Morgunblaðið - 21.01.1977, Síða 1
15. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ritskoðun afnumin í Indlandi
pólitískum föngum sleppt
Nýju-Delhi — 20. janúar — Reuter.
INDVERSKA stjórnin afnam í
dag ritskoðun blaða, sem út koma
f landinu, og er þannig Ijóst, að
kosningabarátta getur farið fram
óhindrað á síðum blaðanna áður
en indverskir kjósendur ganga að
kjörborðinu í marz. Þá hefur
Indira Gandhi, forsætisráðherra.
heitið því að koma aftur á
borgaralegu frelsi á ýmsum svið-
um, en það var mjög skert fyrir
19 mánuðum.
Vitað er að pólitiskir fangar
hafa verið látnir lausir, en enn er
ekki ljóst hversu margir þeir eru.
Ríkisstjórnin hefur beint því til
yfirvalda í hinum 22 fylkjum
Indlands, að þau sleppi úr haldi
pólitískum föngum og leyfi póli-
tíska fundi fyrir kosningarnar.
Andstæðingar stjórnarinnar telja,
að á Indlandi séu pólitískir fangar
nú milli 10 og 20 þúsund talsins.
Indira Gandhi kom á ritskoðun
blaða 26. júni 1975, og gilti þetta
jafnt um blöð sem út koma i land-
inu sjálfu og skrif erlendra frétta-
manna um indversk málefni i
blöð utan Indlands. 1 september
siðastliðnum var þessu banni af-
létt, hvað störfum erlendra frétta-
manna viðkom, en strangar gætur
hafa verið hafðar á skrifum ind-
verskra blaða fram að þessu.
síldveiðibann
ákvæði, en ef svo færi ekki hefðu
Bretar heimild til að gera
ráðstafanirnar upp á eigin spýtur
samkvæmt reglum bandalagsins.
Washington. 20. janúar .Reuter.
JIMMY Garter sór f dag embættiseið sinn sem 39.
forseti Bandarfkjanna og boðaði í innsetningar-
ræðunni „nýtt upphaf" og „nýjan anda“ eftir erfið-
leika undanfarinna ára.
Eftir athöfnina á tröppum þinghússins gekk
hann til Hvfta hússins ásamt Rosalynn konu sinni
og níu ára dóttur þeirra, Amy, og hafði að engu
viðteknar venjur og öryggisráðstafanir. Öryggis-
verðir vildu að hann færi með brynvörðum bfl eins
og venja er við slfk tækifæri og þeim varð um og ó
þegar hann afþakkaði.
1 innsetningarræðunni hét Cart
er hinn nýji forseti, tilraun-
um til að hefta vigbúnaðarkapp-
hlaupið og hann hét því að standa
vörð um hugsjón heims þar sem
mannúð ríkti og fátækt væri út-
rýmt. En hann sagði að Bandarík-
in mundu viðhalda mætti sínum
því að í „heimi þar sem aðrir gætu
drottnað óátalið fengi velsæmi
ekki þrifizt og velferð allra þjóða
yrði ógnað."
Carter og konu hans var ákaft
fagnað þegar þau gengu til Hvíta
hússins, ekki sízt af þúsundum
Suðurríkjamanna sem flykktust
til höfuðborgarinnar til að fylgj-
ast með athöfninni og fögnuðu
ásamt öðrum Bandarikjamönnum
því sem segja má að séu raun-
veruleg endalok þrælastríðsins.
Eftir eiðtökuna kyssti Carter
Rosalynn konu sína og tók í hönd-
ina á Gerald Ford fráfarandi for-
seta sem hann hældi fyrir „allt
það sem hann hefði gert til að
lækna land okkar“. Við eiðtökuna
hélt Carter á fjölskyldubiblíunni
sem hann fékk að gjöf fyrir 20
árum frá 78 ára gamalli móður
Lundúnum. 21. janúar — Reuter.
BREZKA stjórnin skýrði frá því f
dag, f hverju einhliða ráðstafanir
sem hún hyggst gera til verndun-
ar fiskistofnum innan 200 mílna
fiskveiðilögsögunnar verða fólgn-
ar, komi Efnahagsbandalagið sér
ekki saman um stefnu f fiskveiði-
málum innan fjögurra til fimm
vikna.
Verndunaraðgerðir Breta verða
-f jórþættar:
0 Bann við síldveiðum í Norður-
sjó
.0 Aflatakmörkun
á spærlingsmiðum
0 Aukið eftirlit með aflamagni
£ og bann við því að net með
fleiri en einni möskvastærð
séu um borð í hverri veiðiferð.
Þetta var talið mjög f anda þeirrar „alþýðlegu
innsetningar" sem Carter hafði heitið og þar með
hófust mikil hátíðahöld, meðal annars skrúðganga
með þátttöku 15.000 manna, 54 lúðrasveita og 17
riddaraliðsflokka. Yfir höfðum mannfjöldans sveif
gríðarstór loftbelgur sem var eins og hneta í lag-
inu.
Með innsetningunni náði hámarki geysiskjótur
framaferill hnetubóndans frá Plains f Georgfu og
þar með er kominn til valda f Bandaríkjunum
fyrsti forsetinn frá hinum upphaflegu Suðurrfkj-
um landsins sfðan 1848.
sinni, Miss Lillian, sem var við-
stödd athöfnina. Alls fylgdust
100.000 manns með athöfninni,
sem fór fram i svölu veðri, og auk
þess hundruð milljóna manna í
sjónvarpi í Bandaríkjunum og
víða um heim.
Hinn nýi forseti lýsti því yfir í
innsetningarræðunni að Banda-
ríkjamenn mundu viðhalda „ró-
legum styrk" sínum sem byggðist
ekki aðeins á hernaðarmætti
heldur göfugum hugsjónum."
Hann átti greinilega við starfsemi
Framhald á bls. 19
Jimmy Carter og Rosalynn kona hans ganga saman til
Hvfta hússins eftir innsetningarathöfnina á tröppum
þinghússins.
Bretar ákveða
Jimmy Carter vinnur embættiseið sinn sem 39. forseti Bandarfkjanna. Forseti
Hæstaréttar, Warren Burger, les honum eiðstafinn.
John Silkin, landbúnaðarráð-
herra Bretlands, skýrði frá þessu
i þinginu i dag og var gerður
góður rómur að ræðu hans og
eindreginni. afstöðu í fiskveiði-
málum bæði hjá þingmönnum
Verkamanna- og Ihaldsflokksins.
Ráðherrann sagði ennfremur,
að hann vonaðist til að Efnahags-
bandalagið tæki upp ofannefnd
Kjósa
Danir í
næsta
mánuði?
Kaupmannahöfn, 20. janúar.
NTB.
VINSTRI flokkurinn, stærsti
andstöðuflokkur minnihluta-
stjórnar sósíaldemókrata í
Danmörku, hætti í dag þátt-
töku í viðræðum dönsku
stjórnmálaflokkanna um hús-
næðismál og kunnugir f Kaup-
mannahöfn telja, að efnt verði
til kosninga um miðjan
febrúar ef viðræðurnar fara út
um þúfur.
Viðræður stjórnmálaflokk-
anna eru komnar á erfitt stig
vegna ákvörðunar Vinstri
flokksins þar sem Anker
Jörgensen forsætisráðherra
hefur sagt að náist ekki sam-
komulag milli flokkanna um
varnarmál, atvinnumál, hús-
næðismál og orkumál verði að
efna til nýrra kosninga.
Hann segir að viðræðunum
verði að ljúka áður en viðræð-
ur aðila vinnumarkaðarins um
nýja launasamninga komast á
lokastig.
Flokkarnir sem hafa tekið
þátt í viðræðunum eru Ihalds-
Framhald á bls 22.
Carter boðar nýtt
upphaf,nýjan anda
við valdatöku sína