Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 36

Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUOARDAOUR 26. FEBRUAR 1977 KAW7NU \\ r’fe LTtSií: - GRANI göslari Þi-lla cr hin ramn eruk'na ðsla-rta Ij 1 þess a<) éjj ha-lli a<) reykja. — Ég finn það, elskan min, að ég er aðeins smávala á strönd lífs þfns. — Ó, haltu áfram, þú getur orðið með timanum dálftill klettur. II) að er þella'.’ — l.i ani giislari á stökkpallinum! Tónskáldið og pfanósnill- ingurinn Rachmaninoff, sagði einhvern tfma eftirfarandi sögu: — Þegar ég var smástrákur, lék ég eitt sinn á tónlistakvöldi hjá rússneskum hertoga. Þótt ég sjálfur segi frá, tókst mér mjög sæmilega. Sónatan hefur áhrifamiklar þagnir á nokkrum stöðum og þegar ég hætti leikn- um í eitt skiptið, laut hertoga- frúin, móðurlega að mér, klappaði á öxlina á mér og sagði: — Spilaðu bara eitthvað sem þú kannt elskan mfn. ... að liðha'tlu tíniakaupi og hónus! Miður gott eftirlæti BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson DOBLIÐ er vandmeðfarið vopn og getur verið tvíeggjað. Þegar spilari doblar lokasögn er hann í raun og veru að segja sagnhafa, að spilið liggi ilia. Spilið í dag kom fyrir í riðlakeppni Reykja- vikurmótsins og er þannig: Austur gefur N — S á hættu. Norður S. A73 II. G1043 T. KG1064 L. D Vestur Austur S. DG54 S. 9 H. Á976 II. 852 T. — T. D9832 L. Á983 L. 76542 Suður S. K10862 H. KD T. Á75 L. KGIO í öðru herberginu sögðu spilar- arnir þannig: ®>pii COPIHMHCIS COSPER 7333 Mamma. — Litli bróðir er búinn að læra alveg á ísskápinn! „Virðulegi Velvakandi. Mig langar gjarnan lil þess að fá að minnast aðeins á skólamálin nú á tímum. Þessi stefna sem nú er ríkjandi hefur bæði sínar góðu og slæmu hliðar. Þær góðu eru helzt þær að nemendur og kenn- arar eru meira sem ein heild, heldur en áður var. Nemandinn hefur fengið sinn rétt, og það er að sjálfsögðu ágætt að gefa hon- um frjálsar hendur og láta hann átta sig á þeirri ábyrgð sem hon- um er gefin, sálfræðilega séð. En nemandinn er farinn að misnota rétt sinn heldur betur og kennar- ar loka oftast augunum fyrir því. Skólinn er til að þroska nem- endur andlega og ef til vill nokk- uð likamlega óbeint. Þar, innan veggja skólans, ætti að ríkja sá agi að sýna kennurunum fulla virðingu og sýna að nemendur vilji læra. Sá andi sem nú ríkir í íslenzk- um skólamálum er gjörsamlega fyrir neðan allar hellur. Ærsl og svívirðingar eru keyrð úr hófi fram. Þó ættu skólar ekki að vera svo þvingandi sem hér áður fyrr. Kurteisi þarf ekkí að kosta pen- inga. Það má vel stilla þessu í hóf frá því sem nú er og nemendur hafa án efa mjög gott af því að sækja skóla sem lætur þá skuld- binda sig gagnvart námi og þó aðallega á þann hátt að sýna al- gjöra kurteisi og sterkan aga. Andlegar hugleiðingar eru nauðsyn hverjum manni og því skyldi stuðla að þeim í skólunum ef mögulegt er. Kennarar nú til dags þurfa tvímælalaust að endt urskoða stöðu sína gagnvart bekknum, því nemendur hafa miður gott af þessu eftirlæti sem margir kennarar sýna þeim. Á síðustu árum hefur þessi þróun farið síversnandi. Nemendur sem vilja læra og leggja sig fram við námið fá yfirleitt ekki möguleika á að sýna það í skólanum vegna óláta annars staðar í bekknum. Og það sem verra er, kennarar skipta sér ekki lengur af því. Þetta er þróun í ranga átt. Kennurum ber að halda uppi aga í bekknum. Þeir ættu að líta meira á nemandann sem einstakl- ing heldur en bekkinn í heild. Með þeirri stefnu að líta ætíð á bekkinn í heild verða útundan mörg myrk skot sem ekki fá litið dagsins ljós. Vissulega væri gott ef nemend- ur bættu ráð sitt áður en þeir verða almennt alteknir af þessum ósiðum, því það þarf ekki titring frá mörgum raddböndum til að magnaður kliður komist á í bekknum. Menntamálaráð ætti að endurskoða þetta mál í tíma, því þó að sumum þætti kvalræði og þvingun í þeim aga sem sýna ætti yrði skólinn fljótt alvarlegri og skemmtilegri og öllum til gagns þó gamanið kæmi kannski ekki strax í Ijós. Austur Suður Vestur Norður pass 1 spaði pass 2 tfglar pass 2 grönd pass 3spaðar pass 4 tíglar pass 4 spaðar pass pass dobl pass pass redobl og allir pass Vestur spilaði út laufás og aftur laufi í von um, að hægt væri að stytta blindan i trompinu. En sagnhafi tók slaginn heima. Hon- um leist ekki sem best á spilið og hálfpartinn sá eftir að hafa re- doblað. Það var að vísu ekki alveg útilokað að vinna spilið þó vestur ætti öll trompin fimm en það var mjög ósennilegt. Og eðlilegast var að spila upp á leguna, sem var fyrir hendi. Þegar nían kom frá austri í spaðakónginn var spilið orðið upplagt. Næst svínaði sagn- hafi spaðasjöu blinds og vestur fékk aðeins einn trompslag ásamt ásunum tveim. Það er tiltölulega sjaldan, að rétt er að redobla spil. Og fyrsta skilyrðið er, að spilarinn sé viss um að tala ekki nema einum. Annars er of miklu hætt. Á hinu borðinu varð suður einnig sagnhafi í fjórum spöðum, en þar doblaði vestur ekki. Út kom hjartaás og sagnhafi fór eðli- lega vitlaust í trompið. Hann hafði ekki doblið sér tíl leiðbein- ingar og fór einn niður. ROSIR - KOSSAR - 0G DAUÐI Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi bersýnilega f þeim tilgangi að stöðva þennan orðaf laum. — Forstjórinn er dáinn. Gamii maðurinn varð orðlaus um stund. — Er... er hann dáinn...? Hvað ... hvað? Hvenær? Við hjálpuðumst að við að segja honum að Frederik Malmer hefði verið myrtur og Björn endurtók þolinmóður sömu atriðin þar til Kalli virt- ist loks hafa náð þessu öllu. Þegar ég hafðí kinkað kolli til Björns og lagt af stað heimleið- is heyrði ég enn kveinstafina f Kalla að baki mér. — Æ, Æ, enginn veit sfna ævina fyrr en öll er. Meðan ég gekk nú gegnum skóginn var ég að reyna að gera mér einhverja heiidarmynd af þvf sem gerzt hafði sfðasta klukkutfmann. Ég gerði mér Ijóst að það sem hafðí komið mér mest á óvart var sú uppgötvun að Björn Ud- gren var ekki vitund skotinn f Piu. Hann var hins vegar hrif- inn af Gabrieifu. Og var það þó alltof veikt orð f þvf sam- bandi... Ég velti fyrir mér hvort karlmaður gæti hreiniega orðið bergnuminn af kven- manni... ef hún hefði ekki ein- hvern tfma veitt honum dálitfa uppörvun. Ég hugsaði einnig um samband Björns við Piu. Það var öllum augljóst að hún var yfir sig hrifin af honum. En hvað lá að baki áhuga hans á þessari unglingsstelpu? Ég hafði farið yfir lækinn þegar ég gekk fram á Piu hvar hún sat á stfgnum. Ég gerði ráð fyrir að hún hefði hlammað sér þarna niður til að láta f Ijós andúð sfna á stjórnsemi Gabriellu sem hafði dregið hana brott frá vinum sfnum og fokillt augnaráð hennar og bólgnir vangar hennar sann- færðu mig um að ég hefði á réttu að standa. Það leið drjúg stund áður en ég gat fengið hana til að standa á fætur og verða mér samferða heim. Hún hafði svo rfka þörf til að létta á hjarta sfnu að ekki leið á löngu unz hún kom með alla söguna og ég minntist þá um leið hversu erf itt er að vera sextán ára og vera enn hvorki barn né fullorðin manneskja. — Þe.tta er ógeðslegt af Bellu, ógeðslegt, ógerðslegt... Bara vegna þess að hún er nokkrum árum eldri en ég. Ég sé ekki að hún þurfi að setja sig á háan hest þess vegna! Það er naumast. Hún kemur fram við mig eins og ég sé enn með pela og smekk og bleiu... Og til að kóróna allt þarf hún að auð- mýkja mig að Birni áheyr- andi... Hún kemur Ifka rudda- lega fram við hann, svo að mað- ur skyldi ætla að hann væri eins konar padda en ekki mað- ur. En sfðustu sumur hefur hann svei mér verið fullgóður til að halda henni selskap. Ef afi hefði ekki sagt blákalt nei hefði hún áreiðanlega trúlofast Birni f fyrrahaust þegar hann bað hana að giftast sér. Og enda þótt hún giftist nú ffnni og penni manni og af ofsaættum og ég veit ekki hvað þá er Björn Udgren fullgóður handa mér, þvf að ég er guði sé lof ekki enn orðin skfrmerkilegt yfirstéttar- snobb — enn. Hún nam staðar til að átta sig og hélt sfðan áfram og var nú ögn rólegri: — Eiginlega er alls ekki ííkt Gabriellu að hegða sér svona. Ef ég á að vera heiðarleg er hún alls ekki snobb, enda þótt henni finnist ofsagaman að leika stóru systur, er hún ekkl vön að vera harðstjóri gagnvart mér. Auðvitað er hún miður sfn f dag og við erum sjálfsagt öll dálftið rugluð. En reyndar hef- ur hún ekki bara verið svona f dag, heldur sfðan hún kom heim f vor. Mér þætti fróðlegt að vita hvað amar eiginlega að henni... — Hvað hefur þú lengi verið með Birni Udgren? spurði ég hugsandi. Pia smeygði ermunum á peysunni upp. — Það er ekki fyrr en f sum- ar. Hann hefur aldrei veitt mér neina athygli. En ÉG hef alltaf verið ofsalega hrifin af honum alveg sfðan ég var ellefu tólf ára. Ég spurði enn. — Hvað er hann gamall?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.