Morgunblaðið - 08.09.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
3
50 skip hafa sótt um
leyfi til
1 GÆR höfðu 50 útgerðir 52
hringnótaskipa sótt um leyfi til
sfidveiða við tsland I haust, en
samkvæmt sérstökum ákvæðum,
sem sj&varútvegsráðuneytið setti
á sínum tfma, fá einungis þau
skip, sem leyfi hafa tii sfldveiða I
Norðursjó og þau skip, sem stund-
uðu sfidveiðar með hringnót við
lsland f fyrra leyfi til veiðanna
nú, og alls eru það 52 skip. Veið-
arnar f haust hefjast 25. septem-
ber.
Ákveðið hefur verið að heimila
veiði á 15 þúsund lestum af sfld
við landið f haust. Verður hring-
nótaskipunum heimilað að veiða
10 þúsund lestir og gert er ráð
fyrir, að reknetabátarnir veiði
um 5000 lestir, en þó hefur ekki
verið settur neinn ákveðinn kvóti
á veiðar þeirra.
Þórður Asgeirsson skrifstofu-
stjóri sjávarútvegsráðuneytisins
sagði f samtali við Morgunblaðið i
gær, að þessum 10 þúsund tonn-
um yrði skipt niður á milli skip-
anna þannig að um 200 tonn
kæmu í hluta hvers skips. 1 fyrra
kom það fyrir, að nokkur skip
fóru fram yfir þann kvóta, sem
þeim var úthlutað, og verður um-
frammagnið þá dregið af þeim
kvóta, sem þau fá nú.
Þá sagði Þórður, að sjávarút-
vegsráðuneytinu hefði borizt um-
sóknir frá 30 aðilum öðrum en
þeim sem rétt ættu á leyfum tii
sfldveiða. Væru það bæði eigend-
ur nýrra og gamalla skipa og
teldu þessir menn, að þeir ættu
einnig rétt til veiðanna. Það væri
örugglega nokkur stór hópur
síldveiða
manna, sem hefði sótt um, ef veið-
arnar hefðu verið frjálsar öllum.
Nýjar ísl. kar-
töflur í verzl-
anir í Reykja-
vík í gær
— VIÐ sendum fyrstu fs-
lenzku kartöffurnar á markað
f Reykjavfk f morgun og ég
vona að okkur berist það mikið
af kartöfium á næstu dögum,
að við getum séð búðunum fyr-
ir nægiiegu magni, sagði
Jóhann Jónasson, forstjóri
Grænmetisverzlunar landbún-
aðarins, f samtali við Mbl. f
gær.
Jóhann sagðist vilja koma
þeim leiðbeiningum á fram-
færi við neytendur að þar sem
þessar kartöflur væru nýjar
væri öndun þeirra það mikil,
að ekki væri hægt að pakka
þeim f bréfpoka, og hefur orð-
ið að grfpa til plastpoka. Þó að
plastpokarnir séu gataðir,
hleypa þeir ekki út öllum þeim
raka, sem myndast i pokunum,
og er þvf nauðsynlegt að losa
þær eins fljótt og auðið er úr
plastpokunum f annað flát og
geyma þær á góðum stað.
Þessar nýju fslenzku kartöfl-
ur eru seldar sama verði og
þær erlendu, sem nú eru á
markaðnum, eða 5 kflóapokinn
á 521 krónu. Nýtt verð á kar-
töflum verður væntanlega birt
um miðjan mánuðinn.
GEGN LOKUN MJÓLKURBÚÐA — Stefanfa Heiðdal (t.v.), Elfsabet Sigurðardóttir, Elfsabet Bjarnadótt-
ir og Lilja Kristjánsdóttir afhenta hér Stefáni Björnssyni forstjóra Mjólkursamsölunnar undirskriftalist-
ana og sjást þeir fremst á myndinni. Ljósm. Mbl. Ól. K.Mag.
Rúm 17 þús. skrifuðu und-
ir gegn lokun mjólkurbúða
FULLTRUAR starfshópsins, sem
safnað hefur undirskriftum gegn
lokun brauð- og mjólkurbúða f
Reykjavfk afhentu f gær forstjóra
Mjólkursamsölunnar Stefáni
Björnssyni, undirskriftalistana
og höfðu 17173 manns ritað nöfn
sfn á þá. Stefán sagði, er hann tók
við listunum fyrir hönd stjórnar
Mjólkursamsölunnar sf., að óskir
þær, sem kæmu fram á undir-
skriftalistunum yrðu væntanlega
ræddar á stjórnarfundi Mjólkur-
samsölunnar, innan tfðar.
Fulltrúar starfshópsins tóku
fram f bréfi, sem þeir afhentu
með listunum, að þeir óskuðu
eftir svari fyrir 14. þessa
mánaðar.
I texta undirskriftalistans gegn
lokun mjólkurbúða segir m.a., að
lokun mjólkurbúða muni hafa í
för með sér verri þjónustu fyrir
neytendur og lakara vörueftirlit
og þar með eldri og lélegri vörur.
„Minna eftirlit verður einnig með
hreinlæti og ekki er ósennilegt,
að mjólkurverð muni hækka“.
segir f texta undirskriftalistans.
Tekið er fram, að 167 konur missi
atvinnuna og hafi þær enga trygg-
ingu fyrir annarri vinnu. Skorað
er á stjórn Mjólkursamsölunnar
að endurskoða afstöðu sína til
lokunar búðanna og halda rekstri
þeirra áfram og tryggja þannig
fulla atvinnu kvenna í brauð- og
mjólkurbúðum.
Fram, kom, að allar starfs-
stúlkur I mjólkurbúðunum söfn-
uðu undirskriftunum, auk fjöl-
margra neytenda, og i hópi þeirra
fjögurra kvenna, sem afhentu
Framhald á bls. 18
Franski há-
hyrningafang-
arinn kominn
FRANSKI háhyrningafangarinn,
sem reynt hefur að ná lifandi
háhyrningi við lslandsstrendur
s.l. tvö haust en án árangurs, er
nú kominn á ný til Islands og
hyggst gera eina tilraunina enn.
Frakkinn kom til Hafnar I
Hornafirði f fyrrakvöld og segist
hann vera með mun betri útbún-
að til að ná lifandi dýri en áður,
og telur nokkurn veginn öruggt,
að sér takist að ná lifandi dýri í
haust. Hann ætlar sér að gera
geymsluþró á Höfn fyrir háhyrn-
inginn er hann kemur I land og á
geymsluþróin að vera tilbúin á
næstu dögum.
r
Ovíst um heildar-
tjónið á Akranesi
TJÓNASKOÐUNARMENN
tryggingarfélaganna unnu að þvf
f gær að meta tjónið f brunanum
á Akranesi. 1 gærkvöldi var alls
ekki Ijóst hve heildartjónið var
mikið, né hve hátt verðmætin
voru tryggð, sem brunnu, en næt-
urnar t.d. voru tryggðar hjá mörg-
um aðilum.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunbiaðið hefur aflað
sér, er alls ekki vfst hvort aliar
næturnar voru tryggðar f tréhús-
inu, sem brann. Taiið er, að sum-
ar næturnar, sem voru tryggðar f
aðalgeymsluhúsinu, en það er úr
steini og slapp, hafi verið f timb-
urhúsinu, og þyf ekki vfst, hvort
tryggingarnar ná til bruna þar.
Ennfremur er ekki vitað, hvort
tryggingarnar ná til nótarinnar,
sem brann á paliinum utan við
húsið, þar sem nótin var ekki
komin inn f hús.
Mjög óhreinn fatnaöur þarf mjög gott þvottaefní...
Með Afax þvottaefni verður misliti
þvotturínn alveg fafn hreinn og
suóuþvotturinn.
Hinir nýju endurbættu
efnakljúfar gera þaó Meift
aó pvo jafn vel meó ölium
þvottakerfum.
Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og
viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus.
Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hreinn og hvítur.
Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótvíræða
kosti sína, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatíminn er
stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir
skýrast.
Hreinsandi efni og nýir. endurbættir efnakljúfar ganga alveg
inn í þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti í
forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni.
Ajax þvottaefní þýóir:
gegnumhreínn þvottur meó öllum
bvottakerfum.