Morgunblaðið - 15.09.1976, Side 32

Morgunblaðið - 15.09.1976, Side 32
Fyrsta salan í haust: Vestri fékk 113 kr. fyrir kg 1 Þýzkalandi 154 kr. fengust fyrir þorskkg í Bretlandi í gær 10 menn tengdir hass- smyglinu um Spán Skiptu hundruðum þús. ísl. kr. í Kaupmannahöfn BRESKUR togari af Islandsmið- um seldi í Grimsby I gær og fékk geysihátt verð fyrir aflann. Sam- kvæmt upplýsingum Jóns Olgeirssonar seldi togarinn 132 lestir fyrir 58.900 sterlingspund eða 19.1 millj. króna. Af aflanum voru 38 lestir karfi, ufsi og stein- bftur, sem telst engin sérstök gæðavara f Englandi, en engu að sfður var meðalverð pr. kflð kr. 145. Að sögn Jðns fengust um 30 pund fyrir kitið (63.5 kflð) af þorskinum eða 154 krðnur pr. kfló. Fyrsti fslenzki togarinn ð að selja f Bretlandi f næstu viku og er það Dagný frá Siglufriði, sem verður fyrst fslenzkra skipa til að selja þar eftir að samningar tók- ust við Breta um landhelgismálið. Netabáturinn Vestri frá Pat- reksfirði varð fyrstur íslenzkra skipa til að selja í V-Þýzkalandi á þessu hausti. Vestri seldi 79.1 lest í Cuxhaven i gærmorgun fyrir 121.700 mörk, eða 9 millj. króna. Meðalverð pr. kíló var kr. 113, sem er mjög gott verð. í skeyti frá umboðsmanni is- Úrskurðaður í 30 daga gæzlu fyrir meint tolllagabrot YFIRMAÐUR á millilandaskipi var handtekinn f Keflavfk s.l. sunnudag vegna gruns um tolla- lagabrot. A mánudagsmorguninn var hann sfðan úrskurðaður f allt að 30 daga gæzluvarðhald á með- 1 an rannsókn málsins fer fram. Rannsóknin er á frumstigi og verjast rannsóknarmenn allra frétta. Mbl. aflaði sér þeirra upp- lýsinga í gær, að mál þetta virtist við fyrstu sýn vera all umfangs- mikið og að nokkrir menn væru því tengdir. Er talið að þarna sé um að ræða smygl á ýmsum varn- ingi til landsins, þar á meðal nokkrum litsjónvarpstækjum. Bílvelta í Kópavogi MJÖG harður árekstur varð milli tveggja fólksbíla á Borgarholtsbraut í Kópa- vogi í fyrrakvöld um kl. 23. Báðar bifreiðarnar stór- skemmdust, en önnur bif- reiðin valt og stöðvaöist á toppnum. Var ökumaður þeirrar bifreiðar fluttur á Slysadeild Borgarspítal- ans, en hann reyndist ekki mikið slasaður. ! lenzkra skipa í Cuxhaven til I L.Í.Ú. í gær segir, að afli Vestra hafi að mestu verið netaufsi. Með- alvigt hvers fisks hafi verið rétt um 5 kíló, eða rétt á mörkunum við að ná 1. stærðarflokki, og því megi segja að hér hafi verið um góðan milliufsa að ræða. Ef fisk- þungi hefði farið að meðaltali yfir 5 kíló hefði fengizt enn hærra verð fyrir fiskinn. Þá segir umboðsmaðurinn i skeytinu að hann mæli ekki með að íslenzk skip selji karfa í Þýzka- landi á næstunni, þar sem mikið framboð sé af honum þessa dag- ana. Síldin: 210 tmn í hhit hvers skips Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú lokið við að úthluta sídveiði- leyfum til þeirra skipa er rétt hafa til síldveiða hér við land í haust. Alls eru skipin 52 sem rétt hafa til síldveiða með hringnót og sóttu öll um veiðileyfi, en að sögn Þórðar Ásgeirssonar, skrifstofu- stjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, sóttu útgerðir um og yfir 30 skipa um leyfi til viðbótar þrátt fyrir að takmarkanir til veiðanna og skil- málar hefðu verið auglýstir. Sagði Þórður að 210 tonn af síld kæmu í hlut hvers sídveiðiskips, en þau sem farið hefðu fram yfir kvótann I fyrra, fengju úthlutað minni afla sem þvf næmi. Alls er heimílt að veiða 10 þús. lestir af síld í hringnót í haust og mega veiðar hefjast 25. septem- ber. RANNSÓKN fíkniefna- dómstólsins á hasssmygl- inu á Spáni í júnf s.l. þegar ungt íslenzkt fólk reyndi að smygla 16 kg af hassi frá Marokkó um Spán til tslands, er nú á lokastigi og verður málið sent til saksóknara á næstunni samkvæmt upplýsingum Ásgeirs Friðjónssonar dómara. t ljós hefur komið að 10 menn eru tengdir þessu máli meira eða minna. Þá liggur einnig Ijóst fyrir að leiðangurinn, sem fór í hasskaupin, skipti :.m.k. 400 þús. fsl. kr. f Kaupmannahöfn, en alls fluttu þremenningarn- ir nokkuð að aðra miilj. kr. úr landi. íslendingurinn sem situr nú í fangelsi vegna þessa máls á Spáni og bfður dóms á yfir höfði sér 6—8 ára fangelsisdóm. tslenzkir rannsóknar- lögreglumenn fóru á sín- um tfma út til að ræða við fangann, en að sögn Ásgeirs Friðjónssonar hafa fslenzk dómsvöld ekki beðið um málsskjöl frá Spáni f þessu máli. Eins og fram hefur komið voru ungur maður og stúlka handtekin á Spáni við komuna frá Marokkó og fannst hassið í bfl þeirra, en þriðji Islendinguriiin hafði farið flugleiðis frá Marokkó og slapp hann úr landi á Spáni án þess að komast undir hendur lögregl- unnar. 1 Kaupmannahöfn tók lögreglan hins vegar á móti honum og var hann sendur til Islands og settur í gæzluvarðhald. Stúlkunni var á sama tfma leyft að fara frjáls ferða sinna frá Spáni og mun hún hafa farið til Svíþjóðar. Við rannsókn málsins hefur komið í ljós að mennirnir tveir sem handteknir voru höfðu unnið saman áður að hasssmygli og m.a. hafði sá er situr f fangelsi á Spáni sent þeim sem heim slapp nokkuð af hassi frá útlöndum s.l. vetur. Fjár til umrædds hassleiðang- Framhald ð bls. 18 TWA sendur reikningurinn MARGIR hafa ugglaust velt þvf fyrir sér, hvaða aðili borg- aði eldsneytið er bandarfsku ræningjaflugvélin og aðstoðar- vél hennar tóku á Keflavfkur- flugvelli á laugardag og þær vörur, sem sendar voru um borð f vélarnar. Vegna þessa hafði Morgunhlaðið samband við skrifstofu flugvallarstjóra á Keflavfkurflugvelli f gær og spurðist fyrir um þetta atriði. Fulltrúi flugvallarstjóra sagði, að þar sem vélarnar væru báðar f eigu TWA hefði reikningurinn verið sendur þangað, enda vissi hann ekki annað, en að flugfélögin sjálf yrðu að taka á sig svona skakkaföll. Eldsneytið, sem vélarnar tóku í Keflavík, kostaði um 1 millj. króna og auk þessa voru sendar 80 samlokur, 80 Coca cola og vindlingar um borð f Boeing 727 vélina, sem Króat- arnir höfðu á sfnu haldi. 1 eldvarnaeftirliti upp á eigin spýtur Ferðaðist um og hélt fundi í nafni Brunavarnaeftirlitsins LIÐLEGA tvltugur Eyjamaður ferðaðist um Suðurland f sumar f sumarfrfiriu sfnu og kynnti sig sem eftirlitsmann Brunavarnaeftirlits ríkisins. Ferðaðist hann á milli staða, hélt fundi með heimamönnum og kannaði brunavarnir á einstökum sveitabæjum. Naut hann gestrisni og uppihalds á kostnað sveitarfélaga og ferðað- ist um á stöku stað f fylgd iögreglu við eftirlitsstörf sfn. Þegar maðurinn var kominn austur I sveitirnar við Vfk f Mýrdal, komst allt upp og var maðurinn langt frá þvf að vera fulltrúi Brunavarnaeftirlits rfkisins heldur var hann upp á eigin spýtur I brunavarnaeftir- litsferð um landið. Lögreglan fylgdi honum aftur vestur á bóginn. Á Stokkseyri hélt pilturinn brunavarnafund með slökkvi- liðinu og framámönnum félaga á staðnum og mun hreppurinn hafa greitt honum 15—20 þús. kr. í laun auk uppihalds f skóla- húsinu. M.a. kom „eftirlitsmað- urinn" inn f verzlun á Stokks- eyri og fór að sýna þar meðferð slökkvitækis verzlunarinnar. Varð hann ásamt öðrum í verzluninni að flýja út vegna gusugangs frá tækinu en þegar út var komið hélt hann áfram aðgerðum og sprautaði með miklum tilþrifum á bíla sem áttu leið hjá. Frá Stokkseyri mun hann hafa haldið til Sigöldu og siðan til Vfkur í Mýrdal þar sem hon- um var haldið uppi f tvo sólar- hringa áður en lögreglan ók honum í „eftirlitsferð" á nokkra bæi. Var pilturinn hinn valdsmannslegasti f fasi og m.a. mun hann hafa móðgazt stór- lega þegar hann fékk ekki að sitja við gluggann farþegameg- in frammi í lögreglubílnum. Maðurinn hafði gist eina nótt á bæ austan Víkur þegar Vikur- Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.