Morgunblaðið - 08.09.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
7
Verkalýðs-
i foringjar —
iMenntamenn
Á sjöunda áratugnum
einkenndist klofningurinn
I Alþýðubandalaginu af
ítökum milli þeirra
tveggja hópa, sem stóðu
að myndun þess. þ.e. milli
Sóslalistaflokksins og
Málfundafélags jafnaðar-
manna, en ýmsir úr
Sósialistaflokkunum
gengu þó á þeim tima til
samstarfs við þann hóp,
sem kom úr Málfundafé-
lagi jafnaðarmanna. Þess-
um átökum lauk með
klofningnum i Alþýðu-
bandalaginu haustið
1968. Siðan hefur smátt
og smátt komið upp ann-
ars konar ágreiningur inn-
an Alþýðubandalagsins
um grundvallarmálefni og
hefur þar verið mest áber-
andi á siðustu árum sá
augljósi skoðanaágrein-
ingur, sem uppi hefur ver-
ið milli verkalýðsmanna
Alþýðubandalagsins og
menntamannahópa, sem
þar hafa seilzt til stöðugt
meiri áhrifa. Helztu for-
ystumenn Alþýðubanda-
lagsins i verkalýðshreyf-
ingunni hafa I sivaxandi
mæli tekið faglega af-
stöðu til kjarabaráttu og
annarra málefna verka-
lýðssamtakanna. En hin
pólitiska forysta Alþýðu-
bandalagsins, sem hefur
færzt meir og meir i
hendur ýmissa hópa
menntamanna, hefur hins
vegar viljað beita verka-
lýðshreyfingunni og áhrif-
um Alþýðubandalagsins
innan hennar til fram-
dráttar flokkspólitiskum
hagsmunum Alþýðu-
bandalagsins. Ágreiningur
milli þessara tveggja hópa
hefur farið vaxandi á sið-
ustu árum og nú er svo
komið. að i raun og veru
er um að ræða tvo flokka
innan Alþýðubandalags-
ins, sem sáralitið sam-
band er á milli. Verkalýðs-
foringjunum hefur smátt
og smátt verið ýtt til hlið-
ar innan Alþýðubanda-
lagsins og menntamenn-
irnir tekið þar völdin.
Þessi þróun hefur orðið
svo hröð, að i raun og
veru er ekki lengur hægt
að lita á Alþýðubandalag-
ið sem verkalýðsflokk
fyrst og fremst, og á þenn
veg hefur það fjarlægt
uppruna sinn með ná-
kvæmlega sama hætti og
Alþýðuflokkurinn hefur
gert á undanförnum ára-
tugum. Kannski er þetta
alvarlegasti ágreiningur-
inn, sem nú er uppi innan
Alþýðubandalagsins.
Landsbyggðar-
menn —
Reykvíkingar
En jafnframt þessu hef-
ur einnig á undanförnum
árum gætt skoðanamunar
á milli þingmanna Alþýðu
bandalagsins sem kjörnir
hafa verið I kjördæmum
landsbyggðarinnar, og
Reykvlkinga eða þeirra,
sem á höfuðborgarsvæð-
inu búa. Að vonum mót-
ast viðhorf þingmanna
Alþýðubandalagsins utan
af landsbyggðinni mjog af
þeim vandamálum og við-
fangsefnum, sem við er
að gltma út um land, og á
það raunar við um lands-
byggðarþingmenn I öllum
flokkum. Landsbyggðar-
þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins þykir greini-
lega skorta á skilning
flokksbræðra þeirra á höf-
uðborgarsvæðinu á mál-
efnum landsbyggðarinnar
og þess vegna hefur
smátt og smátt orðið
nokkur skoðanamunur á
milli þessara tveggja
hópa, sem birzt hefur I
ýmsum myndum og ber-
sýnilegt er, að lands-
byggðarþingmönnum Al-
þýðubandalagsins hugn-
ast ekki málflutningur
flokksbræðra þeirra á suð-
vesturhorni landsins.
Hvert fer
unga fólkið?
Þá hefur það einnig
komið fram á undanföm-
um árum, að ungt vinstri
sinnað fólk hefur ekki
gengið til starfa innan Al-
þýðubandalagsins. Heldur
hefur það myndað ný
stjómmálasamtök á
vinstri vængnum, sem
ganga undir ýmsum nöfn-
um og ófróðir menn eiga
oft erfitt með að átta sig á
þeim samtökum. sem þar
er um að ræða. Hitt er
alveg Ijóst, að allur þorri
vinstri sinnaðrar æsku
leitar ekki lengur til
Alþýðubandalagsins held-
ur þessi samtök vinstri
sinnaðra öfgamanna, sem
um leið hafa til að bera
ótrúlega raunsæja afstöðu
til ýmissa alþjóðamála,
sbr. forystugrein Stétta-
baráttunar, sem birt var I
þessum dálkum I gær.
Innri
mótsetningar
skerpast
Loks er svo Ijóst, að
ýmsar innri mótsetningar,
sem ekki hafa verið ýkja
áberandi innan Alþýðu-
bandalagsins á undan-
förnum árum, hafa verið
að skerpast síðustu miss-
eri, og alveg sérstaklega
eftir að stjórnaraðild
flokksins lauk. Þessar
mótsetningar koma fram I
togstreitu. milli einstakra
hópa á suð-vestur horninu
og virðast bæði eiga sér
persónulegar og hug-
sjónalegar forsendur.
Þegar þessi mynd, sem
við btasir, er skoðuð,
kemur I Ijós, að Alþýðu-
bandalagið stendur á ný
frammi fyrir meiri háttar
innanflokks vandamálum,
sem gera má ráð fyrir
samkvæmt fenginni
reynslu, að muni frekar
aukast en minnka á
næstu árum.
SERLEGA HAGSTÆTT VERÐ
V::!:
Klapparstig 1 Skeifan 19.
Simar 1 8430 — 85244.
álnavöru
markaður
í GLÆSIBÆ
Bútarnir
eru komnir
það er leikur
að læra...
VÉLRITUN Á abc 2002 SKÓLARITVÉLINA
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
\+:~
r * . „ Hverfisgötu 33
Simi 20560
Bambushúsgögnin
komin
Vörumarkaðurinnhí.
Húsgagnadeild
s. 86112.