Morgunblaðið - 15.09.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
31
Jafnvel byrjendamistök hjá
íslenzka landsliðinu í tap-
leik þess við Svisslendinga
ÞAÐ VAR svartur dagur hjá fs-
lcnzka handknattleikslandsliðinu
f fþróttahúsinu á Akranesi f gaer,
er liðið tapaði fyrir Svisslending-
um með tveggja marka mun,
18—20. Er þetta jafnframt fyrsta
tap tslendinga f landsleik f hand-
knattleik fyrir Sviss, en áður
höfðu tslendingar unnið einn leik
og einn orðið jafntefli.'
Leikurinn á Akranesi í gær-
kvöldi var mjög slakur af hálfu
íslenzka liðsins, og gerði það sig
hvað eftir annað sekt um mistök
sem varla henda byrjendur, hvað
þá landsliðsmenn. Það var rétt
einstöku sinnum sem íslenzka lið-
ið náði sér sæmilega á strik,
aldrei þó eins og á kafla í seinni
hálfleik er það vann upp forskot
sem Svisslendingar voru búnir að
ná, og kræktu í þriggja marka
forystu á stöðunni 14—11. Eftir
þennan góða kafla liðsins áttu
flestir von á því að það myndi
hrista af sér slenið og sigla fram
úr, en það fór mjög á annan veg.
Eftir að staðan var 16—14 og 8
mín.til leiksloka féll fslenzka liðið
algjörlega saman og það sviss-
neska skoraði fimm mörk í röð, á
jafnmörgum mínútum. Þar með
var gert út um leikinn.
í íslenzka liðinu átti Geir Hall-
steinsson einna skástan leik, en
Björgvin Björgvinsson gerði lag-
lega hluti á línunni og skoraði
falleg mprk þannig.
Mörk tslands skoruðu: Viðar
Símonarson 6 (5 víti), Geir Hall-
steinsson 4, Björgvin Björgvins-
son 3, Bjarni Guðmundsson 2,
Ágúst Svavarsson 1, Ólafur Ein-
arsson 1 og Þorbjörn Guðmunds-
son 1.
Markhæstir i liði Svisslendinga
voru Robert Jehle með 7 mörk og
Ernst Ztlllig með 6 mörk.
—HG
Bayern burstaði Köge
Geir Hallsteinsson — skástur af
slökum fslendingum f gær.
TVÖ AF stórliðum evrópskrar
knattspyrnu, Livcrpool og Bayern
Munchen, unnu sigra f leikjum
sfnum f Evrópubikarkeppni
meistaraliða f gærkvöldi. Bayern
Míinchen lék við danska liðið
Köge BK f Kaupmannahöfn og
lauk þeim leik með sigri Þjóð-
verjanna 5—0, eftir að staðan
hafði verið 4—0 f hálfleik. Voru
það stórkarlarnir f Bayern-liðinu,
Gerd Miillerog Frans Beckenbau-
er, er léku stærstu hlutverkin í
þessum leik kattarins að músinni.
Beckenbauer var sem konungur á
vallarmiðjunni og byggði þaðan
upp óstöðvandi sóknir þýzka liðs-
ins. Mörkin skoruðu Gerd Miiller
2, Conny Torstensson 2 og Diirn-
berger 1.
Liverpool lenti hins vegar í erf-
iðleikum í leik sinum við norður-
írsku meistaranna Crusaders, en
leikur þessi fór fram í Liverpool.
Liverpool-leikmennirnir sóttu
nær án afláts allan leikinn, en
Irarnir vörðust vel og áttu öðru
hverju mjög hættulegar sóknar-
lotur. Staðan í hálfleik var 1—0
fyrir Liverpool og var það Neal
sem markið skoraði á 19. mínútu.
Á 64. mínútu bætti svo Toshack
öðru marki við, og urðu mörkin i
leiknum ekki fleiri.
Þriðji leikurinn í Evrópubikar-
keppni meistaraliða sem fram fór
í gærkvöldi var milli Sliema
Wanderes frá Möltu og Turun
Palloseura frá Finnlandi. Fór sá
leikur fram á Valetta á Möltu og
lauk með sigri heimamanna 2—1.
Öll mörkin voru skoruð í seinni
hálfleik.
Roger kemur til Ármanns
Nú er afráðið að Jimmy Rogers, blökkumaðurinn sem lék með
Ármenningum f körfuknattleik f fyrravetur, komi aftur til liðsins
og leiki með þvf f vetur. Verður Rogers eini blökkumaðurinn sem
leikur með fslenzku liði f vetur, en sem kunnugt er samþykkti
sfðasta ársþing Körfuknattleikssambands Islands nýjar reglur um
hlutgengi útlendinga með fslenzkum liðu. Verða þeir að hafa verið
búsettir hérlendis f það minnsta f sex mánuði, og telja Armenning-
ar Rogers uppfylla þau skilyrði. Ekki munu þó allir jafn sammála
um það, og er ekki ólfklegt að einhver lið muni láta reyna á það
fyrir körfuknattleiksdómstólum hvort Rogers verður löglegur leik-
maður með Armenningum eða ekki.
Auk þess að leika með Ármenningum mun Rogers þjálfa yngri
flokka félagsins, eins og hann gerði f fyrra. Þjálfari meistaraflokks
verður hins vegar Birgir örn Birgis, hinn góðkunni leikmaður
Ármannsliðsins, sem ætlar sér að leggja keppnisskóna á hilluna f
vetur.
Ármenningar ætla ekki að taka þátt f Evrópubikarkeppninni f
körfuknattleik að þessu sinni, en þess f stað ætla þeir að fara f
æfingabúðir til Englands og dvelja þar um tfma skammt utan
Lundúnaborgar. Ætlunin er að f ferðinni leiki Ármenningar gegn
f jórum sterkustu liðunum f Englandi.
Miklar hræringar eru nú f þjálfaramálum körfuknattleikslið-
anna. Sem áður greinlr mun Birgir örn Birgis þjálfa Ármann,
Ánton Bjarnason, fyrrverandi kennari við Iþróttakennaraskóla
tslands, mun þjálfa Fram, Einar Bollason mun þjálfa hjá KR,
Guttormur Ölafsson verður með nýliða UBK f 1. deild og tS mun
Einar Ólafsson fyrrverandi þjálfari tR—inga, þjálfa. Enn hefur svo
Valur ekki ráðið sér þjálfara, en Njarðvfkingar munu verða með
júgóslavneskan þjálfara, eða Hilmar Hafsteinsson, sem þjálfaði
liðið f fyrra.
Allt útlit er fyrir að Valsmönnum bætist góður liðsauki f vetur,
þar sem eru þeir Sigurður Hjörleifsson og Kristján Águstsson, sem
léku með Snæfelli f fyrra. Var sá sfðarnefndi þá stighæstur allra
fslenzkra leikmanna f 1. deildinni. Ekki mun endanlega afráðið að
þessir leimenn gangi f Val, en miklar Ifkur á þvf og ættu þeir að
styrkja Valsliðið mjög mikið. Ekki er ósennilegt að frekari félaga-
skipti leikmanna verði á næstunni.
Birgir Örn Birgis er ekki einn um að leggja skóna á hilluna f
vetur, þar sem nafni hans Jakobsson, landsliðsmaður úr lR. mun nú
hættur körfuknattleiksiðkunum að mestu, þar sem hann er fluttur
á Patreksf jörð og starfar þar sem héraðslæknir.
Leikmenn Trabzonspor — fimm þeirra hafa leikið með tyrkneska landsliðinu.
Akumesingar með gott Rð
Skagamenn æda sér
aftur í aðra umferð
HINGAÐ til hafa aðeins tvö
fslenzk lið komizt f aðra umferð
f Evrópubikarkeppninni f
knattspyrnu. Eru það lið Vals
og Akraness. Komust Vals-
menn f aðra umferð f meistara-
liðakeppninni 1967, og Ákur-
nesingar f aðra umferð f sömu
keppni f fyrra. Telja verður lík-
legt að Ákranes sé nú eina
fslenzka liðið sem á möguleika
á þvf að komast f aðra umferð f
keppninni, en til þess þarf liðið
að vinna sigur yfir tyrkneska
liðinu Trabzonspor f fyrri leik
liðanna sem fram fer á Laugar-
dalsvellinum f kvöld. Það ætti
Akurnesingum Ifka að takast,
nái þeir góðum leik.
Sem fyrr segir tókst Vals-
mönnum að komast f aðra um-
ferð Evrópubikarkeppni
meistaraliða árið 1967. Þá
mættu þeir Jeunesse d’Esch frá
Luxemburg f fyrstu umferð og
gerðu jafntefli 1—1 í Reykja-
vík, og einnig jafntefli 3—3 í
Luxemburg. Þar sem Valur
skoraði fleiri mörk á útivelli
komst liðið áfram og keppti við
ungverska liðið Vasas í annarri
umferð. Fóru þá báðir leikirnir
fram f Ungverjalandi og tapaði
Valur þeim 0—6 og 1—5.
Utkoma Akurnesinga í
Evrópubikarkeppninni í fyra
var hin ágætasta. Þeir mættu
Kýpurliðinu Omonia f fyrstu
umferð, og töpuðu 1—2 á Kýp-
ur, en unnu hins vegar stórsig-
ur á Laugardalsvellinum, 4—0,
og sýndi Akranesliðið þá ágæt-
an leik. I næstu umferð lék lA
við sovézku meistarana
Dynamo Kiev, og stóð sig með
miklum ágætum þótt báðir leik-
irnir töpuðust. Fyrri leikurinn,
sem fram fór í Sovétríkjunum,
endaði 3—0 fyrir Dynamo og
leikurinn á Melavellinum fór
2—0 fyrir Dynamo. I næstu um-
ferð tapaði sovézka liðið svo
naumlega fyrir franska liðinu
St. Etienne, en það lið lék úr-
slitaleik keppninnar' við Bay-
ern Miinchen.
- sagði formaður Trabzonspor, sem
sá Skagamenn viina KR 3-1 í sumar
TYRKNESKA liðið Trabzonspor
sem mætir Akurnesingum f
Evrópubikarkeppni meistaraliða
á Laugardalsvellinum f kvöld ætl-
ar greinilega ekki að spara neitt
til þess að vegur félagsins f þess-
ari keppni verði sem mestur. t
sumar komu hingað formaður fé-
lagsins og þjálfari þess, gagngert
til þess að sjá Skagamenn f leik,
og horfðu þeir á viðureign Akur-
nesinga og KR-inga á Laugardals-
vellinum, en þeim leik lauk með
sigri Akurnesinga 3—1.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var í fyrradag var formaður
Trabzonspor spurður um álit hans
á Akranesliðinu, og sagði hann að
eftir leiknum I sumar að dæma
hefðu Akurnesingar yfir ágætu
liði að ráða — sér hefðu virzt
leikmenn liðsins búa yfir góðri
knatttækni og vera fljótir og
ákveónir. Ekki vildi formaðurinn
tjá sig um hvort hann teldi lið sitt
öruggt um sigurinn i leiknum f
kvöld, heldur sagði að leikurinn
lyti lögmálum knattspyrnunnar.
Þrenn úrslit væru til, jafntefli,
sigur eða tap.
Liðið Trabzonspor er frá borg-
inni Trabzon f auturhluta Tyrk-
lands, og er eina liðið sem unnið
hefur tyrkneska meistaratitilinn
sem ekki hefur verið frá Istanbul.
Má segja að Trabzonsporliðið hafi
skotizt með ótrúlegum hraða upp
á stjörnuhimin knattspyrnunnar f
Tyrklandi, þar sem það varð
meistari árið eftir að það kom upp
úr 2. deild, og lék þá einnig til
úrslita i tyrknesku bikarkeppn-
inni. Þær fréttir höfðu borizt
hingað til Islands, að eftir að liðið
varð meistari hefðu stóru félögin
í Tyrklandi keypt alla beztu menn
þess, en á umræddum blaða-
mannafundi báru forráðamenn
félagsins þær fréttir til baka.
Sögðu þeir að liðið væri að mestu
skipað sömu leikmönnum og urðu
meistarar í fyrra, aðeins fjórir
menn hefðu hætt í liðinu frá þeim
tima, og það væri ekki vegna þess
að þeir hefðu verið keyptir til
annarra félaga.
I Trabzon eru um 80.000 fbúar
og völlur félagsins tekur um
12.000 áhorfendur. Sögðu forráða-
menn félagsins að hann væri jafn-
an þéttskipaður þegar félagið
féki, og sögðust búast við þvf að
svo yrði einnig þegar Akurnesing-
ar koma þangað í heimsókn. Þá
sögðu þeir, að mjög góð aðsókn
væri að leikjum félagsins þegar
það mætti „stóru“ liðunum í
Tyrklandi.
HAFA STAÐIÐ
SIG MISJAFNANLEGA
Mjög lítið er vitað um tyrk-
neska knattspyrnu hérlendis, en
ætla má að hún sé ekki óáþekk
íslenzkri knattspyrnu þegar á
heildarárangur t.d. í landsleikj-
um er litið. Þannig léku Tyrkir
t.d. sjö landsleiki á keppnistíma-
bilinu 1975. Þeir gerðu jafntefli
við Rúmeníu 1—1, töpuðu á úti-
velli fyrir Sovétmönnum 0—3, en
unnu þá 1—0 á heimavelli, gerðu
jafntefli við Sviss 1—1 á útivelli,
töpuðu fyrir trum 0—4 á útivelli
og fyrir Vestur-Þjóðverjum á úti-
velli 0—5. Á nýbyrjuðu keppnis-
tímabili hafa Tyrkir leikið einn
landsleik, gegn Finnum á útivelli,
sem þeir töpuðu 1—2, eða með
sama mun og tslendingar töpuðu
fyrir Finnum fyrr f sumar, einnig
á útivelli.
Tyrkneska liðið sem tók þátt i
Evrópubikarkeppni meistaraliða í
fyrra var Fenerbahce og var
portúgalska liðið Benfica mót-
herji þess. Tapaði tyrkneska liðið
leiknum i Portúgal 0—7, en vann
hins vegar heimaleik sinn 1—0.