Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
— Hófu rannsókn
Framhald af bls. 40
Pétursson og Haukur Guðmunds-
son hefðu komið til embættisins
með vissar grunsemdir og óskað
eftir rannsókn. Hefði verið ákveð-
ið að Sveinn Björnsson yfir-
lögregluþjónn færi með þeim
félögum til að rannsaka málið, og
væri það ekki rétt sem kom fram I
Tímanum I gær, að Sveinn hefði
byrjað rannsóknina upp á eigin
spýtur. Sagði Guðmundur, að
hann hefði talið þessar grunsemd-
ir svo óljósar, að ekki hefði verið
ástæða til mikilla aðgerða, svo
sem gefa út úrskurði um húsleit.
Hins vegar hefði í þessu tilfelli
verið óskað eftir leyfi til þess að
mega litast um I húsum. Sagði
Guðmundur að ekki væri ljóst
hvort þetta mál væri af sama
fneiði og mál það sem rannsakað
er i Reykjavik og yrði það áfram í
rannsókn í Hafnarfirði, fyrst um
sinn a.m.k.
RANNSÓKN1
FLEIRI UMDÆMUM?
Mbl. reyndi i gær að ná tali af
Þórði Björnssyni ríkissaksóknara
vegna þessara mála, en hann er
erlendis. Hallvarður Einvarðsson
vararikissaksóknari sagði við
blm. Mbl., að rétt væri að spyrja
þá rannsóknardómara, sem um
málin fjölluðu í hverju umdæmi
um gang mála. Hallvarður sagðist
hafa heyrt að upp hefðu komið
grunsemdir í fleiri umdæmum til
viðbótar og bjóst hann við því að
þau mál yrðu þá tekin þar til
rannsóknar eftir því sem efni
stæðu til, og yrði þá væntanlega
um samvinnu að ræða milli um-
dæma. Mbl. spurði Hallvarð hvort
búast mætti við skipun setudóm-
ara í málinu, þar sem það næði
hugsanlega til margra lögsagnar-
umdæma, en hann kvaðst ekki
vita neitt um slikar ráðagerðir.
Hann kvaðst ekki vita um það
hvort þau tvö mál, sem nú væru í
rannsókn, væru tengd eða ekki.
Morgunblaðið spurði Hallvarð
hvers vegna sakadómi Reykjavik-
ur hefði verið falin fyrri rann-
sókn málsins, fyrst hún hefði ver-
ið byrjuð í Keflavík en rannsókn-
armennirnir i Keflavík hafa gagn-
rýnt þessa ákvörðun opinberlega
og maður þar i gæzluvarðhaldi.
Hann sagði að mánudaginn 13.
september hefði borizt lögreglu-
skýrsla frá lögreglunni i Reykja-
vík, þar sem fjallað var um grun-
semdir i þessa átt. Sagði Hallvarð-
ur að Þórður Björnsson ríkissak-
sóknari hefði strax framselt þess-
ar skýrslur til sakadóms Reykja-
vikur með kröfu um rækilega
rannsókn. Kvaðst Hallvarður ekki
hafa vitað um þessa afgreiðslu
fyrr en eftir á. Hallvarður sagði
að hann hefði þá samdægurs eða
daginn eftir fregnað að þá þegar
hefði verið hafin rannsókn í
Keflavík og jafnvel víðar á hlið-
stæðum grundvelli. Hann hefði
því talið rétt að svo miklu leyti
sem gögn kynnu að hafa komið
fram þar um þetta, að lokið yrði
samantekt gagna sem tiltæk væru
og þau send sakadómi Reykjavík-
ur, sem siðan héldi áfram rann-
sókninni i samvinnu við þá dóm-
stóla, sem efni stæðu til. Ef þetta
kæmi upp víðar, ætti hann ekki
von á öðru en dómstólar sinntu
þessu eins og tök væru á.
Loks var Hallvarður að því
spurður, hvers vegna ekki var
hægt a/ ljúka rannsókninni í
Keflavik fyrst hún var hafin þar
og maður hafði verið úrskurðaður
í gæzluvarðhald. Hallvarður sagð-
ist ekkert vilja „kommentera“ á
það, hann hefði beint málinu í
þann rannsóknarfarveg, sem
Þórður Björnsson var búinn að
ákveða.
TOLLURINN
KANNAÐI
________ORÐRÓM__________
Morgunblaðið ræddi í gær við
Björn Hermannsson tollstjóra.
Hann sagði að tollgæzlan hefði
verið að rannsaka orðróm frá I
vetur um smygl á litsjónvarps-
tækjum, og hefði það sem fram
kom verið sent áfram til saka-
dóms Reykjavíkur. Að öðru leyti
visaði Björn á rikissaksóknara,
sem hann kvað stjórna rannsókn
málsins.
Mbl. reyndi i gær að ná tali af
Þórði Oddssyni fulltrúa sakadóms
Reykjavíkur og Jóni Eysteinssyni
bæjarfógeta I Keflavík en án ár-
angurs.
— Hvolfþakshús
Framhald af bls. 40
Hvolfhúsið á Hellum er 48
fermetrar og 7,60 m i þvermál
en hæð fjórir metrar. Upp i 2ja
metra hæð er húsið úr timbri,
klæddu vatnsheldu masoniti og
tjörupappi að utan, en á tveggja
metra háan kúpul er strengt
glært gróðurhúsaplast sem
lætur 80% af ljósi I gegn. Hefur
Einar Þorsteinn gert tilraunir
með slik hús I nær þrjú ár,
siðast við rannsóknastofn-
anirnar i Keldnaholti og kveðst
hann óhræddur um að þau þoli
hérlend veður en þessi
byggingarmáti er i flokki með
svokölluðum léttbyggingum.
Þá sagði Einar okkur að búið
væri að biðja um 3 slík hús i
viðbót út í sveitir og er verið að
hanna þau, en hann kvað þau
henta vel i ísl. landbúnaði. Eitt
er fyrir gæsabú á Tjörn I Svarf-
aðardal og annað fyrir garð-
rækt austur í Laugadal. Er það
700 ferm. hús, og yrðu þá
samantengdar sex 120 ferm.
einingar. Kvaðst hann vera að
gera kostnaðaráætlun og
samkv. henni væri kostnaður
5000 kr. á fermetra, sem er
helmingi ódýrara en i hefð-
bundnum gróðurhúsum.
— Mælt
Framhald af bls. 40
aflanum voru 76% stórþorskur en
14% var millifiskur. Ekki var
búið að mæla fiskinn i Ross
Altair, en Gunnar sagði að þar
hefði allt verið í lagi. Að sögn
Gunnars hafa togararnir verið að
fá stóran og góðan þorsk undan-
farna daga.
— Menntamála-
ráðherra
Framhald af bls. 2
menntun umsækjenda og starfs-
reynslu þeirra við skólastjórn er
fram koma I umsóknunum, tel ég
með tilliti til gildis beggja þessara
þátta að rétt sé að umsækjendur
komi til álita við ráðningu i
starfið I þessari röð:
1. Rögnvaldur Sæmundsson,
skólastjóri
2. Dr. Bragi Jósefsson
3. Frimann Ingi Helgason,
tæknifræðingur."
Hinn 17. 9. 1976 var Rögnvaldur
Sæmundsson settur aðstoðar-
skólastjóri um eins árs skeið. Sú
ákvörðun er byggð á sömu for-
sendum og fram koma í fyrr
nefndu bréfi skólameistara og
umsögn fræðslustjóra. Auk þess
tel ég miklu varða fyrir Fjöl-
brautaskólann, sem er I mótun að
þar ríki samstarfsvilji, góðvild og
gagnkvæmt traust.
Vilhjálmur Hjðlmarsson"
— EBE
Framhald af bls. 1.
lagsins sem þeir vilja semja um
siðar.
Samkvæmt heimildum í
Briissel stendur nefndin enn við
þá tillögu sína síðan I febrúar að
einkalögsagan verði 12 milur, en i
tillögunum sem nú verða kunn-
gerðar um breytingar á fiskimála-
stefnunni er sagt að meiri áherzla
verði lögð á aflakvóta en einka-
lögsögu. írar styðja Breta en flest
aðildarlöndin eru þeim andsnúin.
Nokkur þeirra hafa stundað hefð-
bundnar veiðar á miðum sem
Bretar vilja útiloka fiskimenn
þeirra frá.
Þó er búizt við að nefndin muni
koma nokkuð til móts við Breta og
Ira með þvi að leggja til að brezk-
ir og irskir sjómenn fái hærri
aflakvóta en aðrir á vissum mið-
um undan ströndum þeirra. Um
60% þess afla sem EBE-löndin
veiða fást á miðum innan 200
milna við Bretland.
r
— Ovissa
Framhald af bls. 2
starfsmannafélagsins, og örn
Sveinsson, fulltrúa sjónvarps-
starfsmanna í samninganefnd
BSRB. Að morgunfundinum
loknum með ráðherra var hald-
inn starfsmannafundur klukk-
an 11, sem sfðar var fram hald-
ið klukkan 13 og klukkan 14
hittust deiluaðilar aftur í
menntamálaráðuneytinu og var
þeim fundi siðan frestað og aft-
ur setzt niður klukkan 16,30. Sá
fundur stóð til klukkan rétt 18.
Þá hófst aftur starfsmanna-
fundur, sem stóð til klukkan
19,30. Hafði þá borizt bréf fra
menntamálaráðherra, sem
fundurinn svaraði.
„Starfsfólk sjónvarps,
Reykjavík.
Ég hefi i dag ítrekað rætt við
fulltrúa yðar og kynnt mér við-
horf þeirra. Þér hafið og kynnt
málstað yðar fyrir alþjóð með
öðrum hætti.
Ég vil hér með árétta ein-
dregin tilmæli min, að störf
hefjist við sjónvarp nú þegar.
Mun ég síðan halda áfram við-
ræðum við fulltrúa yðar. Ég
árétta, að ég er reiðubúinn að
beita mér fyrir skipun nefndar
eða vinnuhóps, er fjalli um
stöðu stofnunarinnar og starfs-
fólks hennar innan rikiskerfis-
ins.“
Svarbréf starfsfólksins er
svohljóðandi:
„Hr. menntamálaráðherra,
Vilhjálmur Hjálmarsson.
Starfsfólk sjónvarpsins þakk-
ar menntamálaráðherra það
frumkvæði, sem hann hefur
haft um viðræður i yfirstand-
andi deilu. Efni bréfs yðar frá í
dag og þau tilmæli yðar að störf
hefjist við sjónvarp nú þegar
hafa verið kynnt á fjölmennum
starfsmannafundi. Starfsfólkið
ítrekar það, sem yður er þegar
kunnugt, að það telur nauðsyn-
legt að ákveðnum tilteknum
skilyrðum sé fullnægt f sam-
bandi við skipun væntanlegrar
nefndar eða starfshóps áður en
breyting geti orðið á núverandi
ástandi. Starfsmenn lýsa sig
reiðubúna til framhaldsvið-
ræðna um þessi mál hvenær
sem henta þykir."
Undir bréfið rituðu þeir þrir,
sem ræddu við menntamálaráð-
herra í gær fyrir hönd starfs-
mannafélagsins.
Starfsfólki sjónvarpsins hef-
ur borizt fjöldi stuðningsyfir-
lýsinga frá starfshópum og fé-
lagasamtökum. I gær barst svo
félaginu yfirlýsing frá starfs-
mannafélagi sænska útvarpsins
og sjónvarpsins, sem er svo-
hljóðandi:
Starfsmannafélag sænska út-
varpsins og sjónvarpsins, sem I
eru 4 þúsund félagsmenn, lýsir
samstöðu með starfsliði fs-
lenzka sjónvarpsins og útvarps-
ins og réttmætum kröfum
þeirra til betri launa og starfs-
kjara. A síðustu þremur sam-
vinnufundum norrrænna
starfsmanna við útvarps- og
sjónvarpsstöðvar hefur athygl-
in í sfvaxandi mæli beinzt að
aðstæðum i sjónvarpi og út-
varpi á Islandi. Það hefur si og
æ komið greinilega í ljós, að
sjónvarps- og útvarpsstarfs-
menn á íslandi skipa allt of
lágan sess i launastiganum sam-
anboriö við starfsmenn annarra
norrænna stöðva. Starfskjörin
eru einnig lakari á Islandi sam-
an borið við hin Norðurlöndin.
An þess að taka afstöðu til
þess, hvort þær aðgerðir, sem
gripið hefur verið til samrým-
ast íslenzkum lögum, er það
grundvallarafstaða starfs-
mannafélags sænska útvarps-
ins og sjónvarpsins, að starfs-
menn við útvarps- og sjónvarps-
stöðvar eigi lögum og samning-
um samkvæmt að hafa rétt til
að gripa til faglegra aðgerða í
kjaradeilu. Við styðjum heils
hugar réttmætar kröfur Is-
lenzkra starfsbræðra okkar til
betri iauna og starfsskilyrða.
F.h. Starfsmannafélags
sænska útvarpsins og sjón-
varpsins.
Hans Hernborn, formaður."
Engin ákvörðun var tekin í
gærkveldi um framhald við-
ræðna. Vilhjálmur Hjálmars-
son, menntamálaráðherra,
sagði að hann myndi nú taka
bréf starfsfólksins til alvarlegr-
ar íhugunar.
— Norglobal
Framhald af bls. 40
mikið hefði skort á að loðnu-
bræðslur á þeim slóðum hefðu
haft undan að bræða loðnuna,
sem flotinn veiddi á þessum
slóðum i fyrravetur.
„I síðustu viku var haldinn
fundur eigenda Norglobals og
þessara aðila og málin rætt.
Engin ákvörðun var tekin á
þessum fundi."
Morgunblaðið spurði Foss-
bakk hvort það væri ekki rétt
að Isbjörninn h.f. sem hefur
haft Norglobal á leigu sl. tvær
vertíðir hefði forleigurétt á
skipinu. Fossbakk sagði, að
rétt væri að tsbjörninn hefði
forleiguréttinn, en þó væri að-
eins samið til einnar vertiðar i
einu.
„Ég vil undirstrika að sam-
vinna okkar og Islendinga hef-
ur verið eins góð og hugsazt
getur, og á þessu stigi málsins
vil ég ekki útiloka að skipið
geti ekki komið til tslands
næsta vetur, en málið í heild
skýrist væntanlega á næstu
tveim mánuðum," sagði Foss-
bakk að lokum.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Jón Ingvarsson fram-
kvæmdastjóra hjá tsbirninum
og spurði hvort honum væri
eitthvað kunnugt um þetta
mál.
Jón sagðist aðeins geta sagt
það, að Isbjörninn væri með
forleigusamning við skipið.
Ekkert væri farið að ræða
þessi mál enn og því væri ekki
hægt að tjá sig frekar um það.
— TASS . . .
Framhald af bls. 1.
New York Times hefði sagt að
æfingarnar hefðu meðal annars
að markmiði að sýna Sovétrikjun-
um að Atlantshafsbandalagið
gæti komið Noregi til hjálpar ef
hann yrði fyrir árás Sovétmanna.
Væri þetta þvi augljós ögrun og
einvörðungu gerð til að spilla
sambúð ríkjanna, sagði I frétta-
skýringu Orlovs hjá TASS-
fréttastofunni.
~ Jakkaskipti
Framhald af bls. 2
reglan fékk málið til afgreiðslu
og um kvöldið fann hún kauða
á vínbar i borginni. Var hann
auðþekktur, þvf jakkinn var
minnst fjorum númerum of
Htill og fór hann manninum
vægast sagt illa. Játaði hann
brot sitt og var hann heldur
niðurlútur þegar hann gékk út
út húsakynnum rannsóknarlög-
reglunnar f gamla leiðurlfkis-
jakkanum.
— Ráðstefnu-
kostnaður
Framhald af bls. 2
menntamálaráðuneytið með 5,4
milljónir, utanrikisráðuneytið
með 19.0 milljónir, landbúnaðar-
ráðuneytið með 0.9 milljónir,
sjávarútvegsráðuneytið með 2,1
milljón, dómsmálaráðuneytið með
0,7 milljónir, félagsmálaráðuneyt-
ið með 0,8 milljónir, heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytið með 2,2
milljónir, fjármálaráðuneytið
með 2.0 milljónir, samgönguráðu-
neytið með 0,5 milljónir, iðnaðar-
ráðuneytið 1,8 milljónir, við-
skiptaráðuneytið 2,8 milljónir,
rikisendurskoðunin 0,9 milljónir
og fjárlaga- óg hagsýslustofnunin
með 0,3 milljónir.
Ofangreind’r kostnaðarliðir eru
kostnaður, sem færður hefur ver-
ið undir yfirstjórn ráðuneytanna.
Vantar þá allan kostnað, sem
skráður er sérstaklega á einstakar
stofnanir rikisins, en Grétar As
taldi að yfirstjórnarkostnaðurinn
væri þó fyrirferðarmeiri en sá
óbeini kostnaður, sem færður er á
reikningum rikisstofnana.
Tölur utanríkisráðuneytisins
eru langhæstar, sem eðlilegt er,
þar sem það er það ráðuneyti, sem
mest viðskipti hefur við útlönd.
Eðli ráðuneytisins er þannig. Inni
I þessum tölum er m.a. kostnaður
við Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna, sem einmitt nú er að
hefjast. Samkvæmt upplýsingum
utanrikisráðuneytisins er lausleg
áætlun um kostnað rikisins við
þinghaldið að þessu sinni rúm-
lega 5 milljónir króna. Greiðir
rikið fulltrúum, sem fara héðan
að heiman, dagpeninga, 59 dollara
á dag eða 10.974 krónur miðað við
gengið 186 krónur hver dollar. Af
þeirri fjárhæð greiða fulltrúarnir
allan sinn kostnað í New York,
húsnæði, mat og annað.
A Allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna sitja jafnan tveir full-
tráar þingflokka stjórnmálaflokk-
anna fimm. Annar fulltrúinn er
fyrrihluta þingsins en hinn síðari
hlutann. Eru það samtals 10
manns. Þá fer utanríkisráðherra
utan á þingið og fjórir embættis-
menn, sem skiptast á að vera á
þinginu. Allir fá þessir menn 59
dollara á dag og fargjöld hvers
um sig til New York kostar um 65
þúsund krónur fyrir manninn.
Þegar þetta er lagt saman og haft
er í huga að þinghaldið stendur I
þrjá mánuði kemur út tala, sem er
rúmlega 5 milljónir króna.
— Carter
Framhaid af bls. 1.
I bandariska blaðinu Playboy.
Ýmsir hafa spáð því að þetta
viðtal geti haft hinar varhuga-
verðustu afleiðingar fyrir Cart-
er.
James Reston sagði í grein i
New York Times i dag að það
eitt að rökræða ótrúnað í hjóna-
bandi við slika sérfræðinga sem
þeir væru Playboymenn, bæri
vott um dómgreindarskort.
William Raspberry I Washing-
ton Post bar fram þá spurningu
i sinni grein, hvernig konur
ættu hér eftir að túlka hið
fræga Carterbros.
I viðtalinu sagði Carter, að
hann fordæmdi ekki karlmenn
sem misstigju sig i hjónaband-
inu, enda þótt hann hefði ekki
gert það nema í anda. Hann
sagðist margsinnis hafa litið
konur girndarauga og haldið
framhjá i hjarta sínu og bætti
síðan við: „Kristur hefur aldrei
sagt að sá sem er trúr eigin-
konu sinni sé betri en aðrir
þeir, sem samrekkja heilum
hóp kvenna.“
I viðtalinu sem er upp á átta
og hálfa blaðsiðu er Carter op-
inskár I meira lagi og jafnvel
óheflaður í tali, að sögn frétta-
skýrenda. Ýmsir haf a lýst undr-
un sinni yfir því að Carter
skyldi hafa lagt sig niður við að
láta rit, sem einkum er frægt
fyrir myndir af berstríðpuðum
þokkadisum, hafa við sig slíkt
viðtal. Sumir segja að hann hafi
álitið þessa hreinskilni vænlega
til framdráttar sér m.a. eftir að
Jerry Brown ríkisstjóri i Kali-
forníu leyfði birtingu viðtals
við sig fyrr á árinu, þar sem
hann fullvissaði lesendur Play-
boys og aðra um, að hvatir hans
til kvenna væru I alla staði eðli-
legar enda þótt hann hefði
aldrei kvænzt og „væri ekki á
föstu“.
Enda þótt þvi sé spáð að ekki
verði vikið að Playboy-viðtalinu
i sjónvarpsþáttunum þykir þó
ekki loku fyrir það skotið. Þess
sé að gæta að f kosningabarátt-
unni hafi ekkert eitt mál fang-
að hug kjósenda og þvi kunni
það að skipta sköpum hversu
afdráttarlaus Carter er í yfir-
lýsingum sinum um hug sinn til
kvenna, ekki hvað sfzt þegar
haft sé I huga hversu oft hann
hafi farið f kringum ýmis inn-
anrikis- og utanrikismál eins og
grautur í kringum heitan kött.