Morgunblaðið - 24.08.1976, Side 26

Morgunblaðið - 24.08.1976, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGUST 1976 Minning: Stefán Wathne framkvœmdastjóri Fæddur 15. júnf 1917. Dáinn 15. ágúst 1976. — En hér féll grein af góðum stofni, grisjaði dauði meira en nóg. — S.S. Genginn er góður drengur, fall- ið valmenni fyrir aldur fram, Stefán Wathne. Snemma lágu leiðir okkar Stef- áns saman. Hann var bekkjar- bróðir Ragnheiðar, konu minnar, og síðar kvæntist hann Soffíu Guðrúnu, systur minni, svo að ekki er að ólikindum, þótt mig setji hljóðan, þegar Stefán er nú skyndilga kallaður á æðri fundi, nýlega orðinn 59 ára gamall. í harmi minnist ég vinar með gleði, þegar huganum er rennt til þeirra mörgu hugljúfu stunda, er við átt- um saman. Við hófumst ungir handa um það að byggja okkur hús, þar sem við síðan áttum um allmörg ár gleðirika fundi með fjölskyldum okkar. Stefán var hreinlyndur og traustur I öllu samneyti. Hann var að eðlisfari hlédrægur, en jafnframt mikill ,,húmoristi“, þegar svo bar undir. Stefán var mikill unnandi góðra bóka og las mikið. Hann fylgdist mjög náið með alþjóðastjórnmál- um sem og islenzkum, en um þessi mál tvinnuðust samræður okkar eigi allsjaldan. Hann var einkar laginn veiðimaður og hafði af þvi tómstundagaman, bæði á sjó úti fyrir Long Island, þar sem hann veiddi oft með vinum sin- um, flestum Norðmönnum, og ekki síður var honum gleði að því að geta gripið til laxveiða hér heima á íslandi og njóta náttúru- fegurðar. Stefáns beið vestan hafs mikil- vægt verkefni, að veita forstöðu skrifstofu íslenzkra aðalverktaka í New York. Hann nafði áður gengt verzlunarstörfum fyrir vestan á stríðsárunum og var því reyndur á þvi svibi. Fyrir mér lá það að fara nokkrum sinnum vest- ur um haf annarra erinda, en þá var aldrei að sökum að spyrja um glaðværð og góðar stundir, þegar við hittum Stefán og fjölskyldu hans, og síðar á árum áttu synir mínir eftir að njóta samneytis við Wathnefjölskylduna, bæði vestan hafs og einnig hér heima. Dætur Soffíu og Stefáns eru þrjár. Elzta dóttirin, Þórunn, giftist Jakobi, hinum vænsta manni, syni Ág- ústu og Gunnars Möller. Þau eiga einn son, Gunnar Stefán, mikið uppáhald afa sfns og ömmu, en umönnunar þeirra og fósturs hef- ur hann langtímum notið fyrir vestan. Þórunn lauk lögfræði- prófi frá Háskóla íslands á síðasta ári. Hinar dæturnar eru þær Anna Bergljót og Soffía Guðrún. Hugur Önnu Bergljótar hefur staðið til læknisfræðínáms við Há- skóla íslands. Soffía Guðrún stundar nú nám í húsagerðarlist við Yale háskóla nálægt New York. Foreldrar Stefáns voru þau Anna og Otto Wathne. Á Seyðis- firði er þeirra saga, og afabróðir Stefáns var Otto Wathne, sá mikli athafnamaður, sem Seyðfirðingar hafa reist minnisvarða i bænum. En afi Stefáns í móðurætt var einnig nafnkunnur athafnamaður á Seyðisfirði, Stefán Th. Jónsson, sem rak mikla kaupsýslu og við- skipti við héruðin í kring, en eftir honum hét Stefán. Ég var svo lánssamur að kynnast þeim frú Önnu og Otto Wathne hér f Reykjavík síðari ár þeirra. Vænna fólk hef ég vart vitað, frú Anna var góðlyndur höfðingi og trúræk- in, en Otto mikill hagleiksmaður og ljúfur í lund. Bergljót, einka- systir Stefáns, er gift Geir Borg, forstjóra, en einlæg vinátta var ætíð milli þeirra systkina. Nú er skarð fyrir skildi hjá ís- lenzkum aðalverktökum, þegar Stefán er úr leik, en Soffía hefur ætið verið hinn hlýi móttakandi íslenzkra gesta á heimili þeirra fyrir vestan og veitt liðsinni með ýmsu öðru móti. Grundvöllurinn að starfi íslenzkra aðalverktaka er varnarsamningurinn við Bandaríkin frá 1951. Stefán hefur þurft að vinna við misjöfn skil- yrði, en ég hygg, að það sé eigi ofmælt, þótt ég segi, að hann hafi jafnan leyst hvern vanda af drengskap og festu. Mér er vel kunnugt um, að hann hefur ofí verið áhyggjum hlaðinn, ög ræddi hann stundum þau mál við mig. Það fór hins vegar mjög vel á með Stefáni og stjórn Islenzkra aðal- verktaka, og fyrir því hef ég þeirra orð fyrr og síðar. Ég veit einnig, að allir þessir menn hafa unnið miklu þýðingarmeiri störf fyrir land og þjóð en menn al- mennt gera sér grein fyrir, en úrlausnir þeirra hafa oft verið með ágætum. Stefán dró aldrei af sér, og oft þurfti hann að leggja nótt við nýtan dag, þegar mest á reyndi. Hvað hefur ekki gerzt á umliðnum tuttugu árum, breyt- ingum háð og vanda undirorpið? Úrlausnar hefur aldrei verið vant á verksviði Stefáns, og kunna samverkamenn hans að meta það að verðleikum, svo og sérstæðan þrótt hans f starfi. En hvernig má þá allt í einu svo snögglega sól bregða sumri? í önnum og erli á siðastliðnu hausti fékk Stefán Wathne sín fyrstu sjúkdómsboð. Þau hjónin héldu, að tekizt hefði að vinna bug á sjúkdómi Stefáns, og von- glöð héldu þau áfram baráttu sinni fyrir hönd íslenzku þjóðar- innar. En öðru vísi fór en á horfð- ist, og skuggavaldurinn var ekki yfirbugaður. Stefán Wathne lagð- ist inn á sjúkrahús í lok marzmán- aðar sl. Nú er sjúkravistinni lok- ið. Allan þennan tíma hefur eigin- konan verið nærtæk manni sín- um, og fljótt dró að því, að hún dvaldi ætíð hjá honum á sjúkra- húsinu, nætur sem daga. Það er ekki nóg að hafa vilja til þess að hjúkra og hjálpa, til þess þarf einnig mikið þrek. Ekki hefur á það skort hjá Soffíu, en allt kom fyrir ekki. Wathnefjölskyldan er nú um- vafin sorgum, en við, sem höfum átt með þeim nána samfylgd á margan hátt um langan aldur, biðjum þess, að forsjónin og Drottinn veiti náð og miskunn og styrk til þess að befa hin þungu örlög. Við skiljum ei né skynjum, en frá okkur hjónum og sonum okkar streyma hlýjustu samúðar- kveðjur. Vertu, Stefán, bezt kvaddur í Drottins friði og blessun. Jóhann Hafstein. Elskulegur vinur og mágur hef- ur hlotið hina hinztu hvíld. Hann lézt eftir harða baráttu við sjúk- dóm, sem enn hafa ekki fundist læknislyf gegn. Um nokkurt skeið, rétt fyrir andlát Stefáns Wathne, komum við hjónin — Bergljót systir hans og ég — daglega á sjúkrahúsið í New York, þar sem hann lá, og fylgdumst með og urðum vitni að þeirri karlmennsku, sem hann sýndi í stríðinu við hinn illa óvin. Þótti sú barátta með ólíkindum. Við urðum einnig vitni annars. Við sáum eiginkonuna, sem aldrei vék frá sjúkrabeði hans. Hátt á þriðja mánuð bjó Soffía Wathne í sjúkrastofu manns síns og veitti honum einstæða aðhlynningu og hjúkrun, alla 24 tíma sólarhrings- ins. Við sáum einnig dæturnar 'þrjár, sem skiptust á að vera á næturnar, móður þeirra til aðstoð- ar, en allar voru þær þar á degi hverjum og gerðu sitt ýtrasta, til að stytta föðurnum stundir. Slík var samheldni þessarar fjöl- skyldu. Það eru orðin æði mörg ár, síð- an ég fyrst kynntist Stefáni, en það var löngu áður en ég kvæntist systur hans, og dáðíst ég oft að lipurð hans og einlægni í starfi, samfara víðsýni og festu. Síðar, þegar við tengdumst fjölskyldu- böndum, kynntist ég náið fleiri þáttum í skaphöfn hans. Stefán Wathne var einstaklega hæverskur maður, í þess orðs beztu merkingu. Hann var gædd- ur góðum gáfum, en jafnframt var hann svo glaðvær og ljúfur, að öllum, sem af honum höfðu per- sónuleg kynni, hlaut að þykja vænt um hann. Kímnigáfa hans var rík, en aldrei var henni beitt öðrum til hnjóðs, og aldrei minn- ist ég þess að hafa heyrt hann hallmæla nokkrum manni. Það er því ekki að undra, þótt vinsældir hans væru miklar meðal þess fjölda, sem hann hafði samvinnu og samskipti við í lífinu. Siðustu tuttugu árin dvaldi Stefán í New York, og starfaði sem framkvæmdastjóri íslenzkra aðalverktaka h.f., þar í borg. Með háttvisi sinni og dugnaði í starfi, hefur hann ugglaust lagt drjúgan skerf að velgengni þessa ágæta félags, en mér er kunnugt um, að persónuleg vinátta og gagnkvæmt traust ríkti ævinlega, bæði fyrr og nú, milli hans og hinna mörgu mætu forráðamanna félagsins, sem starfað hafa hérlendis. Það voru hamingjudagar á heimili okkar Bergljótar í hvert sinn, sem leið hans lá til íslands. Systkinin voru svo samrýnd; væntumþykjan svo gagnkvæm, og missætti þekktist ekki þeirra á milli. Þótt forlögin höguðu því svo, að Stefán dvaldi næstum helming ævi sinnar erlendis, þá var hugur- inn bundinn hér heima, því ís- lendingur var hann fyrst og fremst, og það brá fyrir sérstök- um glampa f augum hans, þegar hann hugleiddi og nefndi, hvað hann hyggðist gera, þegar hann flytti heim alfari. Nú er Stefán Wathne kominn heim. Það er að vísu á annan hátt, en hann sjálfur hafði hugsað. Það er þungbær raun þeim, sem næst standa að sjá eftir tápmiklum, sterkum manni, langt fyrir aldur fram, en sagt er, að enginn megi sköpum renna. Um leið og bænir mínar beinast að brottför Stefáns héðan úr heimi, bið ég Drottinn að veita ástvinum hans styrk í sorg okkar og söknuði. Geir Borg. Stefán Wathne, framkvæmda- stjóri, lézt í New York 15. þ.m. eftir margra mánaða veikindi, þung og þjáningarmikil. Stefán var fæddur á Seyðisfirði 15. júní 1917. Faðir hans var Otto, sonur Friðriks Wathne, kaup- manns á Seyðisfirði. Friðrik var bróðir Ottos Wathne, hins þjóð- kunna athafna- og atorkumanns, en þeir voru norskrar ættar. Kona Friðriks Wathne var Elísabet Þorsteinsdóttir, bónda á Skriðu og Dfsastöðum i Breiðdal. Móðir Stefáns Wathne var Anna dóttir Stefáns Th. Jónsson- ar úrsmiðs og siðar kaupmanns og mikils athafnamanns á Seyðis- firði um langt árabil og konu hans, Ólafiu Sigrúnar Sigurðar- dóttur. Stefán Th., faðir önnu, var sonur Jóns Þorvaldssonar bónda á Mýrum eða Nesjum í Hornafirði og Gróu Eyjólfsdóttur bónda á Þernunesi. Foreldrar Stefáns Th. bjuggu einnig í Sand- vík (sunnar Norðfjarðar), á Stóra-Steinsvaði og Fornastekk í Seyðisfirði. Ólafía Sigrún, móðir Önnu, var dóttir Sigurðar bónda í Firði, Seyðisfirði, Jónssonar bónda á Sörlastöðum og í Firði. Má hér sjá, að Stefán Wathne var Aust- firðingur í ættir fram og á til góðra að telja. Stefán á eina syst- ur, Bergljótu, sem er gift Geir Borg, framkvæmdastjóra. Stefan byrjaði snemma að vinna og var við símavinnu á Austurlandi upp úr fermingu. Síðar á menntaskólaárum sínum var hann togarasjómaður margar vertfðir á Kveldúlfstogaranum Gulltoppi frá Reykjavík. Stefán varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavfk árið 1938. Hann var mjög vinsæll meðal skólafélaga sinna og kjörinn „In- spector Scholae", sem var mikil heiðursstaða. Sfðan hélt Stefán til Kaup- mannahafnar, nam verzlunar- og viðskiptafræði við verzlunarhá- skólann í Kaupmannahöfn og lauk þar prófi árið 1940, en hélt síðan til íslands með m/s Esju f hinni frægu Petsamóför. Fljótlega eftir heimkomu mun Stefán hafa hafið verzlunar- og viðskiptastörf. Hann var nokkur ár innkaupastjóri hjá Friðrik Ber- telsen í New York, en kom heim þaðan árið 1945 og starfaði að viðskiptamálum hjá Landsam- bandi íslenzkra útvegsmanna. í ársbyrjun 1955 réðst Stefán Wathne til starfa sem fram- kvæmdastjóri skrifstofu ís- lenzkra aðalverktaka í New York, og hófst þar með höfuðþáttur í ævistarfi hans. Hann fékk það hlutverk að móta störf og skipu- lag þeirrar skrifstofu frá upphafi og stjórna henni æ síðan. Verksvið þessarar skrifstofu er fyrst og fremst að annast efnisút- vegun til þeirra framkvæmda sem íslenzkir aðalverktakar hafa haft með höndum vegna bandaríska varnarliðsins og Norður- Atlantshafsbandalagsins. Þetta hlutverk skrifstofunnar í New York hefir verið bæði umfangs- mikið og vandasamt, og án þeirrar skrifstofu hefðu íslenzkir aðal- verktakar að mínu áliti ekki vald- ið því verkefni að taka varnarliðs- framkvæmdir úr höndum er- lendra verktaka og færa þær I íslenzkar hendur. Stefán hafði gott vald á starfi sínu. Komu þar fyrst og fremst til almennir mannkostir hans, greind, skipulagshæfileikar, menntun hans og viðskipta- reynsla. Ég dáðist oft að þeim hæfileika Stefáns í starfi, hversu vel honum tókst á háttvísan og markvissan hátt samvinna við þá aðila sem samstarf þurfti við, bæði íslenzka og erlenda, og var þó oft vindur á báða bóga. Þar sem efnisútvegun og framkvæmd- ir standa þannig í beinu sam- bandi, gefur auga leið að rétt efni á réttan vinnustað á réttum tíma er úrslitaatriði ef vel á :ð takast til. Þetta hafði Stefán Wathne alltaf í huga og hagaði sér sam- kvæmt því, en enginn skyldi halda að þetta væri auðvelt verk- efni við miklar og flóknar fram- kvæmdir. Stöðu Stefáns fylgdu auðvitað fjölmörg aukastörf og fyrir- greiðslur, sem aldrei verða taldar, en margir munu minnast með þakklæti. Stefán Wathne var vel gerður andlega og líkamlega. Hann var skynsamur maður og vel að sér um marga hluti, samvizkusamur og góðviljaður svo af bar. Stefán var hlédrægur maður og var ekk- ert fjær skapi en að láta á sér bera eða stjaka öðrum til hliðar. Hann var ákaflega orðvar. Aldrei heyrði ég hann mæla miður um nokkurn mann og sýnir það vel meðfædda greind og ljúf- mennsku. Stefán var mjög myndarlegur á velli, kraftamaður og vel búinn öllum íþróttum á yngri árum. Þá kunni Stefán þá list að gleðjast og gleðja aðra, og eiga margir góðar minningar um þær stundir. Það er erfitt að lýsa mönnum, en mér fannst Stefán vinur minn heims- maður f sjón og raun f orðsins bezta skilningi. Ég flyt Stefáni Wathne þakkir Islenzkra aðalverktaka fyrir mikil og góð störf. Fyrir einstaklega ánægjulega samvinnu og ljúf- mennsku og’góðvild af hans hálfu flyt ég einnig þakkir. Þessar þakkir flyt ég frá forráðamönnum félagsins, frá öðrum samstarfs- mönnum Stefáns hjá félaginu fyrr og sfðar bæði hér heima og á skrifstofunni f New York. Stefán kvæntist Soffíu Guð- rúnu Hafstein 6. febrúar 1943. Sofffa er dóttir Júlíusar Hafsteen sýslumanns og konu hans Þór- unnar Jónsdóttur. Soffía lifir mann sinn ásamt þrem elskuleg- um og ágætum dætrum þeirra, Þórunni, Önnu Bergljótu og Soffíu Guðrúnu. Þórunn er lög- fræðingur að mennt og gift Jakob Möller lögfræðingi, er starfar hjá Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf. Þau eiga einn son, Gunnar Stefán, sem er á sjö- unda ári og var eftirlæti afa síns. Anna Bergljót er stúdent og stundaði háskólanám og Soffía Guðrún er við nám í húsagerðar- list við Yaleháskóla i Bandaríkj- unum. Frú Soffía Wathne er framúr- skarandi manneskja. 1 margra mánaða strfði Stefáns við misk- unnarlausan sjúkdóm háði hún hetjubaráttu og vék ekki frá hlið manns síns, hvorki nótt né dag, þar til yfir lauk. Heimili þeirra Stefáns er fall- egt og ber vitni smekkvísi og myndarskap. Bæði voru þau hjón gestrisin og elskuleg heim að sækja og munu þeir margir vera er minnast góðra gleðistunda á þeim stað. Nú er sú tíð liðin, og húsbóndinn er í dag til moldar borinn á ættjörð sinni eftir langa útivist í fjarlægu landi, þar sem hann vann þjóð sinni eftir beztu getu. Vinir og samstarfsmenn Stef- áns senda frú Soffíu, dætrunum, einkasystur Stefáns og öllu vandafólki hans innilegar samúð- ar- og saknaðarkveðjur. Minningar löngu liðinna daga sækja á mig, er ég set þessi fátæk- legu orð á blað. Ég minnist þess t.d., hversu miklir vinir afar okk- ar Stefáns voru, þeir Stefán Th. Jónsson og Vilhjálmur Árnason á Hánefsstöðum. Bar aldrei skugga á þann vinskap þótt ýmsir atburð- ir og átök þeirra tíma væru hörð og ætla mætti að hefðu spillt þeirri vináttu. Ég minnist þess einnig, að við Stefán Wathne vor- um meðal fermingarbarna séra Sveins Víkings í Seyðisfjarðar- kirkju sumarið 1931. Frá þeim tíma man ég alveg sérstaklega hversu óvenjulega glæsilegt ung- menni Stefán Wathne var, fríður, vel vaxinn og ljúfur I viðmóti. Minningar eru mikils virði og þó einkum er skuggar verða lang- ir og að syrtir á lifsins ieið. Vilhjálmur Árnason. í dag er kær vinur, Stefán Wathne, kvaddur hinztu kveðju. Endurminningarnar vakna hver af annarri, og atburðir meira en þrjátiu ára náinnar vináttu verða ljóslifandi. Allar þessar minning- ar einkennast af einhverju, sem er svo sérstakt og lúft, að maður hlýtur að hugleiða hvers vegna þær eru frábrugðnar svo mörgu öðru sem rifjast upp í huga manns. En það þarf ekki lengi að leita til þess að gera sér ljóst hvað veldur. Það er hið Ijúfa viðmót, jafnað- argeð, glaða eðlisfar og ósvikinn innileiki í allri framkomu Stefáns Wathne, sem Varpar svo björtum ljóma á þessar endurminningar. Hann var sífellt að gera öðrum greiða, að aðstoða og hjálpa. Þó gat maður haft það á tilfinning- unni, að hann væri ekki fullkom- lega ánægður því hann þráði sí- fellt að gera meira og betur. Hann hafði yfir svo sterkri uppsprettu mannkærleika að ráða. Störf Stefáns voru fyrst og fremst á viðskiptasviðinu og að langmestu leyti unnin f Banda- ríkjunum. Það voru þýðingarmik- il störf í þágu lands og þjóðar, sem miklu máli skipti hvernig leyst voru af hendi. Þar fór ekki á milli mála, að þetta sérstaka eðlis- far hans, sem áður er lýst, vann honum tiltrú og traust þeirra, sem hann átti viðskipti við og gerði honum fært að ná betri árangri en annars hefði mátt vænta. Stefán Wathne verður ekki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.