Morgunblaðið - 26.02.1977, Side 5

Morgunblaðið - 26.02.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 1977 5 Klukkan 19.35: Karl Marx í Gemingum Þátturinn GERN- ingar í umsjá Hannesar Gissurarsonar er á dag- skrá útvarpsins klukkan 19.35. í þessum þætti fjall- ar Hannes Gissurarson áfram um Karl Marx, en honum hefur hann helgað síðustu tvo þætti sína. 1 fyrsta þættinum rakti hann sögulegt baksvið Marx og segist hafa reynt að skilgreina þátt Karl Marx í menningarsögu Vesturlanda. í öðrum þætti talaði hann síðan um æsku- og háskólaár Marx og áhrifavalda hugsunar hans. í þættinum í kvöld ætlar Hannes að lokum að tala um manninn Karl Marx og hugsun hans á áratugun- um frá 1845—1865. Ástæðuna fyrir því að hann hefur helgað Marx þrjá þætti í röð, sagði hann vera þá, að hann teldi það brýna nauðsyn að fjalla um Karl Marx og kenningar hans á fordómalausan hátt. „Hingað til,“ sagði Hannes enn fremur, „hefur ætíð verið talað um Marx með trúarbragðablæ. Þar hefur verið á ferðinni fámennur hópur, sem trúir á hann í blindni og hefur farið full- geyst í umræðum um hann á opinberum vettvangi. Mér finnst tími til kominn að fjallað sé um Karl Marx á hlutlausan og gagnrýnis- lausan hátt, sem þessi hóp- ur manna hefur ekki gert. Ég reyni að tala um hann og hans kenningar af kuldalegri rökvísi, bæði með góðar og vondar hliðar í huga, en Karl Marx var athyglisverður maður. Hins vegar tel ég persónu- lega að hann hafi í megin atriðum haft rangt fyrir sér. Karl Marx var umfram allt 19. aldar heimspeking- ur og rígnegldur við hug- myndaheim aldaranda þess tíma.“ EHB™ HQI HEVHH Á skjánum SUNNUD4GUR 27. fekrúar 1977 16.00 Hðsbvndur og hjð Breskur myndaflokkur. ..Þad, ifm Guð hefur tengt saman..." Þýðandi Kristmann Eiðsson. 17.00 Mannllfið 18.00 Stundin okkar Sýndar verða myndir um Kalla I trénu og Amölku. Sfðan verður frumsýnd sjðn- varpskvikmyndin „Saga ðr strfðinu**, sem Agðst Guð- mundsson gerði eftir sögu Stefáns Jðlfussonar. Myndin er framlag fslenska sjón- varpsins til norræna mynda- flokksins. Það er strfð f heiminum, og fjallar þessi mynd um 11 ára dreng á tslandi 1044 og áhrif strfðs- ins á Iff hans. Umsjónarmenn Hermann Ragnar Stefánsson og Sig- rfður Margrét Guðmunds- dóttir. Stjórn upptoku Kristfn Páls- dóttir. Enska knattpsyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Skákeinvfgið Skákmeistarrnir Friðrik Ólafsson, Guðmundur Sigur- jónsson og lngi R. Jóhanns- son munu skýra f sjónvarps- sal skákir stjörmeistaranna Spasskýs og Horts, sem heyja svonefnt áskorenda- einvfgi hér á landi um þess- ar mundir. Eftir því sem tfmi gefst til, verða sagðar fréttir af öðrum kunnum skákköpp- um, sem einnig heyja einvigi um svipað leyti. Þessir þættir verða á dag- skrá Sjónvarpsins alla út- sendingardaga vikunnar á sama tfma nema laugardaga, meðan á cinvfgi Spasskýs og llorts stendur. 20.45 ileimsókn Stokkseyri og Eyrarbakki rru nú einu útgerða.rþnrpin á hintii hofnlausu suður- strönd austan Ölfusár. Erfið hafnarskilyrði há því, að þar sé unnt að reka fiskvrrkun og útgerð á eðlilegan hátt. Kvikrnynd Haraldur Frið- riksson. Hljóðsetniiig Marinó Ólaís- SOIl. Klipping Isidór llermanns- son. l'msjón Magnús Bjarnfreðs- son. 21.30 Jennie Breskur framhaldsmynda- flokkur 4. þáttur. Sigur og sorg 22.20 Frá Listahátfð 197« Anneliese Rothenberger syngur lög eftlr Hugo Wolf. Við hljððfærið GUnther W'eissenborn. Stjórn upp- töku Andrés Indriðason. 22.40 Aðkvöldidags Séra Iljalti Guðmundsson, dómkirkjuprestur f Reykja- vfk, flytur hugvekju. 22.50Dagskrárlok. Sinfóníutónleikar Háskólabfó 24. febr. 1977 Stjórnandi: Jean-Pierra Jacquillat Einleikari: Jónas Ingitnundarson Efnisskrá: H. Berlioz, Forleikur — Le Carnavai romain, Saint-Saens, Píanókonsert nr. 2 op. 22 f g- moll. César Frank, Sinfónfa f d-moll. Á 10. tónleikum Sinfóniu- ’ hljómsveitarinnar, sem fram fóru í Háskólabiói s.l. fimmtudagskvöld gafst áheyr- endum kostur á að hlýða á franska tónlist eftir þá H. Berlioz, Saint-Saens og César Frank. Forleikurinn ,,Le Carnaval romain" eftir Berlioz var fyrstur á efnisskránni. Berlioz var ekki sérlega afkastamikið tónskáld. en verk hans höfðu því meiri áhrif. Hann gaf hljómsveitinni nýja liti og blæ og skapaði ný form. Hann er stundum nefndur „faðir hermitónlistarinnar" og batt sig ekki við reglur og hefðir heldur visaði veginn framávið Forleikurinn „Le Carnaval romain“ bar öll ein- kenni höfundar síns og er lit- ríkur og skemmtilegur. Stjórn- andinn, Jacquillat er okkur islendingum að góðu kunnur, því hann hefur nokkrum sinnum áður stjórnað Sinfóníunni við góðan orðstír, enda brást hann ekki tónleika- gestum í þetta sinn. Stjórn hans var röggsöm og örugg og „Le Jónas Ingimundarson Carnaval romain“ hljómaði hressilega undir stjórn hans. Píanókonsert Saint-Saéns er nokkuð kúnstugur í formi. Þannig minnir upphafið fremur á orgelprelúdíu en píanókonsert og auk þess „vantar“ hæga þáttinn í verkið. En konsertinn er rómantiskur og á köflum mjög glæsilegur. Píanóið ræður ríkjum i þessu verki, eins og svo algengt er um konserta frá þessu timaskeiði. og ber það með sér að höfundur hefur sjalfur verið snjall píanisti. Með einleikshlutverk- ið fór Jónas Ingimundarson. Jónas hefur víða komið við i tónlistarlífinu á undanförnum árum, og getið sér gott orð sem píanisti og kórstjóri. Hann hefur verið allra manna dug- Tðnlist eftir EGIL FRIÐLEIFSSON legastur við að halda tónleika utan Reykjavíkur og nokkrum sinnum leikið með Sinfóniunni úti á landi. Þetta var hins vegar frumraun hans á sviðinu í Háskólabiói. Leikur hans á fimmtudagskvöldið var ekki hnökralaus. Hins vegar voru jákvæðu hliðarnar á túlkun hans yfirgnæfandi. Hann átti góða spretti, og þegar best lét glitraði tónaregnið i höndum hans. Jónas er vandaður tónlistarmaður og bar leikur hans þess glögg merki. Það má gjarnan geta þess hér að undir- ritaður fékk tækifæri til að hlusta aftur á konsertinn á skólatónleikum i gær (föstudag) og lék Jónas þá af meira öryggi og yfirvegun en áður, enda hver „umferð“ með hljómsveitinni dýrmæt reynsla. Þáttur hljómsveitarinnar er ekki stór í þessu verki, en fylgdi píanóinu vel eftir. César Frank hefur nokkra sérstöðu meðal franskra tónskálda. Hann var af þýzkum ættum en fæddur í Belgiu. Af samtíma sínum var hann fvrst og fremst þekktur sem kennari og organisti, en um tónsmíóar hans kærðu sig fáir. M.a. var d-moll sinfóniunni mjög illa tekið er hún var frumflutt árið 1889. Hins vegar hefur timinn sannað að sinfónian er ein af dýrustu perlum hins síðróman- tíska timabils og óbrotgjarn minnisvarði höfundar síns. Rétt þrjú ár eru nú liðin siðan d-moll sinfónian hljómaði síðast í Háskólabíói og þá undir stjórn K. Andersens. Nú var hins vegar frakkinn Jacquillat viö stjórnvölinn sem fyrr segir, og tókst að mínu áliti mjög vel upp. Hinn alvörugefni þungi andi þessa verks komst vel til skila án þess að vera þunglama- legur. Hljómsveit, stjórnanda og einleikara var vel fagnað af áheyrendum. Skíðaferöir í Skálafell Fastar áætlanaferðir verða í vetur á skíðasvæðið i Skálafelli. Sérstakar ráðstafanir eru gerðar til að veita góða þjónustu með ferðum um allt Stór-Reykjavikursvæðið í Skálafelli er gott skíðaland við allra hæfi. 5 lyftur i gangi frá morgni til kvölds Ókeypis lyftuaðstaða við félagsskála KR fyrir börn. Kennsla fyrir almenning Þjálfun fyrir keppendur Ferðir laugardaga og sunnudaga. • LEIÐ I • LEIÐ in KL. KL. 9.45 Mýrahúsaskóli 10.00 Kron efra Breiðholti KR heimilið. Straumnes 10.00 BSÍ 10.15 Barnaskólinn Sóbekksverzlun neðra Breiðholti 10.15 Sundlaugar 10.30 Essostöðin Sunnutorg Kron Langholtsvegi Ártúnshöfða 10.30 Essostöðin Ártúnshöfða • LEIÐ IV 10.45 Kaupféiagið KL. BSÍ Mosfellssveit 13 00 Shellstöðin # LEIÐ II Miklubraut Skeiðarvogur / KL. Miklabraut 10.00 Kaupfél. Garðabæ Essostöðin Silfurtún v/Arnarnes Ártúnshöfða 10.15 Sparisjóður Kópavogs 13.15 Kaupfélagið Mosfells Vörðufell sveit. 10.30 Essostöðin Ártúnshöfða Verið velkomin í Skálafell Slmsvari skíðadeildar Upplýsingar um veðurfærð og opnunartima lyftna i Skálafelli eru i síma Geymið auglýsinguna Skíðadeild K.R.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.