Morgunblaðið - 21.01.1977, Page 39

Morgunblaðið - 21.01.1977, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1977 39 Um 60 þjálfarar á skólabekk 15. og 16. janúar s.l. var haldið þjálfaranámskeið á vegum Þjálfaraskóla KSÍ í Kennarahá- skóla íslands. Aðalkennari á nám- skeiði þessu var Keith Wright, yfirþjálfari enska knattspyrnu- sambandsins í Mið-Englandi. W'right er 35 ára, f.vrrverandi at- vinnumaður hjá Leicester City og auk þess háskólamenntaður kenn- ari. Kennt var báða dagana frá kl. 10.00 — 18.00, eftir áætlun scm W'right hafði sjálfur samið og sent hingað áður en hann kom. Námskeiðið sóttu rúmlega 60 þjálfarar hvaðanæfa að af land- inu og sýnir það hversu mikill ■ áhugi er á námskeiðahaldi sem þessu. og hjá íslenzku knatt- spyrnuþjálfurunum að auka [ <•« kunnáttu sína og efla starfshæf- nina. Kennsluefnið var þrekþjálfun og leikaðferðir, sem W'right þótti setja fram á skýran og skipulegan hátt, og töldu þátttakendur á námskeiðinu sig hafa haft mikið gagn af því að sækja það. Stefnt er að því að slík nám- skeið verði fastur liður í upphafi hvers undirbúningstímabils knattspyrnumanna á komandi ár- um. Var það tækninefnd KSÍ sem sá um undirbúning og fram- kvæmd námskeiðsins, en í henni eiga sæti. Karl Guðmundsson, formaður, Reynir G. Karlsson, Sölvi Óskarsson, Guðni Kjartans- on, Anton Bjarnason og Magnús Jónatansson. Kunnir knattspyrnumenn á námskeiðinu. Lengst til vinstri er Halldór Björnsson, fyrrum leikmaður með KR, en hann hefur nú verið ráðinn þjálfari hjá 3. deildar liði Siglfirðinga. Þeir sem eru að stökkva yfir hindrun- ina eru þeir Hörður Halmarsson, leikmaður með KA og Val, og Benedikt Valtýsson, fyrrum leikmaður með Akranesliðinu. Vaxandi áhugi á fimleikum, en íþróttahúsin eru vanbúin tækjum Karl Guðmundsson, formaður tækninefndar KSt, aðstoð- ar þarna aðalkennara námskeiðsins, Keith Wright. — ÞAÐ ER mikið á döfinni hjá okkur. og greinilegt að áhuginn á fimleikum fer stöðugt vaxandi, sagði Asgeir Guðmundsson, for- maður Fimleikasambands ís- lands, í viðtali við Morgunblaðið f gær, er hann var fenginn til þess að gera grein fyrir helztu verk- efnum þeim sem nú eru framund- an hjá sambandinu. — En því miður setur aðstöðuleysið okkur þröngar skorður, sagði Asgeir, — öll íþróttahús, að einu undan- teknu, skortir nauðsynlegan tækjabúnað til fimleikaþjálfun- ar, en þetta eina hús, íþróttahús Kennaraháskóla islands, veitir fim leikafólki því miður ekki nema takmarkaðan aðgang. Asgeir sagði, að það 'sem nú væri á döfinni væru námskeið fyrir dómara i fimleikastiganum. Hefði slíkt námskeið fyrir pilta verið haldið dagana 13., 14., 15. og 16. janúar og nú stæði yfir nám- skeið fyrir stúlkur. Um önnur verkefni Fimleika- sambandsins er þetta helzt að segja: Bikarkeppni F.S.Í. Hin árlega bikarkeppni Fim- leikasambandsins verður háð i íþróttahöllinni fimmtudaginn 17. febrúar kl. 20.30. Vegna fjölda þátttakenda á s.l. ári verður nú hverju félagi heimilað að senda aðeins eitt lið í hverjum aldurs- flokki. Keppt verður í fimleika- stiganum. Tilkynningar um þátttöku skulu hafa borist til skrifstofu SKAGAMENN UNNUIEYJUM UM SÍÐUSTU helgi heimsóttu Skagamenn Vestmannaéyjar heim og léku tvo leiki við Eyjaliðin Þór og Tý í 3. deildinni í handknattleik. - Þeir Skagamenn fóru ekki erindisleysu heldur sigruðu í báðum leikjunum en urðu samt að hafa mikið fyrir því að hala inn þessi stig. í fyrri leiknum mættu þeir Þór og sigruðu 1 9— 1 8 (í hálfleik 11 — 9). Var það jafn leikur en ÍA lengst af með forustu Þórsarar urðu fyrir þvl áfalli strax á 2. mín. leiksins að missa sinn besta mann, Hannes Leifsson útaf vegna meiðsla og gat hann ekki komið inná fyrr en er 10. mín. lifðu af leiknum og gat hann þá ekki bætt um betur þó svo liðið væri nærri að jafna I lokin. Flest mörk ÍA skoruðu þeir Haukur Sig- urðsson og Þórður Elfasson, 4 mörk hvor. Markahæstur hjá Þór var Asmundur Friðriksson með 8 mörk og Þórarinn Ingi Olafsson skoraði 6 mörk. Daginn eftir léku svo Týr og ÍA og var það ekki sfður spennandi og skemmtilegur leikur og þar að auki betur leikinn. Skagamenn voru sterkari í f.h. og höfðu yfir á hálfleik 10—7, en Týrarar unnu þetta upp í s.h. og komust marki yfir. Þessu forskoti hélt liðið þar til 1. mín. rúm var til leiksloka að ÍA jafnar. Týrarar fara svo illa að ráði sínu sfðustu sek. leiksins, reyna ótfmabært skot sem er varið. Skagamenn bruna upp og skora sigurmarkið 17—16. Þeir Þórður Elfasson og Rúnar Davfðsson voru markahæstir hjá ÍA með 4 mörk hvor. Hjá Tý skoruðu þeir Sigurlás Þorleifsson og Logi Sæmundsson 5 mörk hvor. Eyjaliðin fengu þvf ekki stig þessa helgina, en helgina áður höfðu þau bæði sigrað UMFN f Eyjum, Þór — UMFN 25—19, Týr — UMFN 23—22. Þá fór um helgina fram í Eyjum einn leikur f 3. deildinni f körfuknatt- leik. Þar léku ÍV og ÍBK og sigraði ÍV 48—35 en í hálfleik höfðu Eyja- menn yfir 19—11. Leikur þessi var afspyrnu lélegur og Iftil skemmtun fyrir áhorfendur. Eyjamenn hafa enn ekki tapað leik f deildinni, hafa unnið alla 5 leiki sfna hingað til. Flest stig ÍV skoraði þjálfari liðsins Jóhann P. Andersen, 12 stig, en flest stig ÍBK skoraði Haukur Hafsteinsson, 14stig. 3. deildar liðinu TÝ í handknattleik hefur nú borist góður liðsstyrkur þar sem er Frosti Sæmundsson úr 1. deildarliði H : uka Hann hefur flutst til Eyja og gengið í Tý. Frosti verður löglegur með liðinu nú um mánaða mótin. — hkj. F.S.I. í síðasta lagi 14 dö^um fyrir mót. Meistaramót F.S.Í. verður háð í íþróttahúsi Kennara- háskóla íslands 26. og 27. mars kl. 15.00. A meistaramótinu verður keppt um meistaratitil í öllum greinum fimleika karla og kvenna og jafn- framt um titilinn fimleikameist- ari Islands í karla- og kvenna- flokki. Þátttöku þarf að tilkynna til skrifstofu F.S.Í. í síðasta lagi 14 dögum fyrir mót. Firmakeppni F.S.I. Stjórn Fimleikasambandsins hefur ákveðið að stofna til firma- keppni í fimleikum nú i vetur i fyrsta sinn. Keppnin verður forgjafar- keppni og hafa því allir þátttak- endur jafna möguieiká á að sigra. Þeir einir hafa rétt til keppni, sem hlotið hafa hæsta meðaltölu á bikar- og/ eða meistaramóti. Ein- staklingar og fimleikadeildir munu sjálfir útvega sér firmu til að keppa fyrir. Fimleikasambandið væntir þess að fyrirtæki taki vel á móti þátt- takendum sem leita rnunu til þeirra fyrir firmakeppnina. Firmakeppnin verður háð í fþróttahöllinni sunnudaginn 17. apríl kl. 14.30. Sýning í maí Akveðið er að halda fimleika- sýningu í maí. Er gert ráð fyrir að öll félög og aðrir fimleikahópar eigi þess kost að sýna einhverja þætti úr starfsemi sinni á iiðnum vetri. Fimleikasýningar í dreifbýli Nefndir á vegum F.S.l. hafa rit- að héraðssamböndum og íþrótta- l)andalögum um land allt og hvatt til fimleikasýninga á sama hátt og gert hefur verið hér í Reykjavík undanfarin ár í samvinnu við iþróttakennarafélag Islands. Er vonast til þess að af sýningum geti orðið á einhverjum stöðum utan Reykjavíkur siðar í vetur eða í vor. Nefndir á vegum F.S.Í. Alls eru starfandi 7 nefndir t vegum F.S.Í. sem sinna einstök- um þáttum í starfi sambandsins. Auk þess, sem að frantan grein- ir. er á döfinni fjölþætt starf und- irbúið af starfsnefndum. s.s. nám- skeið og kynning á nútíma fim- leikum, auðveldar keppnisæfing- ar fyrir skólafólk. námskeið i áhaldafimleikum o.fl. o.fl. Ahöld og aöbúnaöur Þátttaka i fimleikunt hefur stóraukist á s.l. árum með aukn- um verkefnum l'yrir fimlcikafólk og komast nú færri að en vilja hjá þeini félögunt. sem hal'a limleika á stefnuskrá sinni. Xiintun á áhöldum hefur þó staðið starfinu lyrir þrifum þrátt fyrir mikinn dugnað ýmissa félaga að útvéga sér áhöld. Stjórn F.S.l. hefur nú ritað nokkrum bæjarfélögum og íþróttabandalögum og óskað eftir því, að salir þar verði útbúnir góðum ta'kjum til áhaldafimleika m.a. til að auka fjölbreytni í iþróttaiðkunum á viðkomandi stöðum. i>Ioi\\imlnnöio mm FRAM18-LIÐA URSLIT F'RAM tryggði sér rétt til þátt- töku i átta-liða úrslitum bikar- keppni HSÍ i fyrrakvöld með því að sigra Armenninga með 21 marki gegn 18. Fór leikurinn fram í æfingatíma Armenntnga í Laugardalshöllinni. Lengst af var leikur þessi tiltölulega jafn, en Framararnir voru þó heldur friskari, og höfðu náð fjögurra marka forystu í leikhléi, 12—8. 1 seinni hálfleiknum gáfu Armenn- ingar ekkert eftir, en tókst hins vegar ekki að vinna upp forskot Framara. En greinilega er ekki mikill munur á liðunum sem leika í 1. deild urn þessar mundir og beztu liðunum í 2. deild, ef marka rná leikinn í fyrrakvöld. Og vist er að fá islenzk handknattleikslið eiga eins bjarta framtíð og Armenningar — liðið er að stofni til skipað ungum piltum sem eru hver öðrum efnilegri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.