Morgunblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGUST 1976 13 Vatnið í lóninu hækkar smám saman unz það nær um 490 m hæð yfir sjó og verður um 40 ferkílómetrar að stærð. var. Mesta hæð lónsins getur orðið 498 metrar yfir sjávarmál en núna förum við ekki hærra en 490 metra, við förum til- tölulega rólega í þetta. Þegar við höfum náð þeirri hæð verður hleypt úr því aftur og gert við þessa staði eins og ég sagði áðan og síðan verð- ur endanlega hleypt vatni á i haust fyrir gang- setningu fyrstu vélarinn- ar sem ráðgerð er í nóvember. Þetta tekur allt nokkuð langan tíma því við getum ekki hleypt hratt úr því, annars hefði það of mikil áhrif á árnar hér fyrir neðan. Vatninu verður hleypt af eftir eins konar hellum í botni stíflunnar sjálfrar og i gegnum þá getum við hleypt vatni úr lóninu ef af einhverjum ástæðum þarf að stöðva vélarnar hér, og verður þá aukið vatnsmagn við Búrfell og nýtist þar.“ Ásamt starfsmönnum Landsvirkjunar eru það menn frá Orkustofnun og Raunvísindastofnun Háskólans sem að þess- um athugunum vinna, en þær beinast einnig að því hvaða áhrif lónið kunni að hafa á grunnvatnið, hreyfingu þess og hreyf- ingu jarðlaganna miðaó við þessar breyttu að- stæður sem þarna skapast. Við framkvæmdirnar við Sigöldu vinna nú um 800 manns, þar af um 640 hjá Energoprojekt sem sér um alla jarðvinnu og steypuvinnu. Um 100—150 vinna hjá Landsvirkjun og þyzka fyrirtækinu og því rússneska sem selja allan rafbúnað en það eru menn frá Landsvirkjun, sem sjá um uppsetningu á túrbínunum. Eins og fyrr segir er gert ráð fyr- ir að fyrsta vélin fari í gang i nóvembermánuði og er stefnt að því að öllum byggingarfram- kvæmdum og útivinnu sé lokið þá en í vetur verður svo unnið við að koma vélum nr. tvö og þrjú í gagnið. Lokið er við að koma fyrir rörunum fyrir fyrstu vélina og unnið er við rörin fyrir hinar og reynt verður að ljúka þvi fyrir frost. í lok október er gert ráð fyrir að starfsfólki fari mjög fækkandi við Sigöldu þar sem aðallega verður unnið við niðursetningu vélanna, en að því verður unnið í allan vetur. Sagði Egill Skúli að um og upp úr miðjum desember færu menn í jólafrí og kæmu aftur til starfa fyrstu vikuna eftir ára- mót svo ekki yrði um löng hlé að ræða. Pan Am opnar skrifstofu 1 Reykjavík BANDARtSKA FLUGFÉLAGIÐ Pan Am hefur nú opnað umboðs- skrifstofu f Reykjavfk á ný, en félagið hafði hér áður skrifstofu sem lögð var niður árið 1972. Nýja skrifstofan er til húsa f Bankastræti 8 en umboðsmaður Pan Am hér á landi er Páll G. Jðnsson stórkaupmaður. i tilefni af opnun skrifstofunn- ar komu hingað til lands S.H. Ruffert, umboðsmaður Pan Am á Norðurlöndum, Jim Edwards, umboðsmaður félagsins i Nepal, og R. L. Treman jr., yfirmaður Pan Am í Evrópu, en aðsetur hans er i London. Á fundi með fréttamönnum sagði Treman m.a. að skrifstofan í Reykjavík yrði fyrst um sinn hugsuð sem þjónustumiðstöð, þ.e. farmiðasala og skipulagning ferðalaga út um allan heim. Pan Am hefði ekki í hyggju að keppa við Flugleiðir heldur væri hér um að ræða þjónustu við þá sem þyrftu að fara til annarra staða en Flugleið- Framhald á bls. 38 Páll G. Jónsson, umboðsmaður Pan Am á tslandi, ásamt erlenéum fulltrúum félagsins við opnun skrifstofunnar, t.v. Páll, Jim Edwards, S.H. Ruffert og R.L. Treman jr. (Ljósm. Friðþjófur). Þu færö mikiö fyrir peninginn þegar þú kaupir Tzmxnrn er meö barna- læsingum á hurðum. er ser/ega vel ryðvarinn frá verksmiðju. er með sérbyggðum stuðara, sem gengur inn allt að 6 cm áður en yfirbygging verður fyrir tjóni. er með áskrúfuðum frambrettum, sem mjög auðvelt er að skipta um. Glæsilegar innréttingar og fallegt mælaborð. Aukþess má nefna stórt farangursrými, tvöfalt bremsukerfi, einangraðan topp, færanlegt stýri og sérlega vel styrkt farþegarými. FIAT EINKAUMBOO Á ÍSLANDI Davíð Sigurðsson hf. SÍÐUMULA 35. SlMAR 38845 — 38881

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.