Morgunblaðið - 06.11.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. NÖVEMBER 1976
15
Tveir erlendir s jómenn ásaka
íslenzkan skipstjóra um líkams-
meiðingar og brot á samningum
Óskar Vigfússon, form. Sjómannasambands fslands, ásamt þeim Ben
George og John Ajayi.
Skipstjór-
inn þver-
neitar
öllum
ásökunum
ÓSKAR Vigfússon, formaður
Sjómannasambands íslands, hélt í
dag blaðamannafund ásamt
tveimur Nígeríubúum, Ben George
og John Ajayi, vegna ráðningar
þeirra síðamefndu á Islenzkt skip,
MS Sögu, eðli ráðningarinnar og
meðferð á þessum tveimur skip-
verjum.
Saga Nígeríu
mannanna
í upphafi blaðamannafundarins
gerðu Nígerfubúarnir grein fyrir
sinni hlið á málinu, en hún er þessi:
Þann 9. september s.l. var annar
þeirra, Ben George, ráðinn sem
smyrjari um borð í MS Sögu, hinn,
John Ajayi, var ráðinn sem messa-
gutti þ. 14. september. Ráðningin
fór fram í Port Harcourt i Nigeriu.
Skipstjóri Sögu og jafnframt út-
gerðarmaður er Sigurður Markús-
son. Skipstjórinn tók vegabréf
beggja mannanna í sína vörzlu, svo
og 3 annarra Nígeríubúa sem einnig
voru ráðnir. Sérstakan stimpil þarf
að sögn Nigeríumannanna fyrir þá
sem vilja fara úr landinu, en þar eð
þeir George og Ajayi hafa ekki enn
fengið vegabréfin í sinar hendur, er
þeim ekki kunnugt um hvort þessi
stimpill hafi fengizt. Samningar voru
gerðir um að Nígeriumennirnir fimm
fengju 200 dollara i laun við komu
til Rotterdam. en þangað var ferð-
inni heitið fyrst, en siðan yrði kaup i
samræmi við islenzka sjómanna-
samninga Einnig var samið um að
þeir fengju greitt farið aftur til
Nigeriu við komu til endalegs
áfangastaðar, Reykjavikur. Nigeriu-
mennirnir skrifuðu undir þessa
samninga að því þeir halda, en þeir
virðast ekki hafa lesið eða skilið
skriflega samninginn.
í Rotterdam hurfu þrír Nigeriu-
mannanna frá borði á þann hátt að
er þeim hafði verið skipað að
hreinsa til í lestinni en neitað, þar eð
þeir töldu það ekki i sinum verka-
hring og ekki var boðin aukagreiðsla
fyrir, skipaði skipstjórinn þeim að
fara frá borði, ella myndi hann
skjóta þá með byssu, sem hann
miðaði. Tveir héldu áfram ferðinni,
þ e George og Ajayi. Við komu til
Gufuness lét skipstjóri þá fá sinar
5000 kr. hvorn og fóru þeir til
Reykjavikur með það. Síðan er vika
liðin og hefur þeim ekki verið greitt
annað kaup né afhentir peningar sér
til viðurværis siðan. Þeir hafa búið
um borð i MS Sögu, sem er i Slipp,
og hefur ekkert rennandi vatn verið i
skipinu. Hafa Nigeriubúarnir orðið
að láta sér nægja fyrr nefndar kr.
5000 til matarkaupa og annarra
nauðsynja. Þeir höfðu samband við
Sjómannafélag Reykjavikur á
fimmtudagsmorgun.
Brot á sjómanna-
samningum
Óskar Vigfússon kvað Sjómanna-
sambandið hafa tekið málið upp af
hálfu Sjómannafélags Reykjavíkur.
Skipstjóri Sögu, Sigurður Markús-
son, hefði verið kvaddur til fundar
við Sjómannasambandið þegar á
fimmtudeginum. Sigurður hefði í
fyrstu þráazt við að koma á fundinn,
sagðist ekkert eiga vantalað við skip-
verjana tvo eða Sjómannasamband-
ið Á fundinum var honum gerð
grein fyrir samningum Sjómanna-
félags Reykjavíkur og þeim skyld-
um, sem hann hefði gagnvart
Nígeríubúunum tveimur. Ógreitt
kaup samkvæmt samningum sagði
Óskar Vigfússon, að sér reiknaðist til
að næmi kr. 139.203.00 til
smyrjarans og rúmar 40.000.00 til
hins. Þá bæri Sigurði Markússyni
ennfremur skylda til að sjá þeim
fyrir fari heim til Nígeríu. Eins og nú
stæði f málinu, virtust þessar
greiðslur ekki vera á leiðinni og
myndi ríkisstjórnin taka að sér að
flytja mennina aftur til síns heima en
síðan yrði höfðað mál fyrir hönd
Nígeríubúanna til að innheimta féð
Finnur Torfi Stefánsson, lögfræðing-
ur Sjómannasambandsins, myndi
hafa það mál í sínum höndum.
Óskar Vigfússon sagðist enga
ástæðu hafa til að efa orð Nígeríu-
búanna tveggja, en auk þess sem
kom fram hér að ofan, hafa þeir
brigzlað skipverjum um líkamsmeið-
ingar, einkum þó fyrsta stýrimanni,
og kvartað yfir löngum vinnutíma.
Georg, sá, sem ráðinn var sem
messagutti, mun einnig hafa gegnt
starfi aðstoðarmatsveins og unnið
frá kl. 7 á morgnana til kl. 8 á
kvöldin og ennfremur bæði laugar-
daga og sunnudaga án yfirvinnu-
kaups. Varðandi loforð um 200
dollara greiðslu við komu til Rotter-
dam, sagði Óskar, að þetta bryti
algjörlega i bága við samninga, þvi
maður sem ráðinn er um borð i skip,
sem siglir undir islenzkum fána, ætti
að fá greitt samkvæmt islenzkum
sjómannasamningum hvar sem
skipið væri statt í heiminum. Þá
ræddi Óskar einnig um vegabréf
Nígeriubúanna, en eins og áður
kom fram, þurfa þeir sérstakan
stimpil til að mega ferðast út úr
landi sínu. Ekki er Ijóst hvort um-
ræddur stimpill fékkst, þar eð vega-
bréfin eru enn í höndum Sigurðar
Markússonar skipstjóra En ef svo
væri ekki, og allar líkur bentu til
þess — væri Ijóst, að mönnunum
hefði beinlims verið smyglað út úr
Nígeriu og þvi ekki víst að þeim yrði
heimilað að koma þangað aftur.
„Enginn verið vondur
vi8 þetta fólk"
Að blaðamannafundinum loknum
hafði blm. Morgunblaðsins sam-
band við Sigurð Markússon skip-
stjóra ms. Sögu og innti hann eftir
hans hlið á málinu. Sigurður
Markússon þverneitaði öllum
ásökunum á hendur sér og Islenzku
áhafnarinnar. Sigurður kvað enga
byssu vera til I ms. Sögu og að það
væri ekki rétt að um líkamsmeiðing-
ar hefði verið að ræða. Þá sagðist
Sigurður hafa greitt þeim réttmætt
kaup og að eftirstöðvar þess væru til
reiðu hvenær sem er. Ekki sam-
þykkti Sigurður þær tölur, sem
form. Sjómannasambandsins nefndi
um kaupið, kvað þær of háar. Sig-
urður sagðist hafa ráðið mennina i
Djakar, þar hefðu þeir verið atvinnu-
lausir og ráðning þeirra hefði eigin-
lega stafað Sf góðmennsku við þá í
Rotterdam hefðu þrír verið teknir af
lögreglunni, hinir tveir hefðu fengið
leyfi til að halda áfram með ms
Sögu. Ennfremur sagði Sigurður, að
það . væri ekki rétt að sérstakan
stimpil þyrfti til utanferða fyrir
Nígeriubúa og að vegabréfin væru
til reiðu fyrir þá. ,,Ég hef verið í
skipinu niðri í Slipp bæði í dag og í
gær, en þeir hafa ekki haft rænu á
að hafa samband við mig þar,'
sagði Sigurður. Óskar Vigfússon,
form. Sjómannasambandsins.
kveðst hins vegar hafa reynt að ná
sambandi við Sigurð fyrir hönd
Nrgeriubúanna báða dagana, en án
árangurs. Að sögn Sigurðar Markús-
sonar munu báðir mennirnir fara
utan i dag, laugardag. á kostnað
útgerðarinnar. Óskar Vigfússon tjáði
Mbl hms vegar, að þeir fáeru ekki
utan að svo stöddu máli Þá sagði
Sigurður Markússon, að Nígeríu-
búarnir hefðu að vísu dvalizt í skip-
inu á meðan það var i slipp, skipið
væri upphitað og þar væri vatn, en í
Vi sólarhring hefði að visu verið
vatnslaust vegna hreingerninga
„Það hefur engin verið vondur við
þetta fólk. Hitt er svo aftur annað
mál, að ég hefði aldrei átt að ráða
þá Þetta á ekki heima hérna, það
hefur annan hugsunarhátt og þvi er
bezt að senda það heim til sin aftur,'
sagði Sigurður að lokum
Nigeriubúai nir dvelja i nótt á
gistiheimili Hjálpræðishersins í
Reykjavik Ms Saga er 2000 tonn
að stærð og hefur verið i vöru-
flutningum erlendis.
Sjómannasamband íslands tekur málið í sínar hendur
Ólympíuskákmótið 1 ísrael:
Hollendingar eru
sigurstranglegastir
Guðmundur með 75% vinningshlutfall eftir 10 umferðir
Japan I6V2. 44. Færeyjar 15V2,
45. Papua Nýja Guinea 13V2, 46.
Bandarlsku Virgineyjar 13. 47.
Brezku Virgineyjar 10 og 48. Hol-
lenzku Antilleyjar 6,5 vinningar.
Árangur Islenzku sveitarinnar
hefur orðið þessi I fyrstu 10 um-
ferðunum:
vinn. skákir %
Guðmundur Sigurjóns-
son 6.0 8 75.0
Helgi Ólafsson 4.5 8 56.2
Björn Þorsteinsson 3.5 7 50.0
Magnús Sólmundar-
son 4.0 7 57.1
Margeir Pétursson 2.5 5 50.0
Björgvin Viglunds-
son 1.5 5 30.O
Samtals 22.0 40 55.0
Vinningshlutfall GuSmundar á
1. borði er mjög athyglisvert. Hef-
ur hann staðiS sig bezt 1. borSs-
manna I mótinu ásamt Hollend-
ingnum Timman.
VIÐUREIGNINNI vi8 Norðmenn
lauk þannig, að jafntefli varð. 2:2,
þvi Björn Þorsteinsson varð að
gefa biðskák sina gegn Helmers.
Framhald á bls. 15
Hafia, 5. nóvember, einkaskeyti
til Mbl. frá Einari S. Einarssyni og
Braga Halldórssyni.
FARIÐ er að slga á seinni hluta
Ólympiuskákmótsins hér I Haifa,
en mótið-hófst 25. fyrra mánaðar
og lýkur hinn 11. nóvember.
Tefldar verða 13 umferðir eftir
Monradkerfi og er 10 umferðum
lokið. í gær var hvlldardagur en
þrjár slðustu umferðirnar verða
tefldar á laugardag, sunnudag og
þriðjudag. Keppni hefur verið
mjög tvisýn og spennandi og á
ýmsu hefur gengið. Linur hafa nú
heldur skýrzt. þvi hollenzka
sveitin hefur tekið örugga forystu
og ætti að sigra nema eitthvað
óvænt kæmi uppá. í hollenzku
sveitinni eru þeir Timman
Sosonko, Donner og Ree fremstir i
flokki en bandariska sveitin með
þá Byrne, Kavalek. Evans. Tajan,
Lobardi og Commons og enska
sveitin með þá Miles, Keene,
Hartston, Mastel, Stean og Nunn
gætu sett strik I rcikninginn.
Flestar sterkustu sveitirnar hafa
teflt innbyrðis, svo að þær mæta I
siðustu umferðunum sveitum sem
eru neðar á töflunni, og má búast
við þvi að islenzka sveitin fái að
kljást við nokkrar þær sterkustu I
siðustu umferðunum. jslenzka
sveitin mun selja sig dýrt og
forðast stóra skelli.
Staðan eftir 10 umferðir er
þessi: 1. Holland 29 vinninga, 2.
Bandarikin 26V2, 3. England 26’/2,
4. Argentina 25’/2, 5. Vestur-
Þýzkaland 25. 6. Sviss 23, 7.
ísrael 22'/2 8. Sviþjóð 22’A, 9.
Chile 22'/2, 10. ísland 22. 11.
Ástralia 22. 12. Kanada 22. 13.
Noregur 21%, 14. Wales 21. 15.
Filipseyjar 21. 16. Austurriki 21,
17. Spánn 21, 18. Kolombia 21.
1 9. íran 2OV2 20. Danmörk 20’/2.
21. Skotland 2OV2, 22. Nýja-
Sjáland 20'/2. 23. Thailand 20’/2.
24. Costa Rica 2OV2, 25.
Paraguay 2OV2. 26. Belgia 20. 27.
Finnland 20, 28. Frakkland 20,
29. Luxemborg 20. 30. ítalia
19'/2, 31. Uruguay 19Vz, 32. ir-
land 19'/2, 33. Bolivia 19’A, 34.
Honduras 19, 35. Guatemala 19,
36. Monaco I8V2, 37. Bermuda
I8V2, 38. Venesuela 18. 39.
Guemsey 18, 40. Andorra 18. 41.
Hong Kong 42.
Dóminikanska lýðveldið 1 7'/2. 43.
Hér sést hollenzka skáksveitin kljást við þá argentinsku i Ólymplumótinu Timman (t.v.) er á 1 borði. slðan kemur
Donner, svo Ree og loks Ligtering Gamla kempan Najdorf er á 1. borði hjá Argentinu en einnig má þarna s|á
Quinteros á 3 borði Þeir Timman og Najdorf voru sem kunnugt er báðir þátttakendur I Reykjavikurskákmótinu á
dögunum. Ljósm Einar Einarsson.