Morgunblaðið - 26.02.1977, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR '1977
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingasjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson
Þorbjörn Guðmundsson.
Bjorn Jóhannsson.
Arni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480
Askriftargjald 1 100.00 kr á mánuði innanlands.
í lausasolu 60.00 kr. eintakið.
Aundanförnum vik-
um hefur baráttan
fyrir auknum mann-
réttindum í hinum
sósíalísku ríkjum Austur-
Evrópu komizt á nýtt stig
og fengió aukinn styrk
vegna þeirrar forystu sem
hinn nýi forseti Banda-
ríkjanna, Jimmy Carter,
hefur tekið í málum and-
ófsmanna austur þar.
Glæsilegasta dæmið um
þessa hugsjónabaráttu
Carters er bréf það, sem
hann sendi helzta leiðtoga
andófsmanna í Sovét-
ríkjunum fyrir skömmu,
Andrei Sakharov. Aðrar
stuðningsyfirlýsingar
Bandaríkjaforseta sjálfs og
einstakra ráóherra í ríkis-
stjórn hans, svo og hörð
viðbrögð hans við brottvís-
un bandarísks fréttamanns
frá Moskvu sýna að nú er
tekinn við völdum í Banda-
ríkjunum maður, sem er
tilbúinn til að láta hug-
sjónir sitja í fyrirrúmi.
Fram til þessa hefur
stuðningur við mann-
réttindabaráttuna í
Austur-Evrópu fyrst og
fremst komið frá
fjölmiðlum, listamönnum
og félagasamtökum á
Vesturlöndum. Hlutur
stjórnmálamanna í valda-
aóstöðu hefur verið þar
miklu minni og má þó ekki
gleyma því að stjórnmála-
mennirnir sömdu um það
ákvæði og orðalag
Helsinkisáttmálans, sem
nú reynist adnófsmönnum
fyrir austan járntjald
einna mestur styrkur í bar-
áttunni við einræðisstjórn-
irnar þar. En yfirleitt
hefur afstaða vestrænna
stjórnmálaforingja verið
hin sama og fram kom hjá
Frakklandsforseta á dög-
unum, þegar hann neitaói
að hitta sovézka andófs-
manninn Amalrik að máli,
bersýnilega til þess að
mógða ekki Sovétstjórnina,
og sú sem fram kom hjá
Trudeau, forsætisráðherra
Kanada fyrir nokkrum
dögum, þegar hann hvatti
Carter forseta til þess að
fara varlega í sakirnar og
vinna fremur að málstað
andófsmanna bak við tjöld-
in en opinberlega. Enn er í
minnum höfð afstaða
Fords, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseta, þegar hann
neitaði að taka á móti
mesta leiðtoga andófs-
hreyfingarinnar, Alex-
ander Solzhenitsyn, á
síðastliðnu ári og telur það
nú einhver mestu mistök
embættisferils síns.
Frumkvæði Carters
hefur leitt til þess, að staða
andófsmanna hefur
styrktzt stórlega og þar
kemur einnig til margefld
barátta þeirra í Sovét-
ríkjunum, Tékkóslóvakíu,
Póllandi, Austur-
Þýzkalandi og jafnvel
Rúmeníu á undanförnum
vikum og mánuðum. And-
ófshreyfingin hefur ber-
sýnilega mikla breidd og
hefur fengið á sig nýjan
svip og hún er nú orðin svo
öflug, að stjórnvöld í
hinum sósíalísku einræðis-
ríkjum ráða í raun ekki við
hana og vita ekki, hvernig
þau eigi að bregðast við.
Stuðningur Carters við
þessa mannréttindabar-
áttu er einnig fagnaðarefni
af öðrum ástæðum. Fyrir
rúmlega einum og hálfum
áratug, þegar John F.
Kennedy kom til valda í
Bandaríkjunum, blés hann
slíkum hugsjónaeldi í
brjóst æskufólks um víða
veröld, að það fór ekki á
milli mála, að Bandaríkin
voru ekki aðeins mesta
stórveldi í heimi heldur og
einnig forysturiki í bar-
áttunni fyrir lýðræði og
frelsi öllum þjóðum til
handa.
Lengi mun i minnum
höfð ræða sú sem þessi
Bandaríkjaforseti flutti í
Berlin eftir að múrinn
hafði verió reistur þar, en
sú ræða var táknræn fyrir
hugsjónabaráttu Banda-
ríkjanna á þeim tima.
Síðan hallaói mjög undan
fæti, hugsjónaeldurinn
virtist hverfa úr forystu-
sveit Bandaríkjanna og
þau fengu á sig svip hvers
annars stórveldis, sem
beitti hervaldi hingað og
þangað um heiminn, oft að
því er virtist til þess að
halda fámennum her-
foringjaklíkum við völd. í
meira en áratug hefur
enginn sá tónn borizt út
um heimsbyggðina frá
Washington, sem benti til
þess, að Bandaríkjamenn
væru sér meðvitandi um
það sérstaka hlutverk, sem
þeir hafa sem forystuþjóð
lýðræöisins í heiminum.
En nú hefur þessi tónn
heyrzt á ný. Nú sitja hug-
sjónir lýðræðis og frelsis
aftur í fyrirrúmi í banda-
rískri utanrikisstefnu. Nú
hefur bandarískur forseti á
ný tekið forystu og frum-
kvæði í baráttu fyrir
auknum mannréttindum
um allan heim, fyrir lýð-
ræði og frelsi öllum
þjóðum til handa. Hið
lýðræðislega stjórnskipu-
lag hefur verið á undan-
haldi síðasta áratuginn, en
nú bendir allt til þess, að
vörn hafi verið snúið í sókn
og ef duglega verður tekið
til hendi eru engin tak-
mörk fyrir því, sem sam-
staða lýðræðisríkjanna á
Vesturlöndum og andófs-
manna austan járntjalds
getur fengið áorkað.
Hugsjónir lýdrædis
og frelsis í sókn á ný
Jón H. Þorbergsson:
Fyrirspögn þessaar stuttu greinar
minnar er aöeins eitt orð Orðin í
málinu hafa ólíka merkingu, bæði
fjölbreytta og fábreytta, góða og
vonda o.s.frv. Þetta ef gott orð, sem
markar hugsjón, takmark, úrlausn,
líðan fólks heilla þjóða, og segir til
um merkingu þeirra Orðið er frá
Guði komið, eins og allt annéð gott
okkur til handa Blessunar orðin,
sem Móse fékk að heyra frá Guði og
hljóða um það hvernig ísraelsmenn
áttu að biðja Guð. enda á þessari
setningu. ..Jave upplyfti augliti yfir
þig og gefi þér frið' (IV Mós 26)
Jesús sagði: „Frið læt ég eftir hjá
yður, minn frið gef ég yður. Ekki gef
ég yður eins og heimurinn gefur,
hjarta yðar skelfist eigi né hræðist'
(Jóh 14 27)
guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Messu þesssari við setningu yfir-
standandi Alþingis var útvarpað
Séra Gunnar Gíslason prófastur pré-
dikaði Ræða hans var mjög góð
Hann hvatti mjög til friðsamlegs og
kirkjulegs samstarfs alþingismanna
um þjóðmálin og öll störf Alþingis.
Svo sá maður það í fréttum, að
þingmenn kommúnista hefðu ekki
sótt þessa þingmessu Þeir eru ekki
liðsmenn í helsta sjálfstæðismáli
þjóðarinnar og ættu því ekki að eiga
sæti á Alþingi Þessir menn eiga
bágt Kirkja Krists og trúað fólk þarf
að hjálpa þeim Þeir þurfa að taka
það með í reikninginn hvernig fer
fyrir því fólki, sem upplýst er í
fagnaðarerindi Guðs í kirkjunni, en
landi framsókn í þessu merkasta
máli allra tíma. Það lýsir sér í trú-
boði innanlands og erlendis, vax-
andi starfsemi í líknarmálum og
auknu starfi meðal æskufólks.
Margt fleira mætti nefna, sem miðar
í sömu átt. Guð gefi því öllu vöxt og
viðgang og almenn vakningu í kirkju
Krists og málefnum hennar! Því tak-
marki þarf þjóðin að ná Það þarf að
verða að sterkri hugsjón, sem hrífur
með sér fjöldann af landslýðnum. Þá
þarf að koma unga fólkinu og skóla-
lýðnum betur í gang í málinu
Þýðingarmesta framfaramál þjóð-
arinnar er almenn vakning í kirkju
Krists og í orði Guðs. Þá ætti þjóðin
létt með úrlausn vandamálanna Þá
losnaði þjóðin við ófrið, við heið-
ingjana, við hina hálf-kristnu. Einnig
við þá, sem hafa í frammi sviksemi
við skyldustörfin, við ofdrykkjuna og
Fridur
Heimurinn bætir oft einum staf
framan við þetta merkilega orð Þá
er hljóðan þess ófriður Ófriður er
skaðvaldur kristinni trú og siðgæði
Þar sem hann ríkir fyllist lif fólksins
af illverkum og stöðugri óvissu og
hræðslu
Ég tel kristnítökuna á Alþingi árið
1000 merkasta viðburð i sögu ís-
lenzku þjóðarinnar Trúin á almátt-
ugan Guð og frelsarann Jesúm Krist
hefur verkað á þjóðina síðan, og allt
fram á þennan dag Þorgeir á Ljósa-
vatni skíldi orðið fríður. Kristin trú
er okkar litlu þjóð aðal stjálfstæðis-
málið Samtök fólks um kirkju Krists
eru fremst allra samtaka þess Kirkju
Krists fylgja öll heimsins mannrétt-
indi og allar mannlegar dyggðir:
Friður, kærleikur. áhugi til góð-
verka, litillæti, trúmennska, þörf
bænarinnar til Guðs, sá sannleikur,
sem jafnan sigrar að lokum og m fl
Öll þurfum við að standa sem einn
maður um þetta okkar merkilegasta
og dýrmætasa mál
Kirkja Krists getur gert okkur
sterka þjóð og öðrum þjóðum til
fyrirmyndar. þótt fámenn séum Og
það er okkar eina leið, ef við rækjum
hana nógu vel Þvi verður ekki með
sanni neitað. að margt er fyrir
kirkjuna gert hér á landi. en margt
ber að athuga i þvi sambandi. svo
vel megi vera
Sá góði háttur er hafður hér á við
setningu Alþingis. að áður fer fram
hefur það að engu, og jafnvel vinnur
á móti því
Þegar mgður nokkur spurði Krist
að þvi, hvað gott hann ætti að gera,
til þess að eignast eilift lif, svaraði
Kristur: „Ef þú vilt inn ganga til
lifsins, þá hald boðorðin" (Matt
19 17). Þetta svar þarf mikillar at-
hugunar við Hér á landi er t d 6
boðorðið mjög brotið Margt er
óskilgetinna barna hér á landi Mik-
ið er hér um hjónaskilnaði. Þetta
veikir þjóðina og er ekki hjá sann-
kristnu fólki Það hefur verið athug-
að i Bandarikjunum að trúað fólk —
kristið fólk — er heilsubetra og
langlifara en hið vantrúaða Það seg-
ir sina sögu
Þegar lögvitrmgur Fariseanna
spurði Krist. hvert væri hið mikla
boðorð, svaraði hann: „Þú skalt
elska drottin Guð þinn af öllu hjarta
þinu og af allri sálu þinni og af
öllum huga þinum og þú skalt elska
náunga þinn, eins og sjálfan þig Á
þessu hvað hann mikið lif hægt að
byggja
Ég birti þetta til að minna okkur á,
að aldrei er ofleitað þar, sem sann-
leikann má finna
• Eitt sinn er Kristur talaði um
himnaríki i likingamáli, sagði Hann:
„Þess vegna er sérhver fræðimaður,
sem er orðinn lærisveinn himnarik-
is, likur húsbónda, sem ber fram
nýtt og gamalt úr fjársjóði sinum"
(Matt. 13 52) Kristur varar mjög
við lærdómum, sem eru manna boð-
orð Hann segir: „Sérhver jurt, sem
minn himneski faðir hefir ekki
gróðursett, mun upprætt verða"
(Matt 15 13.) Þannig má halda
áfram að vitna til stofnanda kristinn-
ar kirkju.
Ég vil benda á, að þrátt fyrir
vöntun og mistök í kristinhaldi, sem
eykur verkefnin, er ríkjandi i
kirkjunni og hjá kristnu fólki hér á
margt fleira óæskilegt og siðspill-
andi. Grundvöllur vakningarinnar
yrði auðvitað kirkja Krists Þeir sem
trúa í þögn sinni myndu fá málið, og
allir i vakningunni óðlast það, sem
Kristur sagði við Mörtu, þegar Hann
gerði eitt af sinum kraftaverkum og
vakti upp Larsarurs, sem var dáinn
Marta sagði að þegar væri komin
nálykt af honum. Þá sagði Kristur:
„Ég er upprisan og lifið, sá sem trúir
á mig mun lifa þótt hann deyi Og
hver sá, sem lifir og trúir á mig,
hann skal aldrei að eilifu deyja"
(Jóh 1 1.25.36).
Þessi orð gilda fyrir alla um alla
tima
Kirkjan hér hefur komið á fót
kristilegum lýðskóla i Skálholti
Hólamenn eru þegar farnir að undir-
búa að koma upp á Hólum í Hjalta
dal kristilegum heimarvistarskóla.
Skólar þessir ættu að verða til hjálp-
ar vakningunni.
Það er fróðlegt að heyra hvað
kirkja Krists og kristið fólk viða um
lönd gerir fyrir þetta málefní, með
kristniboðum, útvarpsstöðvum á
fjölda tungumála og líknarstarfi Þá
má ekki gleyma hjálpinni, sem veitt
er kristnu fólki austan „Járntjalds"
Það er jafnvel farið að hrikta i heið-
indóms kerfinu þar, enda á það
dauðann vísan, eins og allt sem
byggt er á lygi
Atlantshafsbandalagið er stofnað
til þess að vernda friðínn Svipað
má segja um samtök Sameinuðu
þjóðanna
Kristur heilsaði lærisveinum sin-
um með þessum orðum: „Friður sé
með yður "
Ef Kristur gerir ekki vonda menn
að góðum mönnum, er það mönn-
unum að kenna Vondir menn
fremja glæpi þá, sem útrýma þarf
Þeir mundu ekki haldast við, ef á
kæmist almenn trúar- og kristileg
vakning i landinu Kristnin er undir-
staða og uppistaða allra menningar,
allra þjóða Ég vil nota þetta tæki-
færi til að þakka kirkju og öllu
kristnu fólki hér á landi, fyrir allt það
sem vel er gert fyrir þetta aðal-
lifshagsmunamál þjóðarinnar Þá vil
ég þakka Morgunblaðinu fyrir ritn-
ingargreinar, sem birtar eru í Dag-
bók þess. Sömuleiðis fyrir samtöl
við ameriska trúboðann Billy Gra-
ham, sem blaðið birtir við og
við Þetta er alveg sérstætt með
stjórnmálablað og verkar til gæfu
Bæti hér við nokkrum orðum úr
Bibliunni:
„Standið þvi gyrtir sannleika um
lendar yðar og klæddir brynju rétt-
lætisins og skóaðir á fótum með
fúsleik til að flytja fagnaðar boðskap
friðarins og taka ofan á allt þetta
skjöld trúarinnar, sem þér getið
slökkt með öll hin eldlegu skeyti
hins vonda Takið hjálm hjálpræðis-
ins og sverð andans, sem er Guðs
orð " (Ef 6 14—17)
Guð gefi þjóðinni sinn frið, náð
og hjálp. til þess að hún sameini alla
slna góðu krafta til að vinna að
almennri vakningu I orði Guðs og
kirkju Krists Megi vakningin verða
varanleg hjá þjóðinni ævinlega Þá
hefur trúin náð takmarkinu.
Jón H. Þorbergsson
L-axamýri.