Morgunblaðið - 23.09.1976, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.09.1976, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 Systir okkar ÞÓRUNN A.P. ÞORSTEINSDÓTTIR Grettisgötu 1 3. sem andaðist 16 þ.m verður jarðsungin frá Fríkirkjunni föstudaginn 24 septemberkl 15 Hulda Þorsteinsdóttir, Páll Þorsteinsson, Pétur Þorsteinsson. Útför * SIGURGEIRS RUNÓLFSSONAR, Skáldabúðum, sem fórst af slysförum 10 þ m fer fram frá Stóra Núpskirkju mánudaginn 27 september kl 2 00 Jarðsett verður i heimagrafreit Blóm afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélagið Vandamenn + Minningarathöfn um móður okkar, NÖNNU JÓNSDÓTTUR, verður föstudaginn 24 sept í Fossvogskirkju, kl. 10.30 Jarðað verður að Ljósavatni, sunnudaginn 26 sept kl 2 Vigdís Þormóðsdóttir, Kristbjörg Þormóðsdóttir, Kolbrún Þormóðsdóttir. + Eigmkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓNASDÓTTIR. Kársnesbraut 18, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 24 sept kl 1.30 Jón Júliusson, Stefán Jónsson, Bára Leifsdóttir, barnabörn og systkini hinnar látnu. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi HRÓLFUR BENEDIKTSSON. prentsmiðjustjóri. Barónsstig 1 9, sem andaðist 16 sept s.l., verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 24 sept. kl 1 3 30 Ásta Guðmundsdóttir, Erna Hrólfsdóttir, Jón Örn Amundason, Birna Hrólfsdóttir, Einar Sveinsson, Ásta Hrólfsdóttir, Agnar Svanbjörnsson Hrefna Hrólfsdóttir. og barnabörn. + Alúðarþakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og virðingu við andiát og útför, GUÐRUNAR SVEINSDÓTTUR, MinnaNúpi, Guðbjörg Ámundadóttir, Margrét Amundadóttir, Kristján Guðmundsson, Herdís, Amundi, Guðrún, Ingólfur. Guðbjörg og Viðar. + Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins, og föður KRISTJÁNS Ó. JÓHANNSSONAR, matsveins, Ljósheimum 4, Rósa Pálsdóttir, Tómas Kristjánsson. LOKAÐ vegna jarðarfarar Hrólfs Benediktssonar prentsmiðjustjóra. Offsetprent h.f. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 Inga Markúsdóttir — Minningarorð Fædd 23. aprfl 1918. Dáin 8. áKÚst 1976. „Engill Drottins laut þér og leisti þig úr böndum og leiddi þína sál inn f Drottins helgidóm“ Davíð Stefánsson. Þessi fögru orð komu mér í hug, er ég frétti að vinur okkar og kórfélagi í áratugi, frú Inga Markúsdóttir, væri látin. Fullu nafni hét hún Ingileif Guðbjörg Markúsdóttir, en hún var aðeins kölluð Inga Markúsdóttir af öllum er hana þekktu. Andláts- fregnin kom ekki á óvart þótt allir hefðu vonað að hún mætti sigrast á hættulegum sjúkdómi, einnig nú I þetta sinn. En Inga var við- búin kallinu, því svo sannarlega hafði hún mikinn hluta æfi sinnar staðið andspænis veikindum, sorg og dauða án þess að bugast. Með manni sínum hafði hún gengið í gegnum fleiri raunir en flestir aðrir, er ég þekkti til, og sýnt þá staðfestu, dugnað, kærleika og trúartraust. Glaðlyndi og bjart- sýni var henni meðfædd, og því var eins og ljós hefði slokknað eða hlýr sólargesli horfið, er hún hvarf héðan úr þessum heimi. Inga Markúsdóttir var fædd á Skáladal I Sléttuhreppi I Norður- Isafjarðarsýslu, dóttir hjónanna Markúsar Finnbjörnssonar út- vegsbónda I Skáladal, en síðar á Sæbóli I Aðalvík og konu hans Herborgar Arnadóttur frá Skála- dal. Hún var ein af 11 systkinum, f jögur þeirra dóu ung, en nú eru á lífi sex þeirra eftir andlát Ingu. öll voru þau systkinin listræn að eðlisfari, söngelsk og tónnæm, og nægir I því sambandi að benda á Ingu sjálfa, systur hennar og bræður og er bróðir hennar gott dæmi um það. Hann er prýðilega menntaður tónlistarmaður, tón- listarkennari með afbrigðum góð- ur, og hefur um langt árabil leikið I Sinfóníuhljómsveit tslands. Þröngt mun hafa verið I búi hjá foreldrum Ingu og hún þvf snemma orðið að láta vinnuna sitja I fyrirrúmi þott námsgáfur væru ágætar. Eftir fermingarald- ur var hún I vist hjá föðurbróður sfnum, Finnbirni Finnbjörnssyni málarameistara, á ísafirði. Að Tungu I Nauteyrarhreppi for hún haustið 1933, en þar bjuggu þá Höskuldur Jónsson bóndi þar og kona hans Petra Guðmundssóttir, ljósmóðir. Fyrir atbeina hennar fór Inga til Grindavlkur, og var hugmyndin að læra að spila á orgel hjá Sigvalda tónskáldi Kaldaións. Sigvaldi mun hafa verið fljótur að komast að raun um, að Inga hafði frábæra söngrödd, og þenn- an eina vetur, sem hún var við nám hjá Sigvalda, var það einkum söngurin, sem námið snerist um. Sigvaldi lét Ingu syngja lögin, sem hann samdi og taka þátt I söngleikjum. Þess stutti námsfmi hefur verið ómetanlegur fyrir Ingu og söngferil hennar sfðan. Eftir þetta lá leið Ingu í hús- mæðraskólann. I Tungu voru mannvænleg börn og þar kynntist hún manni sfnum Ásgeiri, syni hjónanna í Tungu. Ásgeir hafði verið við nám í 3 vetur í Menntaskólanum á Akur- eyri og innritast f stærðfræðideild þar, en hann varð að hætta námi þegar faðir hans lést. Inga hafði aftur á móti verið tvo vetur f Héraðsskólanum að Reykjanesi við Isafjarðardjúp. Þau Inga og Ásgeir giftu sig sumarið 1941 og mun það hafa verið þeirra mesta gæfuspor. Þessi ungu og fróð- Skilti á krossa Skilti og merki, sími 16480. Úlfaraskreyllngar blómouol Gróóurhúsió v/Sigtun simi 36770 leiksfúsu hjón bjuggu á föður- leifð Ásgeris að Tungu um hríð. Siðan voru þau á Kirkjubóli f Nauteyrarhreppi og að Lundi í Lundareykjadal í Borgarfirði, en þar var Ásgeir ráðsmaður búss- ins. Hjónin höfðu þegar hér var komið sögu eignast 2 börn. Annað barnið dó f fæðingu á Sjúkrahús- inu á Isafirði, og þegar bruninn mikli varð að Lundi að morgni 9. nóv. 1944 á meðan þau hjónin bjuggu þar, brann inni hitt litla barnið þeirra, Höskuldur Borgar að nafni, f. 3.12. 1941, en bæði hjónin brenndust við að gera til- raun til að bjarga barninu og eig- um sfnum. Þetta áfall var bæði átakanlegt og sviplegt, en þar sýndu ungu hjónin mikla hetjudáð. Sama ár fluttu þau svo til Reykjavíkur eignalaus og særð bæði á sál og lfkama. Énginn get- ur sett sig í fótspor þeirra, en áfram var haldið. Ásgeir gerðist póstmaður í Rvk. formaður Póst- mannafélags Islands. Meðeigandi minn var hann um nokkur ár að fasteigna- og lögmannsskrifstof- unni „Sala og samningar,“ en á þeim árum um og eftir 1950, var hún ein af fáum fasteignasölum hér f borg. Inga vann lengst af utan heimilis með heimilisstörf- unum svo sem f brauð- og mjólk- urbúðum og verzlunum og nú f jöl- mörg síðustu árin sem verzlunar- mær hjá skartgripaverzlun Hjart- ar Nielsen hf. ásamt kórfélaga sfnum frú Svölu Nielsen óperu- söngkonu, og var þar sem annars- staðar mikils metin sem nýtur starfskraftur. Þau hjónin Ásgeir og Inga áttu ekki fleiri börn sam- an en áður getur, en löngunin til að eiga barn sótti á þau. Þau tóku þvf og ættleiddu sveinbarn sem þau skfrðu Ásgeir og var hann fæddur 14.4 1951. En ennþá var dauðinn við dyrnar og þann 15.8 1951 dó þessi fallegi litli drengur aðeins 4 mánaða gamall. Eg minnist þess, að þá var mörgum tregt tungu að hræra. Sorgin var alger. Þriðja barn þeirra hjóna var óvænt kallað burt úr þessum heimi. Þá var gott að geta fundið samúð og samhug í hinni miklu djúpu sorg þessara mæddu hjóna. En Drottinn er alls staða nálægur og veitti þeim sinn styrk. Eftir stuttan tíma ætt- leiddu þau tvö börn, sem bæði eru á lífi. Ásgeir f. 1.9 1951 og er nú sjómaður og Höskuldur Borgar f. 29.3 1952 sem er fisktæknir. Ásgeir yngri er giftur dóttur Hall- dórs Jónmundssonar, yfirlög- regluþjóns á Isafirði. Eru þau bú- sett þar og eiga einn son og eina dóttur. Um söngferil Ingu mætti margt skrifa því hann var bæði mikill og viðburðarfkur, en hér skal aðeins stiklað á stóru. Inga mun hafa starfað meira og minna í 5 kórum og kirkjukórum. Arið 1947 var skemmtun haldin á vegum Tón- listarfélagskórsins f Breiðfirð- ingabúð. Þetta var ein af hinum vinsælu kvöldvökum kórsins og var þá einn nýliði í kórnum feng- inn til að syngja einsöng. Mér var kunnugt um hver það var, enda sá ég að einhverju leyti um þá skemmtun. Sjaldan hafði það bor- ið við að nýliðar kórsins fengust til slfks, en í þetta sinn var það auðsótt. Eftirvæntingin var mikil er Inga Markúsdóttir gekk í sal- inn með söngstjóranum dr. Victor Urbancic. En Inga var örugg og ákveðin. Með sönglögum sfnum söng hún sig inn I hjörtu okkar allra. Hin bjarta og fagra sópran- rödd hennar naut sín vel f falleg- um og tilfinningaríkum sönglög- um eins og „Lindin" eftir Eyþór Stefánsson og „Ég beið þín lengi lengi“ eftir dr. Pál tsólfsson. Nýr einsöngvari kórsins var kominn fram. I sigurför Tónlistarfélags- kórsins til Danmerkur sumarið 1948 var hún góður starfskraftur eins og jafnan sfðan, en f þeirri för á Norðurlandasöngmótinu í Kaupmannahöfn söng frænka hennar, Guðmunda Elíasdóttir óperusöngkona, einsöng. I ferða- lagi Tónlistarfélagskórsins kring um landið sumarið 1951 söng Inga einsöng oft á tfðum, og einnig á fjölmörgum hljómleikum kórsins. Við stofnun Þjóðleikhúskórsins 9. marz 1953 varð Inga ein af stofn- félögum þess kórs og eftirsóttur félagi í öllum söngleikjum kórs- ins, bæði óperum og óperettum, og ýmsum leikritum þar sem söngur var ein af uppistöðum þeirra. Inga var lfka liðtæk sem leikkona, þótt ekki hefði hún lært neitt á þvf sviði. Ég held að lffs- reynsla hennar og djúpur skiln- ingur á mannlffinu hafi átt ríkan þátt í velgengni hennar á lista- brautinni. Fýrir örfáum árum hætti hún að syngja með Þjóðleik- húskórnum, en söng sfðustu árin f kirkjukór sinnar sóknar, Lang- holtkirkjukórnum. Áður hafði hún sungið lengi f öðrum kirkju- kór Hallgrímskirkjukórnum og veitt þar eins og annarsstaðar ómetanlega aðstoð. Um 26 ára skeið höfum við Inga sungið saman í tveimur kórum, Tónlistarfélagskórnum og Þjóð- leikhúskórnum. Á þessu tfmabili, svo og hin sfðustu ár var Inga oft mikið veik, og hafði gengið undir marga uppskurði, en eigi látið bugast, og söngur hennar var jafn fagur sem forðum. Sem félagi f söngkórum var hún einstök, hár- viss, nákvæm, prúð og samvisku- söm. Það var gott að leika á móti henni í söngleikjum, þvf hún skildi sitt hlutverk til fulls og einbeitti sér við hvaðeina stórt og smátt. Að þvf leyti var hún einnig til fyrirmyndar. Hún var minnis- stæður persónuleiki, hafði hlýtt og gott viðmót, var tilfinninga- næm en þó sterk, og sterkust er mest reið á. Hún var einlægur vinur vina sinna, mátti ekki aumt sjá og með afbrigðum fórnfús og kærleiksrík. Fáa hefi ég hitt er höfðu meiri og dýpri skilning á högum og lffi samborgara sinna. Lffið hafði verið henni þungur skóli. En út úr þeim skóla kom hún fordómalaus, heilsteypt og sterk með rfka kærleikslund til allra þeirra er bágt áttu. Af þess- um ástæðum verður hún okkur öllum sem með henni störfuðu f söng eða þekktum heimili hennar ógleymanleg. Inga andaðist 8. ágúst s.l., var kvödd hér í Fossvogskirkju 18. ágúst, en jarðsett að Melgraseyri f Nauteyrarhreppi 21. ágúst s.l. hjá sonum sínum. Og með henni var settur I kisti hennar sonur hennar Ásgeir er dó 15.8. 1951. Samkvæmt ósk hennar hafði lfk hans verið grafið upp og flutt í kistu hennar. Að Melgras- eyri hvíla nú jarðneskar leifar Ingu og þriggja sona hennar. Sjálf er hún eins og þeir komin yfir móðuna miklu sem hún svo oft söng um f kirkjum sfnum, til hinna himnesku bústaða, til áframhaldandi kærleiksstarfs á landi lifenda. Þjóðleikhúskórinn þakkar henni mikil og fórnfús söngmála- störf allt frá stofnun kórsins, og sjálfur þakka ég bæði sem for- maður kórsins og persónulega áratuga vináttu og ógleymanlegt samstarf öll þessi ár, um leið og ég færi eiginmanni hennar og vini mínum Ásgeiri Höskulds- syni, börnum, barnabörnum, systkinum hennar og öðrum ást- vinum mína dýpstu samúð. Minningin um góðan vin lifir þótt maðurinn deyi. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi.. Haf þú þökk fyrir allt og allt. Þorsteinn Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.