Morgunblaðið - 21.01.1977, Side 17

Morgunblaðið - 21.01.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANUAR 1977 17 svo fer ekki þegar maðurinn mis- notar jarðargæðin. Þegar svo er komið þá þolir umhverfið oft ekki álagið og viðkvæm náttúra norðurslóða með fáar tegundir en marga einstaklinga hverrar teg- undar getur beðið óbætanlegt tjón. Það segir stna sögu um þorsk stofninn við landið þegar á móti hverjum átta kynþroska þorskum á Islandsmiðum árið 1970 koma einn og hálfur slikur árið 1976. Þessi þróun var á einn veg frá ári til árs og til að átta sig á málefn- inu þarf aðeins að huga að lögun línuritsins, sem sýnir þessar niðurstöður. Hún skiptir megin- máli, en ekki einhver núll fyrir aftan tölurnar átta eða einn til tveir, þ.e. val á einingum, eða einhver skekkja í útreikningum fiskifræðinga. Ekki skal þó gefa upp alla von um þorskinn á íslandsmiðum. Við yfirvofandi hrun fiskistofna virð- ist loks hugsað i fullri alvöru um stjórnun fiskveiða. Dæmi um þetta er stjórnun sildveiðanna, sem er að visu enn mismunandi árangursrík. Sumargotssildin er á uppleið, en vorgotssildin ekki, og af norsk-íslenska sildar- stofninum, sem var þeirra lang- stærstur, fara litlar sögur. Stjórn- un á þorskveiðunum við landið er þó enn ekki hafin að fullu, þrátt fyrir yfirvofandi hrun þorsk- stofnsins, enda m.a. erfitt um vik þegar deila verður við útlendinga um aflamagn á miðunum við landið. Svæði og veðurathugunarskip á Norður-Atlantshafi, sem hinir ýmsu hofundar hafa notað við gagnasöfnun til athugana á yfirborðshita sjávar frá ári til árs (Sv-A.M. 1969). ARÐNÁM Vitahringurinn aukin sókn og tæknivæðing, sem krefst stöðugt meiri afraksturs til að standa undir kostnaði, er engin ný reynsla með mönnum eða þjóð- um. Þetta er á íslensku venjulega nefnt rányrkja, en með tæknivæð- ingu í huga sem sérstakan þátt má e.t.v. nefna það arðnám sbr. annars vegar t.d. grjótnám og hins vegar arðrán. Samkvæmt Orðabók Sigfúsar Blöndals er arðrán það, að hirða arð af annarra vinnu, sem er ekki nauðsynlega rányrkja. Rányrkja er að nota gæði jarðar eða fiski- miða án þess að bæta upp það, sem tekið er, og er þá ekki nauð- synlega arðrán. Hugtakinu arð- nám er ætlað að ganga lengra, þ.e. þegar lagt er í meiri og meiri fjárfestingu, sem þarf að skila arði, sem ekki fæst nema með sifellt aukinni uppskeru eða auknum afla og aftur kostnaði, uns kemur að rányrkju, sem skilar að lokum hruni i stað arðs. Arðnámsmenn snúa sér þá að öðr- um verkefnum eða setjast í helgan stein. I næstu grein verður m.a. fjallað um veðurfar og fiskveiðar á Norður-Atlantshafi fyrr á öldum. Myndin sýnir 5 ára keðjumeðaltöl yfirborðshita sjávar (frávik frá meðaltali 1876—1915) áranna 1876—1972 á mismunandi svæðum Norður-Atlantshafs. Svæðin eru sýnd á annarri mynd. Sérstaka athygli vekur hækkandi sjávarhiti eftir 1920 og aftur lækkandi sjávarhiti eftir 1960, ekki slst við Grænland og einnig vestan íslands (Jens Smed 1976). 14A-10U Rússar geta nú gert leifturárás WashinKlon. 19. janúar. Reuter. DONALD Rumsfeld, fráfarandi landvarnaráðherra Bandaríkj- anna, segir f árlegri skýrslu til þjóðþingsins að verið geti að Rússar ráði nú í fyrsta skipti yfir nægilega miklum herafla til þess að gera „leifturárás" á Evrópu f líkingu við þær leifturárásir sem Þjóðverjar gerðu á sínum tíma. Rumsfeld segist byggja þetta mat sitt á eflingu og breytingum á landher Rússa og beitingu nýrra árásarflugvéla. Hann segir að NATO verji sennilega nú álíka miklu fé til landvarna og Varsjárbandalagið. Herafli NATO er alls skipaður um 4.8 milljónum manna en her- afli Varsjárbandalagsins 5.6 milljónum segir hann. Ráðherrann segir að kommún- istaríkin ráði yfir 58 herfylkjum í Mið-Evrópu — 27 rússneskum, sex austur-þýzkum, 15 pólskum og 10 tékkóslóvakískum. 7 UTSALA ÍKJÖRGARÐI Aiiar tegundir fatnaðar o.fí. þ.ám. 12 matvörutegundir lækkaðar í verði Akureyri Skeifunni j5|| Kjörgarði Skíðadeild Í.R. Hið árlega þorrablót deildarinn- ar verður haldið að Seljabraut 58, 1 1 febrúar kl. 7. Stjórnin V eislumaturinn og Veislubrauðið frá okkur vekja athygli Pantið tímanlega L——lÚTGARÐUR í Glæsibæ #|gyjnia A %86220 Æ #

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.