Morgunblaðið - 21.01.1977, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANUAR 1977
27
Heimilistæki s.f.:
Tóku við umboði
fyrir W ang-tölvur
A UNDANFÖRNUM
tveimur og hálfu ári hafa
verið fluttar til landsins
nokkrar tölvur :f gerðinni
Wang, frá samnefndu
fyrirtæki í Bandarfkjun-
um. Fyrir nokkru tóku
Heimilkstæki s.f. við um-
boði fyrir Wang-tölvur og
átti blm. stutt samtal við
Ólaf H. Ólafsson deildar-
stjóra um þessar tölvur.
Ölafur sagði að Wang-tölvur
væru framleiddar með það fyrir
geymslurými frá 262 K stöfum i
allt að 20 milljón K stafi, hæg-
virka og hraðvirka prentara,
teiknivélar litlar og stórar.
Sú tegund Wang-tölva sem hér
er á markaðnum er seld með
minnisstærðunum 8K — 32K
stafa notenda minni. Frekari
stækkunarmöguleikar eru í því
fólgnir að bæta við útistöðvum
sem unnið geta sjálfstætt, en hafa
aðgang að sameiginlegu geymslu-
rými. Þessi möguleiki gerir sam-
stæðuna að nokkurs konar „multi-
processing" tölvu. Utistöðvarnar
eru f reynd tölvur með eigin
augum að leysa þarfir smærri
fyrirtækja og sagði hann aðal-
kosti tölvunnar vera að hægt væri
að byrja með litla ódýra sam-
stæðu sem hentaði kröfum kaup-
anda í upphafi og síðan gæti hann
stækkað hana og aukið við hana
eftir þörfum og umsvifum fyrir-
tækisins. Núna eru níu Wang-
tölvur í notkun hér á landi, hjá
nokkrum bæjarfélögum fyrir-
tækjum og lífeyrissjóðum og
verkefni þeirra margvísleg: ið-
gjaldabókhald fyrir lífeyrissjóði,
fjárhags-, og viðskiptamanna-, og
launabókhald fyrir ýmis fyrir-
tæki.
Þá er í notkun hjá Krabba-
meinsfélagi íslands tölva sem
tengd er við sams konar tölvu á
Egilstöðum, þar sem safnað er
upplýsingum um heilsufar og fer
úrvinnsla þeirra fram í Reykja-
vík, eftir að þær hafa komiðgegn-
um símalínu frá Egilsstöðum.
Um innri gerð Wang-talvanna
er þetta að segja:
„Stýrikerfi tölvunnar er inn-
byggt og tekur um 40 K stafi,
Aðeins 700 stafir af notendaminni
eru fráteknir undir smáhluta
stýrikerfis hverju sinni. Maður
með 32K Wang-tölvu getur því
verið viss um að hafa aðgang að
31.3K stafa minni. 1 öðrum tölv-
um getur stýrikerfið tekið allt að
40% af notendaminni.
Stýrikefið gerir ráð fyrir notk-
un allra jaðartækja frá Wang.
Það er því fyrirhafnarlítið að
bæta við jaðartækjum.
Urval jaðartækja er mjög mik-
ið, má m.a. nefna spjaldalesara og
gatara, 9-spora segulbandsstöð,
diskettu- og diekettudrif með
minni frá 8K til 32K stafa. Við
þær má tengja prentara.
Að lokum sagði Ólafur H. Ólafs-
son að nú væri í undirbúningi
viðhaldssamningur; sem öllum
kaupendum Wang-tölva yrði gef-
inn kostur á, en hann myndi
tryggja frekara öryggi og viðhald
tölvanna.
Tollar lækka
á heybindivél-
um en ekki á
heyhleðsluvögnum
I SAMRÆMI við nýja tollskrá,
sem tók gildi um sl. áramót hafa
orðið nokkrar breytingar á tollum
á búvélum. Almennt lækka tollar
á búvélum nú úr 7% í 4% og frá
og með 1. janúar 1979 eiga
tollarnir að lækka niður í 2%.
Gildir þetta jafnt frá hvaða landi,
sem tækin eru keypt, hvort sem
um er að ræða EBE-ríki, EFTA-
lönd eða önnur lönd. Frá þessu
eru þó þær undantekningar að
tollar á öllum almennum dráttar-
vélum verður óbreyttur 7%. Hins
vegar lækkar tollur á heybindi-
vélum úr 7% i 4% nú, en tollur á
heyhleðsluvögnum lækkar ekki
og verður áfram 7%. I nýútkomn-
um Sambandsfréttum kemur
fram að tollalækkun þessi hefur í
för með sér milli 20 og 25 þúsund
króna verðlækkun á heybindivél
af algengri gerð.
Bridge
Umsjón:
Arnór Ragnarsson
Lárus og Sævin
Reykjanesmeist-
arar í tvímenning
Frá Stjórn Reykjanesum-
dæmis:
Sl. helgi lauk 1 Kópavogi úr-
slitakeppni í Reykjanesmóti 1
tvímenning, öðru sinnar
tegundar. 16 pör spiluðu til úr-
slita og jafnframt um rétt til
þátttöku í Íslandsmóti í ár. Ur-
slit urðu þau, að Lárus
Hermannsson og Sævin Bjarna-
son báru sigur úr býtum eftir
jafna og harða keppni.
Lárus er óþarfi að kynna,
hann er einn af kunnari
keppnismönnum hér syðra, og
hefur staðið lengi í eldlínunni.
Synir hans, Hermann og Ólaf-
ur, sigruðu f þessu móti í fyrra,
en þá lenti Sævin Bjarnason í
öðru sæti, þá á móti Ragnari
Björnssyni. Sævin er gamall
keppnismaður, en hefur lítið
spiiað undanfarin ár. Þess má
geta, að Lárus er núverandi
Reykjanesmeistari í sveita-
keppni einnig.
Annars varð röð efstu para
þessi:
stig
1. Lárus Hermannsson BAK
— Sævin Bjarnason BK 580
2. Logi Þormóðsson BS
— Þorgeir Eyjólfsson BH 573
3. Guðmundur Ingólfsson BS
— Jóhannes Sigurðsson BS 572
4. Helgi Jóhannsson BS
r— Einar Jónsson BS 564
5. Jón P. Sigurjónss. BAK
— Guðbrandur Sigurbergss.
BAK 558
6. Haukur Hannesson BAK
— Ragnar Björnsson BAK 556
7. Bjarni Pétursson BK
— Óli Andreasson BK 554
8. Jón Hermannsson BAK
— Ragnar Hansen BAK 539
Meðalskor var 525 stig.
Keppnisstjóri var Sigurjón
Tryggvason en honum til að-
stoðar var Vigfús Pálsson. A
sunnudaginn kemur hefst úr-
slitakeppni í sveitakeppni
Reykjaness 1977.
•
Keppnir á vegum
Ásanna til vors
BRIDGEFELAGIÐ Ásarnir
hefir ákveðið keppnir vetrarins
og verða þær til vors sem hér
segir:
29. og 30. janúar. Firmakeppni
31. janúar, 13. og sfðasta umf.
— Kjör
bátasjómanna
Framhald af bls. 15
lega, ef hægt væri að setja inn f
dæmið upplýsingar um vinnutíma
og vinnuaðstöðu. Kannski fengist
því þá svarað af hverju svona
erfitt er að manna bátaflotann, en
ef ég man rétt, áætlaði L.Í.U. að
um 1000 manns hefði vantað til að
fiskiflotinn væri fullmannaður á
síðustu vertíð.
Til frekari skýringar er rétt að
taka það fram að, þegar talað er
um sjómenn og bátasamninga á
það við um alla islenska fiski-
menn, aðra en þá, sem eru á stóru
togurunum. En þeirra samningar
eru töluvert frábrugðnir báta-
kjarasamningum.
Guðbjartur Gunnarsson
stýrimaður.
S.V.K. 7. .febrúar. Boðsmót,
tvímenningur, 3ja kvölda 28.
febrúar. Keppni við
Hafnarfjörð 7. mars.
Barometer, 5. kvöld 11 apríl.
Þorsteinsmót með Pattonfyrir-
komulagi, 3ja kvölda.
•
Hörð keppni um
Akureyrartitil-
inn í sveitakeppni
NU er aðeins einni umferð
ólokið ( úrslitakeppni um
Akureyrarmeistaratitilinn í
sveitakeppni. Spilað er 1 þrem-
ur riðlum og er spilað um 1.—4.
sæti 1 A-riðli, 5.—8. sæti í B-
riðli og 9.—13. sæti í C-riðli.
Staðan f A-riðli er þessi:
Sveit Ingimundar Árnasonar 35
Sveit Alfreðs Pálssonar 25
Sveit Ævars Karlessonar 20
Sveit Arnar Einarssonar 0
Sveit Ingimundar á mikla
möguleika á titlinum — en á að
spila við sveit Alfreðs f síðustu
umferð. Einnig er sá fræðilegi
möguleiki að þrjár efstu sveit-
irnar verði allar jafnar.
Staða sveitanna f B-riðli:
Sveit Þormóðs Einarssonar 36
Sveit Páls Pálssonar 21
Sveit Stefáns Vilhjálmssonar 2
Sveit Friðriks
Steingrímssonar 1
Einum leik hefir verið frest-
að í þessum riðli, milli sveita
Stefáns og Friðriks.
Staða sveitanna f C-riðli:
Sveit Arnalds Reykdal 28
Sveit Víkings
Guðmundssonar 28
Sveit Sveinbjörns
Sigurðssonar 24
Sveit Trausta Haraldssonar 0
Siðasta umferð verður spiluð
á þriðjudaginn kemur í
Gefjunarsalnum og hefst spila-
mennskan klukkan 20.
Björn og Magnús
efstir í barometer-
keppni í Firðinum
Staða efstu para að 7
umferðum loknum f
barometerkeppni Bridgefélags
Hafnarfjarðar er þessi:
stig
Björn Eysteinsson —
Magnús Jóhannsson 148
Eyjólfur Sæmundsson —
JónGislason 102
Ásgeir Magnússon —
Sigurður Sigurðsson 63
Kristján Andrésson —
Sævar Magnússon 50
Einar Sigurðsson —
Dröfn Guðmundsdóttir 44
UTSALAA
AKUREYRI
Allar tegundir
fatnadar o.fí.
þ. á m.
12 matvörutegundir
lækkaðar í verði
VIÐTALSTÍMI I
rSi
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum frá
klukkan 1 4:00 til 1 6:00. Er þar tekið á móti
hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og
er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 22. janúar verða til viðtals:
Davíð Oddsson, borgarfulltrúi og Sigríður
Ásgeirsdóttir, varabogarfulltrúi.