með
honum f riðli var enginn annar en
hinn frægi John Walker frá Nýja-
Sjálandi, heimsmethafinn f mflu-
hlaupi, og margir aðrir þekktir
hlauparar, m.a. Malinowski frá
Póllandi, er hlaut silfurverðlaun
f 3000 metra hindrunarhlaupi f
fyrradag. Anders Gárderud frá
Svfþjóð var einnig skráður til
keppni f þessum riðli, en mætti
ekki til leiks.
Hlaupararnir fóru saman í þétt-
um hnapp fyrstu 8000 metrana í
gær, með þeirri undantekningu
að hlaupari frá Saudi-Arabíu
dróst strax aftur úr Millitfminn
eftir 800 metra var }:58,35 mín.
Þegar um 1200 metrár voru búnir
af hlaupinu tóku þeir beztu
skyndilega mikinn sprett og tókst
þá Ágústi ekki að fylgja þeim
eftir. Kom hann í markið um 30
metrum á eftir sigurvegaranum í
riðlinum, John Walker, en rétt á
undan Ágústi varð Malinowski.
Elías Sveinsson hóf keppni sfna
í túgþraut í gær og vegnaði hon-
um ekki eins vel. Hann hljóp 100
metra hlaup á 11,51 sek., stökk
6,37 metra í langstökki, varpaði
kúlu 13,94 metra og stökk 1,94
metra í hástökki. Keppnin í tug-
þraut er afar langdregin og var
ekki lokið keppni í síðustu grein
fyrri dagsins, 400 metra hlaupinu,
er Mbl. fór f prentun í gær. En
ljóst er að Elías er meðal síðustu
manna í þrautinni, en þar eru
keppendur alls 30.
Guðmundur Þorbjörnsson
stungubolta inn fyrir vörnina frá
Inga Birni. Guðmundur komst í
mjög gott skotfæri, en skaut hátt
yfir.
Gékk nú á ýmsu þar til á 28.
mínútu að íslenzka liðið fékk
bezta tækifæri leiksins. Hermann
Gunnarsson fékk boltann þar sem
hann var einn fyrir innan vörn
Southamton. Aðeins Turner
markvörður stóð milli Hermanns
og marksins. Hermann skaut, en
Turner bjargaði með mjög góðu
úthlaupi. Á 34. minútu komst
Guðmundur í skallafæri, en Turn-
er varði auðveldlega. Á 35. mín-
útu fengu Southamton menn sitt
fyrsta verulega góða marktæki-
færi. Mike Channon var hindrað-
ur innan vítateigs, og i stað þess
að dæma vítaspyrnu, sem hefði
verið það rétta, fyrst á annað borð
var dæmt á brotið, dæmdi Guð-
mundur Haraldsson óbeina auka-
spyrnu innan vitateigsins. Boltan-
um var ýtt til bakvarðarins Peach,
en Sigurður Dagsson gerði sér
lítið fyrir og varði þrumuskot
bakvarðarins við mikil fagnaðar-
læti áhorfenda. Sigurður stóð sig
vel í leiknum. Þremur mínútum
síðar átti Ingi Björn lúmskt
jarðarskot að marki Southamton,
sem smaug fyrir utan stöngina.
Eins og sjá má á upptalning-
unni voru íslenzku leikmennirnir
aðgangsharðari uppi við markið
en andstæðingarnir, en þeir
höfðu ekki heppnina með sér. 1
byrjun seinni hálfleiks sótti is-
lenzka liðið einnig af nokkrum
krafti og markvörðurinn þurfti
t.d. að hafa sig allan við til að
verja skot frá Atla Eðvaldssyni.
Þá lék Guðmundur sig eitt sinn
vel f gegn og gaf fyrir á Inga
Björn, en fyrirgjöfin var svo föst,
að Ingi missti boltann frá sér.
Á 20. mínútu seinni hálfleiks
skoraði Southamton sitt fyrra
mark og var það sérlega glæsilegt.
Sá frægi Peter Osgood, sem lítið
hafði sézt til fram að þessu, fékk
boltann inn í vítateiginn. Hann
drap boltann niður, lagði hann
fyrir vinstri fótinn og skaut síðan
stórglæsilegu skoti efst í mark-
vinkilinn fjær, að því er virtist
áreynslulaust. Við þetta mark fór
mesti móðurinn úr íslenzku pilt-
unum. Þeir fengu reyndar nokkr-
ar hornspyrnur, og vel að merkja
miklu fleiri slíkar en andstæðing-
arnir allan leikinn, en þær nýtt-
ust ekki. Á 33. mfnútu seinni hálf-
leiks komst hinn frægi enski
landsliðsmaður Mike Channon í
dauðafæri, en hann sýndi við-
stöddum að svona frægir marka-
skorarar geta líka brennt af.
Seinna mark Southamton kom
svo rétt fyrir leikslok. Brotið var
á Channon, hann tók sjálfur
spyrnuna strax og gaf boltann inn
f teiginn þar sem varamaðurinn
Patrick Earles henti sér fram og
skallaði boltann glæsilega í netið.
Þarna var íslenzka vörnin illa á
verði.
í íklenzka liðinu stóð vörnin sig
mjög vel með þá Martein, Viðar
og þó sérstaklega Jón Pétursson
sem beztu menn. Lét Jón kappann
Channon ekki komast upp með
neitt múður leikinn út i gegn.
Vilhjálmur Kjartansson kom inn
á i hálfleik og stóð sig með prýði.
Á miðjunni átti Ingi Björn beztan
leik, sérstaklega i fyrri hálfleik
og það fer varla að verða neitt
vafamál, að hann myndi styrkja
landsliðið. I framlínunni var Guð-
mundur Þorbjörnsson allan tím-
ann og gerði margt laglegt þótt
hann ætti oftast við ofurefli að
etja. Hermann Gunnarsson var
sprækur í fyrri hálfleik, og var
óheppninn að gera ekki a.m.k. eitt
mark.
Lið Southamton var greinilega
miklu leiknara en okkar lið og
sendingar allar voru nákvæmari
og aldrei var boltinn sendur út f
bláinn, eins og gerðist svo oft hjá
okkar mönnum f gærkvöldi. En
það var enginn broddur í sókn-
inni hjá enska liðinu og fæstir
leikmanna þess sýndu þá takta,
sem maður hefur séð til Iiðsins i
sjónvarpinu og bjóst við af þvi. Ef
það leikur eins gegn úrvalinu á
Akureyri i kvöld, á að vera hægt
að sigra Southamton.
Liðin: Sigurður Dagsson, Viðar
Halldórsson, Jón Pétursson, Ottó
Guðmundsson, Marteinn Geirs-
son, Halldór Björnsson, Öskar
Tómasson, Ingi Björn Albertsson,
Hermann Gunnarsson og Guð-
mundur Þorbjörnsson. Inn á
komu Atli Eðvaldsson, Kristinn
Björnsson, Vilhjálmur Kjartans-
son og Sigurður Indriðason.
Southamton: Turner, Rod-
riques, Peach, Holmes, Blyth,
Steel, Gilchrist, Channon, Osgood,
McCalli og Stokes.
Leikið á Akur-
eyri í kvöld
N
SEINNI leikur Southamton og úr-
valsliðs KSI verður á grasvellin-
um á Akureyri klukkan 19.30 í
kviild. I úrvalinu í kvöld leika
aðrir leikmenn en voru í eldlin
unni í gærkvöldi.
MEÐ SKREKKINN
llprðmrl