Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
19
Kosningaúrslitin í Svíþjoð
Segir sænska alþýðu-
sambandið nýju st]óm-
inni stríð á hendur?
Gunnar Nilsson, annar af leiðtogum sænska alþýðusambandsins,
og Olof Palme, fyrrum forsætisráðherra.
• „SAMVINNAN milli verka-
lýðshreyfingarinnar og jafnað-
armanna dregur smátt og smátt
úr völdum atvinnurekendanna
og eykur öryggið," segir I kosn-
ingahandbök sænska aiþýðu-
sambandsins, LO, I ár. Þessi
setning gengur þó út frá þeim
forsendum að jafnaðarmenn
séu i stjórnaraðstöðu. Nú, eftir
kosningarnar á sunnudag, er
hins vegar ijóst að jafnaðar-
menn verða á næstunni I
stjórnarandstöðu. Og þrátt fyr-
ir tiltölulega varfærnislegar yf-
iriýsingar leiðtoga LO enn sem
komið er búast margir við þvf
að sambandið muni nú ekki
iáta sér þetta „smátt og smátt“,
sem um getur ( tilvitnuninni
hér að ofan, nægja. Telja
sænskir fréttaskýrendur ein-
sýnt að mikil hætta verði á
auknum átökum á vinnumark-
aðinum f Svfþjóð á valdatíma
borgaraflokkanna og að LO
muni f þeim kjarasamningum
sem standa fyrir dyrum grfpa
til „strfðsaðgerða" til að koma
kröfum sfnum áleiðis.
Þar eð LO og Jafnarmanna-
flokkurinn hafa svo að segja
gengið hönd í hönd gegnum
stjórnmála- og verkalýðsmála-
sögu Svíþjóðar allt frá þvi fyrir
sfðustu aldamót hafa þessir
tveir aðilar stöðugt orðið að
taka tillit hvor til annars. Jafn-
framt því sem LO hefur fengið
kröfum sinum framgengt
þurfti sambandið á meðan jafn-
aðarmenn voru í rikisstjórn að
sýna vissa samábyrgðartilfinn-
ingu, LO varð að gæta þess að
leggja ekki kapp á kröfur sem
gætu orðið til þess að fella rík-
isstjórnina.
Slik krafa sem ef til vill varð
til þess að fella stjórn Palmes
var hin umdeilda tillaga Rudolf
Meidners, hagfræðings LO, um
launþegasjóði. Annar af leið-
togum LO, Gunnar Nilsson, seg-
ir að ljóst sé að sá ótti sem
borgaraflokkarnir hafi með
áróðri sinum skapað meðal
kjósenda i garð þessarar tillögu
hafi greinilega átt sinn þátt í
falli Palmes. Hann kvaðst sann-
arlega hafa vonazt til þess að
jafnaðarmannastjórn yrði
áfram I landinu til að vinna að
þeim lýðræðislegu umbótum I
atvinnulífinu sem byrjað var á
siðustu árin. Hann lét jafn-
framt í ljós þá skoðun að nú
myndu áhrif atvinnurekenda á
stjórnina aukast. Nú eiga því
margir von á þvi að „sam-
ábyrgðartilfinning" sænsku
verkalýðshreyfingarinnar
muni víkja fyrir róttækri, her-
skárri stefnu — bæði i garð
hinnar borgaralegu rikisstjórn-
ar og atvinnurekenda.
(byggt ft Dagens Nyheter og Göteborgs
Posten).
SÍglU’
Og
ósigur
>
«■ !
■ :
Þeir eru sainstarfsmenn Falldins
í stjórn sænskra borgaraflokka:
Per Ahlmark Gösta Bohman
• PER AHLMARK. leiStogi
ÞjóSarflokksins, er 37 ára. Hann
er með fil.kand. gráSu og var áður
í mörg ár blaðamaður við Express-
en og ritari aðalritstjóra Dagens
Nyheter. Þá var hann fylgjandi þvl
að Sviar útveguðu sér kjarnorku-
vopn og skrifaði m.a. þar um. i
kosningarbaráttunni nú var hann
oftlega spurður að þvi hvernig þvi
væri farið að hann væri nú
hatrammur andstæðingur
kjarnorkustefnu Palmestjórnar-
innar. Hann mun hafa bjargað sér
með þvi að segja að hér hafi verið
um að ræða bernskubrek á þeim
tima sem hann hafði ekki einu
sinni kosningarétt.
Ahlmark varð strax er hann var
21 árs formaður æskulýðssam-
taka Þjóðarflokksins. Þritugur
varð hann þingmaður og i fyrra
tók hann við af Gunnar Helén sem
leiðtogi flokksins. Hann er yngsti
og umdeildasti leiðtogi borgara-
flokkanna, snarpur og orðhvatur
ræðumaður, og honum tókst að
snúa við þeirri neikvæðu þróun
sem verið hafði á fylgi Þjóðar-
flokksins.
Sem þingmaður hefur Per Ahl-
mark verið einarður baráttu mað-
ur fyrir málstað Ísraels i utanrikis-
málum og er i stjórn Sænsk-
israelska félagsins. Hann er sá af
leiðtogum borgaraflokkanna
þriggja sem mest minnir á Olof
Palme. Dagens Nyheter kallaði
hann nýlega ,.Palme borgarastétt-
arinnar". Hann þykir alla vega
ekki vera eftirbátur forsætisráð-
herrans að andlegu atgervi. Þá má
geta þess að Ahlmark hefur sagt
sig úr sænsku þjóðkirkjunni Hann
var andvígur sölu milliölsins, svo
getið sé afstöðu hans i öðru hita-
máli
(byggt á Politiken og Berlingske
Tidende).
W GÖSTA Bohman, er 55 ára.
Hann er majór i varaliði sænska
stórskotaliðsins. lögfræðingur að
mennt og var i mörg ár forstöðu-
maður kauphallarinnar i Stokk-
hólmi. Hann hefur setið á þingi frá
árinu 1958 og formaður Hægfara
einingarflokksins, sem er ihalds-
flokkur Svíþjóðar, varð hann árið
1970. Áður hafði flokkurinn að
verulegu leyti verið lamaður
vegna kreppu i forystuliðinu og
tiðra formannsskipta. Nú gengur
flokknum betur og hann hefur ver-
ið i vexti undanfarin þrjú ar. Boh-
man virðist með dugnaði og skarp-
skyggni hafa getað höfðað afar
auðveldlega til sænsku borgar-
astéttarinnar.
Bohman hefur lagt sérstaka
rækt sem stjómmálamaður við
samnorræn mál. Hann bjó sem
barn i fjögur ár i Noregi, nánar
tiltekið Ósló. Hann er áhugasamur
fulltrúi i Norðurlandaráði og
Evrópuráðinu. En hið mikla áhuga-
mál Bohmans eru varnarmálin.
Hann hefur átt sæti i tveimur
varnarmálanefndum, og er þar fyr-
ir utan virkur varaliðsmaður, sem
fyrr segir. framúrskarandi skamm-
byssuskytta og skíðamaður, jafn-
framt því sem hann tekur virkan
þátt i frjálsum iþróttum. f kosn-
ingabaráttuferðum sinum hefur
Bohman haft sérstakt dálæti á að
heimsækja gömlu herbúðirnar sin-
ar. þar sem hann gegndi herþjón-
ustu og sagt soldátasögur við mik-
inn fögnuð.
Heimilislff Bohmans er sagt
pólitiskt i meira lagi. Eiginkona
hans, Gunnel, er yfirbókavörður i
sænska þinginu. Þess má geta að
Bohman greiddi atkvæði með þvi
að hið umdeilda milliöl yrði áfram
á boðstólum i Sviþjóð. (Byggt á
Politiken og Berlingske Tidende).
• SÖGULEG MVND — Olof Palme
afhendir forseta sænska þingslns, Henry
Allard. afsögn sfna sem forsætisrMherra
s.l. minudagskvöld. Þar með var loklö 44
ára valdatlma sænska JafnaAarmanna-
flokksins.
• SÖGULEGT PLAGG — Hin stuttorAa
afsögn Palmes: ,j£g óska hér meA eftir þvl
aö verAa leystur undan embættl forsætis-
rftðherra."
• STJÖRNAKMYNDUN TIL UMR/EÐU
— Helztu fyrlrllðar MIAflokksins, f.v.
Johannes Antonsson, Thorbjörn Falldin
og Karln Söder, spjalla saman um væntan-
legt stjörnarsamstarf.
„Glórulaust að
sparka Palme”
„ÞAÐ ýrði glórulaust ef Palme
viki sem leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins vegna kosn-
ingaúrslitanna," segir Tage Er-
lander, hinn gamalreyndi leið-
togi og forsætisráðherra i
blaðaviðtali. „Hann hefur stað-
ið sig meistaralega i stjórnmál-
unum,“ segir Erlander og bend-
ir m.a. á, að stjórn Palmestjórn-
arinnar á efnahagsmálunum
hafi vakið aðdáun um heim all-
an. Um orsök kosningaúrslit-
anna segir Erlander: „Það þarf
vafalaust mjög nákvæmar
rannsóknir til að skýra þau.
Augljóst er þó að kjarnorku-
málið hefur átt stóran þátt þar
í. Vegna þess tapaði Jafnaðar-
mannaflokkurinn atkvæðum til
miðflokka, sem svo að sama
skapi töpuðu atkvæðum, fyrst
og fremst til hægri aflanna." Þá
segir Erlander að borgaraflokk-
unum hafi tekizt að gera sósial-
isma þann sem jafnaðarmenn
hafa rekið tortryggilegan og
nánast hættulegan i augum
fjölda fólks — einkum ungs
Tage Erlender.
ihaldssinnaðs fólks, fremur en
gamals stuðningsfólks jafnað-
armanna.