Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
5
Eindæma veðurblíða
Bæ, Skagaströnd —
Á ÞESSUM tfma er óvenjuleg
veðurbllða I Skagaftrði. Þótt slð-
ari hluti ágústmánaðar væri vot-
viðrasamur og heyskapur tafsam-
ur þá verður sumarið að teljast
gott og hagstætt, en haustið með
afbrigðum gott. Gamall snjór I
hæstu hnúkum er horfinn, enda
hitaveður á hverjum degi. Elztu
heimildir segja, að slðan 1908
hafi ekki komið svona hagstæð tlð
sumar og haust, en þá fölgaði
fyrst I f jöll 1. nóvember.
Sláturtíð stendur yfir og eins og
vænta má gengur hún vel. Dilkar
eru ekki sagðir stórir en feitir og
flokkast vel. Kartöfluspretta er
misjöfn en sums staðar góð. Enn-
þá er unnið af fullu kappi að
jarðvinnslu, sem verður liklegast
meiri en undanfarin ár. Einnig er
unnið að gerð brúar í Austur-
vatnaós og vegavinnu. Allt þetta
gengur vel, sem byggist á góðri
tíð.
Eitthvað hefur komið af fiski
inn á Skagafjörð en netabátar eru
margir um allan fjörð. Atvinna er
nóg hjá frystihúsinu, en þar er
uppistaða hráefnis mest togara-
fiskur.
— Björn.
Myndin sýnir hin nýju umferðarljós. Ljósm. Mbl. Páll Þórðarson.
Umferðarljós sett
upp í Njarðvík
Njarðvikum 22. september.
Á MORGUN, fimmtudag, verða
tekin í notkun umferðarljós á
gatnamótum Borgarvegar og
Reykjanesbrautar, þar sem hún
liggur f gegnum Njarðvík. Þessi
umferðarljós eru hið mesta þarfa-
þing, þar sem Reykjanesbrautin
hefur alla tíð verið hin mesta
slysagildra. Ljósin eru þannig út-
búin, að gangandi vegfarendur,
sem ætla yfir Reykjanesbraut,
geta stjórnað þeim með því að ýta
á hnapp. Kemur þá grænt ljós
fyrir hinn gangandi vegfaranda
en rautt ljós blasir þá við bifreið-
um, sem aka Reykjanesbrautina.
Mikilvægt er, að ljósin verði ekki
misnotuð þannig að ökumenn
hætti að taka mark á þeim og
ljósin missi þá gildi sitt.
— Páll.
Ljósmynd Ol.K.M.
Stefan Olszowski utanrfkisráðherra PóIIands á fundinum með fréttamönnum f gær, ásamt
sendiherra Póllands.
„Mótun réttrar stefnu
1 verðlagsmálum eitt
mesta vandamálið”
- sagði Stefan Olszowski utanríkisráðherra
Póllands á fundi með fréttamönnum í gær
OPINBERRI heimsókn Stefans
Olszowskis utanrfkisráðherra
Póllands hingað til lands lauk
sfðdegis f gær, er ráðherrann
hélt ásamt eiginkonu sinni og
fylgdarliði áleiðis til New
York, þar sem hann situr alls-
herjarþing Sameinuðu þjóð-
anna. Utanrfkisráðherrann hélt
fund með fréttamönnum að
Hótel Sögu f gær skömmu fyrir
brottförina þar sem hann lýsti
mjög mikilli ánægju og hrifn-
íngu með heimsókn sfna hing-
að.
Olszowski sagðist hafa rætt
við Einar Ágústsson um ýmis
helztu mál í samskiptum þjóð-
anna svo og alþjóðamál. Sagói
hann að viðræðurnar hefðu ver-
ið mjög vinsamlegar og opin-
skáar og einkennzt af gagn-
kvæmum vilja til að efla sam-
skipti þjóðanna í framtíðinni.
Áhugi væri á að auka viðskipti
milli þjóðanna og samstarf á
sviði menningar og vísinda,
m.a. fiskveiða.
Ráðherrann var að því spurð-
ur hvort i viðræðunum hefði
komið fram ósk af hálfu Pól-
verja um veiðiheimildir til
handa pólskum togurum innan
200 mflna fiskveiðilögsögunn-
ar. Hann sagði að það mál hefði
borið á góma, en Pólverjar
hefðu alltaf og myndu virða
hagsmuni Islands. Þeir vildu
ekki valda íslendingum nein-
um vandamálum. Væri hins
vegar hægt að komast að ein-
hverju samkomulagi, sem ekki
stríddi gagn hagsmunum Is-
lendinga myndu Pólverjar taka
því meó þökkum. Sagði hann að
Pólverjar hefðu áhuga á að
vinna með tslendingum að
tækni og vísindalegum rann-
sóknum I sambandi við fisk-
veiðar, einnig hefðu þeir áhuga
á að kaupa sild, lúðu og þorsk
frá Islandi ef sllkt væri fáan-
legt.
Aðspurður um helztu mál,
sem pólska stjórnin ynni að nú
sagði hann að þar bæri hæst
gerð nýrrar 5 ára áætlunar, sem
væri mjög mikilvægur þáttur i
að ná efnahagslegu jafnvægi.
Pólverjar vildu halda miklum
hagvexti og tryggja nægilegt
vöruframboð á innanlands-
markaði og stöðugleika. Ljóst
væri að til þess að tryggja nægi-
lega matvælaframleiðslu og
stöðugt verðlag yrði að leggja I
Framhald á bls. 28
KARNABÆR
Utsölumarkaðurinn,
Lauqavegi 66, sími 28155