Morgunblaðið - 08.09.1976, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
18
— Skák
„SA GAMLI
BÝSNA SEIGUR“
Við tókum nokkra áhorfend-
ur tali til að fá álit þeirra á
viðureign Friðriks og Najdorfs.
Fyrstur á vegi okkar varð Jón
Þorsteinsson fyrrum alþingis-
maður og skákmeistari Norð-
urlanda, en hann var um árabil
einn fremsti skákmaður lands-
ins og teflir enn. „Friðrik hefur
örlítið betri stöðu, en hvort það
dugir veit maður ekki að svo
stöddu, en auðvitað vonar mað-
ur að hann vinni. Sá gamli er þó
býsna seigur og gefst ekki upp
fyrr en I fulla hnefana,“ sagði
Jón f Hagaskólanum í gær-
kvöldi.
Jón sagði okkur um skák
Guðmundar og Tukmakovs, að
staðan þar væri nokkuð flókin
með möguleikum á báða bóga.
Að vísu væri í henni ákaflega
mikið jafnvægi og kæmi það
honum þvi ekkert á óvart, þótt
úr yrði jafntefli (því má skjóta
hér inn, að hálfri klst. eftir
samtal okkar sömdu þeir stór-
meistararnir um jafntefli).
„ÉG VIL MONRAD-
KERFI A SVONA MÓT“
„Það er ómögulegt að segja
nokkuð um þetta núna, en mér
sýnist þetta þó jafnteflislegt, —
það kemur I ljós," sagði hin
aldna kempa Benóný Bene-
diktsson, er við ræddum við
hann á mótstað. Benóný fannst
þó sem Friðrik tefldi ekkert
vel, hvorki í þessari skák né
öðrum í þessu móti. Honum
fannst hann t.d. alltof oft lenda
I tfmahraki og vera of gjarn á
að semja um jafntefli. „Islend-
ingarnir tefla allir illa. Það eru
alltaf valdið sömu mennirnir til
að taka þátt í þessum mótum og
þeir tapa alltaf flestir. Þó er
þetta lélegasta mót, sem hér
hefur verið haldið í langan
tíma. Þetta er lélegra heldur en
þegar þeir Tal, Tajmanov,
Smyslov, Bronstein, Matuluvic,
Byrne, o.fl. voru að heimsækja
okkur. Ég held svei meir þá að
þetta sé með þvf lakasta. Það er
mikið um afleitar skákir hér,
en þó er Najdorf beztur, svo og
Ingi af íslendingunum. Það er
alltof mikið um stórmeistara-
jafntefli og er það óþolandi.
Það á að afnema þau og i því
sambandi vildí ég fá Monrad-
kerfið á svona móti. Ef Monrad-
kerfið væri notað, yrðu þeir
beztu að tefla til þrautar og
jafnteflin yrðu þeim sjálfum
verst. Þannig yrðu þeir þving-
aðir til að tefla upp á vinning,"
sagði Benóný þegar við tókum
hann tali. Benóný sagðist lítið
tefla nú. Það væri þó helzt að
hann tefldi við sjálfan sig.
„GAMALDAGS SKAK“
Næstan tókum við tali Hregg-
við Jónsson. Honum fannst
skák þeirra Friðriks og Naj-
dorfs frekar jafnteflisleg fram-
an af, en síðan væri eins og
Friðrik hefði náð frumkvæðinu
um tíma. „Najdorf bauð upp á
líflegan leik, þegar hann lék
f-peðinu fram og rauf það þann-
ig úr tengslum við hin peðin.
Með þessu bauð hann upp á
skiptamun, sem Friðrik tók, en
erfitt er um það að segja eða
spá, hvort honum takist að nýta
það. Það eru möguleikar, cii þó
sýnist mér skákin jafnteflis-
leg,“ sagði Hreggviður. Hann
sagði ennfremur: „Skákin er
gamaldags þ.e. hún er tefld eft-
ir gömlum hefðbundnum leið-
um, en ekki samkvæmt nýrri
aðferðum þessa afbrigðis."
HELDUR MEÐ
HUSBÓNDANUM
Mörgum, er til mótsins koma,
verður starsýnt á miðaldra
konu, sem alltaf situr á sama
stað í horni setustofunnar,
framan við skáksalinn, þegar
tefldar eru umferðir i Reykja-
víkurskákmótinu. Það er Adela
Najdorf, eiginkona gömlu
kempunnar, en meðan skákir
eru tefldar situr hún og prjónar
úr íslenzkum lopa. Adela sagði
tíðindamanni, að hún væri nú
að prjóna þriðju peysuna sína
síðan hún kom til landsins.
Taldi hún þær liklega verða
fjórar áður en yfir lyki. Frúin
var nokkuð ánægð með tafl-
mennsku húsbónda síns, en
hún sagði þó að „Ólafsson"
væri mjög sterkur skákmaður
og þyrði hún því engu um úrslit
að spá.
Adela sagði okkur þetta vera
í fyrsta sinn sem hún kæmi til
tslands. Var hún afar ánægð
með kynni sin af landi og þjóð,
en hér væri allt ólikt þvi sem
gerðist heima I Argentinu.
SKATTARNIR
TlMAFREKIR"
Það eru menn af öllum stig-
um, sem leggja leið sina í Haga-
skólann til að fylgjast með
skákunum. Þetta kvöld var
staddur þar Björn Fr. Björns-
son, sýslumaður þeirra Rangæ-
inga, en hann sagðist hafa skot-
izt í bæinn til að sjá þessa skák,
og einnig til að sjá landsleikinn
í fórbolta við Hollendinga.
Björn sagði okkur þó, að erfitt
hefði verið að finna tíma aflögu
til að fylgjast með skákunum,
því skattarnir væru afar tima-
frekir þessa dagana. „Ég tefldi
nokkuð í TR í gamla daga og
væru því miklu oftar hér ef það
væru ekki skattarnir sem tækju
upp allar stundir þessa dag-
ana“, sagði Björn. „Skákin hjá
Friðrik og Najdorf er skemmti-
leg og fjörug, en þó sýnist mér
hún jafnteflisleg. Það má þó
segja, að Friðrik hafi liprari
stöðu, en erfitt að eigna honum
sigur að svo stöddu,“ sagði
Björn. _____*-*-•_____
— Kissinger
Framhald af bls 1
stuttri lokayfirlýsingu segir, að
leiðtogarnir fimm hafi orðið ásátt-
ir um að herða hernað gegn stjórn
hvitra manna I Zambabwe
(Rhódesiu).
I dag féll í Jóhannesarborg
blakkur maður úr hópi mótmæl-
enda i skothrið, en i Höfðaborg
féll kynblendingur fyrir kúlum
lögreglunnar.
— 300 kennarar
Framhald af bls. 32
en að honum meðtöldum væru
ráðnir kennarar við skólann að-
eins 4, og samt væri hann betur
staddur en margir aðrir skóla-
stjórar. Þá sagði Hjörtur, að hann
gæti fmyndað sér, að 40% kenn-
ara væru nú án kennaraprófs og
vissi hann ekki hvort forsvaran-
legt væri að reka jafnstóran skóla
og að Kleppjárnsreykjum með
jafnfáa kennara og raun bæri
vitni.
— Gísla saga
Framhald af bls. 32
gripi úr einkasafni Egils Ólafs-
sonar á Hnjóti i Rauðasands-
hreppi sem leikmuni.
Svíarnir hafa verið I sambandi
við ýmsa aðila hér heima i sumar,
en Hállen kom aftur til landsins
nú nýlega til að undirbúa jarðveg-
inn frekar. Hann ræddi þá m.a.
við Vigdísi Finnbogadóttur leik-
hússtjóra Leikfélags Reykjavík-
ur, og í samtali við Morgunblaðið
sagði hún, að Hállen hefði þá
fengið að ganga I myndasafn L.R.
til að kynna sér leikara félagsins
því að hann hefði í hyggju að nota
íslenzka leikara I ýmis aukahlut-
verk. Að sögn Vigdisar hefur
Hállen sjálfur gert handritið að
myndinni og hefði hann sýnt það
ýmsum hér heima. Kvað Vigdis
það vera samdóma álit flestra,
sem handritiö hefðu lesið, að það
væri fagmannlega unnið.
— Bretland
Framhald af bls 1
vera tregur til að gangast inn á
sllkar ráðsafanir nú þegar efna-
hagsástand þjóðarinnar er heldur
bágborið.
Bankarnir fjórir, sem um ræðir
eru National Westminster,
Barclays, Midland og Lloyds.
Tryggingafélögin nefnast
Commercial Union, Royal,
Prudential, Guardian Royal
Exchange, General Accident, Sun
Alliance og London and Legal
and General. 1 skýrslunni segir að
grundvallarskilyrði raunhæfrar
efnahagsstjórnunar séu veruleg
félagsleg eign I banka- og trygg-
ingakerfinu. Bankarnir sem þjóð-
nýttir yrðu , myndu áfram verða
aðskildir en féllu hins vegar beínt
undir stjórn Englandsbanka.
Grundvallarbreyting verði einnig
að verða á hlutverki Englands-
banka. „I framtiðinni verður at-
vinnumálastefna ríkisstjórnar-
innar og einnig heildarstefna
hennar i efnahagsmálum að njóta
stuðnings hinna gríðarlegu áhrifa
hans (Englandsbanka)."
— Kostar
Framhald af bls. 2.
vildi samt ekkert um kostnaðar-
hliðina segja að svo stöddu.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér í gær mun meðal-
yfirvinnustund kennara, þ.e.
greiðsla fyrir aukavinnu, vera um
1.000 krónur á klukkustund. Gerð
stundaskrár fer venjulegast fram
I ágústmánuði, en það er sá tími,
sem myndi teljast til aukavinnu
meðal kennara, en starfstimi
þeirra hefst ekki fyrr en 1.
september. Þvi er ekki fjarri lagi
að áætla stundaskrárgerðina við
Flensborgarskólann á hálfa
milljón króna. Verið getur að það
sé þó ivið há upphæð, þvi að yfir-
kennari og skólastjóri fá ekki
yfirvinnu fyrir slíka vinnu.
Þeirra vinnutími er allt árið.
Fræðslustjórinn í Reykjavik,
Kristján J. Gunnarsson, sagði í
viðtali við Mbl. i gær, að geysi-
mikil vinna lægi að baki stundar-
skrárgerðarinnar á hverju hausti.
Skrárgerðin yrði mun flóknari
með þeirri kerfisbreytingu, sem
orðið hefði á skólunum. Val-
greinar og áfangaskipti væru ekki
það eina sem flæktu töflugerðina,
heldur og einnig námshraðinn. I
síðasta bekk grunnskóla 9. bekk,
er töflugerðin orðin talsvert
flókin og erfiðust er hún í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti og
jafnvel erfiðari en i menntaskóla
þar sem I honum eru einnig iðn-
greinar.
Ekki er enn unnt að fullyrða
neitt um endanlegan kostnað við
töflugerð. Kröfur hafa verið
lagðar fram, en eftir er að taka
tillit til þeirra. Forvinnan undir
skólaár — sagði Kristján að væri
mikil og þegar skólarnir
stækkuðu sagði hann ógerning
annað en vinna hana í tölvu. Um
kostnaðinn er Mbl. nefndi hálfu
milljónina frá Hafnarfirði sagði
Kristján að hérværi um smámuni
að ræða. Menn skyldu hafa það
hugfast að rikið greiddi I skólana
10 til 20 milljarða króna á ári og
sé kerfisbreytingin til bóta er lítið
við þessu áð segja. Hann kvað
stjórnun innan skólakerfisins
ekki það sem kvarta þyrfti undan
að væri of mikil eða of kostnaðar-
söm.
— Belenko
Framhald af bls 1
hann til að fallast á það.“ Að
sögn japönsku lögreglunnar
hefur Belenko nú verið fluttur
til leynilegs dvalarstaðar í út-
jaðri Tókýó og í kvöld mun
hann eiga fyrsta fund sinn með
fulltrúum bandariska sendi-
ráðsins.
Kiichi Miyazawa utanríkis-
ráðherra Japans sagði i dag, að
MIG-25 þotunni yrði ekki að svo
stöddu shúið heim til Sovét-
ríkjanna. „Flugvélin hefur
brotið lofthelgi Japans, og
stjórnvöld verða því að ljúka
rannsókn sinni áður en til mála
getur komið að senda vélina til
baka.“ Sambúð Japana og
Sovétmanna hefur verið stirð,
þótt stjórnmálasamband hafi
verið þeirra í milli frá árinu
1956. Þetta markast fyrst og
fremst af því að Sovétmenn
hafa neitað að skila aftur fjór-
um smáeyjum sem teknar voru
af Japönum við lok síðari heim-
styrjaldarinnar. Reynt hefur
verið að koma á heimsókn
Brezhnevs flokksleiðtoga til
Japans til að reyna að koma
sambúðinni í eðlilegra horf.
Hópur japanskra hernaðar-
sérfræðinga fór í dag frá Tókýó
til eyjunnar Hokkaido I
Norður-Japan, þar sem Belenko
lenti vélinni til að rannsaka
hana, en talið er að vestrænir
sérfræðingar i þessum efnum
hafi með flótta Belenkos fengið
kærkomið tækifæri til að
kynnast þessu mikla leynivopni
Sovétmanna. Einn slíkur sagði í
dag, að sérstakan áhuga vekti
sá hæfileiki sem MIG-25 er sögð
gædd, að „blinda“ flugvélar
andstæðinga með rafeinda-
tækjum.
MIG-25 er sögð geta flogið
meir en 1600 milur á klukku-
stund en hámarkshraði F-15
Arnarþotna B: ndaríkjahers er
sagður vera a.m.k. 1432 mílur.
Bandariski flugherinn hefur
ekki viljað gefa upp nákvæma
tölu. F-14 Tomcatvél Banda-
ríkjamanna fer aðeins hægar er
Örninn, en er snúningsliprari.
Hins vegar eru þessar vélar
þrjár sagðar af svipaðri stærð
og líkum vopnum búnar.
— Gegn lokun
Framhald af bls. 3
listana, voru 3 fulltrúar starfs-
stúlknanna og 1 af hálfu neyt-
enda. Aðspurðar um, hvers vegna
jafn fáar konur hefðu leitað til
atvinnumiðlunar Kaupmanna-
samtakanna, sögðu starfs-
stúlkurnar, að þær litu á hana
sem „blöff", þvi að kaupmenn
væru ekki bundnir við að ráða
frekar þær konur, sem leituðu til
miðlunarinnar en aðrar, er
óskuðu eftir vinnu hjá þeim.
Stefán Björnsson var að því
spurður hvort mjólkurbúðirnar
hefðu verið reknar með hagnaði,
en hann sagði að i því sambandi
væri ekki hægt að tala um tap né
gróða. Dreifing Mjólkursam-
sölunnar færi fram með eins
litlum tilkostnaði og hægt væri,
en þó innan þess ramma, sem lög
ákveða, að neytendur eigi þess
kost að kaupa mjólk, án þess að
sækja hana um langan veg. Sex-
mannanefnd fengi I hendur yfirit
um dreifingarkostnaðinn og m.a.
með hliðsjón af honum væri verð
mjólkur ákveðið. Það sem færi
fram yfir áætlaðan dreifingar-
kostnað kæmi niður á hlut
bændanna og á síðasta ári vantaði
um 1,70 krónur upp á að bændur
fengju fullt verð fyrir hvern
mjólkurlítra.
— Enginn
mjólkurskortur
Framhald af bls. 2.
útflutnings og birgðaaukningar,
þannig að það er ekki upp á mikið
áð hlaupa. Við þetta bætist að yfir
sumarmánuðina sex eru fram-
leidd 62% af ársframleiðslunni
en 32% yfir vetrarmánuðina sex.
Vandamálið er því að jafna þessu
milli árstiða og það er gert með
framleiðslu á undanrennudufti,
sem yfir vetrarmánuðina er notað
til framleiðslu á mjólkurvörum,
s.s. skyri og súrmjólk.
Mjólkurframleiðslan nú er
áþekk þvi sem hún var á sama
tima i fyrra, auk þess sem birgðir
af smjöri eru um 200 tonnum
meiri um mánaðamótin ágúst —
september en um þessi sömu
mánaðamót I fyrra. Þá er til meira
af undanrennudufti nú en í fyrra-
haust og mánuðina maí, júní og
júlí i sumar hefur sala á mjólk á
sölusvæði Mjólkursamsölunnar
dregizt saman um 5% eða um 365
þúsund lítra þessa þrjá mánuði.
Til mjólkurskorts ætti því ekki.að
koma í vetur nema að verulega
mörgum nautgripum verði slátrað
í haust og dragi úr mjólkurfram-
leiðslunni af þeim sökum, sagði
Pétur að lokum.
— Bráðabirgða-
lög
Framhald af bls. 32
leysa þetta mál á milli sín inn-
byrðis, og væri útgáfa laganna því
bæði ótímabær og óheppileg.
Kvaðst Jón gera ráð fyrir því að
útgáfu laganna yrði mótmælt af
sjómannasamtökunum í heild
eins og áður segir.
Kristjáns Ragnarsson, formað-
ur Landssambands ísl. útvegs-
manna, sagði, að á hverjum tíma
væri æskilegast að kjarasamning-
ar væru gerðir af samtökum laun-
þega og vinnuveitenda. „Það
ástand getur hins vegar skapazt
eins og nú, að nauðsynlegt sé að
taka fram fyrir hendur á þessum
aðilum. Samninganefndir sjó-
manna og útvegsmanna hafa nú
setið á fundum i marga mánuði og
reynt að finna lausn, sem báðir
aðilar geti við unað, og hafa samn-
inganefndir tvisvar undirritað
kjarasamning. Það alvarlega
ástand hefur hins vegar skapazt í
samtökum sjómanna, að veruleg-
ur hluti þeirra hefur ekki viljað
hlíta þvi, sem forustumenn þeirra
hafa skrifað undir. Þátttaka í at-
kvæðagreiðslu hefur þó verið
mjög lítil. Bráðabirgðalög þessi
jafna aðstöðu sjómanna á þann
veg, að hliðstæð kjör gilda fyrir
þá, hvort heldur þeir hafa sam-
þykkt eða fellt samningana, og
þeim sem samþykktu samningana
í upphafi, er veitt sú kjarabót,
sem fólst í síðast undirritaða
samningnum, er byggðist á miðl-
unartillögu frá sáttanefnd. Kjara-
samningar þessir voru óvenju-
flóknir vegna hinnar umfangs-
miklu sjóðakerfisbreytingar sem
gerð var um miðjan febrúar og
e.t.v. hefur ekki tekizt að gera
sjómönnum nægilega grein fyrir
því, í hverju þessar flóknu breyt-
ingar voru fólgnar. Tel ég, að það
geti verið megin ástæðan fyrir
því, að mörg félög sjómanna
felldu samningana og það meira
að segja tvívegis,“ sagði Kristján.
Bráðabirgðalögin eru svohljóð-
andi:
1. gr.
Samningar þeir, sem samninga-
nefndir sjómanna og útvegs-
manna undirrituðu 29. febrúar
1976, 1. og 27. mars 1976, 14. maí
1976 og 28. júlí 1976 og prentaðir
eru á fylgiskjölum I.—X. með lög-
um þessum skulu gilda um kaup
og kjör sjómanna um land allt
eftir því sem við á fyrir hvert
félag sem aðild átti að þeim og
fyrir það timabil, sem samning-
arnir kveða á um. Fyrir þau félög
sjómanna, sem ekki áttu neina
aðild að samningum þessum
skulu þeir einnig ákveða kaup og
kjör, eftir því sem við getur átt og
með þeim hætti, sem tíðkast hef-
ur. Samningurinn frá 28. júlí 1976
skal einnig gilda eftir því sem við
á fyrir þau félög sjómanna, sem
ekki áttu aðild að honum.
2. gr.
Verkbönn og verkföll, þar á
meðal samúðarverkföll, eða aðrar
aðgerðir í því skyni að knýja fram
aðra skipan kjaramála en lög
þessi ákveða eru óheimil, sbr. 17.
gr. laga nr. 88 frá 1938 um stéttar-
félög og vinnudeilur. Þó er samn-
ingsaðilum sbr. 1. grein heimilt að
koma sér saman um breytingar á
þar greindum samningum, en eigi
má knýja þær breytingar fram
með vinnustöðvun.
3. gr.
Með brot á lögum þessum skal
fara að hætti opinberra mála og
varða brot sektum.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gíldi, en
falla að fullu og öllu úr gildi 15.
maí 1977.
— Fiskveiði-
samskipti
Framhald af bls. 17
Nemendafélags Hamrahlíðar-
skólans siðastliðinn vetur og við
spyrjum hann í lokin, hvernig
honum finnist að hoppa beint af
skólabekknum og i framkvæmda-
stjórastarf hjá fiskverkunarfyrir-
tæki í heimabyggð sinni á Barða-
strönd, en Sigurður er frá Litlu-
Hlíð á Barðaströnd, eins og áður
sagði.
— Það er vissulega gaman að
vasast I þessu, segir Sigurður, og
,ég hef trú á þessu fyrirtæki, þar
sem svo margir heimamenn hérna
eiga I rauninni fyrirtækið. Fram-
tið þess stendur þó og fellur með
þvi hvort við fáum hafnaraðstöðu
eða ekki. Fyrirtækið er byggt á
þeim grundvelli að við getum
tekið á móti fiski hér á staðnum.
Ég reikna með að klára stúdents-
prófið I haust, en verða siðan með
aðra löppina að minnsta kosti hér
heima I vetur, hvað svo verður um
áframhaldandi skólagöngu veit ég
ekki enn þá, sagði Sigurður að
lokum.