Morgunblaðið - 24.08.1976, Side 19

Morgunblaðið - 24.08.1976, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGUST 1976 19 VlKINGARNIR ÁHUGALAUSIR OG TÖPUÐU 0:3 FYRIR ÍA SKAGAMENN létu Vfkinga ekki stöðva sig er liðin mættust á Laugardalsvellinum I gærkvöldi. Heimaliðið lék ágætlega fyrsta hálftfma leiksins, en eftir það var eins og Vfkingarnir misstu áhugann á þvf sem þeir voru að gera. Höfðu þeir þá reyndar fengið á sig tvö mörk, annað gefins, og eftir það fengu Skagamenn að leika þá knattspyrnu, sem hentar liðinu bezt. Akurnesingar eru f miklum ham um þessar mundir og leika ágæta knattspyrnu. Mörk lA gegn Vfkingi urðu alls 3, Vfkingum tókst ekki að svara. Á liðið reyndar möguleika á að verða f 2. sæti f 1. deildinni, en til að svo megi verða þurfa Skagamenn að vinna sfðasta leik sinn og Framarar að tapa fyrir Blikunum. Fyrsta mark leiksins kom strax á 3. mínútu. Jón Gunnlaugsson skoraði þá af stuttu færi, eftir að Diðrik Ölafssyni hafði mistekizt að ná til knattarins. Síðan skoruðu Skagamenn aftur á 30. mínútunni, en fram að því höfðu menn á tilfinningunni að Víking- ar myndu frekar jafna en að Skagamenn ykju forskot sitt. Karl Þórðarson og Jón Alfreðsson léku þá mjög skemmtilega upp hægri kantinn og Jón gaf háa sendingu fyrir markið. Árni Sveinsson skallaði síðán knöttinn þéttings- fast í netið, en Vikingar stein- sváfu á verðinum. 1 síðari hálfleiknum bættu Skagamenn aðeins einu marki við og gerði það Jón Alfreðsson eftir hornspyrnu. Árni Sveinsson tók hornspyrnuna, Jón Gunnlaugsson náði að lyfta undir knöttinn, sem barst til Jóns Alfreðssonar. Jón þurfti að vísu að teygja sig eftir knettinum, en tókst eigi að síður að koma honum í netið. Fyrir Víkingana var þessi leik- ur að því er virtist aðeins forms- atriði, en fyrir Skagamenn skipti hann talsverðu máli. Þeir hafa í fyrsta lagi engin efni á að slaka á, því framundan eru leikir í bikar- keppninni og Evrópukeppni. Auk þess á liðið svo nokkra möguleika á 2. sætinu í 1. deildinni og þó að líkurnar séu e.t.v. ekki miklar þá er engin ástæða til að afskrifa þá strax. Jón Alfreðsson átti einna skástan leik Skagamanna og er hann greinilega að finna sitt gamla form. Auk hans áttu þeir Pétur Pétursson, Karl Þórðarson og Þröstur Stefánsson allir ágætan leik. Grétar Norðfjörð dómari dæmdi leikinn sæmilega en ætti að reyna að fylgjast með línu- vörðunum. — áij. ÞRENNA HJÁ HINRIK UBK+Hll HINRIK Þórhallsson, ný- bakaður landsliðsmaður úr Breiðablik, var FH-ingum þungur í skauti þegar liðin áttust við í Kópavogi í gær- kvöldi. Breiðablik vann leikinn 3:1 og skoraði Hinrik öll mörk liðsins. Sigur Breiðabliks var sanngjarn, liðið var betri aðilinn í þessum leik, sem var allf jörugur á köflum. Leikurinn var tiðindalítill framan af. Breiðablik var sterk- ara og spilaði oft góða knatt- spyrnu. Hún bar árangur á 30. mínútu en þá skoruðu Blikarnir fyrsta markið eftir mjög fallegt spil Þórs Hreiðarssonar og Vignis Baldurssonar. Þór gaf knöttinn þvert yfir völlinn til Vignis, sem sendi hann síðan inn í teiginn til Hinriks Þórhallssonar og hann skallaði örugglega f netið. FH-ingar höfðu gripið til þess ráðs að færa Janus Guðlaugsson úr miðvarðarstöðunni í miðfram- herjastöðu til að skerpa sóknina og þetta tókst, því Janus jafnaði 1:1 á 4. mínútu seinni hálfleiks með föstu skoti af vítateig, sem Ólafur markvörður réð ekki við. En dýrðin stóð ekki lengi hjá FH, þvi á 14. minútu seinni hálfleiks var Vignir Baldursson felldur innan vítateigs og víti dæmt. Hinrik Þórhallsldson tók spyrn- una, Ómar markvörður varði skot hans en Ómar hélt ekki boltanum og Hinrik fylgdi vel eftir og renndi boltanum í netið. Það sem eftir lifði leiksins sóttu Breiða- bliksmenn meira og Hinrik bætti þriðja markinu við þremur minút- um fyrir leikslok, eftir að hafa fengið sendingu frá Vigni Baldurssyni. Vildu FH-ingar meina að Hinrik hefði verið rang- stæður. Dómari gerði ekki at- hugasemdir og Hinrik kom bolt- anum i netið eftir nokkurn barning. FH-ingar fengu einnig sín færi, t.d. var einu sinni bjarg- að á línu Breiðabliksmarksins. Lið Breiðabliks er stöðugt vax- andi og sóknarloturnar, sem liðið byggir upp, eru oft á tíðum stór- skemmtilegar. Aftur á móti hafa engar framfarir verið hjá FH I sumar og liðsmenn félagsins verða að treysta á að Valsmenn losi þá í kvöld við allar áhyggjur af aukaleikjum um veru í 1. deild með því að vinna Þrótt. — SS. Varalið KR heppið að sleppa með 0:1 nean Keflvíkinnum, sem misnotuðu vítaspyrnu KR-INGAR mættu með hálfgert varalið sitt til leiks gegn IBK í Keflavík í gærkvöldi. Þessi leikur skipti litlu máli fyrir liðin, en þó að alltaf sé leiðinlegt að mæta með varalið til leiks þá hafa KR-ingar nokkra afsökun í þessu máli. Tveir leikmanna þeirra, Halldór Björnsson og Haukur Ottesen, voru í leikbanni, og auk þess eru nokkrir menn á sjúkralista. Varalið KR var lakari aðilinn í leiknum og höfðu Keflvíkingar undirtökin mest Undir lok fyrri hálfleiksins áttu Keflvíkingar nokkur góð tæki- færi, Einar Gunnarsson átti skot í þverslá, Friðrik Ragnarsson sömuleiðis og loks varði Halldór Pálsson hörkuskot frá Ólafi sem síðan fór í stöng. Að því hlaut þó að koma að Keflvíkingarnir skor- uðu og það gerði Þórir Sigfússon á 52. mínútu. Var Þórir skyndi- lega óvaldaður með knöttinn i vítateignum og skaut snúnings- bolta í markhornið og Halldór Pálsson, sem hreyfði hvorki legg né lið, bjóst greinilega við að allan leikinn. knötturinn faeri utan stangar. Kom skotið öllum að óvörum og Halldóri markverði sérstaklega því hann rak upp mikið undrun- aróp er hann sá knöttinn í netinu. Á 59. mínútu var dæmd víta- spyrna á KR, en Friðrik Ragnars- son hafði komizt frír innfyrir þeg- ar Þorlákur Björnsson stöðvaði hann með því að grípa í hann. Dæmdi Magnús Pétursson um- svifalaust vítaspyrnu, en Ólafi Júlíussyni varð heKdur betur á í messunni, er hann skaut framhjá. Keflvíkingar sóttu áfram mun meira það sem eftir var og hefðu verðskuldað að vinna með meiri mun. Beztu menn liðanna i þessum leik voru ungu mennirnir. Magnús Jónsson hjá KR, en hann var einn af leikmönnum drengja- landsliðsins í fyrra og er mjög laginn og skemmtilegur leikmað- ur. Þórir Sigfússon var einnig í drengjalandsliðinu í fyrra og lék þarna sinn bezta leik, sém undir- ritaður hefur séð til hans. — Hdan. Víkingamir Diðrik, Helgi og Ragnar berjast um kröttinn og sá síðastnefndi á fjórum fótum, eins og Vfkingarnir hafa svo oft verið í sfðari hluta Islandsmótsins. (Ljósm. Friðþjófur). Adolf Guðmundsson og Pétur Pétursson f baráttu um knöttinn. Gunn- laugur fylgist spenntur með. Einkunnagjöfin Víkingur: Diðrik Ólafsson 2 Ragnar Gfslason 2 Magnús Þorvaldsson 1 Eirfkur Þorsteinsson 2 Helgi Helgason 1 Róbert Ágnarsson 2 Ádolf Guðmundsson 2 Gunnlaugur Kristfinnsson 1 Haraldur Haraldsson 1 Jóhannes Bárðarson 1 Óskar Tómasson 2 Lárus Jónsson 1 Kári Kaaber (v). 1 Akranes: Einar Guðleifsson Guðjón Þórðarson Þröstur Stefánsson Jón Gunnlaugsson Jóhannes Guðjónsson Karl Þórðarson Pétur Pétursson Teitur Þórðarson Jón Alfreðsson Árni Sveinsson Ándrés Ólafsson Sigþ'ór Ómarsson (v) Jón Askelsson (v) Dómari: Grétar Norðfjörð 2 Breiðablik: Ólafur Hákonarson Gunnlaugur Helgason Bjarni Bjarnason Ingvar Teitsson Einar Þórhallsson Ólafur Friðriksson Vignir Baldursson Þór Hreiðarsson Hinrik Þórhallsson Sigurjón Rannversson Jón Orri Guðmundsson Heiðar Breiðfjörð (v.) Haraldur Erlendsson (v. Dómari: FH: 2 Ómar Karlsson 2 Viðar Halldórsson 2 Magnús Brynjólfsson 2 Gunnar Bjarnason 3 Jón Hinriksson 2 Pálmi Sveinbjörnsson 3 Ólafur Danivalsson 2 Asgeir Arnbjörnsson 4 Janus Guðlaugsson 1 Logi Ólafsson 1 Helgi Ragnarsson 1 Leifur Helgason (v.) 1 Gfsli Sigurðsson 2 Keflavík: Þorsteinn Bjarnason Gunnar Jónsson Lúðvfk Gunnarsson Einar Gunnarsson Guðni Kjartansson Gfsli Torfason Sigurður Björgvinsson Ólafur Júlfusson Þórir Sigfússon Steinar Jóhannsson Friðrik Ragnarsson Guðjón Guðjónsson Þórður Karlsson Dómari: KR: Halldór Pálsson Stefán Örn Sigurðsson Sigurður Indriðason Einar Árnason Þorlákur Björnsson Guðmundur Ingvason Örn Guðmundsson Ómar Torfason Jóhann Torfason Magnús Jónsson Birgir Guðjónsson Baldvin Elfasson 2 2 2 2 2 3 2 2 3 2 2 2 (v) 2 (v) Magnús V. Pétursson 2 2 2 2 2 2 1 1 2 3 2 2 (v) 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.