Morgunblaðið - 08.09.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
27
Sími 50249
Spilafíflið
Áhrifamikil og spennandi
mynd. James Caan. Poul
Sovino.
Sýnd kl. 9.
Veitt gullnál Evrópusam-
bands eigenda ísl. hesta
Sími 50184
Leigumorðinginn
Hörkuspennandi og vel leikin
amerisk kvikmynd með úrvals-
leikurum.
Aðalhlutverk: Michael Caine,
Anthony Quinn, James Mason.
fslenzkur texti.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
Frð Gunnarl Rytgaard,
fréttaritara Mbl. I Kaupmannahöfn.
Á Skandinavisku meistaramóti
islenzka hestsins 1976, sem að
þessu sinni var haldið I Dan-
mörku I lok ágústmánaðar, var
Agnari Tryggvasyni, fram-
kvæmdastjóra Búvörudeildar
Sambands fsl. samvinnufélaga,
veitt sérstök viðurkenning.
Viðurkenning þessi var gullnál,
sem veitt er af Evrópusambandi
eigenda íslenzkra hesta (FEIF).
Dr. Ewald IsenbUgel, formaður
FEIF, veitti Agnari gullnálina en
auk hennar afhenti hann Agnari
heiðursskjal, undirritað af dr.
Ewald IsenbUgel og ritara FEIF,
Gunnari Jónssyni, framkvæmda-
stjóra í Kaupmannahöfn. Agnar
Tryggvason er annar maður sem
tekur við gullnálinni en áður
hafði Gunnar Bjarnason, ráðu-
nautur, sem er varaformaður
FEIF, fengið gullnálina.
Formaður FEIF afhenti viður-
kenninguna i Fredensborg i Dan-
W.Vfioi «x tvw.'uön.»j;.vx)Ky.J::vi
ev.jocjr.iK.-o v.'.t *.<•>. tt«Kccv. ö/a *A<ruMuð :«er.skp/,
íl.V.OIO.-'i.yjA-.A »/.vk«O.V. ÖACV. <X*jS. ubKC .J.yA 4DV
Mfi zr,<4ovA-A:.c poK ■'■•í xcU.xy »yv
gv»»rcv. oi-.O ð<< M..:tó.v--v-b:iö.) vyp.v»»«rcc: ,v«t wp.tbKn:*
i*U:(ðoK pívoð* oyr. ao. .'oxía'»o. Kot.v.:bAp:oi; jk ••■miá
:;vtð •'•>/ .vJAnð.Vitbí [.(:<ttí ijctvtoks. <o. ««4r stcfv Am-.vk •:«> ð.<
»"•» .'..xc-wo :sUoápr«c;<< <..-,vr..; - WKjftwrar:p
<cv.<••:•>.« :.p/A. ,'co •«/.<•,si-.-.-
-. VftMPpöítOH>»:< >/U:'.»;*.»yj»^.':«^App>:«<vy-x io/ot - vj.v.v.-.
b.roW.faoc. ^'Oi’l-A'io:/ <r.j:o>pp>öv.:*o p»;v >i<o. yvoUtbtioo <*>VyW.:
5c:c^./'.:« p/toíio^r. <voKð/r,; xótty».-:
Agnar Tryggvason (t.h.) ræðir hér við dr. Ewald Isenbugel á Skand-
inavisku meistaramóti fslenzka hestsins.
»je.-<h 'a-.ö <pp*:-.«>.\OK.:. ð«r. c: io.jf*-.-
•Vo. xhxcr av.
íc '<
Myndin sýnir heiðursskjalið, sem
fylgdi gullnálinni, en f vinstra
horni skjalsins má sjá mynd af
nálinni.
mörku. Hann ræddi um þá þyð-
ingu, sem íslenzki hesturinn hef-
ur í dag sem sendiherra lslands
um allan heim. Til dæmis er hóp-
ur islenzkra hesta á leið þvert yfir
Ameríku sem þátttakendur í hóp-
reið I tilefni af 200 ára afmæli
Bandaríkjanna. Þarna hefur ís-
lenzki hesturinn komið fyrir augu
fjölmargra Bandaríkjamanna og
vakið mikla athygli á heimalandi
hestanna.
Áður var hesturinn á lslandi
eina samgöngutækið, sem lands-
menn höfðu yfir að ráða. 1 dag
sækir hann fram á meginlandinu
og brýtur niður landamæri milli
manna og landa, sagði dr. Isen-
biigel. Hann tók fram að Agnar
hefði í starfi sfnu haft úrslita-
áhrif á útflutning islenzka hests-
ins, þessa mikla sendiherra þjóð-
arinnar.
Dr. Isenbiigel hefur sl. 20 ár
unnið sem vísindamaður við há-
skólann f Ziirich f Sviss og hefur
hann aflað sér mikils fróðleiks
um fslenzka hestinn og ritað
margt um hann. Sem viðurkenn-
ingu fyrir þessi störf sfn var hon-
um veitt orða frá Búnaðarfélagi
Islands á aðalfundi FEIF á Hól-
um i Hjaltadal 1974.
Ráðstefna um sveit-
arstjórnarmál
Hef opnað
málflutningsskrifstofu
að Borgartúni 29, Reykjavík, sími 81 580.
Svala Thorlacius, héraðsdómslögmaður.
Lögmannsskrifstofa
GYLFI THORLACIUS
SVALA THORLACIUS
Borgartún 29 ■ Reykjavík ■ Sími 81580
Björk 6. september
Kjördæmisráð sjálfstæðisfélag-
anna f Norðurlandskjördæmi
eystra gekkst fyrir ráðstefnu um
sveitarstjórnarmál o.fl. f Hótel
Reykjahlfð um helgina. Ráðstefn-
an hófst kl. 14 á laugardag með
setningarræðu Halldórs Blöndals,
formanns kjördæmisráðsins.
Fundarstjóri var kjörinn
Ásmundur Kristjánsson. Fram-
söguræður fluttu alþingismenn-
irnir Steinþór Gestsson, er hann
nefndi „Ný viðhorf i sveitar-
stjórnarmálum", og Lárus Jóns-
son talaði um „Norðurlandsvirkj-
un og verkefni framundan". Sið-
an voru frjálsar umræður og tóku
margir þátt í þeim og bar margt á
góma.
Á laugardagskvöld var félags-
vist og dans f Hótel Reynihlið, en
á sunnudagsmorgun var ráðstefn-
unni haldið áfram. Þar flutti Lár-
us Jónsson alþm. ræðu um stjórn-
málaviðhorfið og fleiri mál. Marg-
ir tóku til máls og voru umræður
fjörugar. Um hádegisbilið sleit
Halldór Blöndal þessari ráðstefnu
og eftir að hádegisverður hafði
verið snæddur í Hótel Reynihlíð
var haldið noröur í Kröflu. Þar
var mönnum sýnt stöðvarhúsið og
fleiri mannvirki. Var sú
skoðunarferð i alla staði hin fróð-
legasta. Þá buðu forráðamenn
Miðfells h.f. öllum þátttakendum
kaffi og voru veitingar allar mjög
rausnarlegar. Fullyröa má að
þessi ráðstefna hafi tekizt með
ágætum vel, og ber fyrst og
fremst að þakka Halldóri Blöndal
fyrir hans framlag, svo og öllum
þeim sem lögðu sitt af mörkum til
að vel mætti til takast. Krisiján
Sambandsfrystihúsin:
Svipuð fram-
leiðsla og
var í fyrra
— MER sýnist, að framleiðslan
hjá Sambandsfrystihúsunum
muni á þessu ári verða svipuð og
var á sl. ári, en þá varð mjög
mikil framleiðsluaukning hjá
okkur, eða um 20%, sagði Sigurð-
ur Markússon, framkvæmdastjri
sjávarafuröadeildar SlS, þegar
Mbl. ræddi við hann á laugardag.
Morgunblaðið hefur áður greint
frá þvi, að töluverð framleiðslu-
aukning hefi orðið það sem af er
árinu innan Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna miðað við sama
tíma f fyrra, eða sem svarar um 2
þúsund tonnum, þegar sfðast
fréttist.
Sigurður sagði, að framleiðslan
núna væri einhvers staðar mitt á'
milli þess sem hún var i fyrra og á
Suðumesjatíð-
indi í nýjum
búningi
Með 33. tölublaði 8. árgangs af
Suðurnesjatiðindum breytist út-
gáfa blaðsins. Kemur blaðið nú út
í nýjum og stærri búningi og
hálfsmánaðarlega upp frá þes«u,
en frá 30. maf 1969, er blaðið kom
fyrst út, hefur það komið reglu-
lega einu sinni f viku.
1 33. tölublaðinu er sagt, að
fækkun útkomudaga sé gerð
vegna fjárhagsörðugleika, sem
blaðið hafi átt við að stríða. Blaðið
muni þó stækka að mun og vonast
ritstjórn þess eftir að geta gert
það fjölbreyttara að efni.
Ritstjóri og ábyrgðamaður
Suðurnesjatiðinda er Stein-
grimur Lilliendahl.
árinu 1974, en hins vegar væru ný
frystihús nú að taka til starfa og
nokkur fyrstihúsanna væru að fá
ný skip. Nefndi Sigurður, að nýtt
frystihús væri tekið til starfa á
Þórshöfn, á Fáskrúðsfirði væri
einnig nýtt frystihús að komast í
gagnið og næstu daga hæfi nýja
frystihúsið á Höfn í Hornafirði
einnig framleiðslu, en Sigurður
sagði, að þetta frystihús væri af
mörgum talið eitt hið fullkomn-
asta og nýtízkulegasta á Norður-
löndum, og þótt víðar væri leitað.
Kvaðst Sigurður því eiga von á, að
framleiðslan yrði svipuð og í
fyrra nú i árslok.
71.459
bifreiðar
á landinu
HEILDARFJÖLDI bifreiða á ár-
inu 1975 jókst um 95 eða úr
71.354 bifreiðum f 71.459. Vöru-
bifreiðum fækkaði um 16, en
fólksbifreiðum fjölgaði um 111,
eða úr 64.727 I 64.839 bifreiðar. t
árslok 1975 voru 326,9 bifreiðar á
hverja 1000 íbúa og er það sam-
dráttur um 2,5 bifreiðar frá ára-
mótunum á undan.
I fréttatilkynningu frá Bil-
greinasambandinu kemur fram,
að fjöldi bifreiða er mjög mis-
munandi eftir.árgerðum. Þannig
eru um síðustu áramót aðeins 251
bifreið af árgerð 1976. Flestar bif-
reiðar eru af árgerð 1974 eða
11.678, 7.331 bifreiða er af árgerð-
inni 1971, 6.799 af árgerð ’72,
6.294 bifreiðar eru frá 1973, 5.293
frá árinu 1966 en 2.699 frá árinu
1975.
Afskrifaðar bifreiöar eru um 2
þúsund á ári hverju á tfmabilinu
1971—73, en yfir 3 þúsund sl. tvö
ár. Flestar bifreiðar sem eru af-
skrifaðar eru 9—14 ára gamlar.
Bifreiðir af þessum árgerðum eru
nú tiltölulega margar og er gert
ráð fyrir að afskráðar bifreiðar
aukist f ár.