Morgunblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
185. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGUST 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hermenn yfirbug-
uðu flugræningjana
Kaíró 23. ágúst Reuter — AP
SÉRÞJALFAÐIR egypzkir her-
menn réðust i dag um borð í
Boeing 727 þotuna, sem 7 skæru-
liðar rændu skömmu eftir brott-
för frá Kaíró á leið til Luxor og
yfirbuguðu þá og frelsuðu um 80
Enn er óvíst
hvað verður
um Chirac
París 23. ágúst AP-Reuter
MIKIL óvissa rfkir enn um póli-
tfska framtfð Jacques Chirac for-
sætisráðherra Frakklands, en
heimildir f Parfs herma að hann
muni láta af embætti á rfkis-
stjórnarfundi á miðvikudag.
Chirac átti í kvöld fund með
Valery Giscard d’Estaing Frakk-
landsforseta og var að sögn frétta-
manna reiður og þögull er hann
kom af þeim fundi. Óhjákvæmi-
legt er nú fyrir forsetann að taka
af skarið og tilkynna í vikunni
hvort hann muni láta Chirac
gegna embætti áfram eða láta
hann fara eftir mikla stjórnmála-
lega óvissu í landinu undanfarnar
vikur. Framhald á bls. 39
farþega og flugliða, sem um borð
voru. Hermennirnir voru dul-
búnir sem flugvirkjar á flug-
vellinum f Luxor og réðust
skyndilega um borð meðan á
samningaviðræðum við egypzka
ráðamenn stóð.
Ræningjarnir ,sem voru félagar
í áður óþekktum samtökum
Palestínumanna, Byltingarhreyf-
ingu Palestínu, höfðu krafizt þess
að látnir yrðu lausir fangar, sem í
haldi eru í Egyptalandi vegna
tveggja morðtilrauna. Að sögn
talsmanns egypzka utanríkisráðu-
neytisins voru ræningjarnir frá
Líbýu, Palestínu og Alsír. í til-
kynningu Byltingarhreyfingar
Palestínumanna sagði að flug-
ránið væri aðeins fyrsti liður í
hryðjuverkaáætlun, sem myndi
sanna að borgarastrlðið I Llbanon
hefði ekki brotið Palestínu-
byltinguna á bak aftur.
Talsmaður PLO, frelsishrey-
fingar Palestínumanna, for-
dæmdi I dag flugránið og sama
gerði ríkisstjórn Líbýu.
Þá kom það fram I Tel-Aviv I
kvöld, að ríkisstjórn Israels hefði
boðið egypzku stjórninni aðstoð
við að takast á við flug-
ræningjana, en boðið barst um
svipað leyti og egypzku her-
mennirnir gerðu árás sína.
Myndin sýnir er Kóreumennirnir gerðu árásina á Bandaríkjamennina á hlutlausa
svæðinu við Panmunjom á miðvikudag.
Kórea:
Afsökunarbeiðn-
inni vísað á bug
Washington 23. ágúst AP —
Reuter.
BANDARlKJAMENN héldu f
Þurrkarnir í Bretlandi:
London 23. ágúst AP-Reuter.
ASTANDIÐ f Bretlandi vegna
hinna gffurlegu þurrka undanfar-
inna mánaða verður alvarlegra
með hverjum deginum sem Ifður.
Ekki hefur t.d. rignt f Lundúnum
frá þvf 20. júlf sl. og nú vofir það
yfir landsmönnum að fækka verði
vinnustundum f helztu iðngrein-
um vegna vatnsskorts. Þá voru
einnig gefnar út strangar viðvar-
anir f dag um mikla eldhættu f
sveitum landsins.
Enn skjálftar
í Kína og á
Filipseyjum
Manilla og Hong Kong
23. ágúst AP.
(Sjá grein á bls. 39).
TVEIR öflugir jarðskjálftar urðu
I dag á Filipseyjum og I Kfna.
Skjálftinn á Filipseyjum varð I
sama héraði á suðurhluta eyjanna
og skjálftinn i síðustu viku, sem
varð 8000 manns að bana. Ekki
varð manntjón I skjálftanum I dag
en mikil skelfing greip um sig
meðal Ibúa þar. Ekki er vitað
hvort skjálftinn I Kina, sem varð I
Szechwanhéraði, olli tjóni, en
jarðskjálftastofnun i Hong Kong
sagði I kvöld að hann hefði verið
mjög öflugur.
a vinnuvika
rignir fljótlega
James Callaghan forsætisráð-
herra Bretlands hefur kvatt rikis-
stjórn sína saman til fundar á
morgun, þriðjudag, til að ræða
hugsanlegar langtíma afleiðingar
þessara mestu þurrka, sem komið
hafa í Bretlandi sl. 250 ár.
Framhald á bls. 39
dag áfram að sýna styrkleika sinn
f Kóreu f kjölfar morðs N-
Kóreumanna á tveimur
bandarfskum herforingjum f sfð-
ustu viku þrátt fyrir yfirlýsingu
Kim Ii Sungs forseta N-Kóreu um
að hann harmaði atvikið. Yfir-
lýsing Sungs var hafnað f
Washington á þeirri forsendu að f
henni fælist ekki nægileg af-
sökun og vegna þess hve
óútreiknanlegir N-Kóreumenn
væru.
Frá því morðin voru framin á
miðvikudag á hlutlausa beltinu
hafa Bandarikjamenn sent tvær
sveitir orrustuflugvéla til S-
Kóreu og 6 herskip hafa siglt inn
á Kóreuhaf að skipun Fords for-
seta.
Bandaríkjamennirnir voru
myrtir, er þeir voru að aðstoða
menn úr gæzlusveitum S.Þ. við að
höggva tré á hlutlausa beltinu.
Gerðu um 30 N-Kóreumenn árás á
þá og felldu Bandarikjamennina
með öxum. Hersveitum
Bandaríkjanna I S-Kóreu var þeg-
ar skipað að vera við öllu búnar.
Þetta kom fram i tilkynningu for-
ingja gæzluliðs S.Þ. N-
Kóreumenn vísuðu þessu á bug og
sökuðu Bandarikjamenn um
svívirðilega árás.
Afsökunarbeiðni Sungs var
komið á framfæri á fundi vopna-
hlésnefndarinnar i Panmunjom,
en I henni sagði orðrétt: „Það er
gott að ekki hafa alvariegir at-
burðir átt sér stað við Panmun-
jom um langt skeið, en það ber að
harma það sem kom fyrir nú.
Verða báðir aðilar að leggja sig
fram um að slikt endurtaki sig
ekki.“
Framhald á bls. 39
Drottning fer heim
í erfiðar viðræður
Haag 23. ágúst AP. Reuter
BERNHARÐ prins og Júliana Hollandsdrottning komu f dag til
Haag eftir að hafa stytt sumarleyfi sitt á ftölsku Rivierunni
vegna hugsanlegrar birtingar skýrslu stjórnskipaðrar nefndar f
Hollandi sem kannaði ásakanir um að Bernharð prins hefði þegið
1.1 milljón dollara frá Lockheedverksmiðjunum bandarfsku
fyrir að greiða fyrir kaupum á orrustuþotum frá fyrirtækinu.
Prinsinn hefur sem kunnugt er neitað þessum ásökunum.
Bernharð prins'-kemur af fundi með lögfræðingum sfnum fyrr
I vikunni.
Heimildir I Haag herma að
nefndinni hafi hvorki tekizt að
sanna sekt Bernharðs ne
hreinsa hann af sakargiftum og
það verkefni, sem framundan
er hjá drottningu og ríkisstjórn
Joop den Uyls, er að finna
leiðir til að stjórnin geti birt
skýrsluna án þess að þar komi
nokkuð fram, sem bendi til að
Bernharð sé sekur, þvi að það
gæti neytt drottningu, að áliti
stjórnmálafréttaritara, til að af-
sala sér krúnunni. Segja þeir að
drottning muni ekki undir
neinum kringumstæðum sam-
þykkja að nokkuð verði birt,
sem varpað geti skugga á nafn
eiginmanns síns, ef hún eigi
ekki að afsala sér krúnunni.
Þrátt fyrir að nefndin hafi
ekki sannað eða afsannað sekt
Bernharsð segja dagblöð i
Hollandi, að við rannsóknina
hafi ýmislegt komið fram í sam-
bandi við viðskiptatengsl prins-
ins, sem hafi komið illa við
rikisstjórnina. Segja blöðin að
vandi den Yuls forsætisráð-
herra sé að allir flokkarnir í
samsteypustjórninni vilji fyrir
alla muni forðast að stjórnar-
skrárdeila komi upp, en for-
Framhald á bls. 39