Morgunblaðið - 06.11.1976, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. NOVEMBER 1976
12
Sveinn Benediktsson:
Markaðs-
fréttir
Sveiflukenndur markaður
á mjöli og lýsi hefur þokast hægt upp á við
Sveinn Benediktsson
Uppskera á kornræktarsvæðun-
um I Bandarikjunum og Kanada
varð að loknum september og
októbermánuði meiri en horfur
voru á um tíma.
Miklar verðsveiflur urðu á
Vörumarkaðnum í Chicago.
Leiddi það til þess, að fóðurblönd-
unarstöðvar og þeir, sem keyptu
fóður handa búpeningi sínum
fóru gætilega í innkaupum á fóð-
urvörum, en „dealers"
(spekúlantar) létu mikið til sfn
taka.
Eins og skýrslur viðskiptaráðu-
neytisins um veitt útflutnings-
leyfi sýna, þá þokaðist verðlag
bæði á loðnumjöli og öðru fisk-
mjöli hægt upp á við. Sama þróun
varð á lýsisverði.
Frá Noregi berast þær fréttir,
að 22. okt. hafi aflinn á sumar-
veiddri loðnu verið góður og sé
kominn upp í um 5,87 milljónir
hektólítra á móti 3,87 milljónum
hl. í fýrra um sama leyti. Aflinn
er fenginn aðallega í Hvitahafinu.
Ur aflanum hafa fengizt um
105.600 tonn af mjöli og 60 þús-
und tonn af lýsi.
Viðræður hafa farið fram í
Moskvu milli sjávarútvegsráð-
herra Noregs, Evind Bolle’s og A.
Iskovs, sjávarútvegsráðherra
Sovétríkjanna, um veiði í Hvfta-
hafinu og við Svalbarða. Bráða-
birgðasamkomulag mun hafa
náðst.
Engin makrilveiði hefur verið
að undanförnu. Or þeim makrfl,
sem veiðst hefur í ár, hafa fengist
um 35.000 af lýsi á móti um 47.000
tonnum á sama tíma í fyrra.
0 0 0
Á grundvelli þess samkomu-
lags, sem Gerald Ford, forseti og
Leonid Brezhnev gerðu s.l. vor
um viðskipti Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna um kaup á mat- og
fóðurvörum f Bandaríkjunum,
sem nema 6 milljónum tonna ár-
lega í næstu 5 ár, samdi innkaupa-
stofnun Rússa v/o Prodintorg í
Moskvu um kaupin og hefur af-
hending upp í þennan samning
þegar hafist.
Talið er að ennþá sé óafhent
upp í samninginn talsvert magn
af hveiti og mafs á þessu ári.
Hinn 25. okt. s.l. hélt Leonid
Brezhnev ræðu á fundi í mið-
stjórn kommúnistaflokksins. Lét
hann vel yfir uppskeruhorfum í
Sovétríkjunum og taldi að upp-
skera á hverskonar korni myndi
verða nálægt þeirri met-
uppskeru, sem fékkst árið
1973/1974 eða allt að 223 milljón-
ir tonna á móti þeim 140—160
milljónum tonna, sem uppskeran
nam 1972/73, þegar hún brást
hraparlega.
Þrátt fyrir hinar góðu upp-
skeruhorfur í ár, hefur uppskeru
á sólblómakjörnum og korni
seinkað, vegna óhagstæðrar veðr-
áttu í ýmsum héruðum, fyrst
vegna mikils úrhellis og síðar
vegna frosta, sem gengu snemma
í garð og töfðu fyrir þroska korns-
ins og ollu skemmdum, svo að
orðið hafa tafir á að koma því á
markað og fresta hefur orðið af-
hendingu á hluta þess a.m.k. f
mánuð.
Talið er að kaup til Járntjalds-
landa á sojabaunamjöli, soja-
baunafeiti, hveiti, mafs og öðrum
mat- og fóðurvörum hafi verið
aukin af þessum sökum i Suður-
Ameríku og víðar.
STOPULAR
ANSJÓVETU-
VEIÐAR VIÐ PERtJ
Aratuginn 1960/70 urðu Perú-
menn mesta fiskveiðiþjóð heims-
ins. Ansjóvetuveiðar þeirra og
framboð á fiskmjöli á mörkuðum
vfðsvegar um heim réðu verðlagi
á fiskmjölsframleiðslu annarra
þjóða að mestu leyti.
Perúmenn settu á stofn haf-
rannsóknastofnun, Impare
(Institute del Mar del Peru) árið
1960 og höfðu náið samband við
FAO, þ.e. Matvæla- og landbúnað-
arstofnun Sameinuðu þjóðanna í
Róm.
Réði FAO til Impare reynda
fiskifræðinga vfðsvegar að til leið-
beininga innlendum mönnum.
Einn þeirra var dr. Hermann heit-
inn Einarsson, sem vann þar að
leiðbeiningarstörfum f nokkur ár
með ágætum árangri og varaði við
ofveiói.
Mikil bjartsýni var ríkjandi um
veiðarnar. Náðu þær hámarki
1970. Þá veiddust um 12,3 milljón-
ir tonna af ansjóvetu. Árið 1971
veiddust rúmlega 10 milljónir
tonna, en 1972 féll afiinn niður í
um 4,5 milljónir tonna.
Allt frá þvf að þetta mikla hrun
varð f aflabrögðum við Perú hef-
ur aflinn þar reynst mjög stopull.
Herforingjastjórn er i landinu
og hefur hún leitast við að tak-
marka veiðarnar til þess að efla
fiskstofninn að nýju, en þar hefur
verið við ramman reip að draga,
þvi að sótt hefur verið mjög fast
eftir að veiða sem mest, þótt um
smáfisk, kræðu, væri að ræða.
Hinn 4. október s.l. bárust frétt-
ir frá Perú um að Impare, þ.e.
hafrannsóknastofnunin þar,
myndi þennan dag hefja tilrauna-
veiðar með um 80 skipum, sem
stunda skyldu veiðarnar um
tveggja vikna skeið.
Að þeim tfma liðnum skyldi
ákveða hvort fjölga skyldi þátt-
tökuskipunum eða fresta enn um
sinn að hefja veiðar af fullum
krafti.
Um sama leyti lét sjávarútvegs-
ráðherra Perú til sín heyra og
kvaðst mundu verða mjög ánægð-
ur, ef takast mætti að afla 1,5
milljón tonna af ansjóvetu, það
sem eftir væri þessa árs.
Hinn 8. okt. var skýrt frá þvf að
fiskur sá, sem aflast hefði, væri
mjög magur, úr honum hefði að-
eins fengist um 0,5% lýsi.
Epchap (mjöl- og lýsiseinkasal-
an í Perú) tilkynnti hinn 14.
október, að fyrstu mánuði ársins
1977 yrði veiðibann og ekkert
fiskmjöl framleitt.
Nokkru sfðar tilkynnti Epchap,
að frá morgni 18. okt. 1976 væru
leyfðar veiðar af fullum krafti
upp að 1,5 milljón tonna.
í síðasta Dreifibréfi FlF, útg. 1.
okt. s.l. var það haft eftir tfmarit-
inu Oil World, að rfkisútgerðin
Pesca-Peru myndi um -miðjan
októbermánuð hafa selt 150 fiski-
skip af 200 til einkafyrirtækja.
Ansjóvetan er veiddist eftir að
almenn veiði var leyfð frá morgni
dags 18. okt. var mjög mögur, eins
og að framan segir.
Lýsisprósentan, sem fékkst úr
fiskinum næstu daga, var aðeins
um 1%. Bendir þessi lága lýsis-
prósenta til þess, að um lítt þrosk-
aðan smáfisk sé að ræða, og til
þess, að s.l. vor hafi verið gengið
of nærri ansjóvetustofninum,
eins og gerst hafði fyrra hluta
ársins 1975.
Vegna mikilla ansjóvetuveiði
fyrri hluta þessa árs 1976, er mun
hafa numið að meðtöldum öðrum
bræðslufiski, um 2.894.000 tonn-
um og vegna þess að ráðgert var
að veiða 1,5 milljónir tonna frá
18. október til áramóta, urðu von-
brigðin mikil, þegar aflinn varð
miklu minni en vænst háfði verið,
eftir að rýmkað hafði verið um
veiðiheimildir.
Upp úr sauð, þegar jafnhliða
spurðist, að herforingjastjórnin,
sem fer með völdin í landinu
hafði ákveðið að selja mikinn
hluta veiðiskipanna og verksmiðj-
anna til einkafyrirtækja.
Þegar svo var komið kröfðust
leiðtogar sjómanna að ríkisrekstri
sjávarútvegsins yrði haldið áfram
og hann á engan hátt skertur. Var
þessi krafa studd af meirihluta
sjómanna. Þegar þessari kröfu
var ekki sinnt af stjórnvöldum,
brutust út óeirðir I hinni norð-
lægu höfn Chimbote og víðar. Var
þá sett útgöngubann að nætur-
lagi.
Þegar meginhluti fkiskiskipa-
flotans hafði legið aðgerðalaus í
höfn á aðra viku, tilkynnti hers-
höfðingjastjórnin, að hún byggist
við því að skipin myndu flestöll
fara aftur á veiðar fimmtudaginn
28. október. Tilkynnt var þá, að
4000 fiskimenn hefðu aflýst verk-
fallinu og talsmaður ríkisstjórn-
arinnar tilkynnti, að 530 fiskiskip
myndu taka þátt í veiðunum inn-
an fárra daga og hinu áætlaða
aflamagni, 1,5 milljónum tonna,
myndi verða náð.
Fréttir frá Perú eru mjög á
reiki og rekast hver á aðra, því að
aðrar fregnir herma, að ekki sé
lfklegt að aflast muni nema 600
þúsund tonn fram til áramóta og
óvíst sé, að svo mikið aflist. Virð-
ist sú skoðun vera almennari.
Eins og sakir standa, er ekkert
unnt að fullyrða um veiðar Perú-
manna fram til næstu áramóta.
Bandaríkjamenn höfðu á þessu
ári fest kaup á miklu magni af
fiskmjöli frá Perú, en afhending
þaðan brást vegna aflabrestsins.
Skortur á fiskmjöli til íblöndunar
í fóðurblöndu er aðalástæðan fyr-
ir þeirri hækkun, sem orðið hefur
á fiskmjöli f haust.
3. nóv. 1976.
Sv. Ben.
Dómkirkjan í Reykjavík 180 ára
í DAG eru liðin 180 ár frá þvi að Dómkirkjan í
Reykjavik var vigð i sinni upprunalegu mynd.
Árið 1 785 var skipað með konungsbréfi að
flytja skyldi biskupsstólinn i Skálholti til
Reykjavíkur. Litil timburkirkja, sem stóð í garð-
inum við Aðalstræti, gat ekki gegnt hlutverki
dómkirkju, og var þvi farið að hugsa fyrir nýrri
kirkju. Var hún byggð úr höggnum steini og
vígð sem dómkirkja og sóknarkirkja Reykvík-
inga 6. nóvember 1976.
Rúmlega hálfri öld síðar var kirkjan síðan stækk-
uð og gerðar á henni gagngerðar breytingar. Hæð
var bætt ofan á hana, forkirkjan byggð við vestur-
gafl og kórstúka við austurgafl. Auk þess var
skrúðshús við suðurhlið stækkað og kirkjan fékk
nýjan turn eða klukknaport. Þann svip ber Dóm-
kirkjan að mestu leyti enn í dag.
Afmælis kirkjunnar verður minnzt í hátíðar-
messu sunnudaginn 14. nóv. n.k. kl 1 1 f.h.
Gamla dómkirkjan í upphaflegri mynd.
Dómkirkjan eftir breytinguna 1848.