Morgunblaðið - 15.09.1976, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
Stórtap á leiknum
Áhorfendur aðeins 2155, og hafa aldrei
verið færri á Evrópuleik hérlendis
ÁHORFENDUR á leik Fram og
Slovan Rratislava í gærkvöldi
voru mjög fáir, arteins 2155.
„Þetta er minnsta aðsókn að Evr-
ópuleik hér á Laugardalsvellin-
um,“ sagði Baldur Jónsson vallar-
stjóri eftir leikinn.
,,Það er auðséð, að við náum
ekki endum saman fjárhagslega
þar vantar mikið uppá,“ sagði Jón
Ragnarsson, formaður knatt-
spyrnudeildar P’ram, þegar Mhl.
ræddi við hann eftir ieikinn. „Við
erum að sjálfsögðu óánægðir yfir
þessu. Við reiknuðum með að fá
3—4 þúsund manns á völlinn mið-
að víð þá vinnu, sem við höfðum
lagt í að auglýsa leikinn og miðað
við það hvað veðrið var gott. Pin
þetta hefur veríð óraunhæf bjart-
sýni hjá okkur. Fólk er greinilega
búið að fá nóg af knattspyrnu
eftir alla stórleikina að undan-
Markakóngur
ÁÐUR en keppnistimabilið i Vestur
Þýzkalandi hófst í sumar var sænski
knattspyrnumaðurinn Benny Wendt,
sem lék með FC Köln seldur til Tenn
is Broussia i Berlin Þar sem Wendt
förnu. Ég get ekki séð að félags-
liðin geti staðið í þvi að fá Evr-
ópulið hingað heim ef KSl hættir
ekki að planta niður landsleikjum
á sama tírna," sagði Jón Ragnars-
son.
Mbl. spurði Jón að lokum, hvort
P'ramarar fengju eftirgefið eitt-
hvað af vallarleigu fyrst svona
fáir áhorfendur komu á leikinn.
Sagði Jón að það væri ekki ósann-
gjarnt, völlurinn væri í þvílíku
ásigkomulagi að hann fældi fólk
frá því að horfa þar á leikinn og
væri að sinu mati ekki hægt að
taka fulla leigu fyrir völlinn í
slíku ástandi.
Fram -
Slovan 0:3
Pétur Ormslev er þarna kominn f dauðafæri og spyrnir knettinum að marki Slovan en Vencel
markvörður sá við honum og varði á marklínu.
Sigur Tékkanna var alltof stór
hafði ekki staðið sig vel með Köln,
var gjaldið sem félagið fékk fyrir
hann ekki ýkja hátt. En Wendt virtist
finna sig bærilega með sínu nýja
félagi og í fjórum fyrstu leikjum þess
í deildinni skoraði hann átta af níu
mörkum þess, og enn er hann mark-
hæsti leikmaðurinn í Vestur
Þýzkalandi.
Úheppnir
að
skora ekki
EFTIR leikinn ræddi blm. Mbl.
við dómarann og fyrirliða
beggja liða:
Ed Farrell, frskur dómari
leiksins: Þetta var góður leikur
og drengilega leikinn. Betra lið-
ið vann að minu mati en lið
Fram kom á óvart og var óhepp-
ið að skora ekki tvö mörk. Þeir
voru a.m.k. nær því en Tékk-
arnir að verða fyrri til að skora,
en mark Tékkanna var mjög
ódýrt. Beztu menn Fram fund-
ust meðr n.r 5 (Jón Pétursson)
og nr. 9 (Rúnar Glslason). Ég
átti von á því að völlurinn yrði I
ennþá verra ásigkomulagi eftir
rigningarnar að undanförnu.
Jón Pétursson, fyrirliði
Fram: Við spiluðum þennan
leik ekki vel að mínu mati og
Tékkarnir voru miklu lélegri
en ég átti von á. Mörkin sem
þeir fengu voru af ódýrari gerð-
inni, sérstaklega fyrsta og síð-
asta markið. Við vorum mjög
óheppnir að skora ekki, en
svona hefur þetta verið f allt
sumar, við höfum ekki nýtt
tækifærin.
Alexander Vencel, markvörð-
ur Slovan og fyrirliði: Bæði lið-
in léku frekar lélega knatt-
spyrnu óg er það fyrst og
fremst vellinum að kenna.
Hann var alveg ómögulegur og
við félagarnir í liðinu vorum
einmitt að tala um það hvers
vegna þið leidduð ekki heita
vatnið ykkar undir völlinn. Við
munum leika mun betur úti í
Tékkóslóvakfu og vinna þá
örugglega. Beztu menn Fram í
leiknum voru númer 9 (Rúnar
Gfslason), nr. 10 (Ásgeir Elías-
son) og nr. 5 (Jón Pétursson).
Tékkarnir ollu vonbrigðum og áttu
að fá á sig 1-2 mörk
EVRÖPUMEISTARARNIR í
tékkneska liðinu Slovan
Bratislava sýndu litla meistara-
takta þegar þeir mættu Fram f
UEFÁ-keppninni á Laugardals-
vellinum f gærkvöldi. Þeir báru
að vfsu sigur úr býtum og það
verðskuldað, en 3:0 sigurinn var
allt of stór miðað við gang leiks-
ins.
Framarar náðu oft á tfðum að
sýna skfnandi knattspyrnu á móti
meisturunum og þeir voru vissu-
lega óheppnir að skora ekki 1—2
mörk en þannig hefur þetta ein-
mitt verið hjá Fram f sumar, liðið
hefur ekki náð að nýta marktæki-
færin. Nýtingin var aftur á móti í
lagi hjá Tékkunum og eitt marka
þeirra var af allra ódýrustu gerð,
hreinlega gjöf annars bakvarðar
Fram. Laugardalsvöllurinn var
nú mun skárri en f landsleikjun-
um á dögunum og f bikarleiknum
á sunnudaginn en ástand hans er
samt langt frá þvf að vera boðlegt
í millilandakeppni. Er ekki að sjá
annað en hin rándýra viðgerð á
vellinum hafi algerlega mistek-
izt. Það þýðir ekkert að vera með
neitt hálfkák f þessum efnum,
heldur þarf að vinda bráðan bug
að þvf að gera raunhæfar endur-
bætur á vellinum.
En snúum okkur að leiknum að
nýju. Framarar sýndu það strax í
upphafi að þeir ætluðu að standa
við þau orð, sem þeir gáfu fyrir
leikinn, að spila sóknarleik. Þeir
voru alls óhræddir við að sækja
gegn vörn Tékkanna og þeim varð
oft vel ágengt. Til dæmis munaði
minnstu að Kristni Jörundssyni
tækist að skora mark strax á 6.
minútu eftir hornspyrnu Eggerts
Stengrfmssonar en skot hans fór
rétt framhjá stönginni. Gæfan var
ekki með Fram í þetta sinn og því
sfður á 9. mfnútu, þegar Tékkarn-
ir tóku forystuna. Jan Capcovic
(nr. 11) lék þá upp kantinn
vinstra megin og gaf vel fyrir
markið. Árni Stefánsson mark-
vörður ætlaði að handsama knött-
inn en hætti við. Knötturinn barst
til Trausta Haraldssonar bakvarð-
ar, sem drap hann niður og hugð-
ist sfðan gefa knöttinn til Árna í
markinu. En Trausti var of seinn,
Jan Haraslin, nr. 6, komst á milli
Trausta og Árna og átti ekki f
erfiðleikum með að skora.
Framarar gáfust ekki upp við
þetta slysamark og á næstu mfn-
útum byggðu þeir upp 2—3 ágæt-
ar sóknarlotur, sem ekki báru
árangur, og það var f hæsta máta
ósanngjarnt þegar Tékkarnir
bættu við marki á 28. mfnútu, en
markið var óneitanlega fallegt
þótt það væri eins einfalt og mörk
geta orðið i knattspyrnu. Enn var
það Capkovic sem lék upp vinstra
megin og gaf síðan boltann inn í
Texti: Sigtryggur
Sigtryggsson
Myndir:
Friðþjófur Helgason
vítateig, þar sem Haraslín kom á
fullri ferð og afgreiddi knöttinn
viðstöðulaust í markið án þess að
varnarmenn Fram fengju rönd
við reist.
Bezta tækifæri leiksins kom á 3.
mínútu seinni hálfleiks og það
féll í skaut Pétri Ormslev sóknar-
manni Fram, sem hafði komið
inná. I hálfleik. Ásgeir Elíasson
lék upp vinstra megin, gaf knött-
inn þvert fyrir markið á Sfmon
Kristjánsson bakvörð. Símon gaf
knöttinn vel fyrir markið, beint á
Pétur Ormslev, þar sem hann stóð
einn og óvaldaður á markteig og
Rúnar Gfslason, bezti maður Fram I leiknum, á þarna I höggi við hinn fræga fyrirliða tékkneska
landsliðsins, Ondrus.
markið blasti við. En viti menn,
Pétur hitti ekki knöttinn og þetta
sannkallaða dauðafæri fór þarna
forgörðum.
Tékkarnir léku ágætlega saman
úti á vellinum en voru ekki mjög
ógnandi þegar upp að marki
Fram kom. En einstaka sinnum
náðu þeir góðum leikfléttum og
ein slík gaf af sér mark á 16.
mínútu seinni hálfleiks. Haraslín
og Marian Masny (nr. 7) léku sig
laglega í gegn hægra megin,
Masny sendi boltann vel fyrir
markið, þar sem Josef Mrva (nr.
13) stóð einn og óvaldaður og
skallaði boltann laglega f markið.
Tékkarnir kunna greinilega þá
kúnst að nýta marktækifærien
það gátu Framarar ekki. Þeir
fengu tvö mjög góð tækifæri þær
minútur, sem eftir lifði leiksins.
Fyrst átti Ásgeir Elíasson þrumu-
skot i þverslá og út á 19. mínútu
s.h. og á 32. mfnútu s.h. munaði
minnstu að Pétri Ormslev tækist
að skora af markteig eftir að Rún-
ar Gislason hafði brotizt í gegn en
skot hans var laust og tékkneski
markvörðurinn varði boltann á
marklinu.
Framarar léku oft á tfðum
ágæta knattspyrnu og þeir voru
alls óhræddir við hina frægu mót-
herja. Geta þeir verið ánægðir
með frammistöðuna, en þeir mega
svo sannarlega vera óánægðir
með úrslitin. Munurinn var alltof
mikill, þótt miðað við gang leiks-
ins hafi sigur Tékkanna verið
réttlátur. Það fór aldrei á milli
mála að þeir voru sterkara liðið.
Beztu menn Fram í þessum leik
voru þeir Rúnar Gfslason, sem oft
lék varnarmenn Tékka sundur og
saman, Ásgeir Elfasson, sem sí-
fellt skapaði hættu við mark Slo-
van, og Jón Pétursson, sem var
mög sterkur f vörn Fram að
vanda. Er undirrituðum reyndar
til efs, að landsliðsbakvörðurinn
Gögh (nr. 5) hafi í annan tíma
fengið aðra eins útreið og hjá
Rúnari f fyrri hálfleik. Þá er
ástæða til að hæla þeim Símoni
Kristjánssyni og Agústi Guð-
rnundssyni fyrir mikla baráttu.
Lið Tékkanna olli vonbrigðum,
þegar haft er í huga að 7 af leik-
mönnum Slovan voru f Evrópu-
meistaraliði Tékka f vor. Til dæm-
is gerði hinn frægi Anton Ondrus
(nr. 4) fátt eftirtektarvert í leikn-
um, var alltaf að leika einhvern
yfirburðamann og þegar það tókst
ekki vegna góðrar baráttu Fram-
ara, virtist það fara mjög í skapið
á honum. Beztan leik sýndu
Masny (nr. 7), Haraslín (nr. 6),
Novotny (nr. 10) ogCapkovic (nr.
11).
Dómari var frskur, Ed Farrell,
og var hann mjög góður enda leik-
urinn auðdæmdur.