Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 13
m~,-, .... ----, ...■ .. M<i»OCW®bAÐIÐ. LAL'GARDAUt’R 26. FtBRUAR 1977 13 Aöalfundur Myntsafnarafél- ags íslands var haldinn sunnu- dainn 6. febrúar s.l. i Norræna húsinu. Fram kom i skýrslu frá- farandi formanns, Indrriöa Indriðasonar, rithöfundar, að stjórnin heföi hafið útgáfu blaðsins MYNT, sem sent er öllum félagsmönnum, en þeir eru nú um 330 talsins. í blaðinu eru greinar, uppboðsskrár og ýmislegt annað. Formaður minntist einnig á Myntsýning- una, sem haldin var á Akureyri á síðastliðnu vori. Á komandi vori er gert ráð fyrir fundi með félögunum á Akureyri og upp- boði. Hina nýju stjórn félagsins skipa: Formaður: Ragnar Fjal- ar Lárusson, gjaldkeri: Jón Guðbjörnsson, ritari: Tryggvi Ólafsson, erlendur bréfritari: Anton O’Brian Holt. Aðrir I stjórn eru: Gunnlaug- ur Gunnarsson, Hjálmar Haf- liðason, Stefán Hannesson, Trausti Finnbogason og Axel Clausen. Fyrsti fundurinn á ný- byrjuðu starfsári þessarar stjórnar er í dag klukkan 14.30 í Templaráhöllinni. Afgreiddar verða þar pantanir á peningum og svo verður kaffi fram borið og uppboð. Á uppboðsskránni er ýmislegt athyglisvert, svo sem 10 og 25 eyringar Islenzkir. 22 mismunandi einseyringar, danskir, frá 1887—1923. Þriggja marka Graf Zeppelin peningar frá 1931, þýzkir. Seðl- ar eru bæði íslenzkir, færeysk- ir, danskir, norskir, sænskir, finnskir og rússneskir. Er ekki að efa að fjörlega verður boðið í marga gripi. Nú er 1977 heftið af Islenzkar Myntir komið út. Þar er allt í hefðbundnum stíl. Litlar tilfær- ingar á verðum. Það vekur þó athygli að gullpeningarnir íslenzku hafa báðir lækkað í verði, miðað við árið áður. Jóns Sigurðssonar peningurinn er nú talinn 45000 krónu virði og 10000 krónu peningurinn frá 1974 25000 krónu virði. Flokkun peninga er nú hin sama og hjá Myntsafnara- félaginu og er það mjög til bóta. íslenzkar myntir kosta 540 krónur. Hjá Frímerkjamiðstöðinni rakst ég á skemmtilegan minnispening, sem sleginn var I tilefni af íslendingadeginum í Kanada árið 1975. Eigulegur og fallegur peningur. Kostar 750 krónur. Seðlabanki islands hefir nú gefið upp magn myntar sem slegin var árið 1976. Er það sem hér segir: eftir RAGNAR BORG Um félags- mál og fleira ISLENZKAR MYNTIR 1977 Það segir sína sögu um verð- bólguna hvilik óskup þurfti að slá af álkrónunni. Við skulum vona að Seðlabankinn sjái sig um hönd og slái aldrei svona lélegan pening aftur, hvað sem það kostar og hvað sem hinni hræðilegu, taumlausu verð- bólgu liður. Mér er sagt að gyllta krónan komi minna og minna til baka í bankana. Menn eru farnir að halda henni til haga. 1 króna 10.000.000 stk. 5 krónur 500.000 stk. Þar sem skurðhnifar, raf- eindahvatar og kóbaltgeislar duga ekki, á KARIN að koma til hjálpar. KARIN — nafnið er myndað af upphafsstöfum orð- anna: Karlsruhe Ring Ionenqu- ellen-Neutronengenerator — er hið nýja geislatæki, sem mið- stöð krabbameinsrannsókna I Heidelberg er nú að taka í notk- un í viðureigninni við illkynjað- ar bólgur. Með hröðum neind- um (neutrónum) — byggingar- steinum eindarinnar, hlöðnum orku með þróun eins og á sér stað inni i sólinni og I vetni- sprengju — á að sækja enn fram og færa út mörk barátt- unnar gegn krabbameininu, frá því sem verið hefur. En þó að vlsindamennirnir i Heidelberg geri sér góðar vonir um árangurinn af beitingu hins nýja, afar öfiuga tækis, lita þeir ekki á það sem hinn almáttka bjargvætt krabbameinssjúkl- inga — engan veginn. Þegar fyrir fjörutíu árum gerðu læknar tilraunir til að eyða illkynjuðum bólgum með hröðum neindum. En þekking manna þá i geisla- liffræðilegum og lifeðlisfræði- legum efnum nægði þá ekki til, til þess að meðhöndlunin tækist eins og vonir stóðu til. Of háir neindarskammtar höfðu auk þess alvarlegar skemmdir á heilbrigðum vefjum i för með sér. I visindalegu riti, sem kom út 1948, var loks staðhæft, að þessar frumeindir væru ónot- hæfar til geislalækninga. Eftir það voru neindir til geislalækn- inoa hannorð I tvo áratugi. Frá miðstöð krabbameins- rannsókna í V-Þýzkalandi Geisla- tækið KARIN krabba- meini zyklotrónum og gerir því kleift að meðhöndla bólgur, sem liggja djúpt. Kraftur lækninga- geislanna er meiri en verður með öllum öðrum aflvökum til framleiðslu á neindum með 14 millj. rafeindavoltum, og þvi er hægt að nota styttri geislunar- tíma en annars er venjulegt. Stærð og kostnaður er ekki meiri en- þeirra tækja, sem hingað til hafa verið notuð. Neindarhylkið er 40 senti- metrar I þvermál og 60 á hæð. Geislahlífin, sem nauðsynleg er vegna lækningageislanna er samföst, og hægt er að koma tækinu þannig fyrir, að hægt er að snúa þvi eftir þörfum. Veiga- meira er geislahöfuðið allt — átta tonn að þyngd og einn og hálfur metri í þvermál. Fjölmiðlum var sýnt tækið í janúar s.l. en þá voru lækninga- tilraunir að hefjast samkvæmt ítarlegri áætlun i samvinnu margra stofnana í Þýzkalandi. Sérstakur starfshópur lækna og visindamanna annast val á sjúklingum þeim, sem með- höndlaðir verða með hinum nýju aðferðum. Gert er ráð fyrir, að á þessu ári verði geisl- unarlækningum beitt gagnvart 100 til 200 sjúklingum með ill- kynjaðar bólgur á háu stigi fjórum til fimm sinnum á viku. Með þvi vonast menn til að fá svar við eftirfarandi spurning- um: Yfir sjöklingnum hangir átta tommu þungur geislahjálmur. Breyting varð á, þegar vís- indamenn skýrðu frá því, að hið svokallaða súrefnisafl hjá neindum sé minna en til dæmis hjá gammageislum. Með súr- efnisafli — segir í skýrslu Mið- stöðvar þýzku krabbameins- rannsóknanna — „er átt við það fyrirbæri, sem komið hefur I ljós með tilraunum á sam- eindum, gerlum og frumum spendýra, að geislaviðnám eykst með minnkandi súrefnis- þrýstingi." Með öðrum orðum: Heilbrigður vefur hefur yfir- leitt nægilegt súrefni, en við bólgur vegna hins óreglulega vaxtar orsakast skortur á súr- efni. Og vefur, sem hefur ekki nægilegt súrefni, er ennfremur tiltölulega ónæmur fyrir áhrif- um flestra geisla, en með hröð- um neindum verður aftur á móti mismunurinn á geisla- næmi sjúks og heilbrigðs vefjar mun minni. Af þessum ástæðum voru gerðar tilraunir með neindum við Hammersmith sjúkrahúsið I London I meira en tíu ár, og þar hafa bólgur með viðnámi gegn geislum verið meðhöndlaðar á áhrifaríkan hátt. Um þessar mundir er verið að vinna að smíði tækja eða útbúnaðar til að framleiða „neindir gegn bólgum” viðar en í Heidelberg og London, svo sem i Banda- ríkjunum (Stanford, Seattle), Hollandi (Rijswik), í Austur- Þýzkalandi (Dresden) og I Hamborg. Að hluta er þegar farið að reyna slík tæki á sjúkrahúsum. Það eru til margar aðferðir til að framleiða neindir með kjarnasvörun, en aðeins fáar þeirra koma til greina í sam- bandi við lækningar. Sam- kvæmt þeirri reynslu, sem fengizt hefur fram til þessa, er aðeins hægt að nota tvær þeirra i því skyni, Deuterium- Tritium-Generator (K^RIN er af þeirri gerð) og Zyklotrone. Tæki af báðum tegundum eru nú reynd í stofnuninni í Heidel- berg á kerfisbundinn hátt. Sá sem fann upp geislatækið KARIN heitir K. Albrecht Schmidt, doktor í eðlisfræði, og hefur unnið við kjarna- rannsóknarstofnunina i Karls- ruhe. Neindaraflvaki hans er meginhluti lækningatækisins. Fyrirmyndin að honum er sótt i sólina. Þungu vatnsefni (Deuterium) og ofurþungu vatnsefni (Tritium) er skotið saman með mikilli orku og renna þá saman í heliumeindir. Við samrunann leysast neindir úr læðingi. Árangurinn og hin tæknilegu atriði vöktu þegar mikla athygli bæði í Evrópu og Bandaríkj- unum, segja þeir i Heidelberg. Þannig er til dæmis neindar- lækningaaðferðin, sem beitt er í krabbameinsmiðstöðinni, með 14 millj. rafeindavoltum nær tvöfalt sterkari en með — I sambandi við hvers konar bólgur aukast líkurnar á bata með neindargeislunar læknismeðferð? — Hvernig er hægt að flokka niður áhrif hinna einstöku geislunaraðferða? — Eru likur á, að samræmd meðhöndlun með öðrum gerðum geisla eða með lyfjum geti gefið góða raun? Fyrstu sjúklingarnir hafa þegar verið valdir og hafa þeir illkynjaðar bólgur þar, sem erfitt er að komast að þeim. Það, sem mestu réð um valið, var, að læknismeðferð á þess- um sjúklingum mun að öllum líkindum bæta mjög lfðan þeirra almennt. En vissulega verður að vera hægt að stað- binda krabbameinsbólguna mjög vel, þvi að einungis þann- ig er hægt að sannreyna áhrif geislunarinnar. Geislunarlæknar í Heidel- borg eru bjartsýnir um árangur og um, að mikilvæg reynsla og þekking fáist af þessum lækn- ingatilraunum. Starfsbræður þeirra i Hammersmith sjúkra- húsinu í London fullyrða, að enda þótt ekki verði hægt að uppræta vissar bólgur á háu stigi, þá sé mjög hægt að bæta líðan sjúklinganna, draga muni verulega úr sársauka og bólgur að minnsta kosti halda undan, hversu langt sem það verður. í!r „Dit’ Zeif*.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.