Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 1977
29
„Fryst fé” endurlán
að til atvinnuvega
Framhald af bls. 18
inu, sem ekki veður auðvelt að
leysa. Engar skyndiráðstafanir
eða bráðabirgðaráðstafanir til að
bæta úr þessu vandamáli hjá
einni stétt, með því að beita póli-
tískum þrýstingi, sem ekki er
liður í neinni heildarstefnu til að
taka á aðalvandamálinu, leiða til
varanlegra bóta. Það er
sánnfæring mín.
Jón nefndi dæmi um hlutfall
innlánsfjár í bankakerfinu á
föstu verðlagi árisns 1970 til
ársins 1975.
£ 1970: Þá uxu spariinnlán á
föstu verðlagi miðað við árið á
undan um 5% og voru 27% af
vergri þjóðarframleiðslu. Á þvf
ári voru raunvextir þeirra, sem
sparifé áttu. mfnus 8%
Ö 1971: Þá uxu spariinnlán, eins
reiknuð, um 10% og hlutfall
sparifjár af þjóðarframleiðslu var
27%. Raunvextir reyndust mfnus
5%.
• 1972: Vöxtur spariinnlána 1%
Hlutfall sparifjar 25%.
Raunvextir mínus 9%.
0 1973: Þá minnkar sparifé á
föstu verðlagi miðað við árið á
undan um 7%. Hlutfall innlána
22%. Raunvextir mínus 19%
(neikvæðir vextir).
0 1974: Sparifé minnkar um
11% og er aðeins 19% af vergri
þjóðarframleiðslu og neikvæðir
vextir sparifjáreigenda 23 V4.
% 1975: Minnkun sparifjár 8%.
Hlutfall 18%. Raunvextir mínus
18%.
Þá vék Jón að svokölluðu frystu
fé í Seðlabankanum. Þessu fé
hefði f raun öllu verið veitt út til
atvinnuveganna. Hugsunin á bak
við hið „frysta fé“ hafi verið að
tryggja atvinnuvegunum lánsfjár-
magn. Bundið fé i
Seðlabankanum um sl. áramót
hafi numið 15.9 milljörðum
króna. Á sama tíma hafði Seðla-
bankinn endurkeypt framleiðslu-
vixla viðskiptabankanna, sem
þeir hefðu tekið af atvinnu-
vegunum, fyrir rúma 16
milljarða. Þetta fjármagn skiptist
þann veg milli höfuðatvinnu-
veganna: sjávarútvegur 7500
m.kr., landbúnaður 5932 m.kr.,
iðnaður 1861 m.kr. Önnur endur-
kaup námu 718 m.kr. Þetta svo-
kallað bundna fé er því allt í
útlánum.
Ef framkvæma á þá tillögu sem
hér um ræðir, þyrfti að hækka
bindiskyldu í Seðlabanka úr 25%
í a.m.k. 39%. Ég hygg að það sé of
stórt stökk, sem ekki fái staðizt.
Varðandi ummæli Ólafs Þ.
Þórðarsonar, um ísafjörð, held ég
að það skipti þann stað miklu
máli, að sjávarútvegurinn,
iðnaðurinn og nærliggjandi land-
búnaður eigi aðgang að lánsfé, þó
það sé eftir þeirri leið, sem hér
hefur verið um fjallað.
Mfn lokaorð eru að eina raun-
hæfa og skynsamlega leiðin til að
auka sparifjármyndun og leysa
lánsfjárskort f landinu sé að
draga úr verðbólgunni með sam-
átaki þjóðarinnar.
Islenzka krónan
og annar
gjaldmiðill
Úlafur Þ. Þórðarson (F) sagði
síðan efnislega:
Þegar þjóðarklukkan var tekin
niður á Þingvöllum forðum
(tilvitnun í íslandsklukkuna), þá
var ekki fjölmenni til staðar. Og
það er ekki þéttskipað á þing-
bekkjum (umræðan fór fram
síðdegis og hluti þingmanna fjar-
verandi) þegar rætt er um
smækkun gjaldmiðils okkar,
islenzku krónunnar. En Seðla-
bankinn vex i öfugu hlutfalli við
krónuna, bæði að starfsliði og
húsakosti. Mannorði krönunnar
verður ekki bjargað með vaxta-
hækkun. Orðrómur um vaxta-
hækkun vekur ótta um gengis-
lækkun. Hærri vextir lækka
heldur ekki dýrtíðina. Við
kunnum að vera komnir í sjálf-
heldu. E.t.v. verðum við að gefa
íslendingum kost á að eiga spari-
fé sitt í erlendum gjaldeyri, á
þeim vöxtum, sem tiðkast 'heima-
landi hans, svo sparifé sé ekki allt
rifið út í óhófseyðslu, þegar
gengisfellingaróttinn grípur um
sig.
Við ræðum nú um stöðvun verð-
bólgu — en hversu margir hlýða á
þá umræðu hér ? — eða meðal
þjóðarinnar? Sú rödd mætti
berast úr Seðlabankanum, „að
Alþingi íslendinga bæri að starfa
með ábyrgari hluta þjóðarinnar
að því að byggja upp islenzku
krónuna á ný sem gjaldmiðil, en
ég er hræddur um, að það verði
þá lika að liggja ljóst fyrir í
vitund þjóðarinnar, að banka-
kerfið ætli sér ekki að hagnýta
verðbólguna sem aðrir, t.d. með
óhóflega dýrum byggingum".
„Það verða ekki réttlátar reglur i
fjármálum þessarar þjóðar fyrr
en það er tryggt, að þeir, sem
leggja sparifé á banka, fái í það
minnsta jafnverðmæta peninga út
þaðan aftur. Það er hverjum
einum ljóst.“
Ég held þvi fram að tillaga
þessi sé spor í þá átt að stuðla að
meira jafnvægi í íslenzkum
þjóðarbúskap og hamla gegn
óeðlilegri samkeppni um þær fáu
krónur, sem almenningur í
Iandinu leggur til hliðar sem
sparifé.
Auk framangreindra tók Stefán
Jónsson (Abl) þátt í þessari um-
ræðu.
— Ráðast þarf að
rótum vandans
Framhald af bls. 18
góma, að þar er alkunnur fjár-
hagsvandi Stofnlánadeildar og
Veðdeildar, og er raunverulega .
svo komið að Veðdeild Búnaðar-
banka íslands er gjaldþrota.
Þennan vanda er verið að athuga
nú af stjórnskipaðri nefnd, og
held ég að ég megi segja að sú
nefnd möni skila áliti til hæst-
virts IancfSúnaðarráðherra áður
en langur tími líður. í tillögu
þeirrar nefndar verður að þvi
stefnt að gera kleift að frumbýl-
ingar geti hlotið betri og meiri
lánafyrirgreiðslu en verið hefur a
undanförnum árum. Það gerist
vitaskuld best með þvi að auka
jarðakaupalán og gera þau hag-
stæð. Það gerist einnig með þvi að
gera mögulegt að lána til véla-
kaupa frumbýlinga, jafnvel án
þess að um nýjar vélar sé að ræða.
t
Þökkum öllum auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og jarðarför
BJÖRNS
GUÐMUNDSSONAR
Brautarholti
Eiginkona, synir
og tengdadætur,
systir og barnabörn.
+
Við þökkum innilega samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
ELÍNBORGAR KRISTJÁNSDÓTTUR.
Frá Eyrarbakka.
Skeiðarvogí 127, Reykjavik.
Einmg þökkum við heiður, traust og vinsemd við hina látnu lifs og
liðna .
Sigurður Kristjánsson og fjölskylda,
Jóhannes Kristjánsson,
Kristján Sigurbjörn Sigurðsson,
Guðmunda Magnúsdóttir.
Og svo skiptir vitaskuld mjög
miklu máli að takist að auka fyrir
greiðslu til bústgfnskaupa. Fjár-
magn til þeirra lána hefur, eins
og kunnugt er, verið veitt úr Líf-
eyrissjóði bænda, og það er auð-
vitað á valdi stjórnar hans hvern-
ig þau lánakjör eru og hversu
mikið fé verður fáanlegt til þeirra
hluta. En ég held að enda þótt
vandi frumbýlinga sé mikill og nú
sé ástandið þannig að fjármagns-
kostnaður við að setja saman bú
sé svo gífurlegur að megi með
ólíkindum teljast að það sé kleift
ungum og efnalitlum manni án
þess að standa i skjóli einhverra
venslamanna sem veita honum
mikinn stuðning, þá sé sá vandi,
sem bændastéttin á við að etja í
dag, ekki eingöngu bundinn þess-
um mönnum. Sá vandi nær
lengra. Og þó að sú athugun, sem
þessi tillaga fer fram á sé góðra
gjalda verð, þá held ég að við
verðum að ráðast að rótum þessa
vanda alfarið og horfast í augu
við það, að við verðum að búa svo
að þessum atvinnuvegi að hann
geti staðist.
Ég skal ekki fara hér út í það að
ræða þýðingu landbúnaðarins fyr-
ir þjóðina. Það er, vona ég, öllum
hér ljóst hversu mikil hún er,
hversu þjóðfélagið byggist allt á
því að framleiðsluatvinnuvegir
gangi, hversu byggð um landið er
því háð að blómlegur Iandbúnað-
ur megi haldast og hversu atvinna
fólksins er þvi háð að framleiðsla
landbúnaðarvara dragist ekki
saman. Ég vonast til þess að allir,
sem hér eru, séu mér sammála um
þetta. Þó að þvi sé híddið á lofti af
einstökum öfgaskriftfnrrtifíi^að ís-
lenzk þjóð væri bættari með því
að stórfækka í bændastétt eða
jafnvel leggja landbúnaðinn nið-
ur, þá álít ég að það muni leið til
hruns okkar þjóðfélags. í annan
stað held ég að sú fyrirgreiðsla,
sem hið opinbera hér á landi veit-
ir bændastéttinni sé sízt meiri en
gert er i flestum eða öllum okkar
nágrannalöndum. Þrátt fyrir það
hefur bændastéttin skilað mjög
mikilli framleiðsluaukningu og
mikilli framleiðni fyrir þjóðarbú-
ið. Þvi tel ég að íslenzk bænda-
stétt geti borið höfuðið hátt. Og
þó verið sé að finna að því t.d. að
greiddar séu útflutningsbætur
sem verða kunna á þessu ári i
kringum 2 milljarða, þá er ég ekki
í neinum vafa um að það hefur
ekki vafist fyrir hæstv. iandbún-
aðarráðherra að sanna, að það sé
þjóðinni til hags og jafnvel að það
sé ríkissjóði til hags. Þess vegna
vil ég aðeins ljúka þessum orðum
með þvi, að segja að það ér mín
skoðun að við séum að efla okkar
þjóðfélag, við séum að styrkja
fjárhagsstöðu þjóðarinnar og
treysta byggð um allt ísland með
því að gera vel við landbúnaðinn
svo að hann megi blómgast á kom-
andi tið.
— Það sýndi sig
Framhald af bls 11
Stefán er nú að nálgast 70 ára
aldurinn og við spurðum hann hvort
hann hygði á eitthvað sérstakt í
tilefni þess: „Mér finnst algjorlega
óviðunandi að sýna ekki á stórum
stöðum þegar sérstakt tilefni er. Það
var t.d. ægilegt að þurfa að keyra
helminginn af myndunum til baka
héðan frá Mokka af því að þessi
ágæti og skemmtilegi staður gerir
ekki ráð fyrir stórsýningum. Ég hef
lika verið óvenjulega duglegur i
vetur við að negla utan um mynd-
irnar ramma og gera þær klárar til
sýningar. Nú svo er ekki nema rúmt
ár þar til ég verð 70 ára gamall og þá
vona&t ég til þess að fá að sýna á
Kjarvalsstöðum. Það kæmi mér ekki
á óvart að þeir leyfðu mér að sýna
þar þegar ég verð 70 ára. Þá verð ég
búinn að mála i 65 ár, þvi ég byrjaði
hjá Ásgrimi 5 ára gamall er ég var
fylgdarmaður hans. Þá málaði ég
vatnslitamyndir og það sýndi sig
skjótt hvað upplagið var magnað."
— Afmæli
Guðmundur
Framhald af bls. 25
legum trúnaðarstörfum I þágu
samferðamannanna. Þeir sveit-
ungarnir, Guðmundur og Pétur
heitinn Ottesen, alþingismaður,
voru miklir og traustir vinir og
unnu í áratugi saman að margs
konar velferðar- og framfaramál-
um fyrir sveitunga sína og sam-
ferðamenn.
Guðmundur hefur átt sæti í
hreppsnefnd Innri-
Akraneshrepps i nærri hálfa öld,
eða allt frá árinu 1929 að undan
skildu einu ári. Oddviti sveitar-
innar var hann í 23 ár. Þá hefur
hann verið formaður búnaðarfél-
ags sveitarinnar og átt sæti í
stjórn Búnaðarsambands Borgar-
fjarðar. Hann á sæti i sýslunefnd
Borgarfjarðarsýslu og er einn af
deildarstjórum Sláturfélags
Suðurlands. Guðmundur var einn
af stofnendum Samvinnufélags
Hvalfjarðar og átti sæti í fyrstu
stjórn þess. Hann átti lengi sæti i
sóknarnefnd Innra-Hólmskirkju,
hefur verið hringjari kirkjunnar
um langt árabil og er nú einnig
meðhjálpari, eftir að Þorgrimur
bróðir hans lét af þvi starfi á
síðast liðnu ári. Fleiri trúnaðar-
störf hafa verið falin forsjá Guð-
mundar, sem hér verða ekki upp
talin. Öllum þessum störfum hef-
ur hann gegnt af mikilli trú-
mennsku og árvekni, áhuga og
alúð. Alls staðar hefur munað
mikið um hann. Hann er athugull
og úrræðagóður, sjálfstæður i
skoðunum og getur verið ákveð-
inn og fastur fyrir, ef þvi er að
skipta, en drenglyndi hans, rétt-
sýni og góðvild geta allir treyst.
Guðmundur er prýðilega vel
gefinn, stálminnugur og fjölfróð-
ur, einkum um allt, er lýtur að
ættfræði og þjóðlegum fróðleik.
Hann býr yfir mikilli þekkingu f
þeim efnum, les mikið og er unn-
andi þjóðlegrar menningar og
menningararfs. Hann er skemmti-
legur og fræðandi i viðræðum,
glaður í viðmóti og gæddur góðri
kimnigáfu.
Guðmundur á Innra-Hólmi hef-
ur verið gæfumaður i lffinu.
Mesta gæfa lífs hans er eiginkon-
an og börnin. Kona hans er
Jónína Sigurrós Gunnarsdóttir
frá Másstöðum, hin ágætasta kona
og myndarhúsmóðir, hæglát og
traust. Hún verður 65 ára hinn 5.
marz n.k. Þau hjónin giftust hinri
6. júní árið 1933. Þau eiga sex
börn, sem öll eru ágætlega gefin
og hið bezta fólk. Börn þeirra eru:
1. Jón Auðunn, bóndi á Kollslæk í
Hálsasveit, kvæntur Elsu Engil-
bertsdóttur úr Reykjavik, 2. Jó-
hanna Kristfn, hjúkrunarkona i
Arnarholti á Kjalarnesi, gift Haf-
steini MSgriússyni frá Akranesi.
3. Sigurjón, bóndi á Kirkjubóli,
kvæntur Kristínu Marísdóttur úr
Reykjavík, 4. Þorvaldur Thor-
grímsen, búfræðikandidat, bóndi
á Guðrúnarstöðum i Vatnsdal,
kvæntur Guðrúnu Bjarnadóttur
frá Hafnarfirði. 5. Ragnheiður,
gift Jóni Hjálmarssyni, vélstjóra.
Og eru þau búsett á Ásfelli í
Innri-Akraneshreppi, 6. Guðrún,
gift Arnþóri Ingibergssyni húsa-
smið, úr Reykjavík. Þau eru bú-
sett á Akranesi.
Heimili þeirra Jónínu og Guð-
mundar á Innra-Hólmi er mikið
myndarheimili og rausnargarður.
Þar rikir gestrisni og góðvild,
samheldni og samhugur, trú-
rækni og þjóðleg menning. Þau
hjónin láta sér mjög annt um
kirkjuna og sýna henni i hvívetna
ræktarsemi, kærleika og fórnfýsi.
Talandi tákn um það er skirnar-
fonturinn, hinn fegursti gripur,
er þau gáfu kirkjunni á öndverð-
um þessum vetri til minningar
um foreldra sina. Var hann vigð-
ur við hátfðlega athöfn i
kirkjunni sunnudaginn 21. nóv-
ember s.l. Og við það tækifæri var
hið yngsta af sautján barnabörn-
um þeirra skirt.
Fyrir alla ræktarsemi, góðvild
og fórnfýsi þeirra hjóna í garð
kirkjunnar er mér bæði ljúft og
skylt að þakka á þessum degi. Við
hjónin þökkum þeim fyrir góð
kynni, hlýhug og vinsemd í okkar
garð siðustu árin. Við færum af-
mælisbarninu, húsmóðurinni og
fjölskyldunni allri innilegustu
hamingju- og blessunaróskir á
þessum merkisdegi og við biðjum
þess, að sveitin og kirkjan, Guð og
gróðurmoldin fái enn um langt
skeið að njóta starfskrafta, hæfi-
leika og þjónustu þessa bænda-
höfðingja og heiðursmanns, sem
er sjötugur í dag. —
Jón Einarsson, Saurbæ.
BORGARMALA-
KYNNING
VARÐAR 1977
febrúar -marz -apríl.
HEILBRIGÐISMAL,
laugardaginn 26. febrúar
kl. 14:00.
Kynning Heilbrigðismála verður laugardaginn 26. febrúar kl.
14 i Valhöll Bolhoti 7. Þar mun Páll Gislason, formaður
heilbrigðismálaráðs Reykjavikur flytja stutta yfirlitsræðu, en
auk hans verða Úlfar Þórðarson læknir og Skúli Johnsen
borgarlæknir viðstaddir og munu þeir svara fyrirspurnum.
Farið verður i skoðunar* og kynnisferð í nokkrar stofnanir
borgarinnar á sviði heilbrigðismála.
Ollum borgarbúum boöin þátttaka.