Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 23 Portúgal komið í Evrópuráðið Strassborg, 22. sept. AP. Reuter. PORTCGAL varð 19. aðild- arrfki Evrópuráðsins I dag og Jose de Madeoros Ferr- eira utanrfkisráðherra kall- aði það sögulegan atburð. Hann sagði að stjórn sín væri eindregið á móti ein- ræði og segir að eitt helzta verkefni hennar væri að tryggja hag rúmlega einn- ar miiijónar portúgalskra verkamanna sem starfa f öðrum Evrópulöndum. Grænn og raúður fáni Portúgals var dreginn að húni milli fána Svfþjóðar og Noregs á þaki byggingar ráðsins og þjóðsöngur Evrópu var leikinn að við- stöddu ýmsu stórmenni. Utanríkisráðherrann sagði að aðild Portúgals að ráðinu væri fyrsta skrefið f þá átt að gera land- ið að þátttakanda f samfélagi Evrópulanda, sem stöðugt yrðu auðugri, frjálsari og sterkari. Ráðherrar 18 aðildarlanda ráðs- ins ákváðu f gær að bjóða Portúgal aðild þar sem lokið væri hálfrar aldar einræði í landinu og lýðræð- islegt stjórnarfar hefði skotið rót- um. Portúgalskir þingmenn munu taka sæti f ráðinu á næsta fundi þess f janúar. De Ferreira utanrík- isráðherra hefur áður sagt að Portúgal muni sækja um aðild að Efnahagsbandalaginu þegar tfm- inn til þess verði hentugur. Hann tiltók ekki hvenær. Noregur: Lög í undirbúningi um £rí vegna veikinda bama Ósló 22. sept. Ntb. NORSKA blaðið Aftenposten skýrir frá þvf ( dag, að nú sé til meðhöndlunar f neytenda- og stjórnunarráðuneytinu drög að frumvarpi um að allir launþegar fái rétt til að vera heima f allt að tfu daga á ári vegna veikinda barna þeirra sem eru undir tfu indi launþegans sé að ræða. 1 drögunum er sagt að ef til vill verði leyfið lengt í 20 daga fyrir hjón, en einstæðir foreldrar fá ekki meira en tfu daga og mun þetta ákvæði hafa valdið nokkr- um ágreiningi. Samkvæmt þess- um drögum eru konur og karlar jafnrétthá hvað snertir að taka þessa fridaga. ára aldri. Samkvæmt þeim drögum sem fyrir liggja verður leyfi af slfku tagi veitt svo fremi ekki sé hægt að leysa málið á annan veg og verður atvinnurekendum bættur skaðinn eins og um almenn veik- Verðstöðvun í þrjá mánuði í Frakklandi Samkomulag við brezka farmenn Búizt er við að frumvarpið verði siðan lagt fyrir norska þingið i vetur eftir að umsögn hefur feng- izt frá ýmsum aðilum sem þarna eiga hagsmuna að gæta. Paris, 22. september. Reuter. FRANSKA stjórnin ákvað f dag að frysta verðlag á allri vöru og þjónustu til að hamla gegn verð- bólgu. Raymond Barre forsætis- ráðherra sagði þegar hann skýrði frá þessum ráðstöfunum að franskt efnahagslff væri orðið alvarlega sjúkt. Hann skýrði frá því að nokkrar hækkanir yrðu á sköttum meðal- og hátekjufólks og verulegar hækkanir á sköttum á bensíni og áfengi, bifreiðaskatti og sköttum á ýmiss konar afþreyingu auðugs fólks eins og golfi og veiðum. Þótt verðfrystingunni ljúki 31. desem- ber leggur stjórnin til að kaup- og verðhækkanir verði takmarkaðar við 6,5% á næsta ári. Barre hefur unnið að þessum efnahagsráðstöfunum þegar Valery Giscard d’Estaing forseti skipaði hann forsætisráðherra fyrir einum mánuði og fól honum sérstaklega að berjast gegn verð- bólgu og koma efnahagsmálunum á réttan kjöl. Verðbólgan í Frakk- landi er 12 % á ári og Barre benti á að hún væri þrefalt meiri en i Vestur-Þýzkalandi og Bandarfkjunum. Áætlun Barres virðist að sumu leyti eiga að þóknast verkalýðs- hreyfingunni sem hefur kvartað yfir of mikilli skattabyrði verka- manna miðað við hátekjufólk. Að- eins þeir sem greiða 4.500 franka í skatta verða fyrir nýju álögun- um. Þorri þeirra fær 4% auka- skatt en þeir sem greiða meira en 20.000 franka fá 8% aukaskatt. Virðisaukaskattur lækkar úr 20% f 17.6% en aðstöðugjald hækkar um 4%, ýtt veröur undir fjárfestingar með 3.600 milljóna franka rfkislánum (um 132 milljarðar kr.). Bifreiðaskattar hækka um Reyndi að kveikja í NATO-vélum Stafangri 22. sept. Reuter NORSKUR liðþjálfi reyndi að kveikja f tveimur bandarfskum orrustuþotum f dag og að svo búnu reyndi hann að svipta sig lífi. Bandarfsku vélarnar taka þátt f heræfingunum „Team- work“ sem fara fram á vegum Atlantshafsbandalagsins. Liðþjálfinn kom fyrir tunnum með eldfimu efni við vélarnar og skaut siðan að þeim. Eldurinn var slökktur fljótlega án þess að miklar skemmdir yrðu. Lið- þjálfinn skaut sig i höfuðið og er líðan hans sögð alvarleg. helming, bensínverð um 15% og skattur á áfengi um 10%. Barre hefur haft samráð við verkalýðs- leiðtoga og atvinnurekendur um þessar ráðstafanir og kvaðst vona að verulega drægi úr oliunotkun, sem á mikinn þátt í gifurlegum greiðsluhalla Frakka. London 22. september. Reuter FULLTRUAR brezkra farmanna og skipaútgerða náðu samkomu- lagi f dag um uppkast að nýjum launasamningi eftir 22 klukku- stunda stanzlausar viðræður. Farmannasambandið hafi boð- að verkfall frá og með miðnætti á laugardag. Upphaflega átti verk- fallið að hefjast fyrir 10 dögum en sambandið féllst á að fresta því samkvæmt áskorun annarra verkalýðssambanda. Upphaflega kröfðust sjómenn sex punda launahækkunar, það er tveggja punda meiri Iauna- hækkunar en gert er ráð fyrir samkvæmt stefnu stjórnarinnar um baráttu gegn verðbólgu. Nú hafa farmenn fallizt á minni beinar launahækkanir en fá f staðinn hærri lífeyri, matar- og ferðapeninga ogönnur hlunnindi. Aðalritari verkalýðssambands- ins (TUC), Len Murray, fagnaði lyktum deilunnar og sagði að í lausninni fælist ekkert fráhvarf frá stefnu stjómarinnar um bar- áttu gegn verðbólgu í samvinnu við verkalýðshreyfinguna. ERLENT Svört fegurð frá RAOI(||)NETTE Glæsilegt, nýtísku tæki fyrir nútíma heimili. Þetta glæsilega stereotæki hefur vakið verð- skuldaða athygli fyrir einstaklega stílhreint útlit og vandaðan hljómflutning. Útvarpið er með langbylgju, miðbylgju 1, miðbylgju 2 og FM-bylgju. Ljósfærsla á kvarða. Magnarinn er 2x35 W músik (2x20 W sinus). Sérbyggðir styrkrofar fyrir hvora rás. Sérbyggðir hátóna og lágtóna rofar, styrkleikamælar. Við magnarann má tengja hljóðnema og nota tækið sem kallkerfi. Soundmaster 40 C Cassettu segulbandstækið er bæði fyrir upptöku og afspilun i stereo. Tækið er gert fyrir standard-bönd og einnig fyrir chrome- bönd, sem gefa miklu betri tóngæði Tækið er útbúið með sjálfvirku stoppi og sjálfvirkri opnun á kassettulok- inu, um leið og spilun er lokið. 3ja stafa teljari Verð kr: 148.355.— án hátalara. Verð kr.: 1 79.675 — með 2 stk. TK 200 hátölurum. SÉRSTÖK KYNNINGARKJÖR: 50.000 við móttöku, síðan 18.000 á mánuði. ÁRS ÁBYRGÐ. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI 10A SÍMI 1-69-95 Útsölustaðir: Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri Kjarni s.f. Vestmannaeyjum Verzl. Sig. Pálmasonar, Hvammstanga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.