Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANUAR 1977 Yfirlitsmynd yfir Kröflusvæðið. Til hægri er stöðvarhúsið, en hin stóra byggingin er kæliturn virkjunar- innar. IJósmymi Krióþjófur — Krafla Kinn af þremur jarðskjálftamælum I Reynihlfð og eins og sjá má var mikið um skjálfta þegar myndin var tekin f gærmorgun. (Ljósm. Sig. Harðarson.) Viðræðum í Prag hafnað Framhald af bls. 40 sem getið er hér á öðrum stað á síðunni. Tilkynning um aukna skjálfta- virkni og hættuástand kom frá skjálftavaktinni í Reynihlíð um miðnætursbil í fyrrinótt. Var þá allt viðvörunarkerfi svæðisins sett af stað. Samkvæmt upplýs- ingum Hallgríms Pálssonar, búða- stjóra á Kröflusvæðinu, byrjaði mannskapurinn þegar að safnast saman í mötuneytinu á staðnum um leið og sírenurnar boðuðu hættuástand. Skömmu síðar voru allir starfsmennirnir, 170 að tölu, lagðir af stað í bílum niður að Reynihlíð, en þar gistu flestir um nóttina. 50 manns voru hýstir á Húsavík, 117 í skólanum í Reykja- hlíð og nokkrir á hótelinu í Reyni- hlíð — að sögn Guðjóns Petersens hjá Almannavarnaráði. Hallgrím- ur Pálsson kvað flesta á svæðinu hafa verið vakandi, er viðvör- unarmerkið var gefið, þar sem í mötuneytinu var bridgekvöld og margir þar saman komnir. Hallgrímur Pálsson var við annan mann á Kröflusvæðinu í fyrrinótt ásamt jarðvísindamönn- um. Hann kvað rólegt hafa verið á svæðinu, þar sem aðeins fáir skjálftanna hefðu fundizt. Eftir hádegi I gær kom starfsfólkið að nýju á svæðíð til þess að ná í eigur sínar, en til þess var gefinn klukkustundar frestur og voru menn taldir inn á svæðíð og út af því aftur. Vonir standa til að allt verði komið í samt lag á mánudag, er ráðgert er að vinna hefjist að nýju. Áður en til umbrotanna kom nú hafði iðnaðarráðuneytið samþykkt ráðstafanir, sem Orku- Framhald af bls. 40 neytisins, að vegna þessara ráð- stafana hafi tekið mjög skamm- an tíma að rýma svæðið, þegar aðvörun barst um miðnætti frá gosvakt í Reynihlíð. Jakob Björnsson orkumála- stjóri sagði að þessi ákvörðun Orkustofnunar um áðurnefnd- ar ráðstafanir hefði verið tekin áður en óróleikinn byrjaði. Var þetta gert, „þar sem jarðfræð- ingar okkar þóttust eiga von á því að mjög fljótlega myndi eitthvað gerast, sem gæti orðið alvarlegt. Svo kom þessi brott- flutningur vegna stöðugs óróa og fólkið var flutt á brott í samræmi við áætlanir, sem fyrir lágu," sagði orkumála- stjóri. „Hvað úr þessu verður," sagði Jakob Björnsson, „vitum við 'ekki. Við vonum að þetta verði aðeins landsig eða eitt- hvað svipað og gerðist í lok september og lok október, og landið byrji síðan að rísa á ný. Að vísu er kannski of snemmt að fullyrða nokkuð um þetta, en ef þetta verður þróunin, verður vinna hafin að nýju um og eftir helgi." Orkustofnun hefur lagt til að ekki verði unnið fram á laugardag og munum við meta stöðuna fyrir þann tíma. Hins vegar hafa verkfræðingarnir á staðnum stofnun lagði til að viðhafðar yrðu á Kröflusvæðinu, að vinnutími yrði styttur og að starfsmenn gistu ekki í Kröflubúðum. 1 til- kynningu, sem gefin var út um þessar varúðarráðstafanir, var sagt að þær giltu áfram og yrðu endurskoðaðar 30. janúar. Ekki var ljóst í gær, hvort þessar breyt- ingar á svæðinu verða til þess — ef allt verður orðið kyrrt á mánudag — að þær verði numdar úr gildi. Það mun verða metié eftir ástæðum þá. Samkvæmt upplýsingum Páls Einarssonar, jarðeðlisfræðings, veitt helgarfrí, en það er m.a. vegna þess að erfiðleikum er bundið að vista allt þetta fólk utan Kröflusvæðisins og við slfkar aðstæður. Jakob Björnsson gat þess að almannavarnanefnd Mývatns- sveitar hefði í gær heimilað að fólkið færi aftur inn á svæðið og að það gæti sofið þar í nótt. Jarðfræðingar Orkustofnunar sátu síðan á fundi með Al- mannavarnaráði og þar lögðu þeir til að fólkið yrði ekki flutt inn á svæðið fyrr en í fyrsta lagi á laugardag. 1 framhaldi af þessu var ákvörðunin um helgarfríið tekin. Þá sagði Jakob, að hann hefði ekki fengið neinar nýjar upp- lýsingar um áhrif þessa óró- leika á holurnar á svæðinu. Þær hefðu þó verið á fleygiferð áður en þessi óróleiki hófst, þ.e.a.s. hola 10, og Jakob sagðist hafa frétt að eitthvað hefði aflið í henni dottið niður, þótt það hefði ekki gerzt í eins mikl- um mæli og áður. Kvað hann erfitt að gera sér grein fyrir ástandi þeirra á meðan óró- leikinn stæði yfir. Hið sama sagði hann um sýrustig vatns- ins í holunum. — Friðrik Framhald af bls. 40 Júgóslavar greiði ferða..stnaðinn, en síðast er Friðrik tefldi á móti í urðu stærstu skjálftarnir í þessari skjálftahrinu talsvert meiri en þeir urðu í hrinunni í október síðastliðnum. Guðjón Petersen kvað Almannavarnir ríkisins hafa haft í Reynihlíð miklar birgðir af teppum, dýnum og öðru dóti, sem kom sér vel í fyrrinótt, er hýsa varð starfsfólkið utan Kröflu- svæðisins. Guðjón kvað mögu- leika hafa verið að hýsa fólkið undir frumstæðum kringum- stæðum, en ef til frekari umbrota hefði komið, kvað hann hafa verið ætlunina að fólkið færi á brott. Júgóslavíu stóð í miklum brösum með að fá Júgóslava til að greiða ferðakostnað. Keppendur á mótinu verða 16 talsins og fer mótið fram á tíma- bilinu frá 2.—22. júni. Auk Frið- riks og Karpovs hefur meðal annarra þeim Htlbner, Anderson, Torrez, Portich, Ribli, Hort, Larsen, Timman, Ljubojevic, Gligoric, Parma og Planic verið boðin þátttaka. Heitir mót þetta „Witmar-minningarmótið" og verður haldið í fjórða skipti í sumar. — Bandaríkja- maðurinn Framhald af bls. 40 verið sendar myndir af honum víða. Var hann í vörzlu her- lögreglunnar á Keflavíkurflug- velli og bifreiðin, sem hann stal, mun hafa verið einkabifreið fangavarðarins. Maður þessi kom á síðastliðnu ári mjög við sögu eiturlyfjamála hér á landi. Var hann einn af aðalmönnunum í stóra fíkniefnasmyglinu, sem komst upp um síðari hluta ársins. Var maðurinn í haldi hjá íslenzkri lögreglu fyrst í stað, eða þar til Bandaríkjamenn gerðu tilkall til lögsögu yfir honum. Snemma á sfðasta ári var maður þessi i varð- haldi um tíma vegna fíkniefna- máls, sem komst upp á Kefla- víkurflugvelli í byrjun ársins. Fran. 20. jan. — Reuter. MÁLGAGN kommúnistaflokks- ins f Tékkóslóvakíu, Rude Pravo, neitaði því f dag, að einhver fótur væri fyrir möguleikum á viðræð- um við þá er skrifuðu undir „Mannréttindi ’77“ fyrr á þessu ári. Andófsmaðurinn Jiri Pelikan, sem var yfirmaður tékk- neska útvarpsins á Dubcek- dögunum, 1968, en sem nú er f útlegð, stakk upp á slfkum við- ræðum f grein f ítalska dagblað- inu II Messaggero nýlega. Forsætisnefnd tékkneska kommúnistaflokksins mun koma saman innan fárra daga til að ræða opinbera afstöðu sína gagn- vart baiáiiu þcirra, er skrifuðu undir skjalið, fyrir auknum mannréttindum. Einu viðbrögð flokksins til þessa hafa verið frá- sagnir dagblaðanna sem annað- hvort hafa fordæmt „Mannrétt- indi '77“ sem slík eða ráðizt á Framhald af bls. 40 sigið samanlagt orðið 6,4 mm, en það þýðir að sigið sé rúm- lega 30 sm ímiðri sigdæld Kröfluöskjunnar. Um klukkan 16 í gær var sigið ekki nema tíundi hluti úr mm á klukku- stund. „Þetta virðist ætla að verða ákaflega svipað því sigi, sem varð um mánaðamótin október- nóvember," sagði Eysteinn. Tryggvason. „Mín skoðun er sú, að hættan á gosi á Kröflusvæð- inu sé liðin hjá í dag, en haldi hraunkvikan áfram að renna norður í Gjástykki, væri frekari möguleiki á gosi þar, ef hún er þá nokkurs staðar. Er það í 10 til 15 km fjarlægð frá Kröflu- virkjun. Ég er mjög rólegur yf- ir þessu og tel að þetta sé að hjáðna út. Nú er fólkið hins vegar að fara héðan af staðn- um, en það er samkvæmt ákvörðunum, sem teknar hafa verið á fjarlægum stöðum. Tveir jarðvísindamenn fóru inn í Gjástykki, Karl Grönvold og Oddur Sigurðsson. Fóru þeim um. klukkan 09 í gær- morgun og fundu syðst f Gjá- stykkinu 40 sm breiða sprungu í djúpum snjósköflum. Þessi sprunga var þó aðeins ein af mörgum, þannig að gliðnun landsins er talsvert miklu meiri eða frá 'n metra og upp i einn metra. Þessar sprungur eru á sömu slóðum og upptök stærstu jarðskjálftanna voru í fyrri- nótt. Sprungurnar eru við svo- kallaða Éthóla syðst í Gjá- stykki. Þeir skjálftar sem mældust á Kröflusvæðinu frá því á mið- nætti og þar til Morgunblaðið hafði síðast samband við jarð- vísindamenn á svæðinu skiptu þúsundum. — Kjósa Danir Framhald af Kls. 1. flokkurinn, Róttæki vinstri flokkurinn, Kristilegi þjóðar- flokkurinn, miðju-demókratar og Vinstri flokkurinn auk sósíaldemókrata. Viðræðurnar um húsnæðismálin fara hér á eftir fram án þátttöku Vinstra flokksins. Ef viðræðurnar fara út um þúfur er sennilegt að nýjar kosningar verði haldnar eftir fund Norðurlandaráðs í Helsingfors og þegar við- ræðurnar um nýja launa- samninga eru komnar vel á veg að sögn stjórnmálafrétta- ritara í Kaupmannahöfn. — Jafntefli Framhald af bls. 2 hjá stórmeisturum. Kurajica þáði peðið sem honum var boð- ið — og áhorfendur sáu spenn- andi einvígi og mikla baráttu. Báðir skákmennirnir notuðu einstaka undirskrifendur skjals- ins. Lögreglan hefur dregið úr leit sinni að undirskrifendum síðan hún handtók fjóra þeirra vegna meintra brota á lögum lýðveldis- ins Tékkóslóvakíu. Þeir voru leik- ritahöfundurinn Vaclav Havel, blaðamaðurinn Jiri Lederer og leikstjórarnir Otto Ornest og Frantisek Pavlicek. Tveir hinna fyrrnefndu eiga yfir höfði sér margra ára fangelsisdóm ef þeir verða dæmdir sekir um þau af- brot, sem þeir eru ákærðir fyrir. Ekki er vitað um hvað hinir tveir eru ákærðir. Einnig hefur verið dregið úr yfirheyrslum vegna skjalsins. Að sögn aðstandenda þess er enn verið að dreifa skjalinu „Mann- réttindi ’77“ og fleiri og fleiri hafa skrifað undir kröfur þess. En frá því hefur einnig verið skýrt, að fleiri nöfn verði ekki birt að sinni. mikinn tíma, báðir t.d. meira en 2 tíma fyrir fyrstu 15 leikina. Nokkrum leikjum síðar virt- ist sem Timman væri kominn með öruggan sigur, en nú fór tímahrakið að segja til sin. Timman lék hrapallega af sér og sigurinn blasti við Kurajica. Enn varð tímahrakið erfiðara og eftir 35 leiki bauð Kurajica andstæðingi sinum jafntefli, sem Timman þáði. Að skákinni lokinni rann það upp fyrir hon- um að Kurajica hafði aðeins átt um 5 sekúndur eftir til að leika 5 leiki og staðan enn flókin. Sennilega hafa það verið mestu mistök Timmans í skákinni að þiggja jafnteflið? Skákmennirnir eiga frf í dag en þrjár næstu umferðir verða tefldar laugardag, sunnudag og mánudag. — Minnihluta flokkar Framhald af bls. 21 veitusvæði Rafmagnsveitunnar og hefur framkvæmdaáætlun um aukningar veitukerfisins verið breytt til samræmis við þær. Þá hefur framkvæmda- áætlun um lögn þrýstivatns- pípu og smíði aðveitustöðvar I við Barónsstíg verið breytt vegna fyrirsjáanlegrar fjár- vöntunar og fjárveiting til byggingar Elliðavatnsstíflu lækkað nokkuð vegna hag- stæðari tilboðs, en sem kostnaðaráætlun nam. Herra forseti. Ég hef þá gert grein fyrir þeim brtt. sem bókaðar eru í 24. lið fundar- gerðar borgarráðs frá 18. þ.m. Eg legg til að borgarstjórn sam- þykki þessar breytingartillögur og að frumvarpið svo breytt verði afgreitt sem fjárhagsáætl- un Reykjavíkurborgar fyrir árið 1977. Ég legg einnig til, að 25. og 26. liður í fundargerð borgarráðs frá 18. þ.m. verði samþykktir og að 27. lið fundar- gerðarinnar verði vísað til síðari umræðu borgarstjórnar. Ávísunin hækkar um 250% SAMKVÆMT auglýsingu, sem birtist í fjölmiðlum f gær, hefur hvert 25 blaða ávísanahefti nú verið hækkað úr 150 krónum í 375 krónur, en sú hækkun nemur 250% hækkun. í auglýsingu samvinnunefndar banka og sparisjóða segir, að hækkun þessi sé tilkomin vegna heimildar sem bönkunum barst í brefi dagsettu 14. þ.m. Ennfrem- ur hækka 50 blaða tékkhefti, og verða þau héreftir seld á 750 krónur. — Jakob — Eysteinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.