Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 16

Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 FYRSTU sjónvarpskapprsður þeirraGeralds Fords, Bandaríkja- forseta, og Jimmy Carters, frambjóðanda demðkrata f forsetakosn- ingunum, sem fram fara 2. nðvember nk., fara fram f kvöld og er talið að þær geti skipt sköpum um úrslit kosninganna. Sfðustu sex vikur kosningabaráttunnar eru nú framundan og búast mð við að harka fari að færast f leikinn. Við hittum að máli Victor B. Ólason, yfirmann bandarfsku upplýsingaþjónustunnar hér á landi, og spurðum hann hvað það væri sem einkenndi þessa kosningabaráttu helzt. — Það má segja að fjögur atriði beri hæst. I fyrsta lagi þá staðreynd, að hvernig sem kosningarnar fara verður sá, sem sigrar, kjörinn forseti en ekki útnefndur, eins og verið hefur sl. 2 ár og verður þvi aðstaða forsetaembættisins sterkari. í öðru lagi eru þetta fyrstu kosningarnar, þar sem útgjöld frambjóðenda í barátt- unni eru greidd af alríkis- stjórninni, en þau lög voru sett í kjölfar Watergatemálsins. Tryggir þetta frambjóðendum jafnmikið fjármagn og eyðir þar með aðstöðumuninum, sem oft hefur verið milli frambjóð- enda. Er þessi upphæð í ár 25 milijónir dollara á hvorn fram- bjóðanda. Sem dæmi má taka, að í kosningabaráttu Nixon og McGoverns 1972 er gert ráð fyrir að milii 80—90 milljónum dollara hafi verið eytt og réð Nixon yfir bróðurpartinum af því fé. I 3ja lagi er svo hinn skjóti frami Carters á banda- rísku stjórnmálasviði, sem er einhver hin mesti, sem orðið hefur i bandarískum stjórnmál- um frá því Wendell Wilkie bauð sig fram á móti Roosevelt 1940, en Wilkie var lögfræðing- urvj)g gegndi engu pólitísku embætti og er því ekki ósvipað með hann og Carter þótt Carter hafi áður gegnt embætti ríkis- stjóra í Georgíu. Þá er það einn- Victor B. Ólason yfirmaður bandarfsku upplýsingaþjónust- unnar á Islandi. ig mjög athyglisvert í sambandi við frama Carters, að hann er fyrsti maðurinn dýpst úr Suðurrikjunum, sem kemst svo langt i framboði frá þvi fyrir borgarastrfðið í kringum 1860. Framboð og frami Carters er einnig merki um þá breytingu, sem orðið hefur í kynþáttamál- um, því að fram til þess hafa þeir menn, sem harðastir hafa verið í sambandi við kynþátta- misrétti, verið taldir koma fá þessum slóðum. Carter nýtur mjög mikils fylgis meðal blökkumanna og margir af leið- togum þeirra eru virkir stuðn- ingsmenn hans eins og Martin Luther King eldri og Andrew Young. 4. atriðið er svo sjón- varpskappræðurnar, sem nú fara fram i annað skiptið í sögu forsetakosninganna í Banda- ríkjunum, fyrstu sliku kapp- ræðurnar fóru sem kunnugt er fram 1960 milli Kennedys og Nixöns. KAPPRÆÐURNAR — Er ekki talið að þessar kappræður geti hreinlega ráðið úrslitunum, eins og oft var talið í sambandi við sigur Kennedys. — Það fer ekki á milli mála að þær geta haft gífurlega þýð- ingu. Þeim verður sjónvarpað og útvarpað um gervöll Banda- ríkin og áhrifamáttur þeirra yfirgnæfir allt annað i kosn- íngabaráttunni. Kappræð- urnar, sem fram fara f kvöld eru þær fyrstu af þremur, sem forsetaframbjóðendurnir heyja, auk þess, sem varafor- setaefnin Robert Dole og Walt- er Mondale munu einu sinni leiða saman hesta sína. Fyrir- komulagið er á þann hátt að þrír fréttamenn spyrja spurn- inga. Fær sá sem spurður er 3 mínútur til að svara, síðan 2 til að svara spurningu, sem fylgja kann í kjölfarið og loks fær andstæðingurinn 2 mínútur til að fjalla um spurninguna og svarið ef hann óskar þess. Á þátturinn að standa í 90 minút- ur og er gert ráð fyrir að hægt verði að fjalla um u.þ.' . 15 spurningar. — Nú hefur Carter lengst af haft afgerandi forystu yfir Ford að því er niðurstöður skoðanakannana sýna. Hversu mikið er að marka þessar kannanir? — Það er mjög erfitt að gera sér grein fyrir því. Þegar fyrsti undirbúningur að kosningabar- áttunni hófst á sl. ári var fylgi Fords og demókrata mjöfg svip- að. Þegar siðan leið á þetta ár og stjarna Carters hækkaði óð- um var svo komið um tíma að hann naut 39% meira fylgis en Ford. 1 byrjum þessa mánaðar er munurinn orðinn um 9%. Þetta sýnir glöggt hve afstaða kjósenda er breytileg og jafn- framt að niðurstöður skoðana- kannana eru ekki afgerandi. Dæmi um þetta er að finna í nokkrum kosningum siðustu 30 ár. Þegar t.d. Dewey bauð sig fram á móti Truman 1948 naut hann í upphafi baráttunnar 15% meira fylgis en Truman, en Truman sigraði siðan með 5% atkvæða meirihluta. 1 kosn- ingunum 1964 hafði Lyndon Johnson um tima 50% meira fylgi en Goldwater, en sigraði síðan með 20% atkvæða meiri- hluta. Nærtækara dæmi er 1968, er Nixon hafði 15% meira fylgi en Hubert Humphrey, en síðan sigraði Nixon aðeins með 1% atkvæða meirihluta. Með þetta í huga er ekki hægt að spá Carter sigri, þar sem hann hef- ur nú aðeins 9% meira fylgi en Ford. „Ekkihægtad spá Carter sigri þótt fvigi hans sémeiranú" Kosningaspjal/ vid Victor B. Ólason yfir- mann bandarísku upplýsingaþjónustunnar Ford forseti f skrifstofu sinni. Mjög fá dæmi eru um að forseti hafi tapað fyrir andstæðingi sfnum f kosningum. Reagans muni almennt kjósa Ford eða hvort þeir hreinlega sitji heima. nauðsyn þess að draga úr at- vinnuleysi, sem nú er um 8%. — Hvernig hefur repúblíkön- um tekist að lækna sárin sem urðu eftir hina hörðu baráttu Fords og Reagans um útnefn- inguna? — Um það er erfitt að segja. Þeir gerðu báðir það sem hægt var til að bera klæði á vopnin eftir að úrsli.t lágu fyrir og Rea- gan hefur haldið ræður til stuðnings Fords, en stjórnmála- fréttaritarar eru ekki á einu máli um hvort stuðningsmenn Carter á kosningaferðalagi. Frami hans f bandarfskum stjórnmál- um er einstakur. AHRIF watergate? — Kemur áhrifa Watergate- máisins til með að gæta I barátt- unni? — Carter hefur lýst þvi yfir að hann muni aldrei gera náð- un Nixons að kosningamáli, en hins vegar er of skammt um liðið frá Watergate til að hægt sé að gleyma þvi og það hlýtur á einhvern hátt að koma við sögu, og þá kannski helzt í sambandi við gagnrýni á spillingu i Wash- ington, sem óneitanlega hefur verið talsvert í fjölmiðlum und- anfarna mánuði. — Er enn hægt að tala um helztu mál kosningabaráttunn- ar, þar sem svo virðist, sem frambjóðendurnir hafi ekki s brýnt kutana enn sem komið er? — Það er rétt, en fastiega má búast við að afstaða þeirra skýr- ist verulega i kagpræðunum í kvöld. Hins vegar er t.d. ekki mikill munur á þvi sem þeir hafa sagt um utanríkismál ef ummæli þeirra eru vandlega skoðuð. Báðir eru t.d. fylgjandi NATO og nánum samskiptum við V-Evrópuþjóðir, stuðning við Israel og áframhald „detente“. Báðir segjast geta gert störf ríkisstjórnarinnar betri og árangursrikari. I efna- hagsmálum innanlands er helzti munurinn á stefnu flokk- anna sá að repúblikanar leggja meiri áherzlu á baráttuna gegn verðbólgu, en demókratar á TVlSYN crslit — Verða þessar kosningar tvísýnar? — Ég held að þær verði tvi- sýnni en menn almennt gera sér grein fyrir. Fyrir nokkrum manuðum hefði verið hægt að halda að Ford þyrfti ekki að vera að ómaka sig við að leggja út i baráttu, en nú er staðan orðin sú að allt getur gerst, nema eitthvað óvænt komi fyrir eins og t.d. að annar hvor fari með algeran sigur af hólmi I sjónvarpskappræðunum, en ég á frekar von á að úrslitin verði mjög tvísýn. — Eru þess ekki fá dæmi, að forseti hafi tapað fyrir and- stæðingi sinum I kosninguin? — Jú, þau eru fá og það síð- asta var þegar Hoover tapaði fyrir Roosevelt 1932. Forsetinn hefur sérstöðu að því leyti, að hann er forseti og fólkið þekkir hann, en í Bandarikjunum kjósa menn miklu meira um mennina sjálfa en pólitiskar hugsjónir þeirra. Þess má að lokum geta að Victor Ölason lætur nú af störf- um hér á landi um miðjan næsta mánuð en hann hefur verið skipaður aðstoðarfor- stjóri S-Amerfkudeildar banda- rísku upplýsingaþjónustunnar með aðsetur i Washington. -ihj. Frá sjónvarpskappræðum Kennedys og Nixons 1960, sem ýmsir telja að hafi tryggt sigur Kennedys. Fyrstu kappræður Carters og Fords fara fram f kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.